Jafnvel þótt frumvarp Jóns Gunnarssonar verði samþykkt má búast við áframhaldandi deilum um þetta, og að sífelldar breytingar verði í málaflokknum

Jafnvel Píratar viðurkenna þörf á að endurskoða þennan málaflokk. Ég er sammála því að nú þykir mér líklegra að þetta verði samþykkt. En framtíðin er óneitanlega að verða enn dystópískari en hún hefur verið. Enn eykur þetta umsvif og stærð ríkisins, sem er andstætt grunnstefnu Sjálfstæðisflokksins.

En til eru þeir framsýnu stjórnmálamenn sem vöruðu við því að þróunin á Íslandi gæti orðið eins og í útlöndum. Ef Frjálslyndi flokkurinn hefði komizt inná þing fyrir hrunið 2008 er ég nokkuð viss um að skárra væri ástandið núna. Þeirra stefna var ekki rasismi heldur þjóðvernd.

Margt í þessu frumvarpi minnir því miður á skáldsöguna og hryllingssöguna 1984 eftir George Orwell. Einnig minnir þetta á það sem margir hafa fjallað um, að vesturlönd séu að færast nær Kína og kínverskum kommúnisma.

Fyrirbyggjandi aðgerðir hefðu verið áhrifaríkastar, ef Ísland hefði getað haldizt áfram saklausa sveitasamfélagið sem það var fyrir nokkrum áratugum. Enn er ekki of seint að fara í þá átt, ef samstaða næst um það.

Því miður eru of margir sem kjósa dystópíska framtíð, að fylgja alþjóðlegri þróun í staðinn fyrir að sérhanna aðstæður hér á landi.

Af hverju fá ekki flokkar eins og Miðflokkurinn, Flokkur fólksins, Íslenzka þjóðfylkingin og Frelsisflokkurinn að njóta þess í auknu fylgi að þar hefur verið varað við ýmsu sem síðar hefur komið á daginn?


mbl.is Bjartsýnn á að frumvarpið verði samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er algjörlega SANNFÆRÐUR um að það var átt við kosningaúrslitin í síðustu kosningum.  Þeir voru bara svo "óheppnir" í Norðvesturkjördæmi að það komst upp um þá.  Menn skulu ekki láta sig dreyma um að þetta hafi ekki verið gert víðar.  Miðflokkurinn fann fyrir miklum og jákvæðum undirtektum, á kosningafundum sínum á öllum sínum kosningafundum en svo var útkoman bara afhroð?  Hvaða innistæða var fyrir stórsigri Framsóknarflokksins?  Mér finnst það afar líklegt að atkvæði Miðflokksins hafi verið fjarlægð úr kjörkössunum og atkvæði merkt Framsókn sett í staðinn.

Því miður held ég að það sé alveg rétt hjá þér að það eigi eftir að verða áframhaldandi hasar í hælisleitendamálunum, ráðamönnum og 2GÓÐA FÓLKINU" er fyrirmunað að læra af reynslu annarra en við höfum dæmi við nefið á okkur,  SEM ER SVÍÞJÓÐ.....

Jóhann Elíasson, 23.11.2022 kl. 14:42

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir góða athugasemd Jóhann. Já, það lítur út fyrir að Íslendingar hafi lært af demókrötum í Bandaríkjunum sem sætta sig ekki við annað en að afgamall Joe Biden sigri Trump, sem ekki er lýðskrumari. 

Segir það sig ekki sjálft að kosningakerfi sem er orðið tölvuvætt er kerfi sem hægt er að eiga við og breyta niðurstöðum? Sagt er að ofurtölvur stjórni alnetinu, og sá sem hefur aðgang að þeim getur breytt ótalmörgu.

Þetta er rétt með að fólk lærir ekki nóg af því sem gerist í Svíþjóð. Þó segir DV frá því í frétt að samkvæmt könnun sem var gerð af fyrirtækinu Prósent sé afstaða landsmanna til flóttamanna að harðna, þannig að landsmenn eru að breytast. Alveg eins og búið var að spá fyrir um, að bæði yrði tekið á móti mörgum og að við fengjum stríð glæpaklíka.

Ingólfur Sigurðsson, 23.11.2022 kl. 15:30

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Lög Jóns munu valda tíðum kærum til mannréttindadómstólsins, held ég.

Ofaná það sé ég ekki betur en þau feli í sér stjórnarskrárbrot.

Það var alltaf hægt að henda hælisleitendum úr landi án þess að stunda stjórnarskrár & mannréttindabrot.

Ásgrímur Hartmannsson, 23.11.2022 kl. 18:31

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ef við værum öll að treysta útlendingastofnun og fólki sem vinnur við þetta væri ekki verið að eyða peninga og fé í málarekstur. Mér finnst vafasamt að íslenzk stjórnvöld sýni meiri mannvonzku en í nágrannalöndunum. 

Sumir finna lífshamingju og tilgang í því að mótmæla öllu. Eins og komið hefur fram hjá stjórnvöldum er ekki hægt að finna að þetta hafi verið nein slík brot. 

Ingólfur Sigurðsson, 23.11.2022 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 46
  • Sl. sólarhring: 50
  • Sl. viku: 605
  • Frá upphafi: 106029

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 481
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband