6.11.2022 | 00:17
Þegar ástin breytist í hatur minnkar ónæmi allra gegn sjúkdómum eins og Covid-19. Ný bylgja kannski í uppsiglingu samkvæmt kvöldfréttum RÚV 5. nóvember.
Nú var það í kvöldfréttum RÚV að Covid-19 smit væru enn á uppleið, sama afbrigðið og dauðsföllum fjölgar. Sagði Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir að ekki yrði gripið til takmarkana nema smitum fjölgaði mikið.
Ástæðan fyrir veikindum og dauða af völdum Covid-19 er skortur á náungakærleika, af völdum Metoobylgjanna sem drepa fólk.
Hvar er allur herskarinn af konum sem trúir þessu, já, öllum þessum andlega sinnuðu konum sem trúa á mátt kærleikans? Þær vita þetta innst inni, að skortur á samfélagslegum kærleika leiðir til aukinna dauðsfalla, pottþétt, ekkert kannski með það. Máttur kærleikans er vísindalega sannaður, til dæmis með lífgefandi áhrifum athygli á blóm, það eru margir áratugir síðan þær rannsóknir voru gerðar og niðurstöðurnar bentu ótvírætt í þá átt að kærleikurinn væri raunverulegt afl en ekki ímyndun.
Hverskonar glæpur er það að ræna kærleikanum frá mannkyninu?
Jón Baldvin Hannibalsson er ofsóttur nú enn á ný af bitrum konum og körlum. Hann er sekur um að boða ranga stefnu, jafnaðarstefnuna, annað ekki.
Annaðhvort í Stundinni eða DV var fréttaumfjöllun á þann veg að fréttakonan efaðist um að nemandinn, þessi unga stúlka, hafi talið sig elska Jón Baldvin, eða hrífast af honum, eins og það sé eitthvað ómögulegt. Slíkt er meira að segja algengt og hefur alltaf verið algengt.
Það er ekki hægt að telja öllum trú um að gagnkynhneigð sé óeðli og perraskapur en ekki það sem áður var fordæmt.
Hatrið á Jóni Baldvin á allt uppruna sinn í móðursýki og bælingu, eins og Sigmund Freud útskýrði. Draumakenning Freuds er ekki rétt, en þarna hafði hann rétt fyrir sér.
Það væri hægt að lækna öll Covid smit og stöðva öll umframdauðsföll ef kærleikann væri hægt að fá til baka sem þjóðin átti fyrir uppgang femínismans fyrir 40 árum, og fyrir meira en 100 árum, áður en rauðsokkurnar fóru á kreik. En því miður, það mun ekki gerast. Femínisminn er drepsótt sem drepur alla að lokum, og það verður aðeins séð eftirá, í andlegum heimi, eða á öðrum hnöttum, ef um eitthvað framlíf verður að ræða, ef svona syndaselir og djöflamannkyn þurrkast ekki fullkomlega út í eitt skipti fyrir öll í þessari sameiginlegu sjálfsmorðbylgju nútímans.
Ég er alveg viss um það sem ég er að skrifa um. Ég hef unnið í andlegum málum lengi og verið næmur. Ég byggi á kenningum sem ég lærði fyrir löngu, og þetta er sameiginlegur skilningur margra.
Algengt var að konur skrifuðu um þetta fyrir 30 árum, og fyrir 20 árum í pistlum og fjölmörgum sjálfshjálparbókum. Síðan drekkti Metooumræðan öllum þessum kærleika og í staðinn kom hatur. Er það eðlilegt?
Vottar Jehóva lentu í sviðsljósinu nýlega. Kona ein sagði það ofbeldi sem þeir héldu fram, fyrrum meðlimur.
Hvernig getur það verið ofbeldi að predika orð Guðs?
Fyrir einni eða tveimur vikum var Gísli Marteinn að gera grín að Vottum Jehóva í þætti sínum á RÚV fyrir myndband sem þeir gerðu um að guð hafi skapað karl og konu til að fjölga sér og búa til börn. Það sem fór mest í skapið á samkynhneigðum og gagnkynhneigðum viðmælendum hans var að þar var tekið fram að samkynhneigðin væri ekki guði Biblíunnar að skapi og að slíkt kæmist ekki til Himnaríkis, yrði að skilja eftir á jörðinni.
Fyrir um það bil 10 árum var frasi algengur í fjölmiðlum sem samkynhneigðir notuðu til að sannfæra fólk, að verið væri að gera ástina að vandamáli, af því fólki sem væri fordómafullt.
En þetta fólk sem agnúast útí gagnkynhneigð og samfélagið eins og það var áður fyrr, það hefur lítið umburðarlyndi og gerir þá ást að vandamáli sem er þannig og samkvæmt hefðinni, og Biblíunni og öðrum trúarbrögðum.
Af hverju ættu ekki Vottar Jehóva að halda sig við Biblíutextana frekar en kattarklórið og yfirklór nútímans?
Þessi pistill er gremjulosun útaf mörgum hlutum. Að síðustu vil ég fjalla um þátt Gísla Marteins nú um helgina. Þar gerði hann stólpagrín að Sjálfstæðisflokknum og næstum öllu sem honum tilheyrir. Hvernig stendur á þessu, maðurinn var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á sínum tíma?
Ef Sjálfstæðisflokkurinn á svona vini og fyrrverandi eða núverandi borgarfulltrúa eða meðlimi eins og Gísla Martein á RÚV þarf hann enga óvini.
Sjálfstæðisflokkurinn er að minnsta kosti enn sá flokkur sem heldur í heiðri gömul gildi. Kannski mun sá tími koma að ungu kynslóðirnar vilji slíkt aftur og kunni að meta það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2022 | 08:01
Áróðursfréttir
Einsog RÚV reynir að stýra umfjöllun og skoðunum fólks, þannig eru ábyggilega flestir hræddir um að stöðugleikinn í ríkisstjórninni sé í hættu ef Bjarni verður ekki lengur formaður. Ekki kæmi mér á óvart að hann fengi rússneska kosningu á morgun, fengi 90% atkvæða eða meira, en það er aldrei að vita. Kosningar eru oft óútreiknanlegar.
"Við fengum hjarðhegðun en ekki hjarðónæmi með bólusetningunum", þau orð Jóhanns bloggara eiga enn við.
En að öðru máli. Pistlar Páls Vilhjálmssonar um Samherjamálið/Byrlunarmálið, eða hvað sem á að kalla þetta eru sérlega sláandi núna að undanförnu. Samþjöppun á fjölmiðlamarkaði á Íslandi er mikil.
Ég tel af umfjöllun Kveiks um árið að mögulega sé mikil spilling í Samherja. En pistlar Páls Vilhjálmssonar um þetta eru sannfærandi eins og gengið sé á rétt skipstjórans.
Í gær hafði ég samúð með skipstjóranum sem fær ekki lengur að tjá sig. Ekki ein einasta frétt um þá meðferð sem hann fékk á Hringbraut, RÚV eða Stöð 2, kannski vegna þess að blaðamenn og fjölmiðlamenn þekkjast og vita að verið er að vega að þeim sjálfum.
Það kom fram í því sem Jón Gunnarsson sagði, að það sem er fyrsta frétt, um brottflutning flóttamanna, það gerist í hverri viku.
Margir blaðamenn koma með þessa rangfærslu eins og í DV, "brottvísunarmálið sem hefur skekið þjóðina", réttara er það sem kom fram í Fréttablaðinu í gær í leiðaranum, að langflestum er sama, eða hafa ekki fyrir því að mótmæla.
Kirkjan hefur verið óvinsæl af vinstrimönnum lengi. Biskupinn núverandi reynir að gera kirkjuna vinsælli með því að tala máli flóttamanna. DV segir einnig frá viðbrögðum biskupsins við þessu.
Hins vegar eru undir fréttinni áhugaverð ummæli og athugasemdir. Þar kemur fram að hún ætti að skella sér til Svíþjóðar að skoða ástandið þar, og til landa þar sem mannréttindi eru alls ekki virt.
Einn í DV segir í athugasemdum: "En að biskup tjá sig með tárin í augunum veldur mér ógleði. Samhliða því að gráta stöðu hælisleitenda ætti hún að líta sér nær..."
Sævar Albertsson: "Agnes M. Sigurðardóttir, farðu bara út, Íslendingar vilja örugglega ekki pína þig til að búa í þessu landi sem þú vilt lítið með hafa, góða ferð".
Elín María Hilmarsdóttir:"...Mannkærleikur og hann er vissulega ekki meiri í Svíþjóð".
Í áróðursstríði vinstriafla og hægriafla á Íslandi er allt notað. Fréttir um meinta en umdeilda ómannúðlega meðferð flóttamanna er eitt slíkt vopn, til að reyna að fá almenning til að sýna vinstristefnuskoðanir.
![]() |
Hefur ekki áhyggjur af úrræðum í Grikklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2022 | 04:56
Sandkorn, ljóð 16. apríl 2018.
Allt er eitt,
ekkert skynjar.
Vélrænu ferlarnir, náms ekki nýtur.
Náðin styrkinn brýtur.
Munu nægja mennskar vinjar?
Meyjan sanna deyr burt þreytt.
Féll hann frá,
furður sorgar.
Týndur í tröllanna skógum um nætur.
Takmark heimsins grætur.
Þar á bryggju bölsins dorgar,
björgin gleypa litla þrá.
Erfitt er
út að brjótast.
Barnæskan, vinirnir, uppeldið eina,
allt má síðan reyna.
Tæling, það sem tryllti ljótast,
tíminn rétti jafnvel fer.
Glatast gauð,
gleymist dýrðin.
Stórvirkin fallandi, menningin morkin.
Meyjan reynir storkin.
Aftur þannig reyndu, rýrðin,
ríkin orðin barnsleg, dauð.
Hlusta hér
á hana kenna.
Áhugaleysið mun aftur þín vitja.
Ekki þó til nytja.
Eins og sól má afli brenna,
einnig sekkur mannsins sker.
Nær þeim nótt,
nöfnin gleymast.
Skólarnir, atvinnan, endurheimt drauma,
undir mun því krauma.
Aftur svo að tröllum teymast,
takmark ekki næst svo fljótt.
Segir sér
sízt það rétta.
Vinkonur, vinir og hellirinn þeirra.
(Varla nokkuð fleira).
Því mun saman þursinn flétta,
þú ert sandkorn aðeins hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2022 | 13:22
Líklegra er að Bjarni Benediktsson sigri Guðlaug Þór, að sjálfsögðu
Ég hef áhuga á að lifa á listsköpun en það er ekki hægt í hruninni siðmenningu nútímans sem augljós er. Aðeins sósíalísk iðnaðarframleiðsla nær vinsældum í nútímanum, sem kölluð er list. Að þessu sinni finnst mér pistill Björns Bjarnasonar mjög fróðlegur um vinstriöfga Grétu Thunberg. Hann staðfestir það sem mig grunaði, að hún færi í þessa átt. Ég get virt hana sem öflugan talsmann umhverfisverndar, en hún er of ung til að mynda sér sjálfstæðar skoðanir á þessu, hún fer í rudd plógför sem alltof margir í Svíþjóð og víðar fara í.
Vinstrimenn og jafnaðarmenn stunda það að hertaka hugmyndir og ungt fólk. Það er hluti af marxismanum og afleiddum kúgunarkerfum hans.
Það er annars nokkuð víst að Bjarni Benediktsson mun sennilega vinna Guðlaug Þór, það verður tæplega sú endurnýjun að hann verði næsti formaður. Ísland er gjörspillt og það sést á þessu.
Listsköpun í Sovétríkjunum fékk ekki stuðning eða útgáfu nema Stalín væri mærður eða hans heimsmynd. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur hugmyndafræðilegan bakgrunn og nægilega stærð og styrk til að berjast gegn þeim kommúnisma sem nú laumar sér inní öll skot undir allskonar öðrum nöfnum á heimsvísu, en mest á Vesturlöndum.
Þátturinn hans Gísla Martins á RÚV er gott dæmi um gerspilltan menningarþátt. Allir sem þar spila hafa farið í gegnum sósíalíska síu um pólitíska rétthugsun/ranghugsun. Stundum gerist það að hann fær að vísu fólk í viðtöl með aðrar skoðanir en hann bjóst við, og kemur þá á hann vandræðalegur svipur.
Það er enginn metnaður á RÚV lengur nema í marxísku menningaráttina. Reyndar mætti leggja allar sjónvarpsstöðvar af á Íslandi, Hringbraut er hertekin af ESB fasistum, og Stöð 2 siglir á sömu miðum.
Framboðið hans Guðlaugs Þórs er ekki endirinn á umbrotum innan Sjálfstæðisflokksins. Öfugt við það sem margir halda er ekki hægt að halda umbótaöflum í skefjum með því að stöðva einn slíkan frambjóðanda.
Við erum hluti af alþjóðlegri þróun. Ef Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að þróast í femínískan jafnaðarmannaflokk fáum við bara annan flokk í stað hans til hægri með réttar hugsjónir og stefnu, og gott fylgi.
Kínverjar eru svo gott sem gjaldþrota vegna kommúnisma síns. Það eru Bandaríkin líka undir stjórn Bidens. En kreppur koma ekki endilega aftur. Á meðan eina prósentið sem stjórnar heiminum vill ekki kreppur koma ekki kreppur, nema hjá almenningi. Joe Biden og Kínverjar halda að prentun á peningum leysi allan vanda. Jæja, á meðan eina prósentið sem á þá og mannkynið samþykkir það gengur það upp, en ekki annars.
Hversu mikið er hægt að arðræna millistéttina og lágstéttirnar áður en uppreisnir koma sem ekki eru stýrðar vinstrimannauppreisnir? Þetta er spurningin sem eina prósentið sem á mannkynið spyr sig, hversu langt er hægt að ganga í arðráninu?
Hversu langt er hægt að ganga í að finna blóraböggla eins og útrásarvíkingana?
![]() |
Coolbet telur Bjarna líklegri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er miklu sáttari við Lula sem forseta þrátt fyrir spillinguna sem hann var dæmdur fyrir, ranglega. Takið eftir að þetta er að verða lenzka því miður víða um heim, að losna við pólitíska andstæðinga með því að dæma þá ranglega eða fyrir litlar sakir, einnig í Norður Ameríku þegar um stuðningsmenn Trumps er að ræða og kannski hann sjálfan. Lýðræði af þessu tagi er ekki lýðræði heldur einhverskonar tegund af einræði, féræði, fáræði eða jafnaðarfasisma. Lýðræði er þetta ekki, þótt svo sé það kallað. Ísland tekur þátt í hnignuninni einsog önnur vestræn ríki.
Bolsonaro er glæpamaður gegn mannkyninu með því að stuðla að skógareyðingunni, fjöldadauða vegna lélegra Covid-19 viðbragða og fátækt landsmanna sinna, og sem betur fer eru einnig Brazilíumenn sem búa á Íslandi sammála þessu sem RÚV hefur rætt við. Þarna er ég gjörsamlega ánægður með efnistök RÚV og sammála þeim.
Kannski er ég meiri vinstrimaður en hægrimaður. Það met ég eftir þeim stefnumálum sem þessir flokkar styðja.
![]() |
Verja lungu heimsins áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2022 | 04:58
Leðju makar Lokaþvegill, ljóð, 23. apríl 2018.
Unga sálin aðeins spegill,
orðin þeim sjálfum því lýsa.
Leðju makar Lokaþvegill,
losti, hatur, fýsa.
Elska með hatrinu ungfrúrnar gömlu,
andans veraldir þannig, lærðu!
Menning fallin, þig enn þannig slærðu!
það er fánýtt nú að trúa á andahyggju, sjá!
Dregst sú eining enn úr hömlu,
ekki svarið fá.
Þar hrokinn vex í hrókagarði,
hrifningin fortíðar skart er.
Fellur döggin fyrr en varði,
forarpyttinn snart hér.
Þversagnir galtómar, það örgum veitist,
þú ert ráfandi, hvað munt lepja?
Annar stjórnar, vitrast valdið, nepja,
viltu trúa á grimmd og hroka, fólskuhegðun enn?
Vargur svo á vinnu þreytist,
verða að skilja menn.
Guðum eru gleymdir djöflar,
gera sér sjálfum þann skaða.
Blekking sínu ríki í röflar,
rangt er snúin vaða.
Fagnaðarerindið, fyndnin og öfund,
fæstir taka eftir þessu skýra.
Líta á smáleik, burt fer brauðið dýra,
bara egó, guðum traðka á, sjálfhverf, lítil flón.
Annan sjá því allífs höfund,
aðeins vinna tjón.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2022 | 03:14
Mjög gott viðtal við Guðlaug Þór í Silfrinu
Frænka mín úr föðurættinni, Sigríður Hagalín stýrði einu bezta Silfri í langan tíma í gær. Skipti mestu máli að Guðlaugur Þór held ég að hafi verið í sínu bezta viðtali hingað til, hann var fljótur að svara, hikaði aldrei og var miklu, miklu ákveðnari og með meira sjálfstraust en núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hefur verið um langt skeið, Bjarni Benediktsson.
Guðlaugur Þór í þessu góða Silfri minnti mig á formenn Sjálfstæðisflokksins frá því ég var krakki og þar til Davíð Oddsson lét af embætti, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn hafði virkileg ítök í þjóðfélaginu eins og Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum.
Ég vil nú reyndar ekki segja að Bjarni Benediktsson sé endilega búinn að standa sig illa sem formaður Sjálfstæðisflokksins, en mér finnst niðurferð flokksins hafa verið hæg og jöfn en ákveðin og að framtíðin sé ekki með hann sem formann, miðað við það sem Guðlaugur sagði réttilega í Silfrinu, þetta hafa verið varnarsigrar hjá honum sem formaður.
Og þó er þetta ekki einfalt. Það er hættuspil að kjósa nýjan formann í stærsta flokki landsins sem bæði gæti minnkað og stækkað við nýjan formann. Það er svo margt ófyrirsjáanlegt í þessu.
Þetta eru býsna stór tíðindi í íslenzkri pólitík. Ég held að Guðlaugur Þór eigi möguleika á að rífa flokkinn upp í fylgi, en ég held líka að það sé erfitt og einnig að ráðleggja hvernig hægt er að gera það.
Það virðist nú býsna útséð með það að þrátt fyrir marga góða kosti hjá Bjarna sem formanni muni hann ekki stækka flokkinn, fyrst hann hefur ekki gert það enn.
Ég reyndar tek undir það að ákveðin hætta gæti falizt í að skipta um formann núna hvað varðar ríkisstjórnina, en þó býst ég frekar við því að styrkar hendur Katrínar og Sigurðarðar Inga myndu sigla þjóðarskútunni áfram í gegnum slíkan brimskafl. Þetta fólk hefur þannig mannkosti, samstarfsvilja og félagsfærni. En í kjölfarið á kjöri Guðlaugs Þórs gætu komið allskonar breytingar í þjóðfélaginu, með breyttum áherzlum.
En Bjarni er ábyggilega á útleið í pólitíkinni þegar á allt er litið. Ég heyrði það á Kristrúnu Frostadóttur að hún mun tæplega vinna vel með Bjarna. Hinir vinstriflokkarnir varla heldur.
Þetta eru eiginlega spennandi tímar bæði í þjóðfélaginu og hjá Sjálfstæðisflokknum. Ef Guðlaugur Þór tapar núna, mun hann ná árangri síðar, eða komast þá Áslaug eða Kolbrún til valda sem formenn?
![]() |
Bjarni og Guðlaugur virkja stuðningsmenn sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar ég las nýlegan pistil Ómars Geirssonar hnaut ég um orðið "ættlaus", sem ég hafði ekki heyrt notað í áraraðir eða frá því ég var drengur. Eina manneskjan sem notaði þetta orð var amma, og ég held að ég hafi ekki skilið merkingu þess þá. Hún notaði það í samhenginu "það tók á hana að vera svona ættlaus", "það fékk á hana að vera svona ættlaus", og var að tala um konu sem giftist ríkari manni.
Enginn er auðvitað alveg ættlaus, en merkingin er að vera ekki af nógu ríkri ætt. Annars ætla ég að vona að jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn hafi þróazt og þroskazt uppúr þeirri menningu að auður, ætt og völd skipti öllu máli þegar kemur að því að komast til valda innan flokksins.
Stéttir skipta enn máli, en ég held að það væri gott að maður eins og Guðlaugur Þór yrði formaður, sem hefur unnið sig upp og ekki vegna tengsla við Engeyjarættina. Auðvitað eru sjálfstæðismenn breiðari hópur en svo.
Annars finnst mér Guðlaugur Þór hafa breyzt úr því að vera lítt áberandi maður yfir í það að vera spennandi spurningamerki, sem sagt, allt getur gerzt og hann hefur að minnsta kosti metnað sem Bjarni virðist ekki hafa, nema á að rugga ekki bátum.
Ég veit að Guðlaugur Þór hefur frekar verið eins og Joe Biden, með ósigra nokkra í fortíðinni, en það er varla um marga að velja sem gætu tekið við af Bjarna Benediktssyni. Áslaug Arna er eins og Pírati í röngum flokki og Kolbrún Reykfjörð reyndar ekki alveg, hún er meira eins og Viðreisnarkona í röngum flokki.
Guðlaugur Þór hefur gjörsamlega skynbragð á hvernig hægt væri að veita Sjálfstæðisflokknum meiri skírskotun hjá fólki, miðað við núna. En hvort hann er nógu sterkur persónuleiki til þess er spurning.
![]() |
Ríkisstjórnarsamstarfið líklega ekki í húfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2022 | 00:31
Ég var sannspár fyrr í vetur um breytingar á Samfylkingunni með Kristrúnu
Ég var fullkomlega sannspár fyrr í vetur um breytta stefnu Kristrúnar, hinnar nýju Samfylkingardrottningar, nú þegar hún hefur verið kjörinn formaður Samfylkingarinnar, minni áherzla á nýja stjórnarskrá og ESB aðildardrauminn. Meiri áherzla á samvinnu við aðra flokka og að hlusta á almenning í landinu, útilokar ekki Sjálfstæðisflokkinn algerlega eins og gert var í mörg mögur og vinsældarrýr ár
Hún boðaði í stefnuræðu sinni að breytingarnar byrjuðu strax í dag. Þegar ég deildi við Þorstein Briem í athugasemdunum fyrir neðan pistil minn um þetta fyrr á þessu ári gat hann vitnað í ótal fréttir eins og reyndur blaðamaður og var viss um að engin stefnubreyting yrði með Kristrúnu. Ég hafði þá mannþekkingu og las hana það vel að ég taldi að svo yrði, og það hefur hún nú sjálf staðfest með orðum sínum. Kannski eitthvað sé hæft í öðrum pistlum mínum einnig frá fyrri tíð? Hann taldi að engar breytingar yrðu með Kristrúnu. Það hefur nú samt gerzt núna og hún hefur sagt sumt afdráttarlaust en gefið annað í skyn nokkuð skýrt, eins og að útilokunarstefnan sé að baki, hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn, nema þau í Samfylkingunni girnast fjármálaráðuneytið, og álíta sjálfstæðismenn hlýðna sem lömb að öðru leyti.
Þetta eru góðar fréttir fyrir stjórnmálafriðinn í landinu og kannski fólkið í landinu. En mun Samfylkingin fá þann styrk sem Kristrún og félagar ætla að reyna að vinna flokknum inn? Nú hangir flokkurinn í tæpum tíu prósentum og það er að sjálfsögðu langt undir þeim væntingum sem nafnið gefur til kynna:"Samfylkingin, jafnaðarflokkur Íslands", en nafnið gefur til kynna að metnaðurinn stefni til þess að þessi flokkur verði heimili langflestra jafnaðarmanna og vinstrimanna á Íslandi, og ef það tekst er úti um Pírata, Vinstri græna og Viðreisn, því fylgið er mjög laust á þeim og þeir fiska á svipuðum miðum, nú sérstaklega eftir að VG hefur verið í stjórn með Framsókn og Sjálfstæðisflokknum, og áherzlur flokksins hafa þurrkazt út að miklu leyti.
Akkilesarhæll vinstrimanna og jafnaðarmanna á Íslandi og víðar eru innbyrðis deilur eilífar og klofningar flokka, og það er svosem ekkert nýtt. Því miður hafa hægrimenn einnig smitazt af þeirri pest, þar sem meira hefur verið um klofning hjá hægrimönnum nú síðastliðin ár en oft áður. Sterkir og óumdeildir leiðtogar voru einn helzti styrkur Sjálfstæðisflokksins um langt árabil, en sveigjanleg stefna og gríðarleg breidd í umburðarlyndi á skoðunum.
Stöðnunin virðist ekki lengur vinsæl innan Samfylkingarinnar. Ég vil hugsanlega kjósa Samfylkinguna aftur núna, enda er ESB aðild ekki mér fullkomlega andstæð, miðað við hvernig allt er í rúst í heiminum hvort sem er.
En kosningahegðunin er allt öðruvísi hjá fólki en áður. Meira er um að fólk ákveði sig í klefanum, að því finnist þetta allt sama tóbakið.
Ég tel að það myndi vera þroskamerki ef Píratar myndu rata aftur til Samfylkingarinnar, Sósíalistar og Viðreisn. Vinstri grænir hafa jú alltaf verið öðruvísi, með ræturnar í Alþýðubandalaginu og Nató-andstöðuna. Það er mjög undarlegt að Nató-Kata hafi ekki sprengt stjórnina miðað við langa Nató-andúð kommúnistanna sem eru grunnurinn í flokknum.
En annað merkilegt hefur komið fram í skoðanakönnunum. Mikið af því fylgi sem farið hefur af Sjálfstæðisflokknum hefur farið á Vinstri græna, á meðan þeir hafa tapað sínu fylgi til Sósíalistaflokksins og víðar.
Almenningur er farinn að líta á Vinstri græna sem undarlegt sambland af hægriflokki, vinstriflokki og miðjuflokki. Vinstri grænir verða bara að vinna með þá stöðu og hvernig spilast úr þeirra málum eftir þetta langa stjórnarsamstarf.
Þetta kom fram í einhverju viðtali við stjórnmálafræðing eftir skoðanakönnun á þessu ári, minnir mig, annaðhvort var það Eiríkur Bergmann eða einhver annar sem lýsti þessu.
Hætt er við að fleiri flokkar en Samfylkingin verði að líta í eigin barm og gera upp sögu sína til að reyna að auka fylgi sitt. Samfylkingin vill leita til rótanna, verkalýðsins. Verða ekki sjálfstæðismenn að gera eitthvað svipað til að auka fylgi flokksins?
![]() |
Við verðum að brjótast út úr bergmálshellinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ætli Eiríkur Bergmann prófessor hafi spurt sig að því hvort ástæðan fyrir því að jaðarkenningarnar eru komnar í miðju umræðunnar sé sú að þær geti verið réttar og veruleikinn sjálfur?
Maður sér nú hvernig hægrimenn og vinstrimenn berjast hatrammri baráttu um tjáningafrelsi, völd, áhrif og fjármagn og annað slíkt, og Elon Musk og Donald Trump þar framarlega og áberandi.
Hefur Eiríkur Bergmann spurt sig að því hvort vinstrimenn og jafnaðarmenn í Evrópu og víðar hafi breyzt og orðið ýgari, grimmari og ófyrirleitnari en áður, ekki ósvipað kommúnistunum í Kína?
Kommúnistar eru víðar en í Kína. Hinn kínverski kommúnismi hefur verið aðlagaður að kapítalismanum, og sumir halda því fram að Kínverjar hafi ítök víða í heiminum, og það virðist svo sem alveg ljóst.
Dr. Helgi Pjeturss hélt því fram að við Íslendingar ættum að vera forystuþjóð, í því að reisa hér fyrstu stjörnusambandsstöð í heimi í Öskjuhlíð, og verða friðarleiðtogar, og leiðtogar í trúmálum og vísindum, með Nýalsstefnunni. Að öðrum kosti myndi helstefnan sigra, sem hún hefur svo sannarlega gert, þar sem kenningar hans náðu ekki til fjöldans.
Nú finnst mér það að vísu mjög áhugavert að Ásatrúarmenn hafa reist sitt hof í Öskjuhlíðinni. Er myndarbragur á því og vonandi að mannkynið eigi sér von.
Það er ekki lengur í boði að innræta börnum og unglingum einungis vinstrifræði og Woke-fræði í skólunum. Fréttamenn sem nota þýddar fréttir og staðla frá útlöndum fá greitt fyrir að rugga ekki bátum, en fjölmiðlar eins og Útvarp Saga og Fréttin þurfa að verða meginstraumsfjölmiðlar og við þurfum sem flesta þannig fjölmiðla.
Það eru býsna margir sem ýja að því að Þriðja heimsstyrjöldin sé hafin eða muni hefjast. Það hversu ónauðsynlegt og furðulegt Úkraínustríðið er ættu þó öllum að vera ljóst. Einnig að vilji til friðar, einlægur vilji, er fyrsta skrefið.
Á bakvið átökin í Úkraínu er áróðursstríðið, tilraunin til að sannfæra fólk um að heimssýn Demókrata eða Repúblikana sé rétt.
Ég bind nokkrar vonir við Kristrúnu Frostadóttur, nýjan formann Samfylkingarinnar. Hún talar frekar eins og Katrín í VG, sem kann að vinna með öðrum flokkum og útilokar þá ekki.
Í heimsmálunum er einmitt þörf fyrir þannig fólk, sem notar mildina, kærleikann, fyrirgefninguna, sáttfýsina, innsæið og slíkt.
![]() |
Jaðarkenningar í miðju umræðunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 53
- Sl. sólarhring: 102
- Sl. viku: 761
- Frá upphafi: 148227
Annað
- Innlit í dag: 46
- Innlit sl. viku: 639
- Gestir í dag: 42
- IP-tölur í dag: 42
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar