Mikilvægi allra dýra, og að jafnvægi haldist, án aðkomu mannkynsins

Það var frétt um það í gær að selum fari fækkandi í heiminum. Það minnir mig á líffræðitímana í Digranesskóla um 1980 þegar ég var tíu ára, og mörg árin þar í kring. Árni Waag kenndi okkur að þeir væru mikilvægar skepnur, en hann var mikill frömuður verndunar plantna og dýraverndar.

Hann talaði mikið um seli og önnur ofsótt dýr. Eitt af því sem var sérkennandi fyrir hann var að hann tók upp málstað dýra og jurta sem voru í útrýmingarhættu, og talaði jafnvel um útdauðar tegundir og kosti þeirra.

Hann lagði ríka áherzlu á það að selir væru mikilvægur hlekkur í lífkeðjunni, en sumir vildu fækka þeim til að þeir bæru ekki hringorma í fiska.

Hann talaði jafnvel um æsku sína í Færeyjum. Ég fór að semja ljóð um náttúruvernd vegna áhrifa frá þessum merkilega manni, söngtexta.

Til eru kennarar sem líta á kennslu sem hvert annað starf. Árni Waag var af þessari sjaldgæfu tegund kennara, því hann var hugsjónamaður í kennslu sinni og sem líffræðingur.

Hann hafði virkilegar áhyggjur af lífkerfinu og vistkerfinu, og taldi að við, unga kynslóðin ættum að taka ábyrgðina á þessu, því þetta væri okkar framtíð.

Vissulega voru nokkrir sem tóku mark á honum, en langflestum fannst sem ekki væri hægt að axla þá ábyrgð, því aðrir hefðu komið okkur í þessa vondu stöðu í umhverfismálum. En einhversstaðar verður maður að byrja, eins og hann kenndi.


Bloggfærslur 29. apríl 2024

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 635
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 447
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband