24.11.2022 | 01:59
Sífelld sút, ljóð 5. september 2015.
Handverk hans,
heimur breytist.
Kína drottnar öllum yfir,
undir klafa það sem lifir.
Náunga innlendum ættum að hjálpa,
óþarfi svo fyrir björg sig að álpa.
Sérhver sál loks þreytist,
sorgar stígur dans.
Afi einn
allt nam laga.
Nú er kínversk næsta bifreið,
nöldur heyrist, kemur svifreið?
Vandamál fara ekki, vargstíminn líður,
verkstæðið merkilegt, upprisan bíður.
Ormar orku naga,
einhver verður seinn.
Sorgin sár,
sízt mun fara.
Mild var sál og hraustur hamur,
heyrðist víða starfsins glamur.
Treysti ég feðgunum, allt var svo augljóst,
auðlegðin fjarri en þó galdravænt, baugljóst.
Trúin... bara... bara...
burt nú flogin ár.
Örlag eitt
ýtir hjóli.
Dvergar smíða, veröld vernda,
víst án þeirra myndi enda.
Heilaga smiðjan og holdið svo jarðar,
hofið og Eden, þeir fyrrleiddu garðar.
Örþreytt, enn á róli,
engu verður breytt.
Minning mær
mun þó dvína.
Sál og líkið selja allir,
sífellt gleymast stærri hallir.
Draumlyndur var ég og vann alltof lítið,
vandamál kæfa þig, nægir ei býtið.
Sál þó vilji sýna,
sorgin færist nær.
Sífelld sút
sál nú tærir.
Hvert skal stefna? - Viljinn víkur!
Verst að ekki þú ert ríkur.
Tilgangslaus sífellt er tilveran harða,
turna þau rífa og minnisins varða.
Efinn manninn ærir,
ekki finnur bút.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 23
- Sl. sólarhring: 41
- Sl. viku: 716
- Frá upphafi: 149377
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 514
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég les oft ljóðin þín Ingólfur, og reyni að gera það í andakt og finnst þau þá yfirleitt góð, -þetta finnst mér sérstaklega gott ljóð.
Magnús Sigurðsson, 24.11.2022 kl. 13:28
Þakka þér kærlega fyrir það Magnús. Ljóðin hef ég lengst verið að dútla við, frá unglingsárum, og sæki í að yrkja þegar maður er að tjá eitthvað sem rökhyggjan nær ekki alveg að útskýra.
Ég hafði strangan kennara, Ingvar Agnarsson afabróður minn, sem var forstjóri í Barðanum og fjölfræðingur, hafði áhuga á öllu mögulegu og heimspekingur líka.
Það sem er sérlega erfitt eins og ljóðagerð er líka áskorun.
Hér á blogginu eru svo margir eins og hann var, sem fannst flest í nútímanum hnignun, og ekki sízt ljóðagerð og menningin almennt.
Hann bar sig saman við klassísku meistarana frá Grikklandi og Evrópu. Hann sagði að ég ætti að reyna að vera fyrirmynd fyrir mína jafnaldra með því að taka upp hefðir þeirra eldri. Ég hef reynt að gera það.
Ingólfur Sigurðsson, 24.11.2022 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.