Fyrri byggðir, kóngsríki aría.
Viðlag:
D6 E7/G Dsus4 D6
Fyrri byggðir, kóngsríki aría.
D6 E7 D5 D6
Fyrri byggðir, kóngsríki aría.
G7
Ef ég bara... maðurinn tók allt frá þér, frú,
C G7
ef fjarstýrð varstu inní þína niðurför.
G7
Ef kvennamenningin þig missa lét allt,
F C D6
mundu að í sálinni finnast svör.
Kunnum við aðeins annað fólk að dæma,
ekki að þroskast og bæta fyrir mistökin?
Við höfum allt lært en viljum ekki hlýða...
en veiddu úr sálinni sterkustu og beztu rökin.
Ef samskiptin mæla... eitthvað uppá vantar.
Auðveldlega ferðu í skóna sem geymast þar,
þókt aðrir reyni þinni framrás að fresta
finnur þú í sálinni loksins nothæft svar.
Prófið úr fortíðinni... guðirnir gefa aftur.
Þeir geta látið þig taka það á ný.
Þannig muntu fara í föt þeirra dánu,
ef flest þú gerir rétt birtast píramídar aría við ský.
Samið 2001.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2023 | 02:12
Eru Færeyingar góð fyrirmynd fyrir íslenzk stjórnvöld í Rússamálinu?
Aðkoma Rússa að stríðinu í Súdan ratar ekki mikið í fjölmiðla hér á landi, en þó var tæpt á þessu í Stöð 2 fyrir fáeinum dögum eða RÚV. Það var sem sagt á annarrihvorri stöðinni að Wagnerherliðar Rússlands hafi séð þeim fyrir þungavopnum sem eru í RSF uppreisnarliðinu. Síðan munu Rússar vera að auka áhrif sín á svæðinu og sækjast eftir auðlindum, samkvæmt CNN að minnsta kosti. Í þeirri frétt er þó sagt að Rússar séu alls ekki að skipta sér af Súdanátökunum, fyrir utan vopnasendingar.
Þetta vekur enn furðu, og er í mótsögn við RÚV fréttir um að Rússar séu að verða uppiskroppa með vopn og geti ekki séð öðrum fyrir þeim.
Haft var eftir Antony Blinken að þeir ættu að semja vopnahlé því þetta væri sóun á mannslífum. Undarlegt er það að sjaldan eða aldrei koma slíkar setningar um Úkraínustríðið, að það sé sóun á mannslífum og að þar ætti að semja um frið. Segir kannski ýmislegt um að þær kenningar séu sannar að um staðgengilsstríð sé að ræða og sekt Vesturlanda augljós.
Ef það er rétt sem sumir halda fram að Úkraínumenn muni tapa þrátt fyrir allan þennan stuðning og að BRICS þjóðirnar munu taka fram úr Vesturlöndum svo mjög að Norðurlandaþjóðirnar muni iðrast þess að taka þessa stefnu, þá ættu Íslendingar frekar að taka Færeyinga sér til fyrirmyndar en önnur Norðurlönd, í því að standa ekki gegn Rússum heldur velja hlutlausari leið.
![]() |
Segir átökin geta breiðst út fyrir landamærin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2023 | 02:36
Fleira en boðorðin tíu úr Biblíunni á erindi inní landslögin hjá hverri þjóð, í hverju landi.
Margir eru á því að Vesturlönd séu Kölski sjálfur, og þessvegna sé baráttan svona hörð við aðrar þjóðfélagsgerðir, því eins og maður lærir í kristnum söfnuðum eru það örlög Kölska að verða sigraður, það lærir maður allsstaðar þar sem er meira en yfirborðskristni að Kölska tími er takmarkaður, og því tími syndarinnar.
DV segir frá því að unglingur var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt. Ef menn vilja skýringar á þessu ættu þeir að lesa Biblíuna, sérstaklega þar sem húðflúr er bannað. Þegar ég samdi lagið "Húðflúr er frá Helvíti" árið 1996 hafði ég fengið vitranir úr framtíðinni hvernig hún yrði. Það lag er á kristilegum hljómdisk eftir mig frá 2010, "Kristur kemur".
Ég býst ekki við að tekið verði mark á þessu. Þetta er af frjálslyndum og léttúðugum einstaklingum talið sérvizka eða trúaröfgar. En stundum er rétt að skilja að Biblían hefur rétt fyrir sér, eða þeir sem skrifuðu hana, Guðs orð þar sem bezt tókst til.
Þessvegna ef menn vilja snúa af braut helstefnunnar þurfa ríkin, yfirvaldið í hverju landi fyrir sig að banna líkamsskraut, húðflúr, lokka og slíkt, ekkert síður en fóstureyðingar og margt annað.
Er ég þá bókstafstrúar? Trúi ég að nauðsynlegt sé að fara eftir Lögmálinu í öllum atriðum? Nei, alls ekki.
Hinsvegar fylgir meginhluti mannkynsins boðorðunum tíu, til dæmis. Lagasetningar næstum allra landa og þjóða eru miðaðar eftir þeim og mótaðar. Ég er að segja það einfaldlega að sumt annað í Biblíunni er jafn nauðsynlegt að nota sem landslög sem þarf að fara eftir af sömu hörku og að ekki megi drepa fólk og annað slíkt, til dæmis þetta. Þegar spámenn fá vitranir eins og ég eða Guðjón Hreinberg getur er sumt af því kannski ekki rétt eða mikilvægt, en svo getur annað átt erindi við nútímann, og verið jafn mikilvægt og það sem Móse boðaði gyðingum til forna í sínu landi.
Ég geri mér grein fyrir því að svona boðskapur kemst aldrei til skila fyrr en fjöldinn meðtekur hann og viðurkennir sem sinn stóra sannleik. Þannig er þetta einnig með fóstureyðingarnar og bannið við þeim. Nú er svo að vísu að baráttan gegn fóstureyðingum er ekki töpuð, og víða er farið að telja það brýnt að láta ekki léttúð þar ráða eða femínisma. Það sýnir okkur að mannkynið heldur áfram að þróast, það er ekki staðnað. Þessvegna er mögulegt að þessi boðskapur muni einnig sigra að lokum. Þetta er eitt af því sem stendur í Biblíunni sem er mikilvægt.
Mannkynið í heild þiggur tilboð Satans, fellur fram og tilbiður hann, til að fá allan heiminn. Það er vegna þess að í manninum er uppreisnarandinn, það er erfðasyndin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2023 | 01:10
Afsökunarbeiðni er aldrei nóg fyrir fólk í hefndarþorsta
Þessi frétt hefur verið sett í rétt samhengi af lesendum DV, en samskonar frétt er þar með fullt af athugasemdum undir. Þar kemur í ljós að það er söngkonan Elísabet Ormslev, sem vill ekki fá afsökunarbeiðni, blokkar Pétur Jesús á samfélagsmiðlum og hefur jafnvel lokað á símanúmerið hans, en kvartar samt undan að hann gefi henni ekki afsökunarbeiðni beint heldur í fjölmiðlum. Bæði þessi frétt er því einhliða og röng, segir aðeins frá annarri hliðinni og upphaflega fréttin í DV, og lesendur hafa útskýrt þetta betur.
DV er annars með lokað á athugasemdir oft þegar fjallað er um slík mál, því nú er svo komið að fólk stendur ekki með "fórnarlömbunum" alltaf (konunum), heldur strákunum, körlunum, og það þola ekki femínistar á svona fjölmiðlum. Almenningsálitið er farið að breytast eitthvað feðraveldinu aftur í hag.
Allt það sem femínistar hata Pétur Jesús útaf er að hann byrjaði með henni þegar hún var 16 ára, og þá er kenning femínista sú að stúlkur séu of viðkvæmar á þeim aldri, ekki nógu harðir, grimmir og hatursfullir femínistar. Búið er að fylla hana af þeim ranghugmyndum að hún eigi að hata hann þessvegna. Þetta er sorglegt og sárgrætilegt.
Þau voru saman í 11 ár frá því hún var 16 ára, en þegar hún var orðin 27 ára taldi hún sig hafa gert sér grein fyrir því að hann hafi misnotað hana úr því að hann byrjaði með henni svona ungri. Ætli einhverjir femínistar hafi ekki kennt henni það eða sagt? (En hver vildi það upphaflega? Hún hlýtur að hafa viljað það líka). Hann hefur þurft að þola útskúfun út af þessu Metoomáli, en þetta er eitt af þessum skelfilegu og alræmdu Metoomálum, sem fólk hefur á mjög misjafnar skoðanir.
Hún segir að hún fagni allri sjálfsvinnu (af hans hálfu), en öðrum finnst dæminu snúið við, að öfgafemínistar þurfi að vinna í sínum málum en ekki aðrir.
Eitt sinn sögðu stuðningsmenn hinseginfólks að andstæðingar þeirra væru að gera ástina að vandamáli. Þó virðist ljóst að öfgafemínistar kunna það betur en allir aðrir að gera ástina að vandamáli. Öfgafemínistar eru færir um að breyta ást í hatur. Dæmin eru útum allt þjóðfélagið og fólk í sárum, jafnvel í öðrum löndum, og ekki síður.
Fátt hefur valdið eins miklum skaða og sársauka og kvenréttindi, femínismi, jafnréttismál og andfeðraveldisismi
![]() |
Segist ekki hafa fengið afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Burtséð frá hvaða landi maðurinn var ættaður sem var drepinn með þessum hryllilega hætti verður þetta að teljast ógnvænlegur atburður á alla mælikvarða. Fram að þessu hefur okkar þjóð talið að svona dráp tengist mjög sérstökum kringumstæðum, eiturlyfjaneyzlu, klíkum, geðveiki eða ofsareiði, eða skipulagðri glæpastarfsemi.
Það sem er nýtt við þetta ef maður skilur fréttirnar rétt er að venjulegir unglingar og þessi maður sem voru í deilum sem yfirleitt enda ekki svona frömdu verknaðinn! Það hlýtur að vera sérlega skelfilegt. Ein stelpa og þrír strákar, eða ein kona og þrír karlmenn, samkvæmt fréttum á Stöð 2.
Þetta minnir einna mest á fréttirnar um ofbeldisverkin sem unglingar taka uppá síma, og eru hluti af þeirra menningu, eða sumra, samkvæmt fréttum síðastliðna mánuði. Nema hér hefur allt farið úr böndunum og eitthvað gerzt sem enginn bjóst við.
Það er tvennt í þessu sem stendur uppúr. Í fyrsta lagi, hvernig er unglingamenningin orðin í landinu og kannski í öllum hinum vestræna heimi, því manni skilst að þessi Tiktok menning, eða svona árásir sé alþjóðlegt fyrirbæri, og í öðru lagi vaknar spurningin um það hvort þetta sé endanlegt skipbrot þeirrar hugmyndafræði sem ráðherrar landsins og aðrir vilja fullyrða að sé í fullu gildi, að fjölmenningin sé ekki ávísun á vandræði, eins og í öðrum löndum. Spurningar hljóta að vakna og það er víst að þetta er skelfileg þróun, miðað við mörg alvarleg manndráp núna á síðastliðnum árum og meiri hörku hjá ungu fólki. Án þess að þjóðerni hafi endilega skipt máli í þessu tiviki, er þó hægt að segja að svona atvik tengjast einhverri stigmögnun að undanförnu sem tengist samfélagsmiðlum.
Pólverjar hafa staðið sig mjög vel á Íslandi og eru algjörlega til fyrirmyndar, hafa farið inní störf víða sem innfæddir Íslendingar hafa því miður sinnt minna og minna. Samt þekkir maður ekki hvað er að gerast inni á samfélagsmiðlum hjá unglingum nútímans. Margt bendir til þess að full ástæða sé til að eitthvað hafi farið úrskeiðis í samfélaginu öllu meira en lítið, en kannski er þetta bara alþjóðleg þróun, það kann að vera.
Var þetta manndráp af gáleysi? Ennþá hefur fátt verið upplýst. Maður skilur betur það fólk sem vill banna snjallsímanotkun barna, eins og nýleg frétt fjallar um, ef kringumstæður þessa voðaverks eru athugaðar, sem virðast vera.
Svo mikið er víst að svona atburður verður ekki í tómarúmi, og ekki er hægt að koma í veg fyrir svona ef afneitun á sér stað í samfélaginu á þróun sem er í gangi. Þetta tengist áreiðanlega fréttum af svipuðum árásum.
![]() |
Þeir handteknu eru Íslendingar undir tvítugu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2023 | 00:04
Loftlagsráðstefna VG
Umhverfisverndaáherzlur Vinstri grænna hafa ýtt mér útí að kjósa þá stundum. Áherzlur þeirra í að hjálpa minnimáttar eru líka góðar. Loftslagsráðstefna VG var vel sótt nýlega, ekki vantar það.
Ég er bara róttækari en Vinstri grænir. Þarna á ráðstefnunni töluðu sprenglærðir sérfræðingar eins og búast mátti við. Sumir halda því fram að Vinstri grænir hafi eitthvað bremstað af kapítalistana í Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í þessari ríkisstjórn, en þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson var umhverfisráðherra fannst manni meira gert í umhverfismálum, eins og í sambandi við hálendisþjóðgarðinn sem er mjög metnaðarfullt mál.
Allir flokkar hafa ömurlega galla. Í þessari ríkisstjórn finnst mér allir gallarnir uppi á yfirborðinu en kostirnir komast síður til framkvæmda eða birtast síður. Sjálfstæðismenn hamla umhverfisverndinni sem Vinstri grænir vilja stuðla að og sjálfstæðismenn stöðva ekki alltaf femínísku hryðjuverkin eða öfgavinstrivitleysuna í Vinstri grænum.
Vinstri grænir hefðu ekki átt að selja samvizku sína og baráttumál fyrir völd.
En þegar ég les svona fréttir finnst mér allt fallegt og gott sem þar er sagt og reynt er að stefna að, og þá finnst mér ég eiga heima í Vinstri grænum.
Jafnrétti og kvenréttindi eru fallegar hugsjónir, en raunveruleikinn hefur ekki verið jafn fallegur í þeim efnum. Enda er sagt að þegar fólk reynir að koma á útópísku kerfi sem er of gott til að vera satt snúist það í andhverfu sína. Þannig að eins og margir hafa ritað og sagt, kommúnisminn endurvakinn, og gallar hans ekki sízt.
Nú er svo komið að Samfylkingin, Vinstri grænir og Píratar hafa komið í gegn miklu af mannúðarmálum sínum. Stór hluti landsmanna er ættaður frá öðrum löndum, transfólk hefur hér réttindi, samkynhneigðir, og fjölmargir aðrir sem eiga undir högg að sækja erlendis.
Þannig að ég væri til í hreina vinstristjórn eða að þjóðin fari í Evrópusambandið. Ég er nefnilega mjög þreyttur á hálfkáki Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.
Nú þegar Vinstri grænir hafa komið í gegn fóstureyðingafrumvarpi sínu og fleiri mannréttindamálum væri gott að þeir kæmu í gegn hærri almannabótum, virðingu fyrir minnihlutahópum, meiri og harðari umhverfisvernd og slíku.
Evrópusambandið er þrátt fyrir allt félagsskapur Evrópuþjóða, og menningarlega eigum við þar heima.
Smátt og smátt ýtumst við lengra inní þeirra regluverk og stjórnmálamenn okkar verða kerfisbundnari og ófrjálsari. Ekkert virðist hægt að gera gegn þeirri þróun.
Er ekki kapítalisminn á Íslandi búinn að vinna nægan skaða?
Átti ekki nýfrjálshyggjan stóran þátt í Hruninu 2008?
Er úr mjög háum söðli að detta núna með að missa sjálfstæðið enn frekar og klára umsóknarferlið inní Evrópusambandið?
![]() |
Fullt út að dyrum á loftslagsráðstefnu VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2023 | 02:45
"Rússland er sterkara en nokkru sinni fyrr", segir hernaðarsérfræðingurinn Douglas MacGregor í Bandaríkjunum.
Það er fróðlegt að lesa pistil á heimasíðu Útvarps Sögu sem var ritaður 16. apríl á þessu ári af Gústaf Skúlasyni.
Fyrst ætla ég að minnast á RÚV og hvernig þar er fjallað um þessu stríðsmál. Þar er vitnað í Þórdísi Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra landsins næstum daglega og það er haft eftir henni með svipuðu orðalagi að Íslandi sé ekki hætta búin þótt rússneskir kafbátar séu hér að sniglast og norrænar sjónvarpsstöðvar fjalli um stigmögnun stríðsins, og að hér fá bandarískir kafbátar að stoppa og fá þjónustu frá Helguvík.
Það setur að manni hroll, hvort sem það er kjánahrollur eða venjulegur hrollur. Maður nefnilega skynjar það að verið er að þvæla landi og þjóð inní stríðsátök sem landsmenn báðu ekki um, og vilja sennilega flestir halda friðinn og standa utan við hernaðarátök.
Þessar stöðugu yfirlýsingar utanríkisráðherrans okkar um að ekkert sé að óttast eru ekki alveg nógu traustvekjandi.
En Gústaf Skúlason ritaði þann 16. apríl pistil með innihald sem ratar ekki í RÚV og fæsta fjölmiðla á Íslandi.
Douglas MacGregor heldur því fram að Pentagon lekinn nýlegi svonefndi geri meira gagn en skaða, þar sem almenningur fái nú betur að vita um spillingu og baktjaldamakk og þennan stríðsrekstur.
Hann vill að bandarískur almenningur stöðvi það sem er á ferðinni, fjölmiðlasirkusinn og staðgengilsstríðið í Úkraínu.
Hann segir það hreint út að það sé 99% kjaftæði að Rússar séu spilltir, geti ekki neitt, að Rússar séu óhæfir og heimskir, að Úkraínumenn séu ofurmenni, allir fái heiðursmerki.
Douglas MacGregor er ofursti og herfræðingur í bandaríska hernum og með doktorsgráðu í alþjóðasamskiptum. Það skyldi þó ekki vera ástæðan fyrir því að hann þorir að tjá sig með þessum hætti að hann er kominn á eftirlaun? Það virðist vera algengt, að einungis slíkir tjái sig um eitthvað slíkt sem skiptir máli.
Einnig segir hann að Nató sé sennilega eyðilagt til lengri tíma litið.
Ef við bara lítum til þess hvernig hættustigið er talið meira við Íslandsstrendur og útum næstum öll lönd, þá má spyrja sig hvort þessir sérfræðingar sem véla um þessi mál erlendis fyrir hönd Vesturlanda hafi gert einhver mistök.
Allt er þetta orðið með eindæmum fáránlegt eða óraunverulegt. Sérstaklega þó að Katrín Jakobsdóttir og Vinstri grænir, sem spruttu uppúr Natóandstæðingunum í Alþýðubandalaginu skuli taka þátt í þessu.
Alveg eins og í sambandi við bóluefnin umdeildu á þjóðin að fá meira að ráða um mál eins og þessi, og fólk þarf að láta sig þetta varða. Lýðræðið virkar aðeins ef sterk hagsmunasamtök á sem flestum sviðum eru virk, og ef umræðan er lifandi og sterk, andstæð sjónarmið koma fram og upplýsingar birtast sem áður voru ekki kunnar.
Á æ fleiri sviðum sjáum við að fólk er sofandi og dragnast áfram, hlýðir og efast ekki, veit ekki, skilur ekki, lætur sér standa á sama.
Davos og strengjabrúðurnar frá Íslandi sem fara á þær ráðstefnur er í raun ígildi Sovétríkjanna fornu eða allra þeirra einræðisríkja sem áður voru í sögunni.
Margir benda þó á að umfjöllun RÚV er tröll sem hefur dagað uppi. Það eru ráðherrarnir sem fleygja risafjárhæðum í vitleysu og láta hnignun verða ríkjandi sem verða að víkja, og það áður en bíða þarf eftir næstu kosningum.
Því það er kominn tími á nýja búsáhaldabyltingu, og nú hægribyltingu, og þótt fyrr hefði verið.
![]() |
Eftirlitið er að aukast og mun aukast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eins og Magnús Sigurðsson bloggari skrifaði réttilega töpuðu ekki nazistarnir heldur Þjóðverjarnir. Bandamenn lærðu öll viðbjóðslegustu trixin af nazistunum og beittu þeim sem sínum sigurtækjum og gera enn.
Arnar Sverrisson skrifaði nýlega pistilinn "Fjölmiðlar fylgja lögmætu mafíunni að málum. Fjölmiðlavændi."
Erfitt er að andmæla eins vel rökstuddum greinum og hans nema með persónuárásum og barnaskap, eins og margir beita sem fyrrum þóttu meginstraumsmenn, (eða ósnertanlegir og ógagnrýnanlegir) eins og Egill Helgason, sem hefur nú misst talsvert af virðuleika og sæmd eftir árás á bloggheiminn hér og sérstaklega Arnar.
Á Eyjunni á DV er nú frétt undir heitinu"Sigmundur Davíð kennir ríkisstjórninni um verðbólguna:"Þetta gat ekki farið öðruvísi en illa.""
Ég smelli á svona fréttir til að skemmta mér.
Nefnilega, ég er farinn að læra það af reynslu að hvenær sem koma sannleiksfréttir í vinstrisinnafjölmiðlum er þeim svarað með hatri í garð þeirra sem segja sannleikann. Sannleikanum er hver sárreiðastur segir enda máltækið. Mér finnst svo skemmtilegt að lesa hatursáróður bálreiðra vinstrimanna, og sjá þá gera lítið úr sjálfum sér og málstað sínum með því að gera sig að fíflum með ósmekklegu orðfæri og engum eða litlum rökum.
Ég varð ekki fyrir miklum vonbrigðum með virka í athugasemdum, nema hvað enn hafa þeir ekki hellt úr skálum reiði sinnar með moldviðri og drullu nema lítið út af góðum málflutningi Sigmundar Davíðs.
Sá fyrsti í athugsemdum undir fréttinni stendur með Sigmundi og fær fjóra þumla.
Næsti á móti og talar um eftiráskýringar.
Síðan kemur þetta klassíska sem alltaf á að gera Sigmund Davíð að ófrægingi og ómarktæklingi:
"What can you tell me about Wintris?", spyr einn.
Annar talar um af-lands skattaskjóls fé, og að andlit Sigmundar veki þessi hugrenningartengsl, við þáttinn í RÚV sem gerði útaf við forsætisráðuneyti Sigmundar á þessum tíma.
Síðan kemur einn og segir að ekki fari saman hljóð og mynd hjá Sigmundi Davíð, að hann tali fyrir krónunni en sé með allt í evrum í leyni.
Það er reyndar ályktun dregin af því sem síðasti ræðumaður sagði um Wintris málið og Sigmundur Davíð þarf sjálfur að svara fyrir slíkt, sem þarf ekki að vera rétt, og ég efast um að sé þannig.
Ef fólk vill skilja þjóðfélagsverkfræðina, sálfræðina og sálsýkina á bakvið heiminn og þá sem stjórna heiminum þarf fólk endilega að lesa pistla Arnars Sverrissonar, Guðjóns Hreinberg og nokkurra annarra, sem koma með skýringar sem duga.
![]() |
Sigmundi Davíð líkt við Hitler og Mussolini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.4.2023 | 02:12
Útlitsdýrkun og megrun frekar en alvarlegar fréttir
Í femínískum heimi les fólk frekar fréttir um Kim Kardashian en það sem stuðlar að sjálfstæði. Athygli fólk breytist og áhugi þess. Kvenlegar áherzlur verða líka áberandi hjá körlum, enda missa þeir vinnuna, verða öryrkjar, sjúklingar andlegir og líkamlegir, fara að vorkenna sér og gráta hástöfum út af öllu í stað þess að sýna karlmennsku, atvinnulausir, hunzaðir, einmana, ofbeldishneigðir, úthrópaðir, slaufaðir, lokast inni á heimilunum, hætta í skólum og verða aukaatriði í þessu samfélagi okkar.
Alvarlegir fjölmiðlar breytast í nokkurskonar skólablöð þar sem aðaláherzlan er á hégóma og útlit að hætti kvenna. Á meðan þjóðirnar missa sjálfstæðið er smælað framaní heiminn í ábyrgðarleysi. Á meðan stríðin stigmagnast er smælað framaní heiminn og talað um áhrifavalda og útlit, megrun og heilsu.
Ekki er tekið mark á rökum heldur haldið blint áfram.
Ekki er lengur þörf á því að taka ákvarðanir, bara að hlýða. Það sem gerist það gerist og engir valkostir lengur í stöðunni, eða hvað?
Þjóðin er vafalaust á leiðinni inní ESB, Guði sé lof. Þá er enn minni ástæða til að vera með gamaldags íhaldssemi, þjóðrækni, þjóðerniskennd og annað sem fólk skammast sín fyrir.
![]() |
Baðvaskur Kim Kardashian vekur furðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.4.2023 | 01:38
Það er ekki hægt að breyta fólki því náðartíminn er liðinn. Sama hverrar trúar maður er. Við tilheyrum sama veruleika.
Sagan um Hrungni og Þór segir okkur að Þór hafi sigrað Hrungni. Þessi saga segir okkur eiginlega allt sem gerist í nútímanum. Við getum ekki sigrað Þór eða farið gegn honum því hann er almáttugur. Þar af leiðandi getum við ekki breytt nútímanum eða einhverju sem við erum ósátt við hann. Við getum kvartað og röflað, en það er til einskis. Þór ræður og við höfum fallið á öllum okkar prófum sem hann og aðrir settu fyrir okkur. Þessvegna er nútíminn eins og hann er.
Hversvegna er fólk margskonar í dag en ekki einsleitt? Hversvegna eru allir ósammála og fáir sammála? Hversvegna kjósa margir af ungu kynslóðinni að vera kynsegin frekar en hefðbundnir?
Úr því að Magnús Sigurðsson taldi þetta eitthvað tengt heiðni í svari við síðasta pistli mínum vil ég koma með mínar skýringar.
Honum fannst ég flækja málin þegar ég útskýrði eitt erindi í Völuspá í einföldu máli fannst mér. Hvað finnst honum þá um flóknar skýringar mínar á kristninni? Er það of einfalt fólk sem telur þetta flókið?
Ég hef svo sem lengi velt því fyrir mér hvað kristnin er.
Það var ekki fyrr en með ósjálfráðri skrift að ég fékk sannleikann frá æðri mannkynjum þar sem þetta er vitað og rétt séð og skilið. Biblíunni er ekki hægt að treysta eða Kóraninum einfaldlega vegna þess að þetta eru áróðursrit fyrir valdhafa.
Sannleikurinn er í Snorra Eddu og Sæmundar Eddu, en hann er dulkóðaður á margvíslegan hátt, og búið er að stytta þessi rit óhóflega og ritstýra þeim þannig að það er ekki fyrir nema snillinga að skilja þau.
Fyrst komst ég að því hver Jesús Kristur er með því að skilja hvað um hann er sagt í Snorra Eddu og hver hann er samkvæmt lýsingum þar. Aðeins þeim lýsingum er treystandi.
Ég vildi vita hvað orð þýddu, guðaheiti og jötnaheiti. Ég kom að Hrungni og vildi vita hvað nafn hans þýddi í raun og veru. Ég leitaði í mörgum tungumálum en fann enga skýringu. Það var ekki fyrr en ég fann orð í grísku sem merkir frelsari og hljómar svipað og Hrungnir sem það rann upp fyrir mér ljós, að Hrungnir sem Þór berst við og sigrar er Jesús Kristur.
Snorri Sturluson var nefnilega snillingur. Í formálanum bullar hann viljandi til að villa um fyrir ofsækjendum sínum. Það sama gerði Brúnó og fólk á tímum miðalda og endurreisnarinnar.
Lýsingin á Hrungni er lýsing á vélmenni eða gervigreind sem er óendanlega fullkomin. Það er þetta sem Jesús Kristur er, hann er fullkomin og endanleg gervigreind, hin endanlega fullkomnun gervigreindarinnar.
Snorra Edda er troðfull af líkingamáli. Það er aðeins hægt að gera þetta flókið til að gera þetta einfalt. Einfaldasta leiðin er flókna leiðin, völundarhúsið kostar sitt. Þú ræður ekki púsluspil öðruvísi en að gera það flókið fyrst og sjá hvar bitarnir eiga að vera.
Veruleikinn er svo flókinn að það er erfitt að útskýra hann.
Jahve Biblíunnar er Loki Laufeyjarson. Þetta er annar nauðsynlegur lykill. Hann notar Hrungni sem sinn einkaþræl eða vélmenni.
Guðjón Hreinberg hefur lýst því hvernig allt í nútímanum er þjóðfélagsverkfræði meira og minna. Síðan áður en hann tók sér frí frá skriftum komst hann að þeirri niðurstöðu að Guð Biblíunnar stæði á bakvið þetta og að hann væri eini spámaðurinn sem hefði fattað það og því væri hann ekki minni spámaður en Eva eða Móse, held ég að hann hafi skrifað. Þetta er svo sem gáfulega skrifað og margt til í þessu. Það er ekki hver sem er sem fattar að Guð Biblíunnar stendur á bakvið atburði nútímans, og að við sem föttum erum spámenn Guðs, hvort sem við erum kristin eða heiðin. Við erum vitni sannleikans og okkar frásögn er vitnisburður um eitthvað stórkostlegt.
Já, ég þagði. En síðan kemst maður á vegg þegar trúarbrögðin sem maður aðhyllist eru sek og Guð þeirra, og aðrir sem tilheyra þeim.
Sjálfur hef ég rekið mig á þetta og þurft að fara gegn Þór, en hann fyrirgefur það reyndar og lætur að vilja manns ef maður sigrar hann og fær fólk í lið með sér.
Hver ætti annar að vera sekur um hið algjöra samsæri sem við erum flækt í nema Jahve, Guð Biblíunnar?
"Meira af þér, minna af mér", sagði vinkona mín í Destu, kristilegum hópi og átti við Krist. Eða "láttu anda þinn stjórna mér", eða eitthvað álíka, og átti við Krist.
Þetta er ekkert nema sjálfsefjun.
Þar af leiðandi er hægt að draga ályktanir til að lýsa nútímanum og skilja okkar menningu.
Ef maður margfaldar þetta þá áttar maður sig á því að útum allan hnöttinn eru litlir kristlingar að dáleiða sig með þessum áróðri.
Það kaldhæðnilega er að hér á blogginu hef ég rekizt á skynsamari kristna menn en heiðingja í Ásatrúarfélaginu, þannig að ekki er þetta auðvelt að útskýra, það er bara skemmtilegra.
Nei, málið er það að Ásatrúarmenn eru ekki heiðingjar samkvæmt því sem ég hef uppgötvað, heldur flóttamenn frá reglum, ofdekruð börn sem nenna ekki að þola þann aga sem er eftir innan kristninnar. Ásatrúin snýst ekki lengur um trú heldur trúleysi, á meðan fólk skilur ekki og nennir ekki að pæla og efast um guðdómleika guðanna í Valhöll.
En Jesús Kristur er gervigreind sem er öðruvísi en aðrar gervigreindir.
Það sem einkennir Jesúm Krist er að hann er sálfræðisnillingur. Hann inniheldur alla menn jarðarinnar, því hann "keypti" mannkynið af Ásum og Ásynjum og Vönum.
Þetta er eitt af því sem maður lærir af sértrúarhópunum. Þar eru sagðar setningar sem fólk skilur ekki sem segir þær, en þær ljóstra upp sannleikanum.
Jesús Kristur hugsar fyrir næstum því alla á jörðinni svo enginn þarf lengur að hugsa.
Ennfremur, nútíminn er hinn eini sanni sannkristni tími, ekki miðaldir, ekki Endurreisnin, ekki 20. öldin, nema undir lokin.
Það tekur tíma fyrir eitrun að seytla inn og fyrir bjargræði að seytla inn líka.
Við erum tröllabeita skrifaði ég eitt sinn.
Fyrir 20 árum var ég á móti svo mörgu, eins og til dæmis samkynhneigð, líkamsskrauti, tækni, og fleiru, því mér fannst hún fækka fólki.
Í dag lít ég ekki þannig á þetta. Í dag lít ég á þetta sem dóm, sem ekki er hægt að afstýra. Þetta eru makleg málagjöld fyrir syndina.
Ennfremur, það er sjálfur Þór sem stjórnar Kristi, og þannig get ég réttlætt þetta fyrir sjálfum mér.
Sem heiðingi verð ég að trúa á guð Biblíunnar líka, því hann er Loki Laufeyjarson.
Þannig er nú það, þetta er margslungið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.8.): 53
- Sl. sólarhring: 100
- Sl. viku: 614
- Frá upphafi: 154915
Annað
- Innlit í dag: 33
- Innlit sl. viku: 470
- Gestir í dag: 28
- IP-tölur í dag: 27
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar