Zelenskívinir og Pútínsvinir

Ég ætla ekki að fordæma Zelenskívini eða Pútínsvini í þessum pistli eins og margir gera. Atburðirnir halda áfram eins og búizt var við. Ég ætla að leggja útfrá því sem margir hafa þýfgað í máli og myndum að stríðsvænna sé útlitið víða og hversvegna.

 

Evrópusambandið var stofnað til að hindra stríð og deilur einna helzt, og ótalmargar aðrar stofnanir um miðja síðustu öld. Greinilegt er að það hefur ekki tekizt.

 

Feðraveldismenningin gerir ráð fyrir því að heimurinn skiptist í tapara og sigurvegara, og að sigurvegarar séu minna en 1% mannfjöldans, en taparar 99%. Þannig hefur þetta verið í gegnum aldirnar. Aðeins karlmenn voru sigurvegarar í gegnum feðraveldisaldirnar, því undirgefni og hlýðni voru kvennadyggðir og einkenni kvenkynsins, annað talið ómögulegt, ekki hluti af feðraveldiskerfinu.

 

Hefðin um að sigurvegararnir séu hvítir hörunds, eða aríar, kemur sennilega eða að öllum líkindum ekki úr kristninni endilega, heldur frá Víkingamenningunni, Grikkjamenningunni, Rómverjamenningunni og Babýlóníumenningunni, ásamt Súmeramenningunni upphaflega. Jafnvel Arabar tileinkuðu sér þetta, eða gerðu ráð fyrir þessu af eigin rammleik og hugmyndaauðgi og voru upphafsmenn þrælaverzlunar með blökkumenn, að því er talið er.

 

Nú er svo komið að jafnaðarstefnan er öllum innrætt og hún er komin í lög, landslög jafnt sem alþjóðalög. Hverjar skyldu afleiðingarnar vera?

 

Allir þykjast kóngar og drottningar á okkar tímum. Á engum má brjóta og ekkert óheiðarlegt má eiga sér stað.

 

Sjálfstæði Donbass héraðana er umdeilt atriði, og margir á Vesturlöndum kalla þetta "svonefnt" sjálfstæði, fyrst það er Pútín að skapi, sem uppnefndur er einræðisherra af þeim sem hafa horn í síðu hans.

 

Jafnaðarfasisminn er svefn og dauði sem leggst yfir alla, og þannig finnst mér einræðisherrar oft vörn gegn slíku, en hártoganir með túlkanir eru eilífar. Nóg er hér að segja að Pútín er "svonefndur" einræðisherra, af sumum og sjálfstæði Donbass héraðana "svonefnt" af óvinum hans hér í Vestrinu.

 

En margir vilja sjálfstæði. Munu ákveðin fylki Bandaríkjanna krefjast sjálfstæðis, eða skíri í Bretlandi? Er það þróun heimsmálanna?

 

Ef við teljum Pútín undantekningu en ekki reglu, einræðisherra sem muni missa völd sín og að lýðræðisþróun í anda Vesturlandanna muni eiga sér stað að honum gengnum, verður þetta þá ekki þróunin, að heimurinn skiptist í æ minni einingar, ekki endilega með friðvænlegum árangri?

 

Ég vil samt segja hér í þessum pistli, að hatur Vesturlanda á Pútín hefur að öllum líkindum egnt hann til stríðs við Úkraínu frekar en margt annað, og ábyrgð leiðtoganna í þessum "lýðræðisríkjum" því mikil líka.


mbl.is „Megum ekki líta undan“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 111
  • Sl. sólarhring: 133
  • Sl. viku: 685
  • Frá upphafi: 107343

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 520
  • Gestir í dag: 65
  • IP-tölur í dag: 63

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband