Af hverju er ekki komið byltingarástand í Evrópu gegn sitjandi ríkisstjórnum?

Í kvöldfréttum RÚV var sagt frá því að í Danmörku og víðar er fólk við hungurmörk vegna stríðsins við Rússa og Pútín, orkuverð hækkar, matarverð hækkar og þetta kemur skiljanlega við fólk útum allan heim en mjög mikið og kannski mest í hinni sameinuðu Evrópu Evrópusambandsins, sem minnir æ meira á Sovétríki kommúnismans þar sem fólk dó úr kulda og hungri um langt árabil og áratugaskeið. Þetta kemur ofaná það sem hefur verið í fréttum núna í marga mánuði að sumir eru við það að krókna úr kulda, og þannig gæti það orðið, eða kannski hefur það gerzt nú þegar. Þetta er Evrópusambandið sem setur sig á háan hest siðferðislega gagnvart Rússum og öðrum. Þetta eru Bandaríkin (Joe Biden sem fordæmir Pútín er andlit þeirra), með gígantíska misskiptingu innbyggða í þjóðfélagsgerðina, og demókratar nú við stjórnvölinn sem þykjast berjast gegn henni.

Þetta eru Bretar, sem hafa gert sig að athægi fyrir óvenju hæfileikalausa og klaufalega stjórnmálamenn á þessu ári og lengur.

Spurningin er: Hversvegna er ekki búið að velta öllum þessum stjórnvöldum úr sessi, sem kalla sig lýðræðislegar, femínískar, alþjóðavæddar?

Ég hef kallað þetta jafnaðarfasisma. Þessi stjórnmálastefna hefur nefnilega næstum því allt kvenkynið einsog það leggur sig í vasanum, vinstrihreyfingin á alþjóðavísu. Það er vegna þess að saga kvenréttindahreyfinganna og rauðsokkuhreyfinganna, sem voru kallaðar súffragettur í mörgum löndum er samofin verkalýðsbaráttu og þar með vinstriöflunum.

Eða hvað? Vinstristefnan er ekki lengur það sem hún var. Áherzlan er ekki lengur á að bæta kjör öryrkja, eldri borgara eða verkalýðsins, heldur er áherzlan á tvennt: Mannréttindi minnihlutahópanna, og líka þeirra sem búa til fleiri minnihlutahópa til að þurfa ekki að vinna fyrir sér, mannréttindi lágstétta erlendis, það er að segja flóttamanna, og sú dyggðaflöggun er afsökunin að allt nema þessi fasismi, það er að segja jafnaðarfasismi sé rasismi, og þó er staðreyndin sú að mjög fáir eru alvöru rasistar, venjuleg íhaldssemi eða efnahagsskynsemi ræður slíkri íhaldssemi oftar hjá fólki.

Afleiðingin er sú að flestir hafa flúið frá vinstriflokkum og miðjuflokkum í löndum sem ruddu brautina fyrir kratismann. Í staðinn sækja margir í öfgaflokka til hægri og vinstri eða náttúruverndarflokka.

Í dag var það einnig í fréttum að öfgahægrimenn reyndu að gera alvöru valdarán í Þýzkalandi, eða það var sagt í fréttunum. Að vísu kom það fram að þeir aðhylltust konungsstjórn sem var við lýði áður en nazisminn fæddist í Þýzkalandi, þannig að enn er verið að rugla hugtökum á svívirðilegan hátt af fréttafólki.

Alltaf er verið með óttastjórnun, upphrópanir, áróðursfréttir og einhverskonar innrætingu, í stað hlutlausra frétta. Sjálft valið á fréttunum er pólitískt og allar áherzlurnar. Síðan er túlkunin mjög sértæk á öllu sem sagt er frá.

En aðalatriðið og það sem maður hlýtur að undrast er þetta: Af hverju láta Evrópumenn þetta yfir sig ganga? Er það dáleiðsla? Er það sefjun? Múgsefjun? Af hverju er ekki allt orðið vitlaust á götunum, morandi í uppreisnum og mótmælum, eins og manni þætti eðlilegt? Er þetta afleiðing af sprautuherferðinni, að þær hafi gert fólk latt og sljótt, hlýðið og hugsanalaust, dáleitt? ("Við fengum hjarðhegðun en ekki hjarðónæmi").

Eða er þetta bara rétt svo að byrja? Á fólk eftir að gera byltingar vegna ástandsins?

Getur venjulegt fólk í Danmörku og víðar látið þessar þjáningar yfir sig ganga með því að segja við sjálft sig að Pútín sé svona vondur einræðisherra og að þetta sé mannréttindamál, að þjást fyrir jafnaðarstefnuna, fjölmenninguna? Geta konur í stórum stíl í þessum löndum sagt við sjálfar sig að kvenréttindin séu í húfi og stöður þeirra í þjóðfélaginu, að ef Úkraína ekki hreki Rússa í burtu muni kvenréttindin tapa á Vesturlöndum í eitt skipti fyrir öll? Ef svo er þá eru þau kvenréttindi að falli komin og munu falla með eða án Pútíns og Rússa.

Þetta er í raun áhugaverð félagsfræðileg tilraun.

Þetta setur líka Búsáhaldabyltinguna í nýtt ljós og Wintrisbyltinguna (ofsóknirnar gegn Sigmundi Davíð). Eins og segir í grein í Kjarnanum:"Wintris málið snérist bara um að fella Sigmund Davíð", (því hann réðst gegn kröfuhöfum bankanna).

Það er næstum því alveg pottþétt og óhrekjanlegt að bæði Búsáhaldabyltingin og Wintrisbyltingin voru ekki byltingar alþýðunnar heldur byltingar eins prósents öfgafyllsta vinstrisins, sem vildi komast til valda í báðum tilfellum. Rétt eins og í rússnesku byltingunni gegn zarnum á sínum tíma og lýst var í Dýrabæ George Orwells urðu byltingarleiðtogarnir spilltir og latir eftir byltingarnar og nákvæm eftirmynd kúgaranna sem þeir börðust gegn. Er ekki fallandi gengi Vinstri grænna ljós sönnun um þetta hvernig sagan endurtekur sig? Það sama gerðist með Samfylkinguna eftir síðasta hrun.

Þetta sama fólk sem lætur ömurleika Úkraínustríðsins bitna á sér þegjandi og hljóðalaust, hvort sem það er statt inni í Úkraínu sjálfri eða í öðrum Evrópulöndum, sem "aðeins" þola orkuskort,  er þetta gott dæmi um það hvernig pólitísk sannfæring getur heilaþvegið fólk og látið það taka á sig kúgun viljandi.

Ég er ekki að neita því að Pútín beitir sömu aðferðum sjálfur. En hann er ekki peð sem auðvelt er að sigra.

Síðan er næstum helmingur kjósenda sem hefur litlar sem engar skoðanir, leyfir bara öllum svona bylgjum að stjórna sér, og sem leyfir æsingafólki til hægri eða vinstri eða á miðjunni að stjórna sér. Hitler gat virkjað þetta fólk og það gat Donald Trump sömuleiðis. Það getur jafnaðarstefnuelítan að einhverju leyti gert nú um stundir, jafnaðarstefnufasistarnir, en þó má segja að ákveðið hrun sé komið í þá fylgispekt, til dæmis á Ítalíu og í Svíþjóð.

RÚV lætur sem næstum ekkert hafi breyzt frá 1980. Hinn æðsti guð er Mammon þar og englarnir hans eru jafnaðarfasistarnir. Nýfrjálshyggjan er þeirra trúboð og alþjóðavæðingin.

Metoohreyfingin fjallar ekki um kynferðisbrot heldur kúgun minnihlutahóps á almenningi, mannkyninu öllu. Það er engin tilviljun að næstum allir prestar Þjóðkirkjunnar sem hafa verið flæmdir úr starfi fyrir þær sakir eru hefðbundnir, íhaldsamir, sem eru á móti ýmsum tízkustraumum nútímans, annaðhvort ómeðvitað eða meðvitað.

Það er heldur engin tilviljun að Weinstein og aðrir sem hafa lent í hakkavélinni tilheyra feðraveldinu að einhverju leyti, duglegum körlum sem hafa staðið saman, og tilheyra menningu eins og var í fyrstu James Bond myndunum, og hefur verið ráðandi eiginlega alla mannkynssöguna. Enda skiptir það ekki máli fyrir þessa ofstækismenn Metoohreyfingarinnar hvað er gert af sér, heldur hver gerði hvað og af hvaða kyni viðkomandi er, í hvaða stöðu og svo framvegis.

Á meðan brennur Róm, ef svo má segja, og heimurinn á í stríði.

Hvað gerist ef elítan kemst upp með þetta?

Hvað gerist ef konur halda áfram að trúa þeim lygum femínista að þetta sé þeim fyrir beztu?

Hvað gerist ef byltingar munu ekki gjörbreyta stjórnmálaásýnd Vesturlanda?

The Great Reset?


mbl.is Castillo steypt af stóli í Perú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mansal á Íslandi?

Enn vakna spurningar um veruna í EES, hvort rétt sé að ganga lengra, alla leiðina í ESB, eða ganga jafnvel úr EES og Schengen.

EES reglurnar um vinnutíma samræmast greinilega ekki íslenzkri vinnumenningu sem hefur lengi verið til og þykir ekki til fyrirmyndar heldur bera vott um vinnuþrælkun, skorpuvinna og erfiðar, slítandi tarnir fram úr öllu hófi.

Þar að auki er greinilegt að réttindi verkamanna sem oftast eru erlendir snerta mjög þetta mál, og mansalshugtakið er oft notað í því sambandi, þegar vinnuaðstæður eru ekki góðar. Kárahnjúkavirkjun varð nokkuð alræmd fyrir að þar voru aðstæður verkamanna ekki góðar. Auk þess var hún mjög umdeild innanlands.

Ég held að þetta sé enn eitt af því sem krefur þjóðina svara um hvort hún vilji vera í EES, ESB, Schengen eða ekki.

Að skrá ekki niður vinnutíma er nokkuð sem þekkist á Íslandi og er mjög algengt, eða var það. Vinir og kunningjar eru fengnir til að hjálpa, lítið eða ekkert borgað og unnið nótt sem dag við verkefni og störf sem ættu að taka lengri tíma til að vel sé farið með fólk.

Spurning hvort ekki þurfi nýtt ráðuneyti fyrir þetta eða nýja eftirlitsstofnun opinbera, þannig að þetta sé tekið alvarlega og heilarsýn yfir málaflokkinn. Nú vantar duglegan mann eins og Steingrím J. Sigfússon, og jafnvel Jóhönnu Sigurðardóttir! Eða að yfirgefa EES og Schengen.


mbl.is Eftirlitsstofnun EFTA aðvarar íslensk stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í anda nútímans að draga saman þjónustu við ungmenni hjá Degi í Reykjavík

Margt er undarlegt við stjórnsýslu Dags B. Eggertssonar. Borgarlínan er ekki það eina.  Ég hélt að áherzlan á unglingamenninguna væri að verða sífellt meiri í landinu, miðað við yngri þingmenn, þætti í sjónvarpinu sem minna á skólablöðin í menntaskólunum, yngra listafólk, og ungt fólk áberandi í næstum öllu sem gerist og margt þesslegt.

Síðan kemur þessi ákvörðun, að stytta opnunartíma félagsmiðstöðva sem er harðlega mótmælt. Ennþá ein birtingarmynd af sparnaðaraðgerðum í Reykjavík?

Vigdís Hauksdóttir var flæmd í burtu úr borgarstjórninni í Reykjavík því hún var lögð í einelti einmitt fyrir að gagnrýna óráðsíuna í borginni og skuldasöfnunina.

Hefði ekki verið betra að taka mark á Vigdísi í Miðflokknum og þeim sjálfstæðismönnum sem hafa talað á sama veg?


mbl.is „Algjörlega óskiljanlegt“ hjá Reykjavíkurborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nákvæm skoðun á sögunni um syndafallið sýnir að femínismi er hluti erfðasyndarinnar, að Adam hlýddi Evu og beit af eplinu. Samanburður við Friggjarblótið sýnir sama boðskap.

Sumir telja að enginn spádómur lýsi nútímanum, menningarhruninu, úrkynjuninni, ómenningu nútímans, en svo er ekki. Aðeins þarf að grafa nógu djúpt og túlka það sem fyrir er.

Lengsta kvæði sem ég hef skrifað með ósjálfráðri skrift er Friggjarblótið, sem ég skrifaði upp frá 2010 til loka 2013. Það er yfir 1000 erindi, hvorki meira né minna. Það er gríðarlegt verk að skrifa þetta upp á tölvu með öllum orðaskýringum.

Oft sat ég í Suburbaninum hans afa á planinu fyrir framan verkstæðið. Þar losnaði ég við öll áreiti umhverfisins og gat stillt mig inn á raddir frá öðrum hnöttum. Algengt var að ég notaði tvo tíma á dag í þetta, um miðjan daginn.

Þetta blót á að fara fram í byrjun febrúar á hverju ári og forða mannkyninu frá því sem er að gerast í nútímanum, að egó kvenna drepi allt og alla. Ég vissi það að sjálfsögðu ekki um hvað kvæðið myndi fjalla og hélt að þetta yrði eitthvað sem nútíminn gæti gleypt við.

Frigg er talin hlýðin og undirgefin eiginkona. Hún er talin táknmynd fyrir kristilega undirgefni gagnvart eiginmanninum. Friggjarblótið dregur upp aðra mynd af henni.

Þar kemur í ljós að hún er af tröllaættum, jafnvel dóttir Óðins. Hún neitar að giftast Óðni og kemur upp veldi, kúgunarríki, þar sem hún verður alheimsdrottning sem traðkar á öllum, og þannig að náttúran sjálf skaðast, frjósemin minnkar og dýrum fækkar, ásamt mönnum, og guðirnir sjálfir fá við ekkert ráðið.

Lýsingarnar eru óhuggulegar margar í þessu kvæði og örvænting heimsins er algjör, því ljóst er að hún verður ekki stöðvuð eða sigruð. Hún er ósigrandi skrímsli, og stundum er það gefið í skyn að hún sé Loki sjálfur í kvenmannsgervi, óvinurinn mesti og djöfullinn skaðvænlegasti í þessari heimsmynd.

Síðan er fjallað um fórnir í mannheimum og annað til að snúa þessu í lag, en það dugar ekki. Loksins í erindunum síðustu númer 1200 eða svo kemur lausnin og hún er ekki útskýrð vel, hún bara kemur.

Þá af einhverjum óskiljanlegum ástæðum gefur hún sig Óðni á vald og þau verða hjón. Framhaldið þekkja allir. Jafnvægi kemst á í heiminum, allt verður eðlilegt á ný. Hægt er að gizka á galdra eða ofbeldi eða vélabrögð af Óðins hálfu, ég man ekki hvernig orðalagið er þarna, en það er óljóst.

 

Það þarf að túlka svona texta. Þetta er ekki bara eitthvað ævintýri eða skáldskapur í mér eða öðrum. Goðsagnir eru sannari en aðrir textar, því þær hafa meitlazt á gríðarlega löngum tíma.

 

Goðsögn er hringur, hringrás náttúrunnar. Hegðun og eigingirni okkar mannanna er eins. Annaðhvort förum við okkur að voða eða okkur er forðað frá því. Það er náttúrulögmál að eigingjarna skrímslið sem skírnin í kristinni trú á að losa börnin við (en gerir ekki lengur), það gerir þetta sem Frigg gerir í kvæðinu, sé það ekki stöðvað.

 

Friggjarblótið lýsir því sem óhjákvæmilega gerist sé ekki eigingirni annars kynsins haldið í skefjum. Feðraveldið byggist ekki á ofbeldi og eigingirni þar sem það er háð því skilyrði að maðurinn hlýði almáttugum guði eða almáttugum guðum og siðfræði einhverskonar trúarbragða.

 

Feðraveldið má útskýra svona: Börnin hlýða konunni, móðurinni. Konan hlýðir karlinum, eða öðrum körlum. Karlar hlýða guði almáttugum eða guðum og gyðjum utan jarðarinnar. Allt samfélagið er fast í skorðum speki og vizku, en ekki stjórnleysis og græðgi.

 

Friggjarblótið fjallar þannig um þessa sígildu félagsfræði, baráttu kynjanna. Það lýsir því hvernig skefjaleysi er afleiðing af því þegar einhver gyðja af tröllaættum vill ná heimsyfirráðum, Frigg í þessu tilfelli.

 

Óðinn kvæntist ekki Frigg af tilviljun. Hún var hin endanlega áskorun hans og mesti sigur, versta skrímsli alheimsins eiginlega. Þannig eru samskipti hans og Loka endurspeglun á samskiptum hans og Friggjar á þessum tíma þegar hún var ung og óþroskuð.

 

Friggjarblótið lýsir einnig hryllingi stjórnmálanna, því vopnuðum stríðum Friggjar er lýst og hennar fylgismanna. Þeir einræðisherrar sem fólk er að rifja upp úr mannkynssögunni eru eftirhermur Friggjar samkvæmt þessu.

 

Síðan verður Frigg allt önnur manneskja, kúguð manneskja segja femínistar, en venjulega fólkið segir að hún verði stillt og kvenleg.

 

Þetta kvæði segir svo margt, eða þetta blót í sögu. Það segir til dæmis að það er engin barátta töpuð og allar manneskjur eiga sér von. Það er þetta mikla mannhatur að segja að sumir séu vondir og aðrir góðir sem er afsannað í þessu kvæði.

 

En svo við berum okkar samtíma saman við þetta kvæði þá sést okkar menning í réttu ljósi.

 

Mannfórnir eða dýrafórnir áttu að hjálpa Óðni að ná Frigg á sitt vald. Þannig sýndu mennirnir undirgefni sína, viðurkenndu valdaleysi sitt og sögðu með fórninni að dýrslegar hneigðir sínar eigin og náttúrunnar væru óheilagar, en guðir og reglur það sem ætti að undirgangast, og fórna fyrir.

 

Það var almennt viðurkennt í samfélaginu að ef blótið færi útum þúfur myndu tröll koma í landið, og ræna fólki, og allt fara um koll. Það er nokkurnveginn það sem hefur gerzt í okkar samtíma. Trylltir femínistar og andsetnir af djöflum eru tröllin.

 

Boðskapurinn á enn við. Svona bókmenntir ná út yfir tíma og rúm. Þær eru sígildar og tímalausar, eiga alltaf við.

 

Hvað gerist ef blótið misheppnast? Hvað gerist ef Frigg er ekki tamin og hið heilaga hjónaband hennar og Óðins fer ekki fram?

 

Þeir sem kunna að túlka svona goðsagnir vita að þær rætast ALLTAF, undantekningalaust. Ef hið djöfullega afl á hnettinum sem maður tilheyrir er of sterkt þá gerist það í framlífinu á öðrum hnöttum. Hringnum er ALLTAF lokað. (Helvíti er refsing syndarinnar, sami boðskapur og sama speki).

 

Eða svo þetta sé orðað á annan hátt: Ef mennirnir valda heimsendi hér og nú þá heldur það sama áfram annarsstaðar, blótið klárast, refsingin heldur áfram annarsstaðar.

 

Það eru einstaklingarnir sem koma sér í meira klandur sem kunna ekki að hafa stjórn á samfélaginu, ljúka blótinu, helgiathöfninni.

 

Til er rit sem ekki komst í Biblíuna, Líf Adams og Evu, eða Dularrit Mósesar, (Apókrýfa Mósesar). Þar kemur fram svipaður boðskapur á ákveðnum stöðum. Það vissi ég ekki þegar Friggjarblótið var skráð.

 

Úr SLAVONIC VITA ADAE ET EVAE: (Líf Adams og Evu):

 

xxxii 1 The archangel Joel said to Adam: 'Thus saith the Lord; I did not create thy wife to command thee, but to obey; why art thou obedient to thy wife?' 

 

"Erkiengillinn Joel sagði við Adam: "Svo fyrirskipaði Drottinn; ég skapaði ekki konu fyrir þig til að ráða yfir þér heldur til að hlýða þér; hvers vegna ert þú undirgefinn konu þinni?"

 

Þetta setur erfðasyndina í nýtt ljós, nokkuð sem prestarnir fjalla ekki um lengur, hafi þeir nokkurntímann gert það.

 

Samkvæmt þessu var fall mannsins í Eden margþætt. Þegar Eva bauð Adam að bíta af eplinu með sér var hún að taka sér drottnunarvald yfir Adam og það hefur verið hluti af óhlýðninni í Eden sem olli syndafallinu.

 

Að Adam skyldi HLÝÐA Evu en ekki fyrirskipunum Guðs er þannig gegnumgangandi í nútímanum, og hluti af fyrstu syndinni í heiminum, erfðasyndinni.


Íraksstríðið og Úkraínustríðið

Það er þá allavega nýtt að Rússar og Úkraínumenn séu sammála um eitthvað, eins og að gagnrýna Evrópusambandið fyrir verðþakið á olíuna. Það má segja Selenskí til hróss að hann áttar sig á því að Rússar munu reyna að finna aðrar leiðir, og markaðirnir eru fleiri til, eins og í Kína.

Enn ítreka ég það að óttinn um að Rússar ætli að ráðast á Finnland eða Svíþjóð er að öllum líkindum móðursýki og ekkert annað. Það er því mikill ábyrgðarhlutur að stigmagna stríðið einsog ESB gerir, ásamt Bandaríkjunum og fleirum.

Sömu fáránlegu afsakanirnar eru fyrir þessum stríðsrekstri af hálfu Vesturlanda og voru fyrir hendi þegar Íraksstríðið var háð um 2003. Þá var það fullyrt að Saddam Hussein byggi yfir gereyðingarvopnum sem heiminum stafaði hætta af. Það reyndist rangt. Pútín býr yfir gereyðingarvopnum, en fullyrðingin um að hann ætli að ráðast á Finnland eða Svíþjóð eða önnur svæði en Úkraínu er jafn hæpin og sú að Saddam Hussein hafi búið yfir gereyðingarvopnum 2003, þegar Íraksstríðið var háð, en varð mjög óvinsælt af heiminum.


mbl.is Bæði Rússar og Úkraínumenn ósáttir við verðþak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert yfirvald er lengur marktækt

Við lifum á tímum þegar ríkið blæs út á kostnað frjálshyggjunnar. Lyfjastofnun ríkisins er ekki undanskilin aukinni spillingu og kerfisvæðingu. Dómstólarnir sjálfir verða spilltari og spilltari og eins og Jón Steinar Gunnlaugsson hefur skrifað um og sagt, lýðskrumið er þar að verða æ meira áberandi.

Út um allan heim eru framleidd lyf sem geta hjálpað fólki, en Lyfjastofnun ríkisins þvælist fyrir og aðrar stofnanir. Einokun ríkisins er augljós.

Það er fyrirsjáanlegt að réttlætið minnki. Vesturlönd eru á þeirri vegferð.

Í öllum starfsstéttum eru vinnubrögðin að breytast. Fagmennskan er hluti af fortíðinni. Ennþá er hún metin til helminga en það breytist hratt. Nú eru það börnin sem stjórna heiminum, mótmælendur, minnihlutahópar, femínistar, dómstóll götunnar... á meðan Bill Gates hefur hag af því að minnsta kosti og slíkir auðrónar.

Nú er það móðursýkin sem er hin virðulega drottning og fær brátt mun meira vægi en fagmennska og þekking.

Í Helvíti hafa allir brjálazt og afneita veruleikanum, kalla allt röngum nöfnum, vilja ekki viðurkenna veruleikann eins og hann er, reiðast ef sagt er satt. Nútíminn er orðinn svona, en þetta er rétt svo að byrja.

Hin nýja lenzka er léttúðin. Fólk lærir eitthvað í skólum, en tekur jafnvel meira mark á samfélagsmiðlunum og því sem kemur fram þar. Það er víst allt annað en fagmennska.

Er það kannski lýðræði? Já, ákveðin tegund af lýðræði, sem þó má kalla skrílræði, ef lýðurinn er ekki vel upplýstur, og lætur tilfinningar stjórna sér.

Ég hef hlustað á þennan ágæta mann stundum á Útvarpi Sögu, Guðmund Karl Snæbjörnsson, sérfræðing í heimilislækningum, þegar hann hefur talað gegn bólusetningarherferð yfirvaldanna í landinu. Ég dáist að honum fyrir þann kjark að fara gegn ráðandi valdaöflum.


mbl.is Ivermectin-málinu vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæðaverkið "Fláa veröld" eftir Megas frá 1997.

"Fláa veröld" frá 1997 finnst mér ein bezta hljómplata Megasar, ef ekki sú albezta. Hún hafði mikil áhrif á mig er hún fyrst kom út og enn finnst mér hún framúrskarandi. Loksins fór hann aftur að nota hefðbundin hljóðfæri og sleppti hljóðgervlum þarna og á plötunni frá 1996. Ekki bara það heldur voru tónsmíðarnar flóknari en nokkrusinni fyrr og ljóðagerðin jafnvel líka, að minnsta kosti í beztu lögunum.

Megas var gagnrýndur fyrir margt á þessari plötu, meðal annars neikvætt viðhorf til kvenna. Þeir sem líta bara á þá hlið á honum missa af mörgu merkilegu sem hann hefur fram að færa, sem einn lærðasti og snjallasti höfundur söngtexta og ljóða í samtímanum.

Í raun er síðasta lagið á þessari hljómplötu einstakt í hans höfundarverki og eitt jákvæðasta ljóð sem hann hefur ort til konu. Það er ort um söngkonuna Heru Hjartardóttir og heitir Hera, sem Megas þekkir vel, og þar er ekki að finna neina neikvæðni heldur skilning og vinskap í garð draumóra og hugaróraheims stúlku á mörkum unglingsaldurs og bernskuskeiðs. Þar fyrir utan er lagið eitt flóknasta og flottasta lag sem Megas hefur nokkrusinni samið, einskonar synfónía í dægurlagaformi, um 8 mínútur að lengd, og flókið í byggingu.

Lagið Hera á þessari plötu sýnir að Megas á margar hliðar og lítur á konur ekki bara sem kynverur. Auk þess eru á þessari plötu lög sem eru gagnrýni á nútímann, eins og "Tíu fötin keisarans", beitt ádeila á skinhelgi og yfirborðskennd nútímans og fylgjenda hans, augljós vísun í "Nýju fötin keisarans" eftir Hans Christian Andersen, "Skiptimynd í buddunni þinni" sem er ádeila á að meta allt til fjár, "Ungfrú Plís", sem er ádeila á áhrifavalda löngu áður en þeir náðu eins miklum völdum og frægð og nú er,  "Á barnum" er ádeila á skemmtanamenninguna, "Naðran" er ádeila á nútímalist og upplausn listforma, "Samsæri" er bæði hylling og háð í garð fólks sem fjallar um samsæri, og þannig mætti lengi telja. Platan er full af hressilegum rokklögum og rólegum balllöðum, tónlistin er bæði framúrstefnuleg og í anda rokktímans, frá 1957 til 1977, þegar diskóið sigraði rokkið endanlega, þótt það hafi aldrei dáið alveg, bara orðið minna áberandi.

Það sem ég heillaðist mest af tónlistarlega við þessa plötu er hvernig meistarinn blandar djasshljómum við hina hefðbundnu rokkhljóma og býr þannig til flóknari laglínur en eru til dæmis á "Millilendingu" frá 1975, sem er kannski hans frægasta hljómplata.

Að lokum má geta þess að nafnið er að sjálfsögðu vísun í ljóðabók Tómasar Guðmundssonar, "Fagra veröld". Megas sagði mér það sjálfur að ljóð Tómasar Guðmundssonar hefðu gefið honum mörg tilefni til háðskra umyrðinga, en jafnvel hafi hann borið virðingu fyrir stílsnilldinni að einhverju leyti.


Enn margir sem vilja krjúpa fyrir Mammoni og fórna fullveldinu

104 ára fullveldi er fagnað á þessum degi. Hætturnar eru þó víða. Þótt áhuginn á hreinni og beinni inngöngu í ESB sé lítill meðal þjóðarinnar er búið að höggva skörð í fullveldið, ekki sízt með breytingum á mannréttindakaflanum frá 1995, sem veldur því að ekki er hægt að hafa fulla stjórn á landamærum og flóttamannastraumi, en ástæðurnar eru fleiri, eins og Schengen samstarfið alræmda. Það er rétt sem skrifað er á heimasíðu Heimssýnar í dag að þjóðinni hefur vegnað betur eftir að fullveldið fékkst. Við erum svo heppin að eiga ekki landamæri að voldugu og risastóru grannríki eins og Rússlandi eða Bandaríkjunum, við erum eyja lengst úti í ballarhafi og ættum að hafa alla möguleika á að setja okkur lög og reglur eftir eigin geðþótta en ekki eftir alþjóðasamfélaginu. Þá vegferð í átt að auknu sjálfstæði er þó aðeins hægt að feta með varfærnum hætti þannig að viðskipti skaðist ekki eða sem minnst.

ESB mætti hæglega flokka sem glæpasamtök. Der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB vill koma á dómstól til að sækja ráðamenn Rússlands til saka. Minnir þetta á seinni heimsstyrjöldina, eins og henni sé ekki lokið enn í hugum þessa fólks.

Ekki fjallar ESB um eigin glæpi gegn mannkyni, sem eru verstir, að stuðla að femínisma og hruni í barneignum, útrýmingu þjóðanna. Enda er það einatt svo að slíkt er reynt að fela með því að benda á misgjörðir annarra.

Einnig hefur þarna komið fram sú þjófnaðarhugmynd að frystar eignir Rússa, 1100 milljarðar að minnsta kosti, eigi að renna í uppbyggingu eftir Úkraínustríðið, eins og ESB sé heimilt að fara þannig með fjármagn Rússa.

Þeir sem hafa horft á Stjörnustríðsmyndirnar vita að hinn vondi Palpatine í keisaraveldinu minnir mjög á ráðamenn ESB, og skipulagið og sviðsmyndin ekki ósvipuð í þeim myndum.

Einnig er rétt að minna á að Palpatine keisari í Stjörnustríðsmyndunum komst til valda einmitt til að stuðla að friði, sameiningu og gróða, þannig að vegurinn til Vítis er varðaður góðum ásetningi, eins og sagt er og er alkunna.

 

 


mbl.is Vill að sérstakur dómstóll rétti yfir Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðið við Rússa og Pútín getur kostað um 185.000 Evrópubúa lífið, samkvæmt tímaritinu Economist

Í frjálslynda og brezka tímaritinu The Economist sem er 179 ára gamalt og rótgróið og ekki æsifréttablað eða sorprit er því spáð að um 185.000 Evrópubúar geti týnt lífi í vetur fyrir aldur fram vegna efnahagsstríðsins við Rússa og skortinum á gasi og orku almennt.

Talað er um kalda veðurspá ofaná allt annað, og það þvert á loftslagsumræður um hamfarahlýnun.

Skuldinni er að sjálfsögðu skellt á Pútín eins og venjulega, hvað annað, eins og engir kostir séu í stöðunni nema að senda hergögn til Úkraínu og láta sem flesta týna lífi í þessu stríði.

Það er alveg með ólíkindum hversu mikil harkan er að berjast við Rússa og að líkja honum við Hitler, og kalla hann til dæmis Pútler. Sá samanburður finnst mér ekki nákvæmur.

Áætlun Pútíns um að ná aftur þeim svæðum sem töpuðust með hruni Sovétríkjanna er býsna gömul og segja má algert baráttumál fjölmargra Rússa og hluti af þeirra heimsmynd, hvorki meira né minna, sem urðu fyrir miklu áfalli með hruni Sovétríkjanna um 1990. Í þeim fræðum er ekki talað um að ráðast á Svíþjóð eða Finnland, eða ná heimsyfirráðum.

Úkraína er leiksoppur Bandaríkjanna og Rússa, heimsbyggðin leikur sér að því að þarna sé mannslífum fórnað miskunnarlaust, og sökin er ekki síður þeirra sem komu leppstjórn þarna á, með grínleikaranum Selenský, og svo koma leikbrúður til Íslands í áróðursleik til að afla málstaðnum fylgis.

Almenningur á Vesturlöndum verður að vakna til skilnings um að þetta er ekki einfalt eða svarthvít mynd. Almenningur ætti að krefjast friðar og að hætta að senda Selenský vopn, sem dregur þetta á langinn og eykur hættuna á notkun gereyðingarvopna.

Hvar eru núna æstu unglingarnir sem mótmæla því að hælisleitendur séu sendir úr landi? Eiga þeir ekki uppruna sinn í friðarhreyfingunni, sem spratt uppúr kommúnismanum? Þetta fólk ætti að mótmæla vopnasendingum vesturlanda til Úkraínu og óbeinni þátttöku í blóðsúthellingunum.

Það þarf að mótmæla því að Evrópumenn fremji þetta fjöldasjálfsmorð og séu ekki hlutlausir. Þegar allt kemur til alls er varla verra að vera undir kúgun Rússa en ESB og annarra femínista.


mbl.is Þórdís Kolbrún fundaði með Selenskí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsgagnrýni, sé maður að fást við listir

Ég held að ég gagnrýni mína eigin tónlist harðar en tónlist annarra. Ég reyni sífellt að finna nýrri og fleiri fleti á því af hverju þessir 14 hljómdiskar sem ég gaf út 1998 til 2010 seldust lítið, og sumir nánast ekkert, sérstaklega þeir síðustu, þar sem ég tókst á við málefni samtímans og kom með tvo kristilega hljómdiska 2010 og kom þar með bókstafstrúarlegar kristilegar hliðar sem fæstir höfðu áhuga á að kaupa, en sem betur fer nokkrir kristnir einstaklingar. Ég gaf út 4 hljómdiska 2010, alla í litlu upplagi til að sjá hverjir myndu seljast og hverjir ekki. Ég hef engan hljómdisk gefið út eftir 2010, aðallega vegna gremju vegna þess að þetta er tap fjárhagslegt ef þetta selst ekki sómasamlega.

Ég gaf út 2 hljómdiska 2009 og þeir seldust bærilega. Sérstaklega diskurinn "Ísland skal aría griðland." Hann var hljóðritaður það ár, 2009. Hinn diskurinn sem kom út 2009 heitir "Það og það", og hann var hljóðritaður árið á undan, 2008, og fjallaði um hrunið, útrásarvíkingana og það allt.

Ég tók mér hlé frá útgáfu frá 2003 til 2009. Ekkert kom út á þeim árum. Fyrstu þrír diskarnir seldust langbezt. Sá fyrsti var gefinn út 1998, með Dylan ábreiðum. Á þessum árum var hægt að leita til fyrirtækja sem fjölfölduðu CD diska í eins litlu upplagi og maður óskaði fyrir mjög lágt verð. Þannig byrjaði ég á 20 eintökum, og þau seldust upp á tveimur árum.

Næsti diskur var um Nýalsstefnuna, sá fyrsti með efni eftir mig, "Hið mikla samband", árið 1999, til heiðurs dr. Helga Pjeturss, og um hans fræði, og undir sama heiti og hans frægasta og lengsta ritgerð sem kom út í fyrsta Nýalnum hans sem kom út í þremur heftum á árunum 1919 til 1922.

Þessi diskur var með frægasta laginu eftir mig, "Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?" Hann var einnig gefinn út í litlu upplagi fyrst, en hélt áfram að seljast jafnt og þétt næstu árin í Japis, Skífunni og víðar, þannig að nokkrum sinnum var hann gefinn út í litlu upplagi, sem nú er allt búið.

Árið 2000 kom út "Blóm, friður og ást,", með umhverfisverndarlögum og sýrutónlist, og hann hefur líka selzt ágætlega.

Eftir það komu út diskar sem minna hafa selzt. Þeir þóttu mjög ruglingslegir, með lögum um femínisma og karlrembu til jafns, þríleikur, "Jafnréttið er eina svarið", 2001, "Við viljum jafnrétti" 2002 og "Jafnfréttið er framtíðin" 2003.

Ég skil ekki alltaf hversvegna ég valdi ákveðnar útgáfur laganna og því síður hversvegna ég valdi ákveðin lög fram yfir önnur.

Eitt sinn var ég beðinn um að spila í afmæli, og einhver hringdi í mig sem vildi heyra ákveðið lag um Grillarann af kristilegri plötu frá 2010. Þá var ég búinn að steingleyma að ég gaf þetta ákveðna lag út, og ekki nóg með það, heldur hafði ég gleymt því að ég samdi það! Síðan hugsaði ég mig um í mínútu í símanum og þá rifjaðist það upp hvaða lag þetta var. Þetta var einn blús af mörgum sem var spunninn upp snemma árs 2001 um Grillarann, þegar ég var að reyna að finna einhver lög á plötuna "Jafnréttið er eina svarið".

Það er ekki mjög traustvekjandi að heyra mig syngja, því ég þarf alltaf að hafa textana fyrir framan mig, kann þá yfirleitt aldrei.

Einstaka sinnum hef ég tryllt lýðinn og fengið frábærar viðtökur á tónleikum, eins og á Myrkramessunni í MK árið 1991, þegar ég frumflutti rokklagið "Náttúran", og svo á Litlu jólunum í Digranesskóla 1985, þegar ég kom fyrst fram og söng ástarlagi dularfulla, "Myrkur á morgun eða ekki", eða þegar ég frumflutti lagið "Engar umbúðir" árið 1993 einnig á Myrkramessunni í MK.

Langoftast hef ég þó sungið of lágt og óskýrt, og alltof oft spilað á pöbbum þar sem fólk hvorki þekkir lögin né sýnir þeim áhuga og heyrir ekki orðaskil, því miður.

Ég hef ekkert komið fram opinberlega síðan 2015, þegar ég spilaði á síðasta "Melodica Accoustic Festival" sem Svavar Knútur trúbardor skipulagði með fleirum. Þó var það með skástu tónleikunum þar, vegna þess að þá kunni ég næstum alla textana utanbókar og söng skýrar og hærra en áður. Ég safna þessu á myndbönd og dæmi hvernig mér tekst til og hvað má betur fara.

Sérstaklega finnst mér ánægjulegt að ég rifjaði upp lögin "Myrkur á morgun eða ekki" frá 1985 og "Náttúran" frá 1988, en flutt fyrst 1991. Þó má segja að flutningurinn á þessum tónleikum 2015 sé frekar lélegur, en þetta eru þrusugóð lög sem þola það alveg að vera spiluð óendanlega oft.

Hinsvegar finnst mér leiðigjarnt að syngja sum önnur lög sem eru þekkt eftir mig. Þau voru mörg hver samin í flýti og ekkert sérlega vönduð, finnst mér. En ef fólki líkar við þau neyðist maður til að flytja þau.

Tónlist á að vera eins og góð myndlist, tónlist sem er á vinylplötum, eða á netinu eða útgefin með öðrum hætti. Málverkið Mona Lisa eftir Leonardo Da Vinci er fullkomnun listarinnar, og tónlistarmenn ættu að sækjast eftir því sama. Einfaldleika en dulúð í senn. Sumum tónlistarmönnum hefur tekizt þetta. Sum lög eftir mig finnst mér ná þessu, en ekki endilega þau sem ég hef gefið út, eða í þeim útgáfum.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 78
  • Sl. sólarhring: 176
  • Sl. viku: 736
  • Frá upphafi: 147544

Annað

  • Innlit í dag: 51
  • Innlit sl. viku: 557
  • Gestir í dag: 49
  • IP-tölur í dag: 49

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband