Endurskoðun á mörgum sviðum

Við erum komin inní um það bil 200 ára virknitímabil á Reykjanesinu. Byggð hefur aldrei verið eins þétt á þessu svæði þegar það hefur gerzt áður. Hvorki geta jarðvísindamenn eða byggingafræðingar fullyrt að útilokað sé að mannskæður jarðskjálfti verði hér þar sem byggðin er þéttust, eða að gos verði mjög nálægt þéttbýli og eiturgufur bani fólki.

Frjósemin var gífurleg á heiðna tímanum og fram eftir öldum, þegar drepsóttir og hungur hjuggu skörð í mannfjöldann einnig. Þá þótti þetta eins og hvert annað bögg, eitt af mörgum, og fleiri nýfædd kríli myndu fylla í skörðin. Nú fæðast ekki nógu mörg börn til að viðhalda mannfjöldanum, því femínistar hafa drepið gredduna og bannað samskipti nema á sínum eitruðu, helvízku forsendum. Nú er svo komið að náttúran er í hópi færri skaðvalda en áður. Það eina í stöðunni er að flytja sig burt af þéttbýlustu svæðunum þar sem gosvirkni og skjálftavirkni er mest.

Vissulega eru húsin sterk, en lagnir geta sprungið og hrynjandi munir geta orðið fólkinu að aldurtila eða brennheitt vatn, lokaðar hurðir og brennandi hús vegna rafmagnsbilana.

Svo er það með eldgosin. Úr því að Grindavík hefur lent í þessu má fullvíst telja að fleiri byggð ból séu í hættu.


mbl.is Yfir 100 látnir eftir jarðskjálfta í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 659
  • Frá upphafi: 108415

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 524
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband