Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2020

Andrúmsloft jafnaðarstefnu

Trump Bandaríkjaforseti er í verulega erfiðri stöðu, eins og flestir eða allir þjóðaleiðtogar á þessum tímum, spurningin snýst alltaf um hvort á að setja heilsu þegnanna í forgang eða efnahaginn. Það hefur nú sannazt margsinnis að afneitun á vandanum hefur reynzt hættulegust, snemma eða seint í svona ferli, en íslenzk stjórnvöld hafa staðið sig býsna vel ennþá, þótt langt sé í land áður en hægt sé telja að hættan sé alveg liðin hjá.

Mér finnst rangt að segja að Trump sé óhæfur stjórnandi, en hann er eins og dæmigerður harðlínukapítalisti, efnahagurinn er honum mjög mikilvægur. Í þessu efni verða hin fylkin að hafa vit fyrir honum og stjórnkerfið í heild, hvað varðar að setja hjól efnahagsins of snemma í gang, þannig að það kosti of mörg mannslíf. Þrátt fyrir að hann sé gloppóttur eins og hann hefur verið frá upphafi má ekki gleyma því að Bandaríkin hafa verið sérlega glæsileg undir hans stjórn, eða fram að þessum dæmalausu krepputímum veirunnar sem enginn veit hvort er tilbúin eða ekki.

Það er að koma betur og betur í ljós að breytingar á ferðalögum, alþjóðahyggju og alþjóðakapítalismanum verða ekki umflúnar. Umhverfismálin höfðu ýtt á þessar breytingar fyrir löngu, en eftir þennan heimsfaraldur verður hægt að búast við að Evrópusambandið sjálft ásamt öðrum stórum hagkerfum skipuleggi sig með öðrum hætti. Það var kominn of mikill hraði á allt, og nauðsynlegt að vinda ofanaf þeirri þróun á ýmsum sviðum.

Síðasta kreppa varð á vakt femínískrar alþjóðahyggju og þessi líka. Það sem hefur verið einkennandi fyrir þessa tíma, síðastliðin 30 ár eða meira er þöggun á ýmsum sviðum, karllæg sjónarmið hafa átt undir högg að sækja, en meðvirknin algjör í femínískum fjölmiðlum sem eru allsráðandi, Djúpríkið. Greinilegt er því að fólk þrjózkast við enn sem fyrr, og afturhvarf til einfaldari tíma eða náttúrunnar eru ekki enn í sjónmáli, nema að litlu leyti.

Það hefur gleymzt í greiningum á orsökum síðustu kreppu að þar var almennt andrúmsloft femínisma og jafnaðarstefnu ríkjandi. Skuldinni var algjörlega skellt á karlmenn , „hvatvísi“ þeirra, „veiðimannasamfélagið“, „feðraveldið“, og þessi töfraorð notuð til að koma Djúpríkiselítunni enn betur til valda með áherzlu á voldugar konur. Við erum enn í sama fasa og 2007 í raun, og ágætis menn sáu það fyrir að sú vegferð yrði ekki vandalaus.

Ef Trump tapar endurkjörinu í haust fær heimsbyggðin að öllum líkindum einhvern forseta sem minnir á Hillary Clinton. Þá minnka völd almennings en alþjóðakommúnisminn herðir tök sín, stórfyrirtækin, og Kína og Evrópa sameinast meira. Ég segi það enn, að ef Evrópusambandið hagnast á þessum heimsfaraldri og Kína, þá hljóta samsæriskenningar ýmsar að styrkjast, og kannski sannast að lokum.


Ófædd börn njóta ekki vafans

Kristilegur kærleikur...

veitist hann bara útlendingum í dag?

Evrópski aðallinn

er kominn niður í drulluna.

Svíþjóð er víti til varnaðar,

sem áður var fyrirmynd,

en er það ekki lengur,

nema niðurávið.

 

Hvað er hryllilegra

en að elska ekki ungviðið

sem vill komast í heiminn?

Mannsins vilji, satanískur.

Þannig sýnir syndin alltaf sitt andlit,

nú eins og þá.

Ófædd börn njóta ekki vafans.

 

Að setja vilja kvenna í hásæti einræðisríkisins

hefur víst alveg eins skaðvænlegar afleiðingar

og að setja annan mannlegan vilja á þann stað.

Þriðja heimsstyrjöldin hefur kostað flest mannslíf

og meiri sársauka en aðrar styrjaldir.

Þriðja heimsstyrjöldin er kynjastríðið,

sem mun örugglega útrýma mannkyninu.

 

Nei, kristilegur kærleikur

yrði víst velkominn,

en ekki útþynntur boðskapur, femínískur

í anda menningarinnar...

ómenningarinnar.

 

Þetta ljóð er frá 2019. Það er nauðsynlegt að hugsa um svona mál sem alltaf verða deilumál, og eru mikilvæg. Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson setti fram svipaðar pælingar einhverntímann í þætti hjá sér, og varð það mér ákveðinn hvati að því að semja þetta ásamt lögunum alræmdu sem Svandís kom í gegn í fyrra.


Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Femínisminn felldi trúna,

feigar kirkjur deyja.

Greyin mörgu, gamlir karlar

í götuna sér fleygja.

(Viðlag)

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

hentar bezt niður að skera?

Varnarlaust kerfið er, vill ekki heyra í þér,

verður þó sökina að bera.

 

Heljar brigði henta mörgum,

hundrað litir skína.

Kerfið rétta, flokkar fínir

fyrir konu mína.

(Viðlag)

 

Loforð eitt, en annað framkvæmd,

eins og reyndin sannar.

Lýðskrumið og löngun þína

landsins móðir bannar.

(Viðlag)

 

Settu á þig góða grímu,

gefðu fleiri loforð.

Hræsnin virkar, hrós og brosið,

heilög Vítis roforð!

(Viðlag)

 

Enginn flokkur efnir loforð,

allir fólkið svíkja.

Eigingirni og eðalhræsni

yfir fólki ríkja.

(Viðlag)

 

Þetta kvæði er frá 2019. Mér þótti það ekki styrkja þjóðina að fækka fólkinu með rýmkun á fóstureyðingalöggjöfinni. Sú breyting verður að ganga til baka, ef vel á að vera. Svo er þetta sígild gagnrýni á niðurskurð. 

 


Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 88
  • Sl. viku: 595
  • Frá upphafi: 106071

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 460
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband