Vestræn menning er búin að vera á meðan hún er kristileg

Sýnir ekki stríðið á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna að þeirra guð er ekki góður? Eru ekki margir sem halda því fram að Allah og Jahve, Jehóva öðru nafni, sé sami guðinn?

Af hverju er aldrei friðvænlegt á þessu svæði sem er upprunaland allra þessara eingyðistrúarbragða?

Hvað er sameiginlegt með Úkraínustríðinu og hryllingnum á Gaza? Pútín styður sig við kirkjuna rússnesku og þannig má segja að sami guðinn stjórni þessum stríðum öllum, Jahve.

Á meðan RÚV og Stöð 2 standa með Gazabúum og Palestínumönnum dynur á manni stöðugur áróður þeirra sem styðja Ísraelsmenn hér á þessu bloggsvæði. Hlutleysi og rökvísi ekki til staðar, heldur pólitískur, trúarlegur áróður, sem á sér rætur í kristinni trú þeirra sem skrifa, þetta stendur í Biblíunni og þá hlýtur það að vera satt, hvað sem veruleikinn segir eða atburðir dagsins og liðins tíma.

Menn mér ósammála segja gjarnan: Bara Palestínumenn vilja útrýma gyðingum, Ísraelsmönnum, þar ríkir hatur en Ísraelsmenn eru bara að verja sig, það er allt og sumt, þetta er ekki stríð heldur sjálfsvörn.

Vel að merkja notaði Hitler sömu rökin gegn gyðingum þegar Helförin átti sér stað. Hann hélt því fram að gyðingar væru að kæfa evrópska menningu og þá þýzku sérstaklega.

Því var haldið fram að gyðingar væru árásaraðilinn sem væri að útrýma þýzkri og evrópskri menningu með lúmskum hætti.

Valdimar H. Jóhannesson skrifaði grein nýlega þar sem hann notar fleira en tilfinningar máli sínu til stuðnings. Þar segir hann frá því að í moskum í Íran er hrópað að "eyða litla Satan"(Ísrael) og "eyða stóra Satan" (Vesturlöndum).

Pistill Valdimars er bitastæður og fróðlegur á meðan flest annað sem maður les um þetta er tilfinningaútrás nær eingöngu.

Já margt er líkt með múslimum og nazistum, báðir kalla eftir útrýmingu gyðinga. En samt held ég að hinn venjulegi múslimi sé ekki daglega að hugsa um hatur á gyðingum eða útrýmingu þeirra heldur að elska guð sinn og náungann, eins og hjá kristnum mönnum, enda er fjallað um kærleikann nær eingöngu í Kóraninum. Ég á Kóraninn en hef þó hvorki nennt að lesa hann til né Biblíuna, en þarna eru merkilegar setningar samt, og maður fær tilfinningu fyrir trúarbrögðunum með því að kynna sér þetta. Að vísu segja sumir að túlkunin á Kóraninum skipti jafnvel meira máli núna fyrir múslima.

Þegar maður hittir múslimakonur með slæður í búðum hér á Íslandi, en þær eru margar, þá eru þær iðulega og næstum alltaf með mörg börn, og maður finnur fyrir kærleika og fjölskyldugildum en ekki hatri og ógn.

Vestrænar konur eru hinsvegar allar að sýkjast af femínisma, en fjölskyldugildi hefðbundin hata þær og vilja rífa sem mest niður og fylla allt af hatri.

Ég hef ekki tekið múslimatrú og það stendur ekki til, en utanfrá séð virðist mér að vestræn menning sé mölbrotin og í tætlum, og að múslimar séu einungis að greiða náðarhöggið ónýtri og úrkynjaðri menningu okkar vestrænni. Ég er heiðingi og því get ég litið á þetta svona.

Samt get ég tekið undir að það bætir ekki okkar þjóðfélag að flytja inn útlendinga sem ekki samlagast og sízt í það stórum hópum að átök hefjist eins og í Svíþjóð.

Þannig að ég hef oft tekið undir með Ómari Geirssyni, Jóni Magnússyni og öllum hinum, svona upp að vissu marki. En með fullri virðingu, allir geta skrifað og talað útúr rassgatinu á sér þegar tilfinningarnar ná yfirhöndinni, og ég líka.

En aftur og aftur koma stuðningsmenn öfgastjórnar Ísraels og Netanyahús með sömu rökin sem hann notar, að þetta sé allt gert í sjálfsvörn.

Það var RÚV sem kenndi mér að skrifa og tala um öfgastjórn Netanyahús. Fréttamenn þar hafa verið duglegir að koma með fréttir þar sem almenningur mótmælir Netanyahu og hans stjórn og því sem gerist í Ísrael. Sú stjórn er umdeild. Þeir sem styðja hana neita að horfast í augu við það að mjög stór hluti ísraelsku þjóðarinnar er andvígur henni, um það bil helmingur, þótt hann hafi komizt til valda með lýðræðislegum hætti rétt eins og Hitler gerði á sínum tíma.

Ómar Geirsson sem er frábær þegar hann er í essinu sínu eins og gegn Icesave notar ákveðna möntru mikið í nýlegum pistlum um þetta, "glæp gegn mannkyni".

Þessi frasi er orðinn mantra margra sem réttlæta stuðning við stjórn Netanyahus. Ég hef gagnrýnt þennan frasa, því hvaða mannkyn er verið að tala um?

Hnignun mannkynsins hófst með kristninni fyrir 2000 árum, og Rómverjum sem voru studdir af Jahve.

En raunverulegt fall beint niðurávið hófst þó 1945.

Dr. Helgi Pjeturss skrifaði um mörg mannkyn, að hver kynþáttur væri eitt mannkyn. Með þeim rökum er hægt að samþykkja orðalag af þessu tagi, að árás á menningarsamfélag eða kynþátt sé glæpur gegn mannkyni. Þó finnst mér það rangt og ónákvæmt orðalag.

En svo eru margir sem segja að gyðingar séu ekki kynþáttur heldur trúfélag eða menningarsamfélag og því ekki eitt lítið mannkyn, og þá öll mannkynin felld undir heildarmannkynið, sem yfirleitt er átt við þegar talað er um mannkynið allt.

Glæpur gegn mannkyni er aðeins eitthvað eins og eitursprauturnar, og að dreifa Covid-19 um alla heimsbyggðina, sem sennilega var skipulagt af Elítunni, valdhöfum innan Evrópusambandsins, demókrataflokksins og jafnvel einhverjum innan repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Elítan er fjölþjóðleg plága sem stjórnar meginstraumsklósettfjölmiðlunum.

Glæpur gegn þjóðum og þjóðabrotum er það og varla annað.

En alveg eins og Páll Vilhjálmsson skrifar um þá er stuðningur við Hamas og Palestínu mikill á Vesturlöndum.

Hvernig væri að fólk færi að átta sig á því að Jahve, Allah og Jehóva eru allt sami trixterinn, Loki Laufeyjarson, og allt sem miður fer er honum að kenna?

Að snúa frá kristni, islam og gyðingatrú og öðrum skyldum fyrirbærum er lausnin. Þá verður mannkynið friðsamlegra.

 

 

 


mbl.is „Gasa á þessari stundu er óbyggilegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. febrúar 2024

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 71
  • Sl. sólarhring: 129
  • Sl. viku: 730
  • Frá upphafi: 107192

Annað

  • Innlit í dag: 51
  • Innlit sl. viku: 555
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband