Leitt að Rokksafni Íslands verði lokað

Ég harma það að loka eigi Rokksafni Íslands. Meiriháttar framtak að sýna popptónlist þessa virðingu í þessu húsi. Bæði sem tónleikastaður og safn er þetta gott húsnæði, hljómurinn þarna góður, og safnið allt mjög skemmtilega uppsett.

En kannski er Ísland of lítið? Þetta virkar í Bandaríkjunum. Þar er til dæmis Bob Dylan safn, og fleiri poppsöfn.

Eða er popptónlist aftur farin að dala? Er það rétt að hátindurinn hafi verið 1960 til 1980?

Mér hefur fundizt sem tónlistarbransinn og grúpppíubransinn hafi klofnað í frumeindir sínar með Netinu og niðurhali tónlistar á Netinu, á síðastliðnum 30 árum eða svo, en segja má að Alnetið hafi byrjað að sprengja af sér fjötrana árið 1994, eða á þeim árum að minnsta kosti. Fyrst bárust litlar hljóðskrár manna á milli í fámennum hópum, vinur til vins, frá einum notanda til annars, en nú er þetta orðið allsherjar smitun á tónlist, en stóru listamennirnir fá auðvitað langmesta spilun og kynningu. Allir þessir litlu listamenn sem sjá um öll sín mál sjálfir eru komnir í stað risastóru, landsfrægu listamannanna áður.

Ég var 15 ára þegar ég kom fyrst fram, í Digranesskóla, á Litlu jólunum, í desember 1985. Ég vakti firnamikla athygli og hrifningu, enda sagði Skafti kennari að enginn nemandi hefði áður verið með trúbadoratriði af þessu tagi í skólanum. Ég var stoltur af því að vera slíkur brautryðjandi.

Ég kom fram með eigið lag og texta. Ég var langt á undan minni samtíð, því núna fyrst þessi allra síðustu ár er þetta orðið algengt að allskonar keppnir séu í framhaldsskólunum, að börn og unglingar syngi og semji lög og texta, og leggi drög að tónlistarferli sínum strax á unga aldri, viti hvað þau vilji.

Eins og lesa má um í fréttinni verða allir þessir gripir varðveittir og kannski húsnæðið stækkað síðar og því er safnið ekki liðið undir lok heldur í hléi, ef svo má segja.

Reykjanesbær hefur sýnt frábært framtak. Þannig söfn ættu að vera í öðrum sveitafélögum. Merkilegir bæjarlistamenn ættu að fá að njóta sín meira og betur út um allt land.

Popptónlist og það sem henni tengist er sveiflum háð. Þannig er um niðurhalið á tónlistinni sem nú um stundir tekur tekjurnar af plötusölu og einnig má segja að tónleikahald sé í lægð, miðað við það sem mest var, á tímum stórra, landsfrægra tónlistarmanna og hljómsveita, á rokktímanum, og sveitaballanna skemmtilegu.

Ég veit að til eru stórar poppstjörnur á Íslandi núna, eins og Bríet og fleiri, en plötusala er brot af því sem hún var 1980, og tónleikahaldið mest um jólin, þannig að þessi poppbransi er í ákveðinni lægð.

Ef þjóðfélagið breytist aftur gæti rokkmenningin aftur náð fyrri hæðum í vinsældum. Þá þarf niðurhalið að hverfa eða verða óvinsælla.


mbl.is Rokksafni Íslands verður lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Skil þig vel og veit samt ekki hvort þú kemur fram sem hljóðfæraleikari. Mig langaði alltaf að eiga á -bandi-tónlist sem strákarnir mínir léku daginn út og inn meðan þeir voru heima. Datt þá í hug á leið með tveim af þeim á ferð til Akureyrar að þiggja boð þeirra að taka upp eftir minni; músik sem ég minntist sérstaklega.Þarna var síminn kominn að gagni,sjálf dáðist ég af Keflivíkingunum,þegar King Cole og Ella Fich! voru orðin þreytt en tryggðin hélt.Elo var áberandi,Supertrap sá yngsti man hve hann var leiður á Abba sem stelpurnar spiluðu aftur og aftur.Ég var við það að þurrka þetta út,orðin þreytt en lago; Kann ekki að vanda mig núna!!! 

Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2024 kl. 01:43

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já Helga, ég býst við að þú sért af kynslóð foreldra minna. Frá þeim hef ég heyrt svona virkilega skemmtilegar sögur. Ég er rétt af þeirri kynslóð sem man þessa menningu hverfa, og hina taka við, niðurhal og það. En símarnir já, þú kemur inná það. Í þá daga voru menn að búttlega með segulbandstækjunum, svo komu símarnir.

Takk fyrir fræðandi athugasemd og skemmtilega.

Ingólfur Sigurðsson, 5.3.2024 kl. 12:32

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Blessaður var að rifja upp þessa færslu mína og sé eg er útí móa; ekki svo að þetta væri ekki rétt en langaði að forvitnast um hvort djass höfði til þín. áður var besti friðurinn að blogga á þessum tíma,en ekki svona langa pistla. Hrúgan af VHS er hér í hrönnum og eg fer ekki að breyta þeim úr þessu.

Helga Kristjánsdóttir, 11.3.2024 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 35
  • Sl. sólarhring: 98
  • Sl. viku: 609
  • Frá upphafi: 107267

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 463
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband