Bloggfærslur mánaðarins, september 2024
23.9.2024 | 00:34
Skinny Like The Rest, ljóð frá 23. marz 2023.
Now you've got your future, fame,
females better, so you wave.
Pain and sickness, pity them,
partly 'cause there's always gem,
somewhere hidden,
geishas gotten ridden
of, then hide the hardy name.
Violet maybe someone's dream,
not mine, skinny like the rest.
Never knew what was just best.
Why should I miss someone?
How could you love anyone?
So we hate each other.
So love is no more.
Maybe your fault? Who was so bad?
Maybe I was hurt?
Is it possible?
So who will talk together?
Something for stones and dead things and not for us?
You watch the people die.
You don't have feelings anymore
because I don't love women
they way they're treating you,
you just can't no more.
Violet, I thought she was special, even better than the rest,
how wrong was I!
Now you should never love or trust,
I knew it.
And you see all this shit,
people destroying the world
because they hate each other.
What went wrong?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2024 | 02:49
Hödd Vilhjálmsdóttir segir hann hafa fyrirfarið sér vegna Metoo. Konur farnar að mótmæla femínismanum
Það er guðfræðileg og heimspekileg spurning hvort hið góða og hið vonda komi frá manninum sjálfum, okkur sem erum á þessari jörð, eða veru sem kölluð er Guð og veru sem kölluð er Djöfullinn, eða hvort guðir og djöflar eru taldir uppruni góðs og ills.
Síðan er það spurningin, hvað er gott, hvað er illt?
Hafi maður kafað í heimspekina alveg til botns þá verður manni það ljóst að þessar andstæður eru afstæðar. Það sem einum finnst gott það finnst öðrum vont. Það sem einum finnst góðmennska það finnst öðrum mannvonzka. Ekki þarf annað en að athuga stjórnmálin, þá rennur þetta upp fyrir manni.
Það sem hægrimönnum finnst skynsamlegt, að hafa landamærin ekki of opin, og fara eftir reglum í flóttamannamálum og innflutningsmálum á fólki, það kalla sumir vinstrimenn hatur og brot á mannréttindum.
Að sama skapi þá kalla hægrimenn það vonzku að ljúga að fólki þannig að kjör þess versna við of mikinn innflutning fólks. Þetta er það sem hefur verið að gerast í Evrópu, í Danmörku, Svíþjóð, Þýzkalandi, útum allt. Stærri flokkar sem byggja á útlendingaandúð eru niðurstaðan af þeim blekkingum jafnaðarmanna, eins og þeir voru, og eru enn að einhverju leyti.
Ég hef nú um mjög langt skeið haft áhuga á heiðnum trúarbrögðum, og hef lært margt.
Eitt sinn var ég að hlusta á Rás 1, RÚV. Þá var heimspekingur að tala þar. Það er langt síðan þetta var, kannski 30 ár. Allavega hann sagði gullvæga setningu sem ég hef aldrei gleymt.
Hann sagði eitthvað á þessa leið: "Það sem hefur verið verst fyrir mannkynið er ekki hatur eða reiði af gamla taginu eða það sem Biblían fordæmir af því tagi, heldur heimska, misskilningur og vísvitandi sjálfsblekking stórra hópa og einstaklinga."
Hann hélt því fram að kommúnismi og fasismi hefðu byggzt á svona sjálfsblekkingum, og lýðstjórnun á stórum hópum.
Maður spyr sig, ef Djöfullinn er til, er hann þá dýrslegur eða er hann sá sem blekkir og verður frægur?
Eitt sinn vorum við mamma náin og fórum saman á samkomur kristilegar.
Þá heyrði ég oft að predikarar sögðu að Andkristur kæmi sem vinsæll og flottur einstaklingur, hann yrði ekki tapari heldur sigurvegarinn mesti, sá sem myndi blekkja fjöldann og ná þannig ógurlegum völdum.
Það er barnaleg hugmynd sem maður heyrir mjög oft eða les um, það það dýrslega sé vondzkan í eðli sínu, að Satan sé þannig. Ég held að það sé ekki rétt.
Reiði, grimmd og hefndarfýsn, þetta eru allt saman eðlishvatir sem eru fullkomlega eðlilegar og réttlætanlegar, því þær eru hluti af sjálfsbjargarviðleitninni.
Hins vegar er til annarskonar hegðun í mannanna ríki sem telja má fullkomlega djöfullega, og hún var ekki til fyrr á öldum.
Bakslagið í femínismanum er ekkert annað en mennskan að láta á sér kræla, eitthvað gott og réttlátt, í stað haturs femínismans.
Ungur maður sem fyrirfór sér er mikið til umræðu núna útum allt samfélagið, og það er gott að loksins fái þau hræðilegu og alltof algengu atburðir athygli.
Loksins eru sumar konur farnar að tala um að Metoo hafi kostað mannslíf. Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill er ein af þeim og segi ég bara húrra fyrir henni, að eitthvað gott komi frá konum aftur og ekki bara hatur á strákum og körlum.
"Rétttrúnaðurinn ristir djúpt", skrifar Ásta Gothgirl. Mjög margir taka í sama streng og fleiri þumla fá allir þeir sem eru með ógeð á Metoo í DV.
Að vísu kenna margir vinnustaðnum um, Icelandair, en á bakvið alla vinnustaði er fólk og vinnustaðamenning, og eineltið sem sá lenti í sem fyrirfór sér, og eineltið á Metoogrundvellinum, það er án efa ástæðan fyrir því að hann tók líf sitt, eins og kemur fram í sjálfsmorðsbréfinu sem hann ritaði sjálfur og er svo óendanlega sorglegt.
Sagt upp á grundvelli Metoomáls og tók líf sitt. Þessi saga er ekki einsdæmi.
Sjálfsmorð eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna næstum fram að þrítugu las ég einhversstaðar. Það er svo hræðilegt að það þarf að vinda ofanaf því og fá umræðu um það, eins og með þessi skelfilegu morð sem hafa skekið allt þjóðfélagið að undanförnu.
Margrét Friðriksdóttir fjölmiðlakonan fræga, sem heldur uppi baráttu fyrir hægrisjónarmiðum og kristilegum sjónarmiðum, hún mun víst einnig hafa lent í femínistunum sem vinna hjá Icelandair, samkvæmt athugasemdum í DV.
Það sem er virðingarvert við Hödd, sem er lögfræðingur og almannatengill, er að hún hefur lent í erfiðleikum sjálf, ofbeldi í hjónabandi og skilnaði, og samt fyllist hún ekki svo af hefnigirni og hatri á karlmönnum að hún sjái ekki réttlætið og þegar Metoovaldabaráttan kostar mannslíf, og gagnrýnir Metoofyrirbærið og fær hrós fyrir og velþóknun fólks.
Ég skrifaði um það á Fésbókarsíðu minni fyrir nokkrum vikum að ég teldi vestrænt samfélag Hrungni, sem einnig er Jesús Kristur með nokkrum rökum. Einnig sagði ég að samfélagsmiðlarnir í heild væru Hrungnir.
Nú er það skiljanlegt að margir eigi erfitt með að skilja þetta.
Til fróðleiks get ég bent á hugmyndir þær sem Emanuel Swedenborg fjallaði um, hann fann þær ekki upp, þetta var speki sem var algeng fyrr á öldum.
Hann hélt því fram að himnaríki allt væri Drottinn, Stórmaður svonefndur. Enn fremur hélt hann því fram að Helja væri eitt kvikindi, ein Stórkona eða Stórmaður.
Þetta er náskylt hugmyndum dr. Helga Pjeturss og annarra heimsspekinga um eina stóra lífheild, hyperzóon, sem er gríska og merkir yfirlífvera.
Ég hef mikið velt fyrir mér hegðun kvenna, sérstaklega eftir að þær sýktust af drepsóttarveirunum sem heita femínismi og jafnrétti.
Að mörgu leyti eru konur dýrslegri en karlar. Það mat mitt byggist á hegðun þeirra og félagslegum samskiptum. Þær eru samstilltari en karlmenn, sem eru meiri einstaklingshyggjuverur.
Konur minna sem heild meira á litlar býflugur í stóru býflugnabúi, konur vinna saman, hafa sömu skoðanir, sömu lífssýn, fara næstum allar á sama trendið, sama hversu vitlaust það er.
Konur kjósa meira til vinstri, og hvað vilja vinstrimenn?
Vinstrimenn vilja eitt kommúnískt ríki, eitt útblásið ríkisbákn, þar sem er deilt og drottnað, og gæðum úthlutað og refsingum eftir kínverskum reglum um samfélagsstig og hlýðnimenningu, en Kínverjar hafa aldrei losnað við kommúnismann, eftir að hafa lifað undir honum mjög lengi.
Þessvegna segi ég að konur séu dýrslegri en karlar. Þær telja sig vera sjálfstæðar með femínismanum, en eru það ekki, þær hlýða bara öðrum reglum, öðru samfélagslegu mynstri, öðrum drottnurum, kvenkyns en síður feðraveldinu lengur, heldur Elítunni, sem hefur horn og hala og klaufir einsog allir vita.
En spurningin er þessi: Hvernig er ásjóna Satans?
Til gamans má geta þess að ég var á Fésbókinni nýlega og þá voru hægrisinnaðir vinir mínir að deila mynd. Við hana stóð: Eitt sinn hélt ég að Satan væri svona, og þar var mynd af púka með hala og klaufir og horn. Síðan stóð við aðra mynd: Nú veit ég að Satan er svona: Þar var mynd af Bill Gates, George Soros, Klaus Schwab og einum í viðbót sem ég man ekki eftir, kannski var það Emanuel Macron eða Angela Merkel.
Ég ætla að fjalla meira um það sem ég hef lært með því að kynna mér heiðin trúarbrögð.
Guðinn Cernunnos er með hreindýrshorn og ímynd líkamlegs styrks og vilja, og kynhvatar. Talið er að hann hafi verið svo dýrkaður og vinsæll í Evrópu á miðöldum að Satan hafi fengið á sig hans mynd, til að gera hann óvinsælan og úthýsa honum og kenna alþýðufólki í Evrópu kristileg gildi, skírlífi, að eiga einn maka, að drepa ekki, girnast ekki konu náungans og margt fleira, eins og að berjast gegn græðgi og ýmsu dýrslegu.
Nútímafólk sem dýrkar Cernunnos það er ekki endilega að fara útí satanisma af þeirri gerð sem kristin kirkja gerir víða með því að dýrka Baphomet, sem sumir telja Múhameð spámann afmyndaðan. Baphomet er jú ein birtingarmynd kvennakirkjunnar, eins og fræg mynd af Transjesú sýndi fram á og gerði garðinn frægan nýlega. Enda er bafómetisminn sambræðingur á kvenlegu og karlmannlegu valdi, meðal annars, passar vel við þessa skilgreiningu.
Nei, að dýrka Cernunnos felst í hreinni tilbeiðslu á hinum heilaga guði, og að vilja tileinka sér eiginleika hans.
Í nútímanum er til annað fyrirbæri sem er algengt, en það er trúleysið og tómhyggjan, níhilisminn, sem kalla mætti einskishyggjuna. Það er þetta fólk sem trúir ekki á líf eftir dauðann, hvorki á einn guð eða marga guði, og trúir helzt á konur og menn sem boða siðfræði, eða þjóðfélagsmynztur og þjóðfélagsverkfræði.
En er ekki níhilisminn ástæðan fyrir því að morðum hefur fjölgað svona mikið á þessu ári? Hægt er að lesa athugasemdir í DV eftir fullkomlega formyrkvaðar sálir, sem vilja jafnvel fara útí gereyðingarstríð við Rússa, í fullkominni örvæntingu, sem orðin er örvita, vegna þess að þetta fólk hefur misst fótfestuna, og ekkert er eftir nema reiði útí alla sem ekki eru með nógu vestrænar og femínískar skoðanir. Vorkunnarvert og hræðilegt í senn, slík formyrkvun, slíkt vonleysi, þar sem mannhatur er niðurstaðan - eftir að hafa aðhyllzt opin landamæri, No Borders, og kærleika í garð allra.
Enn fremur það má segja sér það og vera alveg viss um það að næstum allir sem fremja sjálfsmorð hafa þjáðst af einhverskonar níhilisma og formyrkvun sálarinnar af þessu eða svipuðu tagi.
Það hefur komið fram í rannsóknum að fólk sem er mjög trúað fremur síður sjálfsmorð en fólk sem er trúlaust og því rótlaust hvað trúmál snertir.
Ég vil endurtaka þetta og ítreka. Fólk sem eitt sinn var fullt af skoðunum um umburðarlyndi og kærleika í garð allra, það getur þróazt í þessa átt: Fyllzt af bölsýni í garð mennskunnar því það uppgötvar að til eru þjóðernissinnar, karlrembur, rasistar og þetta fólk, sem vill leggja Rússland í eyði, það hefur blindazt af hatri, og það er víst alveg augljóst, ekki hægt að orða þetta öðruvísi, þegar skynsemin víkur fyrir tilfinningu sem yfirtekur rökvísina, og er hatur á Rússum, eins og sumir í athugasemdum DV hafa tjáð sig um.
Þá er ég kominn að efni þessa pistils.
Þarna er Satan, í þessu fólki, í þessum femínistum, sem hatar fólk sem tilheyrir sínum eigin kynþætti, bræður, feður, og konur sem ekki eru þeim að skapi og nógu femínískar.
Ef við berum saman það meinta hatur sem þjóðernissinnar eru sagðir þjást af, og þessu hatri sem birtist í karlahatrinu og karlafyrirlitningunni, þá held ég að augljóst sé að þjóðerniskenndin er varla flokkanleg sem hatur, nema hjá örfáum.
Það má sjá af glæpatíðninni líka.
"Hatursglæpir" (ranglega nefndir), það er að segja þar sem hatur á fólki af öðrum kynþáttum er ástæðan fyrir morði eða öðru ofbeldi, þeir eru varla til á Íslandi.
Langalgengast er að náið fólk drepi hvert annað, fjölskyldumeðlimir, eða vegna stríðs í glæpaklíkum.
Lögreglan er því á algjörum villigötum og skólarnir og þessar opinberu stofnanir, þar sem það átti að vera svo mannbætandi stefna að kenna öllum að hreinsa út alla þjóðerniskennd, karlrembu og eitthvað þannig.
Þetta er bara rugl, þetta er þvæla að erlendri fyrirmynd, sem firrtir vitleysingar með prófgráður úti í löndum fundu upp. Sérstaklega er þetta byggt eftir bandarískri fyrirmynd þar sem eilífir skotbardagar eru, og ofbeldisverk svartra í garð hvítra eru algeng og ofbeldisverk svartra í garð svartra, ásamt öðrum glæpum.
Nóg er um glæpi og ofbeldi af hendri hvítra karlmanna, en tölurnar sýna þó í útlöndum og víða að það eru ekki gerendur í meirihluta.
Ég hef haldið því oft fram að hugmyndafræðin sé rótin að hegðun mannskepnunnar.
Hvernig er hægt að halda því fram að feðraveldið sé orsök alls ills á Íslandi? Eða þá þjóðerniskenndin?
Það er nú orðið mjög algengt að fólk lifi í einsemd allt til æviloka.
Ástæðurnar eru fleiri nú en áður.
Til dæmis að fólk óttast hitt kynið, fólk óttast nándina, óttast kynlíf eða ást eða náin sambönd, óttast að vera sært, að vera hafnað, móðgað eða yfirgefið.
Núna nýlega fór allt okkar þjóðfélag á hliðina vegna þess að veikan dreng frá Gaza átti að senda úr landi.
Í sálfræðinni væri þetta kallað frávarp, fólk er að varpa eigin eymd yfir á aðra, fólki finnst auðveldara að hafa samúð með einu veiku og útlendu barni, sem vonda fólkið hatar, Sjálfstæðismenn, heldur en að fólk sjái hvað íslenzka þjóðin í heild er veik og brotin, illa stödd og klofin í herðar niður vegna baráttu kvenna og karla, femínista og kristinna manna og annarra feðraveldunga.
Stærsta verkefnið fyrir íslenzku þjóðina er að finna sjálfa sig aftur. Að finna íslenzka menningu. Að finna ræturnar. Að finna tungumálið. Að hætta að hata perra og karlmenn yfirleitt, að hætta að trúa því að drengir séu allir ofbeldishneigðir og ómögulegir á allan hátt.
Þetta er þessi sátt og fyrirgefning sem þjóðin þarf á að halda.
Vilja að andlát sonar þeirra verði rannsakað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2024 | 03:40
Queen of gardens mild, ljóð frá 29. júlí 2024.
Minerva sitting as maidens are glowing.
Mining in gardens, those fools.
Sitting by when she is flowing,
silly men and world of useless tools.
Cup is bearing boy,
bride in soul and then the child.
Team for higher toy,
tossing those and queen of gardens mild.
Men should have the merit, say,
must we gather, find the perfect way.
Love him with your life and all your trust,
like the ones who must.
Aquarius leaving when ardent is crying,
understand, time is not current stream.
Even never, shifting, shying,
shaping clouds of unseen, wobbling dream.
Deserts dry then, wife,
did they plan it, who was right?
Love and water, life,
lest they wanted something, power, fight?
Spirits of the sparrow flow,
spent in even waves of misled show.
So the time is coming for the fall?
First and then just all?
Magis is coming when men will be knowing,
must you be stalled then or going fast?
Rule is almost gone or going,
got to understand we shape the past.
Water from the well,
women know but serving, how?
Came then her as Hell?
Howling books and wisdom, from the cow?
Good to find her, waves of want,
wars and jealousy when they won't taunt.
Don't you give it, love and lust is dead,
like what others said.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2024 | 00:02
Ísbjarnarblús
Einn af bröndurum Hjálmars Hjálmarssonar var að kalla Bubba Morthens Ísbjörn og plötuna hans fyrstu Ásbjarnarblús, ef ég man rétt. Það var fyndið.
Þá er það lagið "Er nauðsynlegt að skjóta þá?" eftir Bubba, sem er á "Frelsi til sölu" frá 1986, sem kemur uppí hugann og það mætti túlka ekki bara um hvali heldur ísbirni. Er nauðsynlegt að skjóta þá ísbirnina?
Ég verð að segja að ég hef samúð með ísbjörnum. Þeir eru víst í útrýmingarhættu enda bráðna heimkynni þeirra óðum og það er minna en oft áður um æti fyrir þá.
Ef ísbjörninn var ekki ógnandi við fólk, af hverju var þá ekki hægt að skjóta í hann deyfipílu og svefnlyfi og fjarlægja hann sofandi og sleppa annarsstaðar, eða koma honum í burtu án þess að drepa hann?
Hvers vegna þarf fólk að fyllast af móðursýki útaf hvaladrápum en ekki ísbjarnardrápum?
Er þetta ekki dýravelferð, dýravernd og náttúruvernd?
Það eru til margar sögur um það hvernig menn hafa náð að meðhöndla hættuleg dýr, bæði með blíðum málrómi eða mat sem þau fýsir í að fá og elta. Ég trúi ekki öllum fyrirsögnum frétta eða öllum sem fullyrða eitthvað og að ekki séu til aðrar leiðir þegar afsakanir koma.
Ég vitna bara í Bubba Morthens: "Er nauðsynlegt að skjóta þá?"
Aumingja birnirnir eru bara að reyna að lifa af eins og menn, og það er sótt að þeim úr öllum ættum og þeirra umráðasvæði minnkað.
Það er okkur mönnunum að kenna og hlýnun jarðarinnar að ísinn sem er þeirra lífsrými fer minnkandi.
Já góða fólkið, hvar er það núna? Tími til að mótmæla þessu eins og hvalveiðum, eða enn frekar, ef ísbirnir eru í meiri útrýmingarhættu.
Allavega, oft er fólk að mótmæla hvalveiðum á tegundum sem ekki eru í útrýmingarhættu. Hegðun fólks er ekki skynsamleg. Jafnvel ekki samúðarrík, heldur hjarðhegðun.
Eina leiðin var að fella björninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.9.2024 | 00:22
Þegar fólk gefur þumla (læk) á samfélagsmiðlum til að styðja lygar, geðveiki, rangar samsæriskenningar og sjálfsblekkingu eða vonda pólitík
Það vakti athygli mína þegar fréttir komu um það í DV að framgangurinn í Símastuldsmálinu er að verða eins og Páll Vilhjálmsson bloggari og kennari spáði og samkvæmt hans réttlætistilfinningu. Fleiri hafa fengið stöðu sakborninga og brátt má vænta niðurstöðu úr því máli. Eins og ég orðaði það, "þetta er högg fyrir vinstri-miðju-rannsóknarblaðamennsku í landinu". En sumir vilja lifa áfram í sinni blekkingu og afneita þessu.
Ég skrifaði athugasemd í DV þar sem ég fjalla um það að ekki er rétt að kenna Sjálfstæðismönnum um allt sem aflaga fer í þjóðfélaginu og einnig reyni ég að minna á að bloggarinn Páll Vilhjálmsson hefur með dugnaði og sannfæringu verið brautryðjandi í að vekja athygli á þessu á meðan flestir og næstum allir aðrir hafa þaggað það niður annaðhvort af ótta við sterk tök vinstrimanna á almenningsálitinu á samfélagsmiðlum eða að þetta sé bull, og sakborningar saklausir eins og einn í athugasemdum heldur fram.
En það sem er skrýtið er að mín athugasemd fær bara 4 þumla (læk) á meðan önnur athugasemd fyrir neðan fær 19 þumla, (læk), og finnst mér hún miklu innihaldsrýrari en mín og hreinlega röng.
Ég skal endurtaka athugasemdina sem fær 19 þumla (læk) og eins og flestir lesendur séu henni sammála. Hún er svona:
"Það er engu líkara en agentar Flokksins innan lögreglunnar hafi fengið skipun beint úr Valhöll um það að halda hlífiskildi yfir Skrýmsladeildinni og hræða blaðamenn til þess að láta hana í friði. Óhuggulegt mál". (Sigmundur Guðmundsson reit).
Nú spyr ég lesendur þessa bloggs: Hvað er nýtt eða merkilegt við þessa athugasemd sem verðskuldar að gefa henni 10 þumla (læk) eins og hún sé heilagur sannleikur?
Ég held að það sé alveg deginum ljósara að það sem þessi maður skrifaði er gömul, eldgömul samsæriskenning um Sjálfstæðisflokkinn sem hefur gengið eins og draugur um þjóðfélagið síðan sá flokkur var stofnaður 1929!
Þetta er samsæriskenning sem kratar og kommar halda notað sem afsökun til að hatast við Sjálfstæðismenn og neita að ræða efnislega við þá eða um þá.
Vissulega er þó hugtakið "skrímsladeildin" ekki svo gamalt, það er "skrímsladeild Samherja" sem átt er við. Það er nú enn ein vinstrisinnasamsæriskenningin sem er ósönnuð.
En í grunninn er þetta sama hugsunin og andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa verið uppfullir af, að flokkurinn sé nokkurskonar mafía sem ráði öllu á Íslandi og geri það með óheiðarlegum hætti, jafnvel vart löglegum. Örnólfur Árnason rithöfundur með meiru kallaði þetta Kolkrabbann, og það var nú enn ein samsæriskenningin. Um 1990 og í kjölfar að kvótanum var komið á, þá fóru slíkar samsæriskenningar á flug og urðu vinsælar og bækur voru um þær skrifaðar og þær fengust útgefnar, eins og svo margt sem vinstrimenn og jafnaðarmenn skrifa, þótt misjafnlega merkilegt það sé.
Ég verð nú að segja að ég tel að þetta hafi verið duglegir og virðingarverðir athafnamenn sem tilheyrðu þessum Kolbrabba hans Örnólfs Árnasonar. Slík skrif eru ættuð úr rætni og öfund sumra vinstrimanna og jafnaðarmanna, og slík samtök - ef þau eru þá til - eru allt annað fyrirbæri en Elítan, sem er jafnaðarmannafyrirbæri og vinstrimannafyrirbæri. Sterkari rök eru fyrir tilvist þess fyrirbæris, og það sem meðlimirnir hafa á samvizkunni er ömurlegra en það sem Sjálfstæðismönnum er borið á brýn.
Ég er nú reyndar svo ungur að ég man ekki lengra aftur með samsæriskenningarnar um Sjálfstæðisflokkinn. En ég man þó eftir orðum eins og "Íhald", "Sjallar", og eitthvað svoleiðis, amma Fanney kallaði Sjálfstæðismenn alltaf "Íhaldið".
En ég veit að þessar samsæriskenningar eru gamlar, ég man eftir rifrildunum á milli ömmu Sigríðar og Ólafs Valdimarssonar kommúnista og fastakúnna á verkstæðinu, ég reyndar man ekki hvaða orð hann notaði, en það voru einhverjir svona frasar, það man ég. Ég man líka að ég skildi ekkert í þessum orðum þá, 10 ára og yngri, og var mjög hissa á að fullorðið fólk gæti æst sig svona yfir hugtökum sem ég vissi ekkert hvað þýddu! Ég held jú að hann hafi notað orðið "íhaldið", en fyrir mér merkti það ekki neitt, ég var of ungur til að skilja að það væri gilt skammaryrði!
Svona til að hrekja þessa athugasemd Sigmundar G. vil ég minna á að það eru breyttir tímar frá 1991 þegar bókin eftir Örnólf kom út. Ísland var þá einsleitt samfélag og innfæddir menn unnu störfin, lítið var um að konur ynnu úti eða fólk af erlendum uppruna.
Ég benti á það í athugasemd minni í DV sem ég er fullkomlega stoltur af sama hversu fá eða mörg læk (þumla) hún fær, að vinstrimenn og jafnaðarmenn eiga mesta sök á glóbalismanum, en með honum kom mesta spillingin, mesta mansalið, eiturlyfin, vændið, líkamsárásirnar, glæpagengin, og margt fleira, unglingar leiddust útá glæpabrautina sífellt meira í kjölfarið.
Ég benti á það að óvinir Sjálfstæðisflokksins eru að þyrla upp moldviðri í sífellu, benda á sameiginlegan óvin með gömlum og úreltum samsæriskenningum (að nokkru en ekki öllu leyti, því sumt er rétt þar), í stað þess að líta á veruleikann eins og hann er í dag, allt fullt af alþjóðavæðingu, sem SAMFYLKINGIN byrjaði á og jafnvel Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið, VG og fleiri slíkir flokkar. En Sjálfstæðisflokkurinn smitaðist og tók þátt í því, og er núna orðinn eins og afturúrkreistingur af sjálfum sér, fullkominn jafnaðarstefnuflokkur með örlítil hægrieinkenni ennþá, en jafnvel meira af þeim í núverandi Samfylkingu.
Vandamál íslenzks samfélags eru ekki fólgnir í ofurtökum Sjálfstæðisflokksins á því. Jafnvel þegar Flokkurinn hafði mest völd og áhrif má deila um hvort það hafi ekki verið til gagns eins mikið og ógagns.
Undir DV fréttinni:"Segja Pútín ætli sér sigur fyrir þennan tíma" er þessi athugasemd, sem er stórhættuleg heimsfriðinum og laus við allt vit, vitskert athugasemd:
"Eyða Rússlandi, væri best fyrir heiminn". Fjórir þumlar, (læk), svo þessi vitfirring á sér einhverja stuðningsmenn, eða stuðningskvendi öllu heldur, því vitið vantar í kvenþjóðina og þær vitfirrast ef þær færa í kynjafræði og verða femínistar. (Hermann Anton Traustason).
Í fyrsta lagi gengur þessi setning Hermanns ekki upp rökfræðilega með nokkru móti.
Þú EYÐIR ekki landi, en þú eyðir fólki sem býr á einhverju landi. Jafnvel ef hann vill senda kjarnorkusprengjur á Rússland myndi Rússland ekki eyðast heldur lífið sem þar er.
Þar að auki ætti aumingja maðurinn að vita að ef kjarnorkusprengjum yrði varpað á Rússland þá myndi koma kjarnorkuvetur, því jörðin er eitt vistkerfi, og svo mikið af kjarnorkusprengum þyrfti til að útrýma öllum Rússum að það myndi hafa kjarnorkuvetur í för með sér, auk þess sem þeir myndu sprengja Vesturlönd í tætlur áður en þetta myndi heppnast.
En (að því er virðist ef maður dæmir rökin eða rökleysuna á bak við setninguna) vitfirrtir femínistar af þessu tagi eiga það skilið að farast í kjarnorkueldi og aðrir með þeim. Það hef ég skrifað áður og stend við það.
Ég kalla þennan mann femínista, því svona voru karlmenn ekki áður. Þeir kunni rökfræði og bulluðu ekki eins og hauslausar hænur.
Margir karlmenn eiga konur sem stjórna þeim og tala því eins og óvitar, því miður.
Enn fremur, fólk sem líður það og þolir að svona vitfirrtir femínistar séu til og ekki settir í meðferð til að losna við svona ranghugmyndir, það á einnig það skilið að eyðast með þessum hætti sem hann leggur til (sennilega) að Rússum verði eytt, (hann tiltekur það ekki nákvæmlega heldur nefnir Rússland).
Mannkyn sem er orðið svona gjörsamlega vitfirrt, það er búið að vera.
Ég segi nú bara það, að mér dettur ekki í hug að taka þátt í svona sjúkum samræðum. Þetta er ekki svaravert.
Til að eitthvað samfélag eins og það íslenzka geti kallazt annað en villimennskusamfélag valdasjúkra ofstækismanna, femínista, þá þarf að vera hér menning. Menning er eitthvað sem byggist á hefðum og mannlegu viti. Þegar samfélagið samanstendur af óvitum sem hafa lítið sem ekkert vit, þá er "menningin hrunin", eins og Guðjón Hreinberg hefur orðað þetta.
Sífelld manndráp á þessu ári á Íslandi staðfesta þetta svo sem, að þjóðin hefur farið gjörsamlega út af sporinu.
Ég skrifa um að senda femínista í meðferð. Það er nákvæmlega það sem þeir gerðu við konur og karla á undanförnum áratugum, settu alla í meðferð, til að svipta alla vitinu, rænunni og mennskunni.
Við þurfum meðferð við femínisma og eitruðum kvenleika.
Yfirframleiðandinn kominn með stöðu sakbornings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2024 | 02:15
Yazan sem er veikur fær stuðning og lifir og Kolfinna Eldey sem færri tala um en dó við hörmungar aðstæður
Yazan hinn palestínski var aðalumræðuefnið í dag og aðalfréttin. Ég er sammála um að hörmulega hefur verið að þessu staðið, að misvísandi svör berast og ákveðin svör og afgreiðsla það sem er mannúðlegra hvort sem valin er leið Vinstri grænna eða Sjálfstæðsflokksins.
En síðan er þessi frétt um dauða Kolfinnu Eldeyjar, og persónulega er maður í sjokki að vita að svona atburðir gerist á Íslandi, því manni finnst að foreldrar eigi að vernda börnin sín. Ætli öll þjóðin sé ekki í sjokki og þurfi tíma til að meðtala þetta og skilja að svona gerist líka á Íslandi?
Fréttir eru litlar og takmarkaðar eins og venjulega, en þetta minnir á fréttir frá Bandaríkjunum þar sem foreldrar hafa drepið alla fjölskyldumeðlimi og sig í kjölfarið.
Maður hélt að nóg væri í bili af svona fréttum, en þetta kemur í röðum.
Síðan er það Yazan. Hann fær mikla athygli og hefur fengið hana lengi. En það hefur verið fróðlegt að lesa pistla Jóhanns Elíassonar og Jóns Magnússonar, því þar er hin hliðin sem er ekki síður fróðleg, að fjölskylda Yazans kom ólöglega til landsins. Jón Magnússon nefnir í nýlegum pistli um þetta að meðferðarúrræði vanti fyrir 120 íslenzk börn með margþættan vanda.
En allir hljóta að finna fyrir samúð í garð hins langveika drengs, það er rétt sem alþingismenn og fleiri hafa sagt, en það þarf að setja málið í samhengi, og sumir segja að heilbrigðiskerfið sé betra á Spáni þangað sem til stóð að hann færi. Ef það er rétt eru þessi mótmæli meira sýndarmennska, mætti segja.
En í gærkvöldi var umræðuþátturinn Torgið á RÚV. Að þessu sinni var fjallað um ofbeldi ungmenna, snjallsímanotkun og ógurlega firringu nútímans og skort á félagslegum samskiptum sem skipta mestu til að skapa hamingjuríkt mannlíf eins og flestir voru sammála um.
Þótt fyrsta fréttin á RÚV og Stöð 2 hafi verið Yazan og fólkið sem mótmælti út af honum, þá kom önnur frétt sem fjallaði um að hundruð barna og unglinga á Íslandi eru á biðlista eftir greiningu á ADHD og einhverfu. ADHD er athyglibrestur og ofvirkni og er mjög algengt vandamál hjá okkar þjóð.
En þarna kom fram í þessari frétt að það væru jafnvel um 1000 börn á biðlista eftir svona ADHD greiningu eða einhverfugreiningu og þjónustu fyrir geðraskanir og annað.
Í Torgsþættinum var einnig fjallað um dópneyzlu unglinga, hraðann í samfélaginu og skortinn á nándinni milli foreldra og fólks almennt.
Þegar allt þetta kemur saman og meira til, þá spyr maður sig hvort einn palestínskur drengur eigi að setja samfélagið á hliðina og valda stjórnarslitum næstum því, þegar skólakerfið er í rúst - að margra mati - og allt okkar samfélag í vanda?
Ég vil bæta því við að talið er að um 1000 fóstureyðingar séu framkvæmdar á Íslandi árlega. Síðan eru það börnin sem aldrei eru getin því femínisminn hefur komið inn hatri á milli kynjanna.
Mesti glæpurinn er þetta, að börn eru ekki getin vegna þess að fólk nær ekki saman. Það er jafnvel meiri glæpur en fóstureyðingarnar. Ástin er eyðilögð og drepin áður en hún verður til. Hvað er hörmulegra en það?
En aftur að Yazan. Ljóst er að þótt haldið sé fram að útlendingalögin séu alltaf að verða betri og betri þá hljóta allir að vera sammála um að svona upphlaup ættu að vera óþörf, ef réttlæti væri fullnægt og einnig meðalhófsreglu hversu margir fá hæli og slíkt.
Það er einmitt svo sorglegt að horfa upp á þessi mótmæli, því maður skilur að mótmælendur hafa ákveðinn málstað að verja sem er réttlætanlegur og skiljanlegur.
Pólitíkin er að bregðast, og svona ríkisstjórn þar sem öfgarnir mætast, Sjálfstæðisflokkur og VG, hún er ekki að virka í svona málum.
En hvernig er Ísland að verða þegar öll þessi voðaverk gerast? Það þarf ekki síður umfjöllun.
Nafn stúlkunnar sem lést | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2024 | 16:30
Að kjósa að vera tapari trúarinnar vegna
Sagan um Galdra-Loft eða Mefistóteles eða Fást, hún á við um nútímann og Vesturlönd.
Fæstir eru mennskir á Vesturlöndum. Vélmenni og geimverur, það er það sem við erum upp til hópa, af vítisgerðinni. Umbreyting hefur átt sér stað. Fólki er ekki sjálfrátt á okkar tímum.
Það er fólk á öðrum hnöttum sem ýtir á takka á tölvum sínum og lætur fólk á Vesturlöndum hlýða, bókstaflega.
Það er mjög auðvelt að segja að ég sé rugludallur með samsæriskenningar. Þar skiljast sauðirnir frá höfrunum. Sumir af þeim sem kallaðir eru klikkaðir eru langt á undan sinni samtíð og snillingar eins og ég og fleiri. Ég segi bara eins og Sherlock Holmes: Sá snillingur sem veit ekki af verðleikum sínum og viðurkennir þá er að vantmeta sjálfan sig og það er eins mikil heimska og margt annað.
Fyrir þessa örfáu sem ekki eru fífl og viðurkenna að ég sé snillingur vil ég benda á þetta: Mínar kenningar eru í samræmi við tækniþróun undanfarinna áratuga. Málsmetandi vísindamenn eru að tala um að mannkynið verði vélvætt í framtíðinni.
Tökum bara nanótæknina og RDNA tæknina sem var notuð í Covid-19 fárinu og haldið er fram að sé mikil búbót og útrými sjúkdómum síðar.
Sú tækni var bara í vísindaskáldsögum fyrir nokkrum áratugum. Þegar ég segi að fólk sé ekki mennskt lengur styðst ég við alvöru upplýsingar og greiningu á ástandinu.
Þegar ég samdi lagið "Húðflúr er frá Helvíti" 20. nóvember 1996 grunaði mig ekki hvernig framtíðin yrði í smáatriðum, en spásagnirnar hafa þó komið fram í þeim merkilega texta.
Það er ekki tilviljun að sennilega meira en helmingur fólks ber einhverskonar húðflúr nú til dags, á ákveðnum aldri. Það er heldur ekki tilviljun að óskynsamleg hegðun er orðin mjög algeng og múgæsing sem lýtur fjarlægum stjórnendum. Fólki er fjarstýrt á Vesturlöndum, sem er ein aðalástæðan fyrir því að ég hef óbeit á Vesturlöndum, þau eru afsönnun á öllu sem þau áttu að standa fyrir, mannréttindi og lýðræði.
Kynhvöt kvenna og karla hefur verið að minnka mikið frá því að Bubbi Morthens varð vinsæll á Íslandi upp úr 1980. Sérstaklega eftir 2000, en X-2000 stýriefnið sem berst inní líkamana bæði með lokkum, göddum og húðflúri, það heitir eftir ártalinu 2000. Geimverurnar sem stjórna Vesturlöndum miðuðu við þetta ártal og gerðu áætlanir sem gengu fullkomlega eftir, og áætlanirnar gengu útá að húðflúrstízkan yrði svo algeng árið 2000 að þar yrðu skil í mannkynssögunni, frá frelsi yfir í helsi.
Sumt fólk hefur myndað ónæmi fyrir stýriefninu X-2000 eða er með náttúrulegt ónæmi fyrir því. Það þýðir að sama hversu húðflúrað það verður heldur það skertri rökhyggju og sjálfstæðri hugsun. Þetta er ekki ósvipað því að til er náttúrulegt ónæmi fyrir smitsjúkdómum og öðrum sjúkdómum. Ég gæti trúað að Björk Guðmundsdóttir og einn snjall bloggari hér sé meðal þeirra sem eru ónæm fyrir X-2000.
Enn fremur: Hvert flýr maður úr svona ómenningu sem maður tilheyrir?
Jú, við lifum í andlegum heimi frekar en efniskenndum eða líkamlegum.
Þar af leiðandi: MAÐUR FLÝR INNÍ AÐRAR VÍDDIR!
Fólk lifir hér í sama efnisheimi, en andarnir eru víðs fjarri. Það sem gerist er að efnisheimurinn er að klofna með brotthvarfi einstaklinganna í meðvitund eða meðvitundarleysi sínu og dofa vökunnar.
Þú flýrð með vitnisburðinum. Bænin er sérhver hreyfing þín í daglega lífinu, en heiðinn maður þarf ekki að biðja á annan hátt en að vera staðfastur í trú sinni á goðin. Sú tilvera er bæn í sjálfu sér, því hún er bón um að öll sú viðleitni skili árangri, sem mun gerast.
Vitnisburðurinn er þannig að þú sýnir heiminum vísifingurinn og þar með veit Guð að þú ert verðugur og ekki fífl. Það getur kostað mann ýmislegt, en í heimi þar sem allt er öfugt borgar það sig auðvitað.
Maður sættir sig við tapið. Þar kemur hin ágæta auðmýkt inn sem er nauðsynleg. Að kjósa að vera eilífur tapari í þessum heimi.
Heilsuspillandi efni langt yfir mörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2024 | 00:02
Að taka eða taka ekki þátt í stríðsátökum
Pálmi Gunnarsson sem mér finnst þjóðardýrlingur, svo góður söngvari er hann, og spilaði með Megasi á Drögum að sjálfsmorði, segir að það að RÚV taki þátt í Eurovision að ári minni hann á setninguna "að selja skrattanum sálu sína".
Söngvarinn Friðrik Ómar er ósammála.
Að þessu sinni finn ég varla neitt skárra að blogga um en þetta.
Ég er að verða æ meira sammála Pálma Gunnarssyni. Ekki sízt vegna þess að þessi keppni er orðin allt annað en hún átti að vera upprunalega. Alþjóðavæðingin og wók hefur gert hana að djóki, en ekki keppni meðal Evrópuþjóðanna. Nú er þetta keppni í dyggðaflöggun og búningum en ekki söng eða tónlist.
Og þó er ljóst að hringekjan heldur áfram, RÚV tekur þátt og fólk reynir að skemmta sér yfir þessu sem er bara circus núna.
Minnir okkur á það að við stjórnum ekki lífi okkar hér í helvítis "lýðræðinu", afskræmislýðræðinu, með hringinn í nefinu eins og asnarnir, teymd áfram til verri víta.
Nei, það er ekki geðslegt að skemmta skrattanum með þessum hætti og kætast á meðan ein af þjóðunum í keppninni hagar sér svona.
Ég skil Pálma Gunnarsson og er að miklu leyti sammála honum.
Ég á þó vini sem eru mjög uppá Biblíuhöndina og þeir segja að Ísraelsmenn séu í fullum rétti sama hvað þeir gera.
Ég hef samið lög og texta á mínum ferli sem ríma alveg við skoðanir góða fólksins, eins og lagið "Flóttabörnum fögnum bara", frá 2001, og kannski vil ég gefa það út.
Ég styð þá tillögu að taka þátt í Júróvisjón, en mótmæla að þessu sinni bæði þátttökunni og einnig yfirstjórn RÚV á götum úti og fyrir framan RÚV bygginguna.
Síðan þarf að búa til Nordicvision eða Real Eurovision eða New Eurovision, því þessi gamla er alveg farin í hundana, þannig séð.
Styð ég þá tillögu sem margir bloggarar hér eru hlynntir, að ný stjórn verði fengin á RÚV og lýðræðisleg, einhvernveginn ekki alltaf sama pólitíska liðið til vinstri.
Mótmæli eru bæði holl fólki og lýðræðinu. Með mjög kröftugum mótmælum finnur fólk styrk sinn og lýðræðið vaknar í verki.
Ef svo stór hluti þjóðarinnar mótmælir að RÚV yfirstjórnin fer frá og önnur RÚV yfirstjórn stofnar nýja svona Eurovision keppni, eða tekur ekki þátt í þessari, þá er árangrinum náð, og fólk hefur fundið styrk hjá sér.
Segir uppreisnarmenn Húta munu fá að gjalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er annað banatilræðu við Donald Trump á skömmum tíma. Þetta afsannar þá tilgátu að Trump skipti engu máli, sé heimskt smámenni og þeir sem eru fylgjendur hans. Þetta sýnir ennfremur fram á að hann er raunveruleg ógn við spillingu og vonda einstaklinga af báðum, (eða maður á víst að segja öllum) kynjum.
Stórmenni eins og John Lennon og John F. Kennedy, Martin Luther King og Robert Kennedy voru drepin á þennan hátt.
Allir vita að þessir einstaklingar breyttu mannkynssögunni. Það gerði Donald Trump líka, en ef hann verður kosinn aftur verður hann mikil ógn fyrir helstefnuöflin í heiminum, vopnaframleiðendur, stríðsæsingafólk, eiturlyfjaframleiðendur og marga slíka miður ágæta einstaklinga.
En ég er ekki of viss um að Trump verði forseti í annað sinn, en sjáum til, það getur svo sem verið. Ég held að það sé rétt hjá Trumpistum að Bandaríkin verði aftur leiðandi í menningunni ef hann verður aftur forseti.
Framfarir yrðu það ef Vesturlönd stigju til baka og frá þeim vinstriöfgum og jafnaðaröfgum sem hafa ríkt á okkar svæði. Það er ekki kvenhatur eða rasismi, það er samkvæmt trúarbrögðum sem geyma dýrmætari boðskap en mannasetningar þótt komnar séu í alþjóðalög.
Jöfnuður er ónáttúrulegur, og jafnaðarstefnan er satanísk. Hún gengur ekki upp í náttúrunni þar sem stéttskipting ríkir.
Það sem drífur áfram lífsviljann og náttúruvalið, það er breytileikinn, ekki aðeins milli tegunda heldur einstaklinga. Jafnaðarstefnan er því glæpur gegn mannkyninu.
Sumir kalla það kannski framfarir að fá Kamölu Harris sem forseta, en það er nú sama stefnan sem hún hefur og ESB, þar sem samdráttur ríkir, og Evrópa er eiginlega fallin undir þeim stjórnmálum jafnaðarfasismans. Stríðsæsingastefna femínista er líka ljós, í ESB og meðal demókrata Bandaríkjanna, og hluta repúblikana.
Mér er sama hvort hún er indversk, eða blönduð, svört eða eitthvað annað. Þótt Trumpisminn séu öfgar að sumra áliti, eða að einhverju leyti, þá er wókisminn hennar Kamölu Harris það líka, og mér finnst skárri kostur að rétta sig af og fara í kristilegra þjóðfélag eins og Trump vill.
Að elska konur og alla kynþætti felst í frelsinu, og að fara eftir hefðum sem gera ráð fyrir að konur séu heimavinnandi og landslög og alþjóðalög endurspegli það.
Einnig er það eðlilegt að fólk sem þróaðist á heitum svæðum eigi þar kjörlendi og fólk sem þróaðist á köldum svæðum eigi þar kjörlendi.
Trump virðist hafa verið sýnt banatilræði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2024 | 16:08
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto hættir við að sýna heimildamynd vegna hótana frá öfgahópum í Úkraínu
Allt við þessa frétt ber það með sér að hér er verið að þagga niður í sannleikanum af öfgafólki í Úkraínu.
"Þetta er fordæmalaus ráðstöfun", kemur frá skipuleggjendum hátíðarinnar í Toronto.
Þar sem lýðræði ríkir mega allar skoðanir njóta sín og öll tjáning, og þar með einnig sýning á heimildamynd sem kemur fram með annað sjónarhorn en einhverjum geðjast.
Af lestri þessarar fréttar er það alveg ljóst að það er eitthvað allt annað en lýðræði sem ríkir í Úkraínu. Kannski það sé satt sem sumir halda fram að nýnazistar stjórni þar og Selenskí sé þeirra æðstur. Allavega hafa kosningar verið bannaðar þar og sýnir enn eitt merki um að þar sé ekki lýðræði.
Kvikmyndastofnun Úkraínu segir myndina "hættulegt tæki til að hagræða almenningsálitinu"???
Ég hef auðvitað ekki horft á þessa heimildamynd um stríðið og fæstir hafa gert það, en maður getur nú skilið margt af þessum orðum og hverjir eru að hagræða almenningsálitinu, Úkraínustjórn og Vesturlönd ekki síður en Rússar.
Að öfgamenn í Úkraínu ÓGNA fólki á kvikmyndahátíðinni segir sitt, og að þeir séu ráðandi innan stjórnarinnar sem nú er við völd í Úkraínu!!!
Geta stuðningsmenn Úkraínu staldrað við og dregið ályktanir af þessu?
"Fordæmalaus ráðstöfun", segja skipuleggjendur ráðstefnunnar í Toronto.
Getum við dregið aðrar ályktanir af þessu, sem eru þessar:
VILJUM VIÐ AÐ SVONA FÓLK stjórni heiminum, sem kúga og ógna skipuleggjendunum í Toronto? (Það er að segja Úkraínustjórn sem sýnir svona hegðun). Er þetta stuðningur við Selenskí og hans stjórn?
Hvernig væri að sumir færu að éta ofaní sig öfugmælin um að Rússar séu fasistar en ekki Úkraínumenn?
Það er svo gjörsamlega útí hött að yfirvöld í Bandaríkjunum skuli styðja þetta og kalla lýðræði eða mannréttindi að maður er orðlaus.
Sannleikurinn er aðeins viðkvæmur þeim sem hafa eitthvað að fela. Vesturlönd hafa fengið eina söguskoðun um að Rússar séu grýlur í gegnum falsfréttastofurnar opinberu sem eru næstum allsráðandi í okkar heimshluta.
Þykir mér þetta bera vott um að eitthvað ljótt hafi Úkraínumenn að fela í sambandi við þetta hryllilega stríð.
Hætt við sýningu á umdeildri heimildarmynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 41
- Sl. sólarhring: 104
- Sl. viku: 778
- Frá upphafi: 127474
Annað
- Innlit í dag: 28
- Innlit sl. viku: 556
- Gestir í dag: 25
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar