Ekki í anda nútímans að draga saman þjónustu við ungmenni hjá Degi í Reykjavík

Margt er undarlegt við stjórnsýslu Dags B. Eggertssonar. Borgarlínan er ekki það eina.  Ég hélt að áherzlan á unglingamenninguna væri að verða sífellt meiri í landinu, miðað við yngri þingmenn, þætti í sjónvarpinu sem minna á skólablöðin í menntaskólunum, yngra listafólk, og ungt fólk áberandi í næstum öllu sem gerist og margt þesslegt.

Síðan kemur þessi ákvörðun, að stytta opnunartíma félagsmiðstöðva sem er harðlega mótmælt. Ennþá ein birtingarmynd af sparnaðaraðgerðum í Reykjavík?

Vigdís Hauksdóttir var flæmd í burtu úr borgarstjórninni í Reykjavík því hún var lögð í einelti einmitt fyrir að gagnrýna óráðsíuna í borginni og skuldasöfnunina.

Hefði ekki verið betra að taka mark á Vigdísi í Miðflokknum og þeim sjálfstæðismönnum sem hafa talað á sama veg?


mbl.is „Algjörlega óskiljanlegt“ hjá Reykjavíkurborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg merkilegt þegar á að "spara", þá ganga ALLAR sparnaðartillögurnar út á að draga saman í ÞJÓNUSTU og þá helst í þjónustu við þá sem minnst mega sín en ALDREI KEMUR TIL ÞESS AÐ DRAGA EIGI SAMAN Í "BÁKNINU" EN ÞAR ERU MESTIR MÖGULEIKAR TIL SPARNAÐARAÐGERÐA.....

Jóhann Elíasson, 7.12.2022 kl. 09:53

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Nákvæmlega Jóhann. Millistjórnendur, og eitthvað starf sem var búið til í góðæri. Eins og venjulega bitnar þetta á þeim verst settu og láglaunuðu. Þó á Samfylkingin að heita talsmaður þess hóps, og Dagur segist gera sitt bezta. Kannski Reykvíkingar kjósi loks aðra borgarstjórn næst.

Ingólfur Sigurðsson, 7.12.2022 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 64
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 504
  • Frá upphafi: 106258

Annað

  • Innlit í dag: 50
  • Innlit sl. viku: 379
  • Gestir í dag: 42
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband