Deyjandi íslenzka og menntakerfi

Ég var að horfa á þátt á RÚV um tækni og vísindi. Þar var viðtal við mann, Matthías Má Ólafsson hjá Össuri, og málfar hans er aðeins eitt dæmi af mörgum um afleita íslenzkukunnáttu. Hann sagði "maniddsment atvinnumennsku", dóping og svoleiðis", orðið "alveg" notað á þann hátt að það sé merkingarlaust uppfylliorð, "segja frá sínum reynslum" (reynsla er alltaf eintöluorð), "vörur sem eru breikþrú", osfv.

 

Svo var það Gísli Marteinn og hans skemmtiþáttur, óhófleg slettunotkun ekki einu sinni þýdd, nema einstaka sinnum. Það eru ekki allir unglingar og tvítugt fólk sem ganga svona langt í slettunotkun. Af hverju þarf endilega að taka þetta fólk í viðtöl sem er svona máli farið, eða í spjallþætti? Það er mikið af ungu fólki prýðilega máli farið. Undarlegt að gera það fólk að fyrirmyndum sem er ekki til fyrirmyndar í notkun á íslenzkunni.

 

Svo vil ég minna á það að við eigum íslenzkt orð yfir app, sem er smáforrit. Sumir nota það, en ekki allir.

 

Hvað hefur komið fyrir skólakerfið? Hvers vegna bregðast íslenzkukennarar? Þegar ég var í skóla vorum við öll leiðrétt ef við töluðum rangt mál eða skrifuðum. Er ekkert eftirlit með þessu lengur? Hafa kennararnir gefizt upp í þessu skólakerfi þar sem undanlátssemin hefur sigrað? Til hversu eru þá skólar? Er þá ekki alveg eins hægt að leggja þá niður? Eða er þetta afleiðing af þessu blandaða skólakerfi? Er þá ekki fórnarkostnaðurinn heldur hár?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 588
  • Frá upphafi: 107246

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 455
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband