Goðsagnir skapa tungumál en tungumál skapa ekki goðsagnir, frekar en menn. Goðsagnir eru lifandi frásagnir um raunverulega atburði í fortíðinni, afbakaðar að vísu.

Oft finnst mér gott það sem kempan Björn Bjarnason skrifar, sem hefur haft áhrif í þjóðfélaginu lengi. Pistill hans um spjallmennin (29. apríl 2023) er vissulega ágætur, en það eru þarna alþekktir frasar sem hann notar sem mig langar aðeins að mótmæla, en fleiri en hann nota þá frasa að vísu.

Frasinn er á þá leið að tungumálin skapi menninguna, að tungumálin skapi goðsagnirnar, lög, guði, peninga, listir, vísindi, vináttu og þjóðir, eins og upptalningin er hjá honum hjá honum, en örlítið umorðuð hér.

Ég hef nú lengi haft áhuga á goðsögnum, og ég er bara algjörlega ósammála því að tungumálið skapi goðsagnir eða þá að menn skapi guði og gyðjur, ekki frekar en guð Biblíunnar eða Kóransins.

Ég hef einnig haft áhuga á málvísindum lengi, og þótt ég kunni ekkert í þeim til hlítar veit ég sumt.

Til dæmis er merkilegt að indóevrópsk tungumál þróuðust frá frumtungumáli, sem einna flestir telja að hafi sprottið upp nálægt því svæði þar sem nú er hvað mest barizt í, Svarthafið, Úkraína, en kenningarnar um það upprunaland eru margar og ná yfir mikið landsvæði.

Ég tel þvert á móti að goðsagnir skapi tungumál, að íslenzkan sé tungumál guðanna í Valhöll, sem eru íbúar annarra hnatta, og að indóevrópska tungumálið hafi komið hingað til jarðarinnar með þeim, ásamt forfeðrum okkar og formæðrum fyrir langa löngu.

Ég tel að guðaheiti sem nú eru týnd geymist í tungumálinu, sérstaklega nöfn yfir dýr og jurtir og náttúrufyrirbæri, þar sem vitað er að náttúrufyrirbæri, fossar, fjöll, tré, dýr og jurtir voru tignuð sem guðir, gyðjur eða vættir.

Að öllum líkindum voru það heiti yfir Vani og Vanynjur, sem tengdust þannig dýrkun.

En umræðan um hættuna af gervigreind svo annað mál, og tek ég undir það hjá Birni og fleirum að sú hætta er vissulega til staðar, og ókannaður frumskógur þar á ferðinni og eiginlega óþekkt furðuland eins og sérfræðingar eru sammála um. Ég er einnig sammála því að tungumál okkar tengist sjálfstæði okkar órjúfanlegum böndum og þarf að vernda það með öllum ráðum. Það mun móta okkar menningu og framtíð hvernig það tekst.

Mjög mikið afrek er það að koma íslenzkunni inní tölvur og snjalltæki.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Grunnur menningar okkar er hinn Gyðing-kristilegi arfur, Biblían.

Þessi menning hefur lagt grunninn að tungumálum Vesturlanda og haft áhrif á allar heimsins tungur.

Hvaða þjóð í heiminum tekur ekki undir daglega, að nú séu 2023 ár frá fæðingu Jesú Krists í Betlehem?

Samt er guðleysið nú á góðri leið með að eyða menningararfi okkar og þjóðlegum sérkennum, ásamt fullveldi. Spjallmennum verður ekki um að kenna.

1 Allir jarðarbúar töluðu sömu tungu og notuðu sömu orð.

2 Svo bar við er þeir fluttust að austan að þeir fundu lágsléttu í Sínearlandi og settust þar að.

3 Þá sögðu þeir hver við annan: Komum nú og búum til tígulsteina og brennum þá í eldi. Þeir notuðu tígulsteina í stað grjóts og bik í stað steinlíms.

4 Og þeir sögðu: Komum nú, byggjum okkur borg og turn sem nái til himins. Þar með verðum við frægir en tvístrumst ekki um alla jörðina.

(Samanber Alþjóðavæðingin og ESB).

5 Þá steig Jehóva (Adonai) niður til þess að sjá borgina og turninn sem mennirnir höfðu byggt.

6 Og Jehóva sagði: Nú eru þeir ein þjóð og tala sömu tungu. Þetta er aðeins upphaf þess sem þeir munu taka sér fyrir hendur. Hér eftir mun ekkert verða þeim um megn sem þeir ætla sér.

(Samanber WEF, The Great Reset).

7 Stígum nú niður og ruglum tungumál þeirra svo að enginn skilji annars mál.

8 Og Jehóva tvístraði þeim þaðan um alla jörðina og þeir hættu við að byggja borgina.

(Gáfust upp á að taka yfir heiminn).

9 Af þeim sökum heitir hún Babel að þar ruglaði Jehóva tungumál allrar jarðarinnar og þaðan tvístraði hann þeim um alla jörðina. (1. Mós. 11).

  

Babelsturn hafa men nú reist í Brussel.

Menn reisa nú turna sjálfum sér til dýrðar í hverri stórborginni á fætur annarri.

Hvað gerir Jehóva, Guð nú? Hann hefur ekki breyst. 

Guðmundur Örn Ragnarsson, 30.4.2023 kl. 03:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 93
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 667
  • Frá upphafi: 107325

Annað

  • Innlit í dag: 60
  • Innlit sl. viku: 506
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband