Ekki nóg að Stefan Löfven hætti, Svíþjóðardemókratar þurfa að fá völd eins og þeim er ætlað

Jafnaðarmannaflokkar eiga í vanda því forystufólkið hefur ekki lært af mistökum. Hugmyndafræðilegt hrun þessara flokka er augljóst í Svíþjóð, Þýzkalandi og hvar sem er. Stefan Löfven hefur mér virzt sú manngerð sem fer áfram á hnefanum í gegnum brimskaflinn og breytir ekki um taktík þótt ástæða sé til þess. Að hann skuli hætta fyrr en hann ætlaði - gefast upp sem sagt, það segir ýmislegt.

 

Þessir þrjózkuþursar í jafnaðarmannaflokkum vilja helzt segja að stefnan sé góð hjá þeim og ekkert að henni - bara skipta út fleira fólki. Samt grunar mig að Stefan Löfven sé farinn að skilja að trúin á sátt og samlyndi og óheftan innflutning flóttamanna sé bull og afglapavæðing kjána. (Þegar kjánar gera sig að enn meiri afglöpum).

 

En á meðan stóri fjöldinn heldur í sína flónsku er barið á minnihlutanum sem segir sannleikann, minnihlutanum sem verður meirihluti, því sá minnihluti fær ekki að ráða og hafa áhrif.

 

Hefði ekki verið skynsamlegra af þeim að leyfa Svíþjóðardemókrötum að stjórna og hafa áhrif, sem sagt lagfæra það sem gagnrýnt var í stað þess að afneita og skrímslavæða þá sem gagnrýndu?


mbl.is Stefan Löfven hættir í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 52
  • Sl. viku: 627
  • Frá upphafi: 106124

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 483
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband