Útvarp Saga er mikilvægari en RÚV, og þarf að vera studd rækilega

Inni á steinsofandi fjölmiðlum vinstristefnunnar eru nokkrir sem beita athyglisgáfu sinni og sjá að ýmislegt má gagnrýna við samtímann. Snorri Másson á Stöð 2 er einn af þeim. Hann er ekki bara vel máli farinn heldur vel skynsamur og sýnir það. Á fimmtudaginn, í gær, var hann umsjónarmaður Íslands í dag, og þar fjallaði hann um óréttlæti sem Útvarp Saga verður fyrir.

N4 hneykslið er alfrægt orðið, en Ísland í dag fjallaði líka um að Útvarp Saga var einn af þremur fjölmiðlum sem fékk ekki styrk af 28 sem sóttu um. Eins og Snorri benti réttilega á var Útvarp Saga eini landsþekkti fjölmiðillinn af þessum þremur sem njóta talsverðra vinsælda og er ekki að þjónusta lítinn hóp.

Það er alveg augljóst að andúð á sannleikanum eða önnur spilling býr þar að baki. Hversvegna er ekki Lilja Alfreðsdóttir búin að gera eitthvað í þessu? Alltaf er hún kurteis við Arnþrúði þegar hún mætir þangað í viðtöl á stöðina og hljómar sannfæradi og alúðleg. Hvaða skuggalegu öfl eru þar að verki sem skemma fyrir Útvarpi Sögu?

Snorri Másson spurði Arnþrúði hvort Djúpríkið væri þarna að verki. Arnþrúður svaraði ekki spurningunni en vék sér að öðru, eins og til að forðast að vera stimpluð sem samsærlingur, loksins komin í viðtal á svona almennri stöð. Hún hefði alveg mátt svara játandi, því Djúpríkið teygir anga sína víða, það fyrirbæri spillingarinnar.

En spurningin sýndi þó að Snorri er einn af fjölmörgum sem laumast til að hlusta á Útvarp Sögu, sem af einhverjum pólitískum andstæðingum er talið vera útvarp fyrir eldra fólk með fordómafullar skoðanir, sem er alrangt.

Útvarp Saga gegnir mjög mikilvægu menningarlegu hlutverki, og kannski eða tvímælalaust stærra menningarlegu hlutverki en RÚV, sem hefur varpað frá sér menningarlegri ábyrgð og skyldu, fyrir fjölmenningu og lýðskrum.


mbl.is 100 milljónir eigi ekki að fara alfarið til N4
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mengun í borginni í stillum og endurskoðun á afstöðu til borgarlínu Dags B. Eggertssonar

Ég hef stundum skrifað um efasemdir gagnvart borgarlínu Dags B. Eggertssonar. Eitt kvöldið nýlega þurfti ég að erindast og þá var mikil stilla eins og hefur verið að undanförnu og mikil umferð í bænum. Mengunin var mjög mikil og loftið næstum eins slæmt og á gamlárskvöldi bara útaf bílareyk. Þetta var ekki þessi gamalkunna benzínstybba af útblæstri sem ég þekkti frá minni bernsku á verkstæðinu hans afa, sem var alveg þolanlega ljúf, þetta var samþjappaður eiturreykur úr hvarfakútum þessara nýju bíla sem skila af sér samþjöppuðu eiturlofti.

Þessi upplifun lét mig endurskoða afstöðu mína til borgarlínunnar. Hún er kannski ekki svo slæm eftir allt saman, mikil þörf að minnka mengun í miðbæ Reykjavíkur, losna við tafir í umferðinni og fækka einkabílum.


Sósíalistinn sem mótmælti og vildi rifta skírnarsáttmálanum, Helgi Hóseasson

Helgi Hóseasson var heimspekingur og ekki aðeins trésmiður eins og Jesús Kristur. Ég fann bók eftir hann í bókasafni nýlega og hún hefur verið bæði skemmtileg og fróðleg aflestrar. Krosslafur er Jesús Kristur í hans orðabók. Éhóvi Einskítsson er nafnið á guði Biblíunnar hjá honum. Hann var jú sósíalisti og yfirlýstur trúleysingi.

Þar sem Píratar hafa afnumið guðlastsákvæðin er óhætt að guðlasta og vitna í þennan merka mann.

Hér eru nokkur gullkorn úr riti Helga Hóseassonar:

 

"Einu sinni var galdrari. Hann hét Éhóvi. Umhverfi hans var tóm. Hann treysti flugþol sitt.

"Dýrum dyggðasneyddu

drekki ég í flóði;

geing frá örmuleyðdu

allri Jörð og blóði."

 

"Vegna þeirrar meiginlygi Trúverndarinnar, að ég viðurkenni hinn ógurlega Loftanda og aðra galdrara á Himnum, fór ég á stúfana tuttugastaogsjötta maí og mótmælti henni á sama stað og fyrri daginn, við kyrku heilags Háteigs, með þessa vísu á pappírsborða:

 

"Ésú hold við láð varð laust;

lagúldinn í framan

til Himna líkt og skrugga skautst

með skítogöllusaman."

 

"Með þeim aldna Himnaher

Helga stjórnvöld smána;

hæsaréttarrekkarner

rífa stjórnarskrána."

 

"Éhóvi var sífellt á höttunum eftir stúlkum og gerði þær sér hlynntar með aðstoð þræla sinna: Dsú, Gabríel og Mikkel. Þessa alla hafði hann leingi að búi sínu á Himnum, eða í sendisnatti vegna ítakanna á Jörð.

Éhóvi varð tímafrekt stússið við stúlkurnar; og stundum ánægjusnautt. Hann rápaði fram og aftur um alla Jörð, skipti sér af öllu, skipaði og ráðskaðist og varð oft skapbrátt við afkomendur sína; þeir voru vitlausir af monti af feðrun sinni. Ættlegur ofstopi og frekja ullu árekstrum við vanalegt fólk.

Éhóvi gamli varð leiður í hjartanu; honum þótti allir vondir við sig og varð reiður í hjartanu; svo varð hann sárreiður í því. Hann leit ofan á Jörð, og sá að allt var illt og bölvað; hann var æfareiður við allt og alla.

Éhóvi ákvað að hefna sín á öllu og öllum."

 

Þessi bók kom út árið 1976, samkvæmt upplýsingum.

 

Mannkynið féll á prófinu. Í stað þess að gagnrýna eingyðistrúarbrögðin réðust konur á karlkynið. Útrýming kemur í kjölfarið og augljóst hvert stefnir.

 

Það eru engin rök fyrir því að guð Biblíunnar sé sá sem hann þykist vera. Það eru allt eins rök fyrir því að faðir lyginnar sé Jahve. Þegar Jesús sagði við að menn ættu djöfulinn að föður, má spyrja: Var hann ekki að tala um Jahve? Hann átti að hafa skapað fólk.

Manndrápari frá upphafi og sagði aldrei sannleikann?

Kúgun mannkynsins frá upphafi?

Búið að eyða næstum öllum heiðnum heimildum sem sögðu sannleikann og rétt frá. Hver hagnaðist á því? Jahve og hans lið.

Leitandi að samsærum, þetta er móðir allra samsæra og upphaf alls ójöfnuðar.

 

Nú þegar Píratar hafa gefið guðlast frjáls ætti fólk að notfæra sér það. Fólki er bannað að gagnrýna þræla og ambáttir eigenda mannkynsins en að frelsast undan kristninni er mikilsvert. Það gæti jafnvel verið nóg.

 


Nú stendur heimsbyggðin frammi fyrir kreppu, sem væri hægt að afstýra með friðarsamningum við Rússa.

Íslenzk stjórnvöld veita 400 milljónum til Úkraínu í vetraraðstoð. Bandaríkjastjórn ætlar að senda háþróaðasta og bezta loftvarnarkerfi í heimi til Úkraínu. Heimsbyggðin stendur á öndinni og hrúgar fé í Úkraínu.

Því var haldið fram í upphafi stríðsins að Rússar væru gjaldþrota, máttlausir, úreltir, óskipulagðir, en þó held ég að sífelldur fréttaflutningur af gríðarmiklum vopnasendingum til Úkraínu með hátæknivopn og hvaðeina, þjálfaða hermenn jafnvel, sýni og sanni að sá fréttaflutningur er bullið eitt og froðan.

Firnaháum fjárhæðum hefur verið rænt af Rússum og þeir fara í gjaldþrota Vesturlönd og stríðsreksturinn, sem kallaður er uppbygging Úkraínu.

Þetta Úkraínustríð er hræðilega sorglegt. Þetta eru nágrannaþjóðir sem báðar eiga sér stórmerkilega sögu og ættu að vinna saman og lifa í sátt og samlyndi.

Margir hafa lýst því að Rússar hafi farið með Úkraínumenn eins og olnbogabörn lengi. Hið sama má segja um Vesturlönd. Þau hafa notað Úkraínu sem veikan blett á Rússlandi, þar sem stuðningur við Vesturlönd hefur verið mikill þar lengi, og jafnvel meira áberandi en í Rússlandi sjálfu. Þannig var það með úkraínsku byltinguna 2014, eða Virðuleikabyltinguna, þar voru tveir hópar Úkraínumanna sem börðust, þeir sem vildu styrkja tengslin við Vesturlönd og þeir sem vildu styrkja tengslin við Rússland. Þetta hafa pólitíkusar á Vesturlöndum notfært sér blygðunarlaust og miskunnarlaust. Sagan sýnir að þegar stórþjóðir notfæra sér svona viðkvæma punkta sýður uppúr með skelfilegum hætti.

Já, 400 milljónir fara til Úkraínu í vetrarhjálp og stríðið er áhugamál demókrata útum allan heim, sem núverandi Sjálfstæðisflokkur tilheyrir að mestu leyti, því miður. Það er bláköld áróðurslygi femínistans Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur að allt sé þetta gert af mannúð og miskunnsemd í garð Úkraínumanna. Nei, allt er þetta gert í hroka og monti yfir því að Vesturlönd beri af öðrum og að rússneska hálfeinræðið megi ekki skyggja á þá glansmynd af stjórnkerfi.

Þetta stríð hefur kostað óheyrilega mikið af náttúruauðlindum, mannslífum og fjármunum. Það hefur sýnt fram á ótrúlegan styrk Rússlands gegn næstum allri heimsbyggðinni. Það hefur sýnt fram á örvæntingu Vesturlanda ekki síður.

Íslenzk stjórnvöld gætu veitt 400 milljónum í íslenzka vetrarhjálp í staðinn, til að byggja gistiskýli fyrir alla sem þurfa á því að halda.

Við tilheyrum hinum viljugu þjóðum eins og í Íraksstríðinu. Við erum viljug að leggja útí stríð.

Hvað myndi gerast ef íslenzk stjórnvöld myndu gagnrýna Bandaríkin og Vesturlönd og fara að standa með Rússlandi? Myndum við lenda í viðskiptaþvingunum? Er það allt vestræna lýðræðið og frelsið?

Hvað ef við hættum að taka við öllum flóttamönnum nema þeim úkraínsku á meðan stríðið stendur yfir, í stað þess að senda þeim þessa fjármuni?

Af hverju eru ekki allir kostir ræddir í stöðunni? Af hverju þessi einstefna? Vegna áróðurs frá demókrötum, áróðri frá gerspilltum auðrónum sem hafa skilið eftir sig sviðna jörð víðast hvar?


mbl.is Úkraína þarf tvo milljarða rúmmetra af gasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einelti í garð útskúfaðra og fólksfækkunarvandinn - sem er fólksfjölgunarvandi annarsstaðar.

Þessi fyrirsögn segir svo margt að hún er þess verð að leggja út af henni, eins og prestarnir segja í ræðustólunum. "Hefði viljað vera elskaður þegar ég þurfti mest á því að halda", segir íþróttamaðurinn Björgvin Páll Gústavsson í þessu viðtali. Ekki ætla ég hér að fjalla um íþróttir, en þær eru ágætar til síns brúks í hófi. Samt finnst mér annað mætti fá meiri athygli stundum, eins og tónlist, menning og listir, sérstaklega þegar öll dagskrá riðlast í sjónvarpinu útaf heimsmeistarakeppnum.

Þessi landsþekkti landsliðsmarkvörður í handbolta segir að hann hafi verið lagður í einelti í æsku og hafi það verið mjög erfitt fyrir hann. Þá fékk hann að heyra þær nöpru og nístandi dóma frá fullorðna fólkinu að aldrei yrði neitt úr honum.

Ég ætla nú að tala um ýmis fórnarlömb. Ég ætla að segja að þetta eigi við um margar konur og stelpur sem segja farir sínar ekki sléttar vegna samskipta við hitt kynið, - eða að minnsta kosti má gera ráð fyrir að sumar sögur þeirra séu sannar og frá hjartanu á meðan afgangurinn af þeim er að þessu til að fá athygli og peninga, og betri samfélagsstöðu, eða hrós frá vinkonum og vinum sem eru sama sinnis.

En fyrst og fremst vil ég benda á að þessi setning landsliðskappans fræga á við um slaufaða karlmenn sem eru lagðir í einelti af samfélaginu, og oftast fyrir eitthvað sem er hluti af menningunni, og var ekki talið rangt þegar þeir ólust upp.

Það er mikið myrkur í sálum mannanna á þessum tímum. Stríðið í Úkraínu er ekki eina dæmið um það, því miður. Sæðisfrumum karla hefur fækkað um 62% á heimsvísu segir í nýrri DV frétt. Niðurstöðurnar eru frá Ísrael, Danmörku, Bandaríkjunum, Brazilíu og Spáni. Þær eru samhljóma frá öllum þessum löndum.

Svipuð rannsókn frá 1973 til 2017 sýndi 51% fækkun. Þetta sýnir að helstefnan verður verri og verri, útrýming mannkynsins nálgast hraðar og hraðar. "Við ættum að vera hissa en um leið áhyggjufull", segir Hagai Levine, við hebreska háskólann í Jerúsalem, sem vitnað er í.

Athugasemdir eru allar jafn heimskulegar eins og venjulega eins og þetta sé hið bezta mál, eins og búast má við af vinstrimönnum, vélmennum, andsetlingum.

Ég hef kynnt mér þetta betur en þessir vinstrimenn sem vilja útrýma sér og öðrum. Þeir sem þekkja til mannfjöldafræðigreinarinnar vita að við erum að tala um kúrvur sem hægt er að reikna út.

Nokkur svæði á jörðinni eru ennþá á hinni rísandi kúrvu mannfjöldaþróunarinnar, en það er lýsing á heimsálfum eða löndum sem eru að koma úr fátækt yfir í velmegun. Þar fjölgar fólki og því meira sem álfurnar eða löndin eru fjölmennari. Þetta á við um Afríku og fáein önnur svæði, jafnvel Indland, en ekki Asíu nema að einhverju leyti. Evrópa er öll komin á útrýmingarkúrvuna, nema kannski örfáar undantekningar.

Bandaríkin glíma ekki við mikinn fólksfækkunarvanda, en sjá fram á að hann aukist þó í náinni framtíð. Þar verða breytingar eins og annarsstaðar, germönsku fólki fækkar mest yfirleitt, sérstaklega þar sem velmegun er mikil. Enn vilja þó margir flytjast til Bandaríkjanna svo vandamálið er ekki eins áberandi þar og víða í Evrópu.

Í heildina er eykst mannfjöldinn á jörðinni ennþá á okkar tímum á meðan fjölmennustu hóparnir eru að ná sömu lífskjörum og fólkið á vesturlöndum.

Ógnin sem þessir vísindamenn tala um felst í því að fyrr eða seinna fara allir á fækkunarkúrvuna ef svo fer fram sem horfir, og þá verður hún óstöðvandi, eða lóðrétt hrun, eða boglína niður að minnsta kosti.

Hvort sem fólk er kvenkyns eða karlkyns þekkja flestir óhamingju. Mér er það fyrirmunað að skilja hvernig femínismi og Metoo hefur aukið hamingju fólks eða bætt lífsgæðin eða fært fólk nær hvert öðru eða gert eitthvað annað jákvætt.

Sjálfsmorð ungra karlmanna eru mjög algeng. Óhamingja og einsemd er þvílíkur faraldur að þunglyndislyfjanotkun er í hæstu hæðum á Íslandi, sem áður taldist land hamingjusömustu þjóðar í heimi.


mbl.is Hefði viljað vera elskaður þegar ég þurfti mest á því að halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjóreinn varð loks einn, ljóð frá 3. janúar 2002

Stofnun Samfylkingarinnar er hér lýst í ljóði, kvæði. Ekki sízt hafa margir gleymt hvað Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið töluðu mikið um verkalýðinn.

 

C                        Dm7

Jöfnuður fann sér flík:

G7                            C/E

Fjóreinn varð loks einn.

C                  Dm7

Þjóðvaki... það er rétt,

G7                                                   C/E

þar er hún Jóhanna drottningin snjöll.

Ab7

Kvennalistinn kemur sterkur inn,

C

kjósum svo jafnari heim.

E

Alþýðuflokkurinn, alþýðubandalagið,

C

aldanna stríðandi verkalýðshetjur

Eb

kunnu karlafagið:

Db

Að krefjast launa handa þeim.

C

Líðum ekki letjur,

D

litla, auma skinn.

A

Þurfum jaka, þannig klett,

Ab

þína yfirtökum höll.

G

Fagur er hann, framvarðsteinn,

Gb                      C/E

fannst ei blessun slík.

 

Samfylking, Össur þar einn.

Íhald hikar því.

Þjóðvaki, þar er hún,

þessu skal manngi svo gleyma ennþá, sjá.

Kvennalistinn kunni að skella á rass,

karla alla að pína svo vel.

Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið,

aldanna sígildu verkalýðskempur.

Kennum karlafagið:

Að krefjast launa, opna skel.

Hýðum þeirra hempur,

harka, valdafass.

Ekki viljum útá tún,

altæk stofun ríkir, já.

Virkjum okkar vonzku á ný:

Hann verður ekki of seinn!

 

Samfylking, breiðfylking brátt

brytjar féndur nú.

Þjóðvaki féll svo fljótt,

fyrir því stóra sem gleypti slík korn.

Kvennalistinn kunni að heimta sitt,

karlarnir hlýðandi oft.

Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið,

uppreisn fátækra, trúboðið snjalla.

Kennum kvennafagið:

Að krefjast bóta, gefa loft!

Nú skal konan kalla,

kveinar barnið þitt.

Uppreisn dugar, aukum þrótt!

Aðrir grípa fjandans horn!

"Enga fátækt!" - öskrar þú,

uppreisn kallar hátt.

 


Okkur er stjórnað af æðri verum. Fólk er fífl því það hefur ekki vaknað ennþá.

Þessi frétt veitir möguleika á að fræða um gamla og þekkta samsæriskenningu, sem er veruleiki fyrir mörgum. Áhugamenn um fljúgandi furðuhluti hafa lengi sagt að þróun flugvéla stefni í þá átt að búa til úr þeim fljúgandi diska, fljúgandi furðuhluti.

Margar nýjar þotur eru þannig, með granna vængi og tiltölulega hringlaga búk. Það er augljóst hvaðan fyrirmyndin kemur.

Samkvæmt þversögn Fermis ættu geimverur að hafa heimsótt jörðina, miðað við möguleikana á lífi í þeim þekkta alheimi sem við tilheyrum og þekkjum.

Það eru fjölmargar skýringar á þversögn Fermis. Margar þeirra gætu verið réttar. 1. Fljúgandi furðuhlutir eru geimskip. 2. Geimverurnar voru og eru hér, skildu eftir sönnunargögn og gera það enn. 3. Sumir svonefndir menn eru geimverur í dulargervi.

Í fyrsta lagi þarf að leiðrétta staðlaðar ranghugmyndir sem fólk hefur um geimverur. Af hverju ættu þær að vera grænar og með skordýrahausa risastóra frekar en að vera öðruvísi útlits? Kristján Kristjánsson í DV fellur í þá grunnhyggnigryfju að nota yfirleitt svipaðar eða sömu myndir við geimverufréttir sínar, þar sem sýndar eru staðlaðar geimverustaðalímyndir frá sjötta áratug kvikmyndaiðnaðarins, nokkurskonar skordýrageimverur með græna og risastóra martraðahausa.

Ekkert er vitað með vissu um þetta, ekki með fullkominni vissu, það er að segja, en helzta upplýsingauppsprettan ætti ekki að vera illa gerðar B og C gæða kvikmyndir frá fyrri áratugum um geimverur, gjarnan gerðar til að valda ógn og skelfingu og hala inn fjármagni með því að höfða til frumstæðra tilfinninga eins og ótta.

Þeir sem lengi hafa haft áhuga á svona fræðum vita að það verður að flokka þetta niður í skáldskap annarsvegar og svo trúverðugar frásagnir hinsvegar.

Trúverðugar frásagnir geta svo fallið í marga flokka, mistrúverðugra og misótrúlegra frásagna. Sumt skapar vissulega ótta en annað virðist benda til kærleiksríkra lífvera sem deila alheiminum með okkur.

Það er svolítið vandasamt að fullyrða eða vera viss, þar sem þetta eru líka trúarbrögð fyrir marga sem eru fíknir í svona frásagnir og trúa þeim, og telja að undirgefni gagnvart þeim sé nauðsynleg.

Ég tel heimskulegt að telja að þetta sé allt bull og klikkun rugludalla eða uppspruni og skáldskapur.

Rétt er að trúa ákveðnum grunnatriðum sem virðast trúverðug.

1) Roswell hrapið í Nýju Mexíkó árið 1947 er sennilega staðreynd. Um það hefur gríðarlega mikið verið skrifað og rætt, reynt að afsanna ótalmargt, og ferlið þannig að það passar inní heildarmynd í þessum fræðum sem Ráðgátuþættirnir heimsfrægu lýstu svo vel, sem voru sýndir frá 1993 til 2018, með löngum hléum á milli, og eiga kannski aftur eftir að verða settir á dagskrá, með nýjum eða gömlum leikurum.

2) Guðirnir voru og eru geimfarar. Erich von Däniken hafði rétt fyrir sér. Þannig má útskýra trúarbrögðin og það er langsennilegasta skýringin á trúarbrögðunum.

3) Samsæri eru í gangi og hafa verið næstum alla mannkynssöguna að fela þetta. Prestar eru sérlegir umboðsmenn geimveranna og aðrir sem standa í fararbroddi vísinda og menningar, yfirleitt án þess að vita það. Stundum hafa þó komið fram andspyrnuhópar, eins og víkingarnir sem námu Ísland.

4) Geimverur eru mjög oft andlegar (á hærra tíðnisviði en við) og ósýnilegar eða ráða yfir huliðstækni, geta breytt útliti sínu eða yfirtekið líkama, andsetning er það kallað og er miklu algengara en kaþólska kirkjan heldur fram eða aðrir. Næstum öll tækni er komin frá ákveðnum tegundum geimvera, ekki endilega lífstefnugeimverum, frekar helstefnugeimverum sem næstum öllu ráða á jörðinni núna.

5) Geimverurnar nýta sér okkur á ýmsan hátt. Einnig erum við nokkurskonar leikbrúður þeirra. Margar þeirra búa á öðrum hnöttum og ýta á takka á tölvum til að láta okkur hlýða sér, og við erum í alvöru mörg miklu frekar fyrir þeim persónur í tölvuleikjum heldur en fólk af holdi og blóði, enda erum við kynnt sem heimsk dýr, ræflar sem hægt er að telja trú um allt og láta hlýða. Hegðun okkar staðfestir þetta, engin sjálfstæð hugsun í kosningum, flokkar eins og Íslenzka þjóðfylkingin fá ekkert fylgi, sem bjóða uppá frelsun, eða fyrstu skref frelsunar.

6) Mennirnir hafa möguleika, eða höfðu möguleika á að brjótast útúr viðjunum og öðlast frelsi og verða skaparar eigin lífs. Þeir möguleikar eru eiginlega alveg horfnir núna.

7) Covid-19, húðflúr, lokkar, fjölmörg lyf og íbætiefni í fæðu og drykk eru til að gera okkur hlýðnitöm og heimsk, ásamt 5G tækni og mörgu öðru. Við erum gerð passlega heilsulaus til að vera háð risalyfjafyrirtækjunum sem taka þátt í þessu.

8) Við erum á stað í þróuninni núna sem nálgast lokalausnina, sem er kölluð Armageddon, Dómsdagur, Endurkoma Krists, Ragnarök og margt fleira í menningunni, vísað í trúarbrögð oft.

9) Endurkoma Krists er í raun og veru vísindauppljómun og uppgötvun, sá staður í tíma og rúmi sem miðast við andlega uppljómun og skilning á þessum fræðum. Dómsdagur er ekki bundinn við dauða einhverrar plánetu, því það sama heldur áfram hinumegin ef við erum eins heimsk, eins kúguð, skiljum ekki, erum skepnur frekar en menn, ekki komin á mannsstigið og hvað þá yfir á Nýalsstigið. Kúgaður fjöldinn á okkar dögum hefur verið píndur niður á dýrsstigið, sem var á mannsstiginu um 1930.

10) Jafnaðarstefnan og mannréttindahreyfingarnar eru langoftast vinnuarmar geimveranna og framlenging á þeim. Þessar geimverur leggja megináherzlu á mannréttindi því þær eru ekki mennskar. Þær reyna að sýna og sanna að þær séu mennskari en menn þannig, og með því að láta fólk lifa í uppskrúfaðri mannúð, sem innrætt er frá barnæsku, en er ekkert annað en hræsni og sýndarmennska. Þetta er eitt virkasta dulargervi stjórnenda okkar og eigenda.

"Ný orrustuþota les hugsanir" er fyrirsögn þessarar fréttar. Í einni merkilegustu bók allra tíma, sem kom út 1997 eftir Philip Corso kemur fram að stjórnkerfi geimfararsins sem hrapaði og geimveranna voru samþætt, geimverurnar stjórnuðu farartækjum sínum með hugsunum sínum, en breyttust í slím eftir að hafa verið í andrúmslofti jarðarinnar nokkurn tíma. Fyrirsögn fréttarinnar segir okkur hversu nálægt við erum því takmarki að breytast í þessar geimverur, eins og næstum öll okkar menning hefur stefnt að lengi.

"Ný orrustuþota les hugsanir", er yfirskrift þessarar fréttar. Áður hafa sumir haft á orði að þróun orrustuþota hefur æ meir líkzt geimskipum. Hvers vegna tengja svona fáir? Er það vegna þekkingarleysis og þekkingarskorts eða þorir fólk ekki að draga ályktanir sem setja það í flokk rugludalla, geðsjúklinga og samsærisboðenda?

Bókin eftir Philip Corso útskýrir allt um þetta kom út 1997, ári áður en hann dó. Tilviljun? Eða aftaka? Hversvegna hafa svona margir snillingar dáir í Covid-19 faraldrinum sem hefðu getað hjálpað mannkyninu? Tilviljun? Aftaka?

Philip Corso var háttsettur í bandaríska hernum og hann var aldrei vændur um klikkun, þannig að sterkar líkur eru á því að hægt sé að taka mark á því sem kom fram í bók hans. En það nægir ekki til að breyta hugmyndum fjöldans um þessi málefni, því að meginstraumurinn ræður og skoðun þeirra sem lítið hafa kynnt sér þetta, og samkvæmt meginstraumnum var þetta bara enn ein bók geimverurugludalla, að vísu örlítið trúverðugri en hinar.

Svo mikið er búið að fjalla um geimför og geimverur að sjálfkrafa kemur efasvipur á fólk þegar þetta er fært í tal eða ritað um þetta. Jafnvel þegar í skáldsagnaflórunni kemur fram eitthvað sem virðist byggt á raunverulegum atburðum.

Enginn veit með fullkominni vissu hvernig þetta er.

Þessi heimsmynd sem er hér sett fram er í samræmi við Þversögn Fermis og hún er í samræmi við þróun vísindanna undanfarna áratugi. Hún er ekki endilega rangari en samsæriskenning fjöldans um að ekkert sé hægt að vita um þetta.

Þessi heimsmynd sem er hér sett fram er í samræmi við fjöldamargt sem um þetta er vitað og er tilraun til að útskýra ýmislegt sem fólk á erfitt með að skilja.

Þetta getur verið rangt en þetta getur einnig verið rétt, eins og Billy Joel söng um í fyrsta laginu á plötunni "Glass Houses" frá 1980.

Aldrei var því trúað um 1960 að tölvur gætu orðið almannaeign. Það gerðist nú samt.

Aldrei var því trúað að símskeyti gætu borizt um hnöttinn þegar sú tækni var frumstæð. Það gerðist nú samt.

Aldrei var því trúað fyrr á tímum að hægt væri að búa til gerviefni. Það gerðist nú samt.

Þannig væri hægt að halda lengi áfram hvernig heimsmyndin getur gjörbreyzt og það sem er talið útilokað eða ósennilegt núna verður viðurkennt síðar.


mbl.is Ný orrustuþota les hugsanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Full ástæða til að vekja upp umræðu um Huawei og önnur kínversk fyrirtæki, og skoða hvort ekki sé vert að fara að bandarískri fyrirmynd í þessum málum og banna það sem gæti boðið uppá kínverskar njósnir kommúnista.

Það var í fréttum nýverið að jafnvel Biden stjórnin er á móti Huawei tæknibúnaði frá Kína og telur það fullljóst að Kínverjar stundi gagnasöfnun og njósnir í gegnum hann fyrir hinn volduga kínverska kommúnistaflokk, sem líkt og sovézki kommúnistaflokkinn á sínum tíma hefur lætt áhrifum sínum inní Vesturlönd með tæknibúnaði og fjármagni, en í enn meira mæli. Það var vitað að flokksblöð á Vesturlöndum fengu fjárstuðning frá Sovétríkjunum, ásamt bókaútgáfu og annarri menningarstarfsemi, áróðursstarfsemi um 1950 og til enda kalda stríðsins.

Af hverju ættu kínverskir kommúnistar að vera öðruvísi, nú þegar þeir hafa tekið við sögulegu hlutverki Sovétríkjanna, sem féllu sem kommúnistaríki árið 1991?

Bandaríkin hafa bannað alla Huawei tækni, netbeina og hvaðeina, 5G tækniflóruna ekki hvað sízt.

Við Íslendingar hinsvegar liggjum kylliflatir fyrir kínverskum kommúnistum og þeirra tækni. Því er haldið fram að erfitt sé að sanna það sem Bandaríkjamenn halda fram um þetta og sumir aðrir.

Eðli málsins samkvæmt er erfitt að sanna ýmislegt á hátæknisviðinu. Bylgjusendingar geta borið upplýsingar sem áður fyrr var ekki hægt að ímynda sér.

Jafnvel ríki eins og Danmörk, Svíþjóð og Kanada hafa fylgt banni Bandaríkjanna og verið með vaðið fyrir neðan sig út af þessum grunsemdum.

Fram hefur komið í fréttum að í 15 ár hafa Íslendingar unnið með kínverska tækni. Fólk hjá Nova segir umræðuna vera fyrst og fremst pólitíska.

Anton Már hjá Syndis segir í RÚV frétt að hvaða framleiðandi sem er geti sett upp einhverskonar hlerunarbúnað. Þar með er hann að staðfesta og viðurkenna vísindalegan grundvöll á bak við ótta Bandaríkjamanna um klækjabrögð kínverska kommúnistaflokksins. Þar með er hann að segja að þetta er ekki samsæriskenning heldur veruleiki.

En það sem felst í orðum Antons Más hjá Syndis er í raun og veru að ríki eins og Kína, sem hefur andstætt stjórnmálakerfi en það sem er hér á Vesturlöndum, kommúnískt, og það sem meira er, einræðisstjórn, samkvæmt því sem margir halda fram, og þróunin hefur verið meira í þá átt að undanförnu, það ríki er líklegra til að beita slíkum njósnum og eftirlitsiðnaði í óþökk almennings hér á Vesturlöndum.

Hvað felst í þeim orðum að "umræðan sé fyrst og fremst pólitísk?"

Jú, það felst í þeim orðum að einungis fólk sem ann sjálfstæði og frelsi tekur þetta uppá sína arma, en þekkt er að Bandaríkin eru mikið frjálshyggjuland, þótt þar sé líka allt morandi í demókrötum.

Eða með öðrum orðum, menn eins og Ólafur Ragnar, sem að vísu var frábær forseti og á enn góða spretti, menn eins og hann sem eru haldnir Kínverjadýrkun, þeir sjá enga ástæðu til að vera sammála Bandaríkjamönnum í þessu.

Segja þessi orð einnig að almennt stjórnmálaástand á Íslandi sé kommúnískt, að öll þjóðin sé eldrauðir kommar? Já, úr því að við kjósum að fylgja Kínverjum frekar en Bandaríkjamönnum í þessu efni.

Ég keypti bók á ensku á þessu ári sem fjallar um allskonar hluti sem ekki er fjallað um í elítufjölmiðlum eins og RÚV, eitt af mörgu sem höfundurinn fjallar um er heilsuspillandi áhrif af 5G kerfinu, og kemur þar fram að það skemmi ónæmiskerfið ekki svo lítið og geri fólk næmara fyrir mörgum kvillum og sjúkdómum, ekki sízt börn og gamalmenni og veiklað fólk, sem er með aðra undirliggjandi sjúkdóma. Kemur þar fram að 5G tæknin hafi áður verið flokkuð sem árásartækni með bylgjum. Já ýmislegt þarf að athuga og vekja athygli á.

Ég get vísað í RÚV fréttina "Bann Bandaríkjamanna við Huawei hefur ekki áhrif hér", þar er hægt að lesa um þetta í ýmsum smáatriðum sem ég hef ekki öll nefnt.

Annars er ástæðan fyrir þessum pistli einnig þessi frétt sem birtist í Morgunblaðinu þar sem fjallað er um tvær kínverskar lögreglustöðvar sem voru afhjúpaðar í Þýzkalandi.

Þessar stöðvar eru notaðar til að áreita andófsmenn og gagnrýnendur kínverska kommúnistaflokksins í Þýzkalandi.

Í þeirri frétt er einnig sagt frá því að vaxandi áhyggjur séu af þessu framferði Kínverja út um allan heim. Utanríkisráðherra Tékklands segir að Kína hefði lokað tveimur slíkum miðstöðvum í Prag.

Af hverju ættum við Íslendingar ekki að taka þátt í að endurskoða afstöðu okkar til þessarar tækni og hátæknivara sem taldar eru notaðar til njósna, þar sem vitað er að þessar njósnir eru annað og meira en samsæriskenningar, og þessi áróður í þá átt að hafa áhrif á skoðanir fólks?

 


mbl.is Tvær kínverskar „lögreglustöðvar“ afhjúpaðar í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki tilgang finn þó, ljóð frá 29. apríl 1993.

Sumarfríi birtist nú, prófin og púlið,

pantaðu harðneskju, misstu ekki kúlið!

Skólinn er alveg ókei,

ekki tilgang finn þó.

Meyjar hérna margar enn

menn nú heilla, fell ég kannski líka senn?

Týndur er ég, tætt flón,

að tækifærum vinn þó.

Segðu ei sæta nei,

sjáðu, mörg er bón.

 

Sköpunin frelsandi leysir upp Loka,

líka er í mannshugum víða tóm þoka.

Ef ég eitthvað birt hef

um þær sáru kvalir,

fæ ég varla samúð samt,

að segja að einhver villist þeim er jafnan tamt.

Remba? Bók ein rétt tér.

Ráðin? Kristnir dalir!

Særður síðzt neitt gef,

samt er þrá í mér.

 

Finn hérna fjölmargar töfrandi, glæstar,

fara um á böllunum leitandi, æstar.

Elska þig ennþá, Herdís

eftir þennan tíma.

Vil þó gjarnan gleyma þér,

geta fundið þá er betur passar mér.

Það er ekki auðvelt

á mér föst er gríma.

Vegferð ekki er vís.

Víst get hurðum skellt.


Af hverju er ekki komið byltingarástand í Evrópu gegn sitjandi ríkisstjórnum?

Í kvöldfréttum RÚV var sagt frá því að í Danmörku og víðar er fólk við hungurmörk vegna stríðsins við Rússa og Pútín, orkuverð hækkar, matarverð hækkar og þetta kemur skiljanlega við fólk útum allan heim en mjög mikið og kannski mest í hinni sameinuðu Evrópu Evrópusambandsins, sem minnir æ meira á Sovétríki kommúnismans þar sem fólk dó úr kulda og hungri um langt árabil og áratugaskeið. Þetta kemur ofaná það sem hefur verið í fréttum núna í marga mánuði að sumir eru við það að krókna úr kulda, og þannig gæti það orðið, eða kannski hefur það gerzt nú þegar. Þetta er Evrópusambandið sem setur sig á háan hest siðferðislega gagnvart Rússum og öðrum. Þetta eru Bandaríkin (Joe Biden sem fordæmir Pútín er andlit þeirra), með gígantíska misskiptingu innbyggða í þjóðfélagsgerðina, og demókratar nú við stjórnvölinn sem þykjast berjast gegn henni.

Þetta eru Bretar, sem hafa gert sig að athægi fyrir óvenju hæfileikalausa og klaufalega stjórnmálamenn á þessu ári og lengur.

Spurningin er: Hversvegna er ekki búið að velta öllum þessum stjórnvöldum úr sessi, sem kalla sig lýðræðislegar, femínískar, alþjóðavæddar?

Ég hef kallað þetta jafnaðarfasisma. Þessi stjórnmálastefna hefur nefnilega næstum því allt kvenkynið einsog það leggur sig í vasanum, vinstrihreyfingin á alþjóðavísu. Það er vegna þess að saga kvenréttindahreyfinganna og rauðsokkuhreyfinganna, sem voru kallaðar súffragettur í mörgum löndum er samofin verkalýðsbaráttu og þar með vinstriöflunum.

Eða hvað? Vinstristefnan er ekki lengur það sem hún var. Áherzlan er ekki lengur á að bæta kjör öryrkja, eldri borgara eða verkalýðsins, heldur er áherzlan á tvennt: Mannréttindi minnihlutahópanna, og líka þeirra sem búa til fleiri minnihlutahópa til að þurfa ekki að vinna fyrir sér, mannréttindi lágstétta erlendis, það er að segja flóttamanna, og sú dyggðaflöggun er afsökunin að allt nema þessi fasismi, það er að segja jafnaðarfasismi sé rasismi, og þó er staðreyndin sú að mjög fáir eru alvöru rasistar, venjuleg íhaldssemi eða efnahagsskynsemi ræður slíkri íhaldssemi oftar hjá fólki.

Afleiðingin er sú að flestir hafa flúið frá vinstriflokkum og miðjuflokkum í löndum sem ruddu brautina fyrir kratismann. Í staðinn sækja margir í öfgaflokka til hægri og vinstri eða náttúruverndarflokka.

Í dag var það einnig í fréttum að öfgahægrimenn reyndu að gera alvöru valdarán í Þýzkalandi, eða það var sagt í fréttunum. Að vísu kom það fram að þeir aðhylltust konungsstjórn sem var við lýði áður en nazisminn fæddist í Þýzkalandi, þannig að enn er verið að rugla hugtökum á svívirðilegan hátt af fréttafólki.

Alltaf er verið með óttastjórnun, upphrópanir, áróðursfréttir og einhverskonar innrætingu, í stað hlutlausra frétta. Sjálft valið á fréttunum er pólitískt og allar áherzlurnar. Síðan er túlkunin mjög sértæk á öllu sem sagt er frá.

En aðalatriðið og það sem maður hlýtur að undrast er þetta: Af hverju láta Evrópumenn þetta yfir sig ganga? Er það dáleiðsla? Er það sefjun? Múgsefjun? Af hverju er ekki allt orðið vitlaust á götunum, morandi í uppreisnum og mótmælum, eins og manni þætti eðlilegt? Er þetta afleiðing af sprautuherferðinni, að þær hafi gert fólk latt og sljótt, hlýðið og hugsanalaust, dáleitt? ("Við fengum hjarðhegðun en ekki hjarðónæmi").

Eða er þetta bara rétt svo að byrja? Á fólk eftir að gera byltingar vegna ástandsins?

Getur venjulegt fólk í Danmörku og víðar látið þessar þjáningar yfir sig ganga með því að segja við sjálft sig að Pútín sé svona vondur einræðisherra og að þetta sé mannréttindamál, að þjást fyrir jafnaðarstefnuna, fjölmenninguna? Geta konur í stórum stíl í þessum löndum sagt við sjálfar sig að kvenréttindin séu í húfi og stöður þeirra í þjóðfélaginu, að ef Úkraína ekki hreki Rússa í burtu muni kvenréttindin tapa á Vesturlöndum í eitt skipti fyrir öll? Ef svo er þá eru þau kvenréttindi að falli komin og munu falla með eða án Pútíns og Rússa.

Þetta er í raun áhugaverð félagsfræðileg tilraun.

Þetta setur líka Búsáhaldabyltinguna í nýtt ljós og Wintrisbyltinguna (ofsóknirnar gegn Sigmundi Davíð). Eins og segir í grein í Kjarnanum:"Wintris málið snérist bara um að fella Sigmund Davíð", (því hann réðst gegn kröfuhöfum bankanna).

Það er næstum því alveg pottþétt og óhrekjanlegt að bæði Búsáhaldabyltingin og Wintrisbyltingin voru ekki byltingar alþýðunnar heldur byltingar eins prósents öfgafyllsta vinstrisins, sem vildi komast til valda í báðum tilfellum. Rétt eins og í rússnesku byltingunni gegn zarnum á sínum tíma og lýst var í Dýrabæ George Orwells urðu byltingarleiðtogarnir spilltir og latir eftir byltingarnar og nákvæm eftirmynd kúgaranna sem þeir börðust gegn. Er ekki fallandi gengi Vinstri grænna ljós sönnun um þetta hvernig sagan endurtekur sig? Það sama gerðist með Samfylkinguna eftir síðasta hrun.

Þetta sama fólk sem lætur ömurleika Úkraínustríðsins bitna á sér þegjandi og hljóðalaust, hvort sem það er statt inni í Úkraínu sjálfri eða í öðrum Evrópulöndum, sem "aðeins" þola orkuskort,  er þetta gott dæmi um það hvernig pólitísk sannfæring getur heilaþvegið fólk og látið það taka á sig kúgun viljandi.

Ég er ekki að neita því að Pútín beitir sömu aðferðum sjálfur. En hann er ekki peð sem auðvelt er að sigra.

Síðan er næstum helmingur kjósenda sem hefur litlar sem engar skoðanir, leyfir bara öllum svona bylgjum að stjórna sér, og sem leyfir æsingafólki til hægri eða vinstri eða á miðjunni að stjórna sér. Hitler gat virkjað þetta fólk og það gat Donald Trump sömuleiðis. Það getur jafnaðarstefnuelítan að einhverju leyti gert nú um stundir, jafnaðarstefnufasistarnir, en þó má segja að ákveðið hrun sé komið í þá fylgispekt, til dæmis á Ítalíu og í Svíþjóð.

RÚV lætur sem næstum ekkert hafi breyzt frá 1980. Hinn æðsti guð er Mammon þar og englarnir hans eru jafnaðarfasistarnir. Nýfrjálshyggjan er þeirra trúboð og alþjóðavæðingin.

Metoohreyfingin fjallar ekki um kynferðisbrot heldur kúgun minnihlutahóps á almenningi, mannkyninu öllu. Það er engin tilviljun að næstum allir prestar Þjóðkirkjunnar sem hafa verið flæmdir úr starfi fyrir þær sakir eru hefðbundnir, íhaldsamir, sem eru á móti ýmsum tízkustraumum nútímans, annaðhvort ómeðvitað eða meðvitað.

Það er heldur engin tilviljun að Weinstein og aðrir sem hafa lent í hakkavélinni tilheyra feðraveldinu að einhverju leyti, duglegum körlum sem hafa staðið saman, og tilheyra menningu eins og var í fyrstu James Bond myndunum, og hefur verið ráðandi eiginlega alla mannkynssöguna. Enda skiptir það ekki máli fyrir þessa ofstækismenn Metoohreyfingarinnar hvað er gert af sér, heldur hver gerði hvað og af hvaða kyni viðkomandi er, í hvaða stöðu og svo framvegis.

Á meðan brennur Róm, ef svo má segja, og heimurinn á í stríði.

Hvað gerist ef elítan kemst upp með þetta?

Hvað gerist ef konur halda áfram að trúa þeim lygum femínista að þetta sé þeim fyrir beztu?

Hvað gerist ef byltingar munu ekki gjörbreyta stjórnmálaásýnd Vesturlanda?

The Great Reset?


mbl.is Castillo steypt af stóli í Perú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 39
  • Sl. sólarhring: 144
  • Sl. viku: 595
  • Frá upphafi: 147289

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 474
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband