Er það miskunn að senda Úkraínumönnum vopn, til að leyfa þeim að fórna fleiri úkraínskum drengjum?

Pólverjar eru kunnugir Rússum og skiptir miklu um afstöðu þeirra og að þeir hræðist ekki aðeins rússneska fólsku sem augljós er, heldur lymskubrögð Vesturlanda og ómenningarinnar þar.

Nú þykir mér að veðrabrigði í Úkraínustríðinu séu að eiga sér stað. Pólverjar sem hafa verið einir hörðustu stuðningsmenn ógnarstjórnar Úkraínu eru farnir að breyta um stefnu. Vel má vera að ógnarstjórn ríki í Rússlandi, en ekki síður í Úkraínu þar sem kosningar verða ekki fyrren Selenskí hentar og aðeins þeir flokkar sem honum geðjast að séu í boði. Svona eins og Stalín og Hitler og fleiri sómamenn gerðu á sinni tíð. Enda víst nóg af þeim sómapiltum í úkraínska hernum sem dýrka svoleiðis hernaðarlist og ofsaþjóðernisstefnu.

Að deila um úkraínskt korn sé kornið sem fylli þennan mæli er býsna merkilegt. Evrópusambandið vill ráða hvort þvinga eigi úkraínsku korni inná önnur lönd og hvort efnahagur þeirra eigi að bíða af því tjón eða ekki, allt fyrir þá stjórnmálastefnu sem mætir vaxandi hatri og mótmælum á Vesturlöndum sjálfum, það er á ferðinni jafnaðarfasisminn, með öfgafemínismann innanborðs og beturvitahátt um velferð annarra, forræðishyggju og skoðanakúgun. Hver veit nema kornið sem fyllti mælinn sé mengað af eiturefnum úr sprengjunum sem dynja á þeim?

Já, það eru efnahagsmálin sem ráða úrslitum í stríðum eins og í svo mörgum málum. Kemur það nokkrum á óvart?

Fullyrðingar Joseps Bidens um að verði Úkraínu skipt þá gerist það sama fyrir önnur lönd, og að Rússar verði til þess, eru svo ótrúverðugar að jafnvel geltandi og slefandi hvuttar hans í falsfréttasmiðjunni á heimsvísu trúa því varla eða tæplega.

RÚV velur að eyða tíu mínútum í hverjum fréttatíma oft í að sýna eitthvað grimmilegt sem Rússar hafa á samvizkunni. Einnig er þar vinsælt að sýna efni sem stjórnvitringurinn Joe Biden er svo mikil hetja að geta komið útúr sér á óbrenglaðri ensku án þess að mismæla sig. Hvílíkur hetjuskapur!

RÚV sýnir sjaldan þann skaða sem rússneskir hermenn verða fyrir eða ófarir Rússa af margvíslegu tagi í stríðinu, hryðjuverk af hendi Úkraínumanna eða vestrænna aðila, eða hryðjuverkamanna innan Rússlands sjálfs.

Því hefur verið haldið fram að Joe Biden sé sjálfur að véla um það ásamt öðrum á Vesturlöndum hvernig megi skipta Úkraínu á milli Rússa og Vesturlanda, og að slíkt eigi að stuðla að auknum vinsældum hans á næsta ári svo hann verði endurkjörinn aftur sem forseti og nái forskoti á Donald Trump, sem allt gengur útá hjá demókrötum þar vestanhafs núna. Það væri svo sem alveg eftir honum að gefa út yfirlýsingar í heimspressunni að allt slíkt komi frá Rússum, að Vesturlönd hafi nákvæmlega engan áhuga á úkraínsku landi, eða auðævum úkraínskum.

Aðalatriðið í Úkraínustríðinu er að Vesturlönd eru ekki frjáls og verða ekki frjáls fyrren femínisma verður ÚTRÝMT FULLKOMLEGA og öðrum kommúnisma í sauðargærugervi.

Aðalatriðið í Úkraínustríðinu er að þótt rússnesk kristni sé ekki það sem ég aðhyllist helzt eða rússneskt einræði, þá er EKKERT verra en femínismi, þar sem "ástin sjálf er lögzt í dá", eins og segir í Síðasta blóminu sem Bubbi Morthens söng um á safnplötunni Línudans árið 1983.

Þá er skárra að Rússland sigri, en að Vesturlönd deyi innanfrá með femínisma og jafnaðarfasisma. Allt er betra en það.

Joe Biden reynir að hræða fólk með því að Rússar muni ráðast á önnur lönd ef þeir sigra Úkraínu. Ég segi nú bara að engin meiri gæfa væri til fyrir Vesturlönd en að fá miklu, miklu meiri rússnesk áhrif, svolitla skynsemi og íhaldssemi, þótt svolítið einræði fylgi með. Vesturlönd eru hvortsem er svo innfallin og sjálfdauð að lífsmark, jafnvel frá hræðilegu ríki einsog Rússland er þó lífsmark, en ekki femínískur dauði.

Það er svo margt sem sannfærir um að Vesturlönd séu hrunin, þetta með skólana og klámvæðinguna þar er aðeins eitt af mörgu. Siðferðið er komið fullkomlega í ruslið og Satan stjórnar öllu, sérstaklega hjá "góða/einfalda/hlýðna fólkinu" og yfirvöldunum, skólunum, menntakerfinu, kirkjunum, þessu sem er fræðilegt, komið frá Frankfurtskólanum, þjóðfélagsverkfræði sem snýst um að stjórna hugsunum og ekki bara hegðun eða "réttlæti", dómskerfi eða réttu og röngu og hvernig menn skynja það og túlka.

Um leið og fólk á Vesturlöndum rís upp þegar það sér að þetta Úkraínustríð er að fara með efnahaginn á Vesturlöndum í rúst, þá mun skynsemin lifna við aftur, ekki bara þrælslundin gagnvart Metoo, femínisma og öfgajafnaðarstefnum, slíku gjöreyðingarbulli.


mbl.is Pólland hættir að senda vopn til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Raunhæfasti pistill um þessi málefni, sem ég hef lesið......

Jóhann Elíasson, 21.9.2023 kl. 05:26

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir Jóhann. Já, úr því að sumir eyða miklu púðri í að reiðast Rússum og þeim sem hafa samúð með þeim er eins gott að fara ekki í kringum þann heita graut að heimsstyrjöldin þriðja er stríðið á milli kynjanna, femínisminn.

Það að Rússar veki upp svona mikil tilfinningaviðbrögð og reiðiviðbrögð er vegna þess að margir hér á Vesturlöndum vita uppá sig skömmina, að hafa leyft öfgaliði að stjórna of miklu, femínistum, kynjafræðingum. Kynleg þau fræði. Já, fólk reiðist þegar það er reitt sjálfu sér og áttar sig á því að það er sigrað, að óvinaliðið hefur betri málstað að verja en það sjálft, þjóðfélagsgerð sem við áttum áður, kristilega, hefðbundna.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 21.9.2023 kl. 10:16

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Úkraína hóf málssókn gegn Pólverjum fyrir að setja hömlur á innflutning frá sér, svo Pólverjar hóta núna að senda Úkraínu reikning upp á 23 milljarða dollara vegna stríðsaðstoðar sinnar.

Eikkur sagði; glundroði framundan.

Guðjón E. Hreinberg, 21.9.2023 kl. 12:48

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Öll landamæri Evrópskra ríkja, síðan 1919, eru teiknuð af Pentagon mafíunni. Fólk gleymir því iðulega.

Guðjón E. Hreinberg, 21.9.2023 kl. 12:50

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir þetta Guðjón. Já ég tek undir það ófyrirsjáanlegar afleiðingar og kaos. Því miður er þetta svipað ástand og þegar heimsstyrjaldir byrja. Margir með kröfur um landsvæði og fleira.

Takk fyrir innleggið.

Ingólfur Sigurðsson, 21.9.2023 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 100
  • Sl. viku: 579
  • Frá upphafi: 107237

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 450
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband