Færsluflokkur: Bloggar

Brostu! - Vertu bara góður nú, ljóð frá 18. desember 2021.

Eitthvað fallegt eða gott

á erfiðum tíma.

Hún er góð og gírug sál

sem getur ekki skilið.

Snýr sér snót í þilið?

Snemma þekkti bál?

Þó að andlit hennar hylji gríma

hef ég fegurð séð.

Það góða einnig getur skeð

ef glaður verður þú.

Ekki missa ástar þinnar trú,

enn má reisa brú.

Fyrr en þessi fer á brott

farðu að snerta gilið.

 

Þrýstin brjóstin bjóða enn

bjarmalandssælu.

Eitthvað mennskt er undir hér

sem einnig heillað getur.

Víða þókt sé vetur

viltu reyna ber.

Finnur hún í fjandskap hinna gælu?

Fattar stelpan þitt?

Eða verður annað síðla hitt?

Ekki beizkjast nú!

Brostu! - Vertu bara góður nú!

Blíðu á sú kú!

Kannski færðu sæta senn,

sjáðu ástarletur!

 

Þörf var mér að finna fljóð,

fullnægjukroppinn!

Efast kannski ennþá samt,

aðeins þetta er byrjun.

Vill hún vonda kyrjun?

Að visna þeim er tamt!

Varð ég oft af bið svo bitur, loppinn,

bara vona nú.

Þetta er reyndar falleg frú,

sem fann á minni leið.

Reyndar verður angan einnig reið

þá yfir hvelfist skreið.

Verður hún svo glöð og góð

ef vaknar andans hyrjun?

 

Orðaskýringar, nýyrði eða fornyrði: Beizkjast: Verða beizkur, tortrygginn, þora ekki að elska eða verða hrifinn af einhverjum (einhverri).

Hyrjun: Ástarbál, samskipti náin.

Skreið: Vara eða ástand sem kalla mætti undir vafasömum formerkjum helstefnunnar.

Hvelfast: Þekja eða standa yfir, ástand sem er vegna andsetningar púka oft, getur þó verið jákvætt líka.

Kyrjun: Heilaþvottur Frankfurtskólans eða kommúnista og jafnaðarfasista eða eitthvað álíka. Áróður fjölmiðla og skólastofnana á Vesturlöndum sem skaðar fólk.

Bjarmalandssæla: Bjarmaland var orð yfir Gandvík, Hvítahaf nálægt Finnlandi og Rússlandi hér áður fyrr, eða fjarlægar slóðir galdra og galdramanna. Hér er það yfir okkar land, eða hvaða land sem er, sem er orðið undarlegt sökum innfluttrar, framandi menningar.

Eitthvað mennskt: Undirliggjandi er samsæriskenning um að geimverur séu að yfirtaka jörðina og okkar mannkyn með lúmskum hætti sem eiginlega enginn veit um eða tekur eftir eða viðurkennir.


Það getur brugðið til beggja vona eftir uppreisnir. Spurning um áhrif Vesturlanda.

Auðvitað er maður sammála Þórdísi Kolbrúnu í þessu, nú er einum einræðisherranum færra í heiminum, en enginn veit hvað við tekur.

Svo mikið er víst að islamistar eru ekki einsleitur hópur heldur margskonar. En það er hlálegt að uppreisnarhópurinn (HTS) sem hefur náð völdum á sér rætur í hryðjuverkasamtökum. Enn og aftur kemur í ljós að frelsishetja fyrir sumum er hryðjuverkamaður fyrir öðrum.

Þrátt fyrir að jíhadistar séu öflugir innan HTS hópsins er ekki ljóst hvernig stjórn þeirra verður eða þróunin í framhaldinu af þessu. Þeir halda tengslum við Bandaríkin, og virðast reyna að fara hófsama leið, og halda eftir embættismönnum frá Assad-tímanum.

Nú reyna Bandaríkjamenn að festa sig þarna í sessi og Rússar á útleið og flótta.

Sigurvegarinn Donald Trump virðist hafa flesta þræði í hendi sér, maðurinn sem var úthrópaður og hataður af flestum á Vesturlöndum fyrir nokkrum mánuðum og vikum, og eiginlega allt frá því hann náði fyrst kjöri 2016.

Sigur Donalds Trump er skínandi og sigur gyðinga á heimsvísu með honum, styrking þeirra á kostnað múslima útum allt. Það er gott og blessað. Gyðingar hafa að minnsta kosti samið sig mun meira að vestrænum lifnaðarháttum, eins og sjá má á þátttöku þeirra í Eurovision, til dæmis, og eru viðurkenndir sem ákveðinn hluti Vesturlanda.

Þetta virðist þjóðernisleg bylting Sýrlendinga eftir fréttum að dæma, með trúarlegu inntaki og islömsku. Ég held að sprengjuárásir Bandaríkjamanna geti ekki minnkað trúarhita Sýrlendinga og ef þeir sveigjast í sömu átt og Afganir, þá er ekki auðvelt að breyta því. Það er ekki hægt að breyta þróun sem á sér stað meðal þjóða með sprengjuárásum, það hefur sýnt sig áður.

Emanuel Swedenborg ræddi við andana. Ég hef rætt við fólk á öðrum hnöttum. Er mark á slíku takandi?

Allavega, ég taldi mig hafa rætt við Jahve, guð Biblíunnar í fyrra. Mér fannst það stórkostleg upplifun. Hann eiginlega sannfærði mig um að vald hans væri enn mikið. Hann sýndi mér sýnir og framtíðarmyndir um valdbeitingu og stríð af hans hálfu til að koma á trúuðu mannkyni aftur. Þetta var alveg stórmerkileg upplifun.

Slíkar upplifanir eru oft eins og í brotum. Það er margt í þessu skrýtið, eins og að Allah, guð múslima, hann byggist á opinberunum spámannsins Múhameðs, en samt einnig á gyðinglegum ritum, þetta eru Abrahamstrúarbrögð allt, byggð á goðsögnum flökkuþjóðanna á þessu svæði, og því sem varð Gamla testamentið.

Spurningin um kvenréttindi er áleitin. Spurningin um jöfnuð og mildi innan islams er einnig stór og mikilvæg.

Þrátt fyrir að Rússar hafi stutt Assad-stjórnina, þá býst ég við að þeir séu færir um að skipta um skoðun og styðja aðra þarna eða annarsstaðar, ef það hentar þeim.

En maður samgleðst Sýrlendingum, ef þetta er frelsisvæðing þeirra og sjálfstæðisvakning. Nú ættu íslenzkir fréttamenn að kafa djúpt ofaní þetta til að veita okkur lesendum upplýsingar. Nú vilja margir heyra um smáatriðin, býst ég við.


mbl.is Hafa náð Damaskus og Assad flúinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngun til valda æðri þýlundinni?

Það var tekið viðtal við Dag B. Eggertsson nýlega vegna um 1500 útstrikana á nafni hans eftir kosningarnar. Svör hans vöktu athygli mína.

Hann sagði um útstrikanirnar að fólk hefði "strikað við" sig, sem er allt annað en að strika út nafnið hans eins og var gert. Hann sagði einnig að í stað þess að þiggja ekki embætti muni hann þjóna fólkinu enn betur til að gera þá ánægða sem "strikuðu við" sig, (strikuðu hann út).

Eins og kemur fram í þessari frétt sem ég blogga um, þá eru sumir á því að Þórður Snær geti ekki afsalað sér þingmennsku og sé réttkjörinn. Hann fékk þó ekki "nema" um 500 útstrikanir, en Dagur B. Eggertsson sló metið og fékk um 1500 útstrikanir!

Dagur B. Eggertsson mun hafa fengið nákvæmlega 1453 útstrikanir, en það slagar hátt í 1500 stykki sem er dágóður slatti og mikil andstaða við hann.

Dagur færist því niður um eitt sæti samkvæmt fréttum.

Sennilega er Dagur B. Eggertsson sama týpan og Donald Trump, hefur lært hjá Dale Carnegie eða svipuðum hreyfingum um að viðurkenna aldrei ósigur og að snúa alltaf ósigri í sigur með þrjózku og trú á sjálfan sig eða eitthvað slíkt sem þar er kennt. Margt af því sem einkennir Donald Trump lærði hann af þannig hreyfingum, og það hefur komið fram í heimildamyndum um hann. Sýnist mér að hugarfar og stríðskænska Dags B. Eggertssonar sé af sama meiði og útskýri hversu þaulsetinn hann var sem borgarstjóri Reykjavíkur.

Þetta er ákveðin afneitun á raunveruleikanum og slíkt hafa sumir til að bera sem ná árangri og eru afburðamenn og sigurvegarar, forríkir auðrónar til dæmis, en einnig sumir geðsjúklingar, siðblindingjar og kannski fleiri hópar, þannig að slíkt er ekki alltaf kostur eða vænlegt til sigurs eða árangurs. Er þar dönsuð fín lína.

En ef Þórður Snær er réttkjörinn og sezt á Alþingi og einnig Dagur B. Eggertsson, þá má eiginlega segja að flokkakerfið sjái um sína, og það skipti ekki máli þótt almenningur vilji ekki pólitíkusana, og mikið óréttlæti má það jú kallast.

Það er mjög áhugavert að Samfylkingin er orðinn stærsti flokkur landsins ÞRÁTT FYRIR þessa spillingu og þessa óvinsælu, eða umdeildu menn innanborðs.

Það vekur upp spurningar: Getur það verið að verið sé að refsa VG fyrir að rýmka lögin um fóstureyðingar eða að standa fyrir vinstriöflum almennt sem landsmönnum er langfæstum að skapi?

Greinilegt er að flestum Íslendingum er sama um siðferðisleg álitamál frambjóðenda Samfylkingarinnar, því hún er stærsti flokkurinn og þessi hneykslismál eða umdeildu mál minnkuðu allra sízt fylgi flokksins eða kom í veg fyrir þennan glæsilega kosningasigur, sem Samfylkingin vann vissulega í þessum kosningum.

En þetta er ekki nógu góð byrjun fyrir Samfylkinguna, finnst mér. Þarna er strax í upphafi væntanlegs ferils sem stjórnarsetuflokks sleginn tónn spillingar og þrjózku, þaulsætni en ekki auðmýktar og þýlundar í garð kjósenda.

Ef Samfylkingin fær forsætisráðuneytið, og þessir ágætu menn kannski veigamikil embætti, þá er auðvelt að sjá það fyrir sér að þetta sé byrjunin á löngum spillingarferli og dvínandi vinsældum flokkanna og stjórnarinnar sem margir binda vonir við, Kristrúnarstjórnin, vil ég kalla hana.

 

PS. Ég veit að þýlund er orð sem er oftast notað í neikvæðri merkingu, sem þrælslund og undirlægjuháttur, en ég er oft að leika mér með orðin. Úr því að menn saurga og eyðileggja jákvæð orð er alveg eins hægt að nota neikvæð orð í jákvæðri merkingu líka.


mbl.is Þórður Snær er réttkjörinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ævinlega tvær, ljóð frá 28. marz 1992.

Ein sem uppi býr

annað gerir þó.

Syn er situr þar

segir nóg.

Önnur æva ljót

eins og hinnar dý.

Sök á byggðir bar,

brotuður alls.

Heiminn bara hefur í

höndum sínum snót.

Dul því veldur dýr,

dropar falls.

 

Yfir yndishót,

ekki nýtur þess.

Sezt á syndagrein,

sér ei fress.

Grefur gildan klett

grund úr, skilur snjó.

Jóðið, jörðin hvein,

jafni Bors.

Ætluð manni ung var þó,

ekki hlýddi rétt.

Reiðin, rá og spjót,

ríkir Fors.

 

Inn þá angan ber,

eitrið raunar kalt.

Mengast stærri menn

maurar þekja allt.

Sæt í syndur rær,

sýnist tapið fá.

Dauf í dálkinn enn

drottning þín.

Sú er horfir ættir á

ævinlega tvær,

hefur sezt að hér

sem hofgná mín.


"Við þurfum að finna diplómatíska lausn", sagði Selenskí við japönsku fréttastofuna Kyodo News. Þar með er það viðurkennt að þeir sem töluðu um friðarsamninga höfðu alltaf rétt fyrir sér.

"Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin" er tilvitnun í Selenskí Úkraínuforseta og ný frétt á Vísi. Þetta er stórfrétt og skrýtið að þetta komi ekki í fleiri fjölmiðlum. Allir þeir sem tjá sig um þetta Úkraínustríð þurfa að kynna sér þetta til að fylgjast með nýjustu vendingum.

Einn af þeim fyrstu hér á blogginu sem talaði um að Rússland ynni og það væri lítt raunsætt að halda öðru fram var Gunnar Rögnvaldsson bloggari. Ættu menn að taka meira mark á honum og mörgum öðrum sem ekki taka undir pólitískan rétttrúnað.

Í þessari frétt kemur fram að sennilega muni möguleg Natóaðild Úkraínu aðeins fela í sér "frjáls svæði" Úkraínu, sem Rússar hafa ekki náð á sitt vald.

Af orðum Selenskís má þó ráða að hann vill aftur ná þessu landsvæði. Hann vill ekki friðarviðræður við Rússa fyrr en Úkraína nái þeim styrk að Rússar veigri sér við að ráðast aftur gegn landinu.

"Her okkar skortir styrk til þess" (að ná aftur hernumdu landsvæðunum"), eru hans orð við japönsku fréttastofuna Kyodo News.

Þessi frétt sem birtist í Vísi 2. desember síðastliðinn ætti að sannfæra menn um að það að raunsæ hefur sú ályktun mín verið, og í anda þess sem aðrir hafa haldið fram, að þetta Úkraínustríð yrði fyrst og fremst skammarlegt blóðbað í anda sumra tilgangslausra stríða. Engu að síður tek ég undir það að árásir á "sjálfstæð" ríki eru brot á alþjóðalögum. En um sjálfstæði Úkraínu má deila. Hún er leppríki og það ríki sem Vesturlönd hafa læst klónum í sem inngönguleið í Rússaveldið sem nú er komið í nokkra búta, og sumt sjálfstæð ríki.

Önnur frétt á Vísi er áhugaverð. "Dögun þriðju kjarnorkualdarinnar er í vændum", vitnað í Tony Radakin, aðmírál og æðsta hernaðarleiðtoga Bretlands.

Þar er fjallað um margþættari ógnir en áður sem Vesturlönd standa frammi fyrir. Þar er fjallað um varnarmál tengd netöryggi og fleiru.

Eins og bloggarinn Arnar Loftsson hefur fjallað um, þá má segja að Vesturlönd hafi ekki efni á því að hafa ekki Rússland í liði með sér á tímum rísandi Kínaveldis og margs annars sem breytist í heimsmálunum.

Í fréttinni þar sem vitnað er í Tony Radakin kemur fram að lýðræðið er á undanhaldi í heiminum en einræðisríkjum fjölgar, og þau eru ekki öll af sömu tegundinni, heldur mörg með einkenni lýðræðis með.

Að vinna með einræðisherrum og fá þá til að fylgja lýðræðislegum leikreglum, það hlýtur að vera keppikefli þegar svona breytingar hafa orðið, og ekki er kannski mögulegt að sigra þá alla í stríði.

Eftir stendur spurningin: Hvað varð til þess að Vesturlöndum fór hnignandi og lýðræðinu?

 


mbl.is Heitir 100 milljörðum í hernaðaraðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft er komin önnur Þökk, ljóð frá 17. desember 1991.

Inn um dyrnar dökk,

dagar breytast.

Jafnvel barðir þegar þreytast,

þú ert sú er skín.

Allir tala um Myrkramessu,

muntu lenda í nýrri pressu?

Fyrirgef ég grand?

Getur byrjað þar að nýju?

Laus við Loku hlýju?

Oft er komin önnur Þökk,

eins og þurr við land...

Aftur vitja mun þó mín...

 

Góð er út í gegn,

girndin vaknar.

Maður þeirrar Þóru saknar,

þar sem Mjöllnir hvein.

Vígslu tók á vegum þeirra,

varla nema á öðrum fleira.

Sátu saman þær?

Sundur berja eða hlýða?

Mun þann naður níða?

Varð að þeirra vilja, um megn,

væn hún gengur nær...

Sezt svo sinn á stein...

 

Andlit tvö þar enn,

eins og þessi.

Meðan hann og mig ég hressi,

meyjar ganga nær.

Gegnum eldinn gengu fleiri,

gremju marga um enn þótt heyri,

nú er tíðin ný.

Náttúran og hefðin fallin,

Ungar, ekki gallinn?

Auðvelt þeim að elska menn,

eins og gráta ský...

Við mér blasir blær...


Yrði heimurinn betur staddur ef Rússar myndu tapa Úkraínustríðinu?

Hatrið vellur uppúr fólki eins og gröftur þegar minnzt er á Rússa eða hrun rúblunnar. Við hverju er hægt að búast þegar stríð er í gangi og efnahagsþvinganir?

Allt þetta Rússahatur sem vellur fram í athugasemdum í DV og víða, það væri ekki þarna ef þessir sem rituðu og töluðu væru ekki í andlegu ójafnvægi. Þetta andlegt ójafnvægi þeirra sem tjá sig með hatursfullum hætti gagnvart Rússum myndi ekki til ef ekki væri sannleikur eða sannleikskorn í þeim sem andmæla femínisma, jafnaðarfasisma og "mannréttindum" vestrænum.

Sigurður Leósson er nýr bloggari sem kemur sterkur inn. Þótt ég sé ekki sammála honum þá lýsir hann í nýjum pistli vel því sem Pútín og Rússar þurfa að glíma við af vandamálum.

Rússar eru mennskir en femínistar ekki. Rússar eru von mannkynsins en jafnaðarfasistar myrkur og dauði. Rússar innbyrtu Spútnik bóluefnið sem ekki er mRNA bóluefni og því frekar mennskir en við á Vesturlöndum.

Ekkert stríð stendur endalaust. Úkraínustríðið hefur nú þegar gert gagn að því leyti að það hefur fært djöflana og djöflurnar meira uppá yfirborðið hér á Íslandi eins og annarsstaðar, það er þetta fólk sem boðar gjöreyðingarstríð, kjarnorkustríð, hatur og heift, en ekki frið.

Fólk hefur sýnt sitt rétta andlit. Vinstrisinnar, jafnaðarmenn, einnig hægrimenn svonefndir. Guð hlustar og Guð sér.

Rússar gerðu tilefnislausa árás á Úkraínu segja sumir, hreint innrásarstríð, Pútín líkt við Hitler og þar fram eftir götunum.

Nýr Rússahatari er farinn að vekja athygli í athugasemdum DV. Hann heitir Smári Sverrisson og lýsir Pútín persónu non grata.

Nýr bloggari, Sigurður Leósson sýnir svipaða hörku og heift gegn Rússum.

Eru þessir menn betur settir og hamingjusamir ef Rússland leysist upp? Eru Vesturlönd betur stödd?

Svona menn eru sannfærðir um lygaáróðurinn í vestrænu pressunni.

Þeir trúðu því sennilega að Saddam Hussein ætti gereyðingarvopn í Írak þegar Bandaríkjamenn réðust þangað inn árið 2003. Þar fannst hvorki tangur né tetur af gereyðingarvopnum, en samt var lygaþvælunni hellt í gegnum vestræna fjölmiðla eins og hverju öðru skólpi!!! Og við, almenningur á Vesturlöndum urðum að skólpi með því að trúa RÚV!!!

Það bætir ekkert Ísland eða Vesturlönd að eyðileggja Rússland, þvert á móti.

Ég lýsti því yfir í athugasemdum í bloggpistli Páls Vilhjálmssonar þegar hann skrifaði að Flokkur fólksins væri óstjórntækur, að ég væri enn femínisti.

Já, ég er ennþá FÍFL og skal alveg viðurkenna það. Það býr ennþá BJÁNI í mér og femínisti, þannig er það bara og ég get alveg viðurkennt það aftur og aftur.

Sem sé, EF "valkyrjurnar" þrjár, eða tröllskessurnar þrjár ná að stjórna landinu vel næstu 4 árin fer ég ekkert að éta neina hatta heldur að gleðjast yfir því.

Ég er ekki eins og sumir sem sjá óvini í öllum sem andmæla eða hafa aðra skoðun eða líta öðruvísi út. Ég get verið ósammála fólki og fyrirlitið það jafnvel, en hatur er fyrirbæri sem ég kynntist vel 1991, þegar nístandi sársauki yfirtók mig og ástarsorg, og ég þroskaðist af því, að vilja ekki lenda í slíku aftur.

Ég sé þetta Úkraínustríð ekki sem svarthvítt mál og ekki heldur Gazablóðbaðið mikla.

Segjum sem svo að Rússland væri ekki til og hefði aldrei verið til.

Gagnrýni mín og annarra á Vesturlönd, hún er jafn sönn og rétt eftir sem áður.

Lækkandi fæðingartíðni, háir skattar, efnahagskreppur, hatur á milli kynjanna óþarft og heimskulegt, ástin að hverfa á milli karla og kvenna, vandamál búin til sem voru ekki til áður af húmanistum, þunglyndi, lyfjaát, vímuefnanotkun, sjálfsmorð, ólæsi, vaxandi stéttskipting, síaukinn ójöfnuður, ofbeldisdýrkun ungra kynslóða, ónýt skólakerfi, sívaxandi mengun, drepsóttir eins og fuglaflensa sem brýzt sennilega út innan næstu 4 ára meðal mannkynsins, sem verri farsótt og miklu mannskæðari en Covid-19, loftsteinar sem hrapa nú oftar en áður til jarðar, síaukin hætta á kjarnorkustyrjöld, gervigreind sem ógnar mannkyninu... Listinn er ekki tæmandi, hér er aðeins eitthvað smávegis sem er ofarlega á baugi, en fleira væri hægt að nefna.

Hættan á kjarnorkustyrjöld myndi ekki hverfa þótt Rússar væru teknir útúr jöfnunni. Lítum bara á Ísrael!

Ísrael er kjarnorkuríki. Það er Íran líka, og Kína, og Indland.

Mannkynið er sturlað!!!

Að taka Rússa útúr jöfnunni veitir aðeins örstutt hlé, því sama klikkunin er svo víða annarsstaðar.

Þvert á móti, ef Rússar væru vinveittir Vesturlöndum væri ástandið MIKLU betra í heiminum. En nei, femínistar á Vesturlöndum vilja það ekki, því menning Rússlands er sjálfstæð, og það þola ekki jafnaðarfasistar á Vesturlöndum sem eru orðnir að skrímslum eftir að hafa gengið í gegnum skólakerfið hér á Vesturlöndum eða atvinnulífið.

Það eina sem heimurinn er þarf er kjarnorkustyrjöld og ljúka þessu í eitt skipti fyrir öll.

Sigurður Leósson lýkur pistli sínum með spá um að Rússar geri uppreisn gegn Pútín því hann sé orðinn tapari.

Ef það er eitthvað sem Pútín kann þá er það að vera haldinn vænisýki og ofsóknaræði og að sjá fyrir morðtilræði við sig og slíkt, enda alinn upp sem njósnari.

Þjóðir sem eru kúgaðar gera ekki uppreisn fyrr en tök einræðisherranna á þeim verða losaraleg. Það á jafnt við um kúgaðar þjóðir Evrópu eins og Rússland. Við erum kúguð en ekki frjáls. Okkar hlekkir eru silkimjúkir og faldari en þeirra hlekkir, en þeir eru verri og hættulegri þess vegna.

Rússland hefur gengið í gegnum margar kreppur og oft hefur rúblan þeirra hrunið, bæði 2014 og 2022 og á öðrum tímum. Rússar eru þolgóðir og þekkja erfiðleika betur en ýmsir.

Ábyrgðarlausir eru óvinir Pútíns og Rússa. Hér á klakanum erum við í velmegun og sumir telja sig eiga rétt á því að dæma og útdeila refsingum.

Vestrænt samfélag byggist á glæpum gegn mannkyninu, náttúrunni og einstaklingunum sem búa innan Vesturlanda og utan þeirra. Jafnaðarfasisminn lætur allt visna.

Með Úkraínustríðinu hefur almenningur í okkar löndum færzt svolítið nær því að fá ógeð á sínum stjórnvöldum, jafnaðarfasistunum.

Maður sér það til dæmis á breytingum á Samfylkingunni, sem var móðurskip ESB martraðarinnar.

Stærsta ástæðan fyrir sigri Samfylkingarinnar núna er án efa popúlískar áherzlur Kristrúnar Frostadóttur, hvernig hún hefur fært Samfylkinguna nær Miðflokknum og öðrum jafnaðarmönnum í Evrópu, sem smám saman neyðast til að fara þessa leið, því almenningur gerir ákall um það, og þannig flokkar stærra, eins og aFD, Möguleiki fyrir Þýzkaland.

Jafnaðarmenn drepa börn áður en þau verða til flest, en líka mikið af þeim í móðurkviði.

Pútín lætur Jahve stjórna sér, og það gerir Selenskí líka, eins og Hamasliðar eða Netanyahu.

Ég hef jafnvel meiri áhyggjur af fuglaflensunni sem mun væntanlega breiðast út meðal manna á næstu 4 árum.

Metoo hleypti Ragnarökum af stað, og Armageddon.

Kærleikurinn á milli kynjanna og kærleikurinn almennt er vörnin gegn svona hryllingi.

Þeim kærleika var hafnað.

Geimverur eru nú þegar á meðal okkar og láta andsett fólk berjast gegn öðru andsettu fólki. Geimverurnar eru langfjölmennastar á Vesturlöndum í femínistum, vinstrimönnum, jafnaðarmönnum, en líka í hægrimönnum, í "góða fólkinu", sem er vont í raun.

Lítið er um von. Þannig er bara veruleikinn.


mbl.is Aðild að NATO það eina sem tryggir öryggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Joe Biden hefði ekki þurft að veita Hunter Biden sakaruppgjöf nema ástæðan hafi verið til - og því er þetta ekki til að auka hróður eða sakleysi og mannorð vinstrimanna og jafnaðarmanna

Sakaruppgjöf yfir Hunter Biden þýðir að Joe Biden bjóst við að ekki væri önnur leið fær, að sonurinn væri sekur sem sé. Þetta gefur margvísleg skilaboð, eins og að þessi aðferð verði meira notuð í framtíðinni, að æðstu menn verði náðaðir þótt þeir hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Pólitískir andstæðingar Trumps verða að skilja að þeirra fólk er sízt skárra. Þetta verður notað í deilum og rökræðum, notað sem staðfesting á að vinstrimenn og jafnaðarmenn ættu ekki að telja sig betri en aðra.

Mörkin eru enn að mást út og verða óljósari á milli góðs og ills, á milli þeirra sem eru sekir eða saklausir - eða taldir það.

Þegar æðstu valdamenn heimsins og þeirra nánustu skyldmenni eru viðriðnir afbrot og dómsmál, (Hunter Biden, Donald Trump), þá gefur það mjög merkileg skilaboð.

Það hlýtur að vera erfitt að rökstyðja að þetta séu einhver sérstök merki um að vestrænt samfélag sé í blóma eða á réttri leið - sigurleið.

 


mbl.is Biden veitti syni sínum sakaruppgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vargöld leynist grá, ljóð frá 2. desember 2024.

Manstu eða gleymdir gleði?

Gagnslaus lýður frjáls?

Þarna svo verða að þurrum blómum,

þessar sem gegndu ei karla ómum.

Eitthvað skaðsamt skeði,

en skerið varnar máls.

 

Aðeins konur, biturð, bani,

blæs nær frjálslynt afl.

Herdísir vilja stríðið styrkja,

stefnuna fjöldinn hyggst svo virkja.

Stoltur stúlkna hani

stefnir fyrir gafl.

 

Ef sú ást var köld,

yfirborð og stöðluð kveðja,

nálgast leiðans leðja,

lýkur þinni öld.

 

Þroskaskert og þrá,

þunnlynd, eftir tímans boðum,

þó á værðarvoðum,

en vargöld leynist grá.

 

Vinskap vildi hann,

varla losti á þessum tíma,

er það aðeins gríma?

Elskar sannleikann?

 

Heiður, hann ei teinn,

hún er skildi forna njólu

fór í fjandans gjólu,

fretar rakki einn?

 

Arðrán, annars svar,

auðlegð, konur þannig tala,

mun hjá svínum svala

svírans losta þar.

 

Sokkið syndasker,

sjáðu tapið, fær það ekki,

aðeins aðra hrekki,

ábyrgð ræfill ber.

 

Sorg og synd því hlær,

sá er ræður lítill bógur,

ríkir hinna rógur,

raunin færist nær.

 

Ekki mun þeim eftir leita,

aðeins fortíð hans.

Fjólurnar skarta fjarri litum,

fer því að mengun herrans vitum.

Draumsýn blífur beita,

böðla lokadans.


Fyrstu tölur ekki samkvæmt skoðanakönnunum - hægribylgja eða miðjubylgja, ekki vinstribylgja, wók tapar, VG

Ég kaus ekki því ég notaði rökin - maður fer ekki að velja á milli kommúnistaflokkanna sem eru í boði - engin ástæða til að kjósa - þetta eru allt kommúnistaflokkar á vinstrarófinu.

En ég birti ljóð í gær frá þeim tíma þegar Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn kosningasigur 1991 og ég kaus fyrst, ef ég man rétt. Ég hafði óljósan grun um að kannski fengi Sjálfstæðisflokkurinn meira en svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir. Engu að síður, Brynjar Níelsson ætti að verða næsti formaður Sjálfstæðisflokksins - Bjarni hefur sveigt flokkinn of langt til vinstri og hans eftirlætisdömur.

Það þarf karl til að vera formaður Sjálfstæðisflokksins, þetta er flokkur karlmennskunnar og hefðanna. Brynjar uppfyllir öll skilyrðin. Hann er landsþekktur og þorir að standa með sínum skoðunum, en tæplega Bjarni.

Vinstrimenn ætla að hrúgast á Samfylkinguna. Það er nýtt að þeir sameinist, en gamall draumur vinstrimanna að rætast.

Það er gott ef stórsigur Viðreisnar raungerist ekki. Það hefði orðið stílbrot í pólitík á Íslandi. Að Sjálfstæðisflokkurinn stækki var viðbúið, það eru hlýðnu rollurnar að smalast heim í sitt gamla fjárhús.

Ef þessar fyrstu tölur standast, þá er þetta ekki vinstrisveifla, miðjusveifla og hægrisveifla frekar.

Fólk er að hafna wók-stefnunni greinilega eins og í Bandaríkjunum.

Kristrún er alls ekki eins hörð wók manneskja og Svandís í VG, eða Þórhildur Sunna í Pírötum eða Sanna í Sósíalistum.

Stórsigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar sýnir miklar áherzlubreytingar hjá vinstrinu. Það er verið að hafna vinstriöfgum, en koma inn með Kristrúnu og þannig fólk sem er nær Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum. Þetta eru ágæt úrslit, ef þau standa.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 39
  • Sl. viku: 564
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 470
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband