Færsluflokkur: Bloggar
27.6.2024 | 12:54
Sökkvandi skip, þessi ríkisstjórn.
Óvinsældabylgjan og reiðialdan er nú farin að skella á Bjarna Ben og Sjálfstæðisflokknum. Vinstri grænir eru komnir í 5.0%, það er að segja þeir hækka örlítið.
Sósíalistaflokkurinn er hástökkvarinn, 5.9%.
Annars er það markvert við þessa könnun að Miðflokkurinn er að verða stærri en Sjálfstæðisflokkurinn, og Miðflokkurinn er að verða eini hægriflokkur landsins, eftir sitja Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sem meiri vinstri-jafnaðarstefnuflokkar en sjálf Samfylkingin, sem er ekki síðri hægrikrataflokkur en Sjálfstæðisflokkurinn núna.
Ég var búinn að spá því fyrir löngu að Sósíalistaflokkurinn gæti tekið við af Vinstri grænum sem aðal raunverulegi vinstriflokkurinn í landinu. Kjósendur Vinstri grænna upplifa sig svikna af þessari stjórnarsetu í hrönnum og því verður tæplega svo auðveldlega breytt, nema gamlir vinir og velunnarar Vinstri grænna rata núna aftur heim í fjósið sitt gamla og föðurhúsin sín þegar Katrín Jakobsdóttir er farin veg allrar veraldar og Natódaðrið er ekki alveg eins æpandi og áður.
Samfylkingin er núna mánuð eftir mánuð með reiðifylgi, lausafylgi og froðufylgi, það er hreyfanlega fólkið sem hefur sezt þar að. Þetta er sama fylgi og Píratar fengu hér um árið í könnunum og gerðu þá einna stærsta flokkinn mánuð eftir mánuð, 2016 held ég það hafi verið.
Reiðifylgið er nú fjölmennara en áður, og þessi hluti kjósenda sem hægt er að sveigja í allar áttir.
Annars ætti Bjarni Benediktsson að líta í eigin barm. Það væri undarlegt ef hann færi ekki að fatta að hans eigin störf og daður við vinstrið og öfgajöfnuðurinn hafa gert flokknum hans þetta.
Hvort er betra að fara með sökkvandi skipi í hafið eða stökkva í hafið og kalla á hjálp?
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 15% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir nokkrum árum hætti ég að safna Bubbaplötum því mér fannst hann vera farinn að endurtaka sig. Í Góða hirðinum má finna það sem vantar. Ég fann plötuna hans frá 2011 nýlega sem heitir:"Ég trúi á þig". DVD diskur fylgir með viðtölum við Bubba og samstarfsmenn.
Ég hafði keypt í Bónus árið 2016 plötuna "18 konur" (ásamt Spaðadrottningunum sem undirleikurum) og hafði orðið fyrir mjög miklum vonbrigðum með þá plötu, sem mér finnst enn með því alversta sem Bubbi Morthens hefur gert, og er þó af nógu að taka í deild lélegra hljómdiska og hljómplatna frá honum, því þar er vélræn framleiðsla á ferðinni og endurtekningar á því sama og hann hefur áður samið og sent frá sér.
En þegar ég hlustaði á tónlistina á "Ég trúi á þig" frá 2011, 4 árum fyrr, þá varð ég undrandi, og varð að viðurkenna að ég hefði aldrei trúað því að Bubbi gæti komið mér á óvart svo seint á ferlinum, sem hann þó gerði. Í viðtölunum við Ólaf Pál útvarpsmann á DVD disknum sagðist hann aldrei hafa sungið betur (eða gaf það í skyn), og það er einmitt það sem ég verð að taka undir, þótt oft hafi Bubbi sungið vel, hef ég aldrei heyrt betri söng frá honum en á þeim hljómdisk, þar sem hann syngur áreynslulaust hæstu tónana og án þess að rembast og sperra sig eins og hann gerir oft.
Á þessari plötu kemst Bubbi Morthens upp með það sem Bob Dylan komst ekki upp með árið 1990, það er að segja að búa til barnaplötu. Bob Dylan tileinkaði dóttur sinni plötuna "Under The Red Sky", sem kom út 1990, og mörg lögin á henni þóttu barnaleg og því fyrir neðan virðingu meistarans, Bob Dylans. Sú hljómplata hefur því æ síðan fengið lélega dóma, að ósekju, því hún er skemmtileg á köflum, og betri en sumar aðrar plötur eftir Bob Dylan.
Bubbi Morthens faldi þó barnaskapinn 2011 með sálartónlistarútsetningum, en það fer ekkert á milli mála þegar maður hlustar á þessa tónlist og texta að þetta eru upp til hópa barnagælur eins og á plötunni "Under The Red Sky" með Bob Dylan.
Því finnst mér textarnir lélegir eins og oftast hjá Bubba Morthens á þessari plötu, en tónsmíðarnar eru betri en oftast áður, "óbubbalegar", held ég að hann hafi sjálfur sagt, og útsetningar og flutningur alveg uppá 10, alveg fyrirtak.
Rómantíkin finnst mér ekki lengur í þessu hjá Bubba, heldur er þetta orðin vélræn framleiðsla eftir formúlu. Stundum ganga þannig vinnubrögð samt upp, og það gera þau svo sannarlega á plötunni hans, "Ég trúi á þig" frá 2011, því þetta er létt og skemmtileg tónlist, fjölskylduvæn, barnvæn.
En platan frá 2015, "18 konur", hún er algjörlega andlaus. Sama hversu oft ég hlusta á hana, mér finnst ekkert nýtt koma í ljós. Þar er hinn femíníski Bubbi kominn enn einu sinni sem hefur 100% misst alla andagift og frumleika og semur bara eftir formúlu og mærir kvenréttindin, án þess að manni finnist það sannfærandi.
Einu gleymdi þó Bubbi að segja frá. Ég er nokkuð viss um það að trúarlegi keimurinn sem fylgir plötunni er kominn frá Bob Dylan, og hann hefur vafalaust hnuplað titli plötunnar frá Bob Dylan, en eitt frægasta kristilega lagið eftir Bob Dylan heitir einmitt "I Believe In You," og kom út 1979 á "Slow Train Coming". Hafa ekki ófrægari menn en ég og Páll Rósinkranz gefið þetta lag út eftir Bob Dylan, var það á minni fyrstu plötu frá 1998, "Insol" og svo af plötu með Páli Rósinkranz frá 1996 sem heitir einnig "I Believe In You". Ég var ekki að herma eftir stórsöngvaranum þegar ég setti þetta lag á mína fyrstu plötu. Bob Dylan hafði verið mitt átrúnaðargoð frá 1983 að minnsta kosti, og þegar maður hefur ekki trú á eigin tónsmíðum grípur maður í að ábreiða hans lög, sem margir syngja, á tónleikum og á plötum.
Þessi fyrsta hljómskífa kom þannig til að eftir miklar upptökulotur í Fellahelli frá janúar til maí 1998 hafði ég úr ýmsu að velja til útgáfu. Ég ákvað að gefa út upphitunarlögin eftir Bob Dylan og Bítlana, um 10 stykki. Ástæðan var sú að þau hljómuðu betur en ég hafði búizt við. Ég átti samt demó heima með eigin lögum á ensku. Ef ég gef þá plötu út aftur gæti verið að ég gefi frekar út mínar tónsmíðar í demóútgáfunni. Ýmislegt er mögulegt í því.
Þessi pistill átti þó að vera lofrulla um plötu Sverris Stormskers sem ég er farinn að meta betur en nokkrusinni fyrr, frá 1990 og heitir:"Glens er ekkert grín".
Þegar "Í góðri trú" með Megasi kom út 1986 fannst mér ég þurfa nýtt átrúnaðargoð af innlendum hljómlistarmönnum. Mér fannst Megas vera orðinn jafn lélegur og aðrir popparar, að syngja ástarlög á þessari plötu. Þá tók Sverrir Stormsker við sem næsta innlenda átrúnaðargoð.
"Lífsleiðinn" frá 1986 fannst mér áhugaverð skífa, en samt ekki nógu skrýtin. Ég eignaðist "Hitt er annað mál" frá 1985 sem enn var til í búðum þá, og mér fannst hún enn skrýtnari, og þá jókst virðing mín fyrir Sverri Stormsker enn meira. Ekki fannst mér það verra að sumir vildu banna hana vegna klúrleika.
"Örlög" frá vorinu 1987 fannst mér köflótt og misjöfn, mér fannst sumir textar of hraðsoðnir saman, en tónlistin alltaf jafn skemmtileg og mismunandi söngvarar sem gerðu þetta að toppskífu.
Það var þó ekki fyrr en með "Stormskersguðspjöllum" sem ég féll kylliflatur af aðdáun fyrir Sverri Stormsker. Hún fannst mér pottþétt og fullkomin frá toppi til táar.
Það voru fáein atriði sem mér líkaði ekki við fyrst þegar ég hlustaði á "Glens er ekkert grín". Mér fannst vanta heildarsvip. Gerði mér þó ljóst að enginn nema Sverrir gat búið til svona snilldarlegar melódíur, en textalega fannst mér þetta vera framlenging en ekki viðbót.
Ég hef sett skífuna á fóninn öðru hvoru í gegnum árin.
Nú bregður svo við að þessi hljómplata Sverris hefur enzt alveg ÓTRÚLEGA vel, og öll lögin á henni eiga betur við en þegar hún kom út, og tala bara beint inní samtímann!!!
Ég ætla að fara yfir þetta frá lagi til lags.
"Göfugugginn" er fyrstur. Hér rífur Sverrir Stormsker kuklara og andlega spekinga í tætlur, og þetta fólk sem þykist heilagt og betra en aðrir, og fannst mér sumar línurnar móðgandi 1990, því þá var mér eitthvað af þessu heilagt og hafði ekki alveg húmor fyrir þessu. En í dag hef ég húmor fyrir þessu. Sérstaklega vegna þess að þegar ég hlustaði á lagið í gær, datt mér enginn annar í hug en Bubbi Morthens, sem þykist heilagur engill í dag.
"Paradís" er svo lag númer 2. Lagið syngur Alda Björk Ólafsdóttir, og syngur hún mjög falskt á köflum í laginu, en röddin samt gífurlega flott og skræk, á köflum virkilega flottur söngur, og í heildina. Þess má geta að Bubbi syngur einnig nokkra tóna falska og rembist í laginu á undan, því jafnvel er hans raddsvið varla nógu breitt til að ráða við það lag, sem fer mjög hátt upp.
Stefán Hilmarsson hefur gagnrýnt Sverri vin sinn fyrir hroðvirkni við plötugerð. Mér finnst það smotterí sem er aukaatriði, þótt fáeinar tökur í viðbót hefðu sniðið af slíka vankanta, en þetta fer mest eftir stemmningu. Ef maður er tilbúinn að meðtaka boðskapinn, þá fílar maður þetta í tætlur og annars bara ekki, sama hversu sterelíserað þetta gæti verið.
En ég verð að fjalla meira um lagið "Paradís". Fyrst þegar ég heyrði það 1990 fannst mér Sverrir óþarflega neikvæður útí sænsku paradísina. Síðan bara kom það í ljós að allt sem ýjað er að með háði í laginu reyndist rétt, og Svíþjóð er Víti en ekki Paradís, eins og lesa má út úr ljóðinu ef maður er næmur. Já, lagið lýsir ranghugmyndum Frónbúans, sem finnst grasið alltaf vera grænna hinumegin við lækinn. Þetta er drepfyndið lag eins og öll platan, en samt glimrandi satt og rétt og í takt við okkar tíma, sem aldrei fyrr.
"Ávallt viðbúnir" er lag sem fékk mikla spilun í útvarpi og varð vinsælt strax 1990. Ég kunni að meta það frá upphafi eins og aðrir.
Ég vil geta þess að ég var farþegi í bíl hjá eiginmanni móðursystur minnar 1990 og hafði verið í heimsókn hjá þeim, og Guðmundur Sighvatsson hét hann, er látinn núna, en var skólastjóri Austurbæjarskólans. Það kom mér á óvart að hann hefði húmor fyrir þessu, því þetta er gálgahúmor. Sagan er þannig að hann fór að skellihlæja er hann heyrði þetta lag í útvarpinu, sérstaklega eftir línuna:"Svo leiðum við kellingar þvert fyrir bílana" (Eða blindingja"). Já, svona Lákahúmor og gálgahúmor hittir í mark hjá hinu virðulegasta fólki, sem hefur fleiri hliðar en það oft vill sýna.
Ég man að hann sagði nokkurnveginn orðrétt að Sverrir Stormsker væri með fyndnustu textahöfundum Íslands, sem er alveg rétt.
Fjórða lagið heitir "Negrablús". Mér fannst það leiðinlegt fyrst þegar ég heyrði það, og mér fannst það ekkert passa við veruleikann, því þá var Ísland næstum alveg einsleitt samfélag með ljóshærð og bláeygt fólk. Brandarinn um manninn sem reykir sig í hel í bælinu fannst mér líka alveg útí hött.
En ég verð að hrósa þessu lagi líka núna. Sverrir Stormsker var bara nokkrum áratugum á undan tímanum. Þetta átti nákvæmlega eftir að gerast, að fólk frá öllum heimshornum myndi setjast hér að eins og fram kemur í laginu.
"Man Is The Woman Of The World" er svo fimmta lagið. Heldur náði það mér ekki 1990. Þekkti að vísu ekki lagið sem hann snéri útúr eftir John Lennon. En kannski fílaði ég ekki lagið því ég hafði engan áhuga á kvenréttindum þá og hafði ekki myndað mér sérlega ákveðna eða trausta skoðun á kvenrembu eða karlrembu eða femínisma yfirleitt.
Núna í dag er þetta hrein snilld og allt hefur þarna komið fram í laginu. Segja má að það tali beint inní okkar samtíma, en hafi virzt mjög ýkt 1990, fólk gat varla ímyndað sér að til væru ofbeldisfullar eiginkonur þá og fullar af karlahatri. Núna vita þetta allir, að þær eru orðnar svona alltof margar.
Hlið 2 hefst með laginu "Hildur", hugljúfasta lag plötunnar, og það fjallar um dóttur Sverris Stormsker. Það lag náði einnig spilun á útvarpsstöðvunum og fólk kunni vel að meta það, enda líka gott lag.
Þegar þetta kom út fannst mér það vera ruglingslegt að hafa svona fallegt lag innanum kaldhæðnina og heimsósómann allt í kring. Kannski má það enn segja, að enn betra hefði verið að dreifa þessu á fleiri þemaplötur en hafa þetta á einni skífu. Þó er þessi hljómplata einfaldlega mjög góð í dag, því þetta er ekki miðjumoð eins og flest, tónsmíðar sem minna á Beethoven, og textar sem minna á Einar Benediktsson!
Lag númer 7 heitir:"Einu sinni = alltaf". Það fjallar um dómhörkuna í samtímanum. Ég man nú að þarna fannst mér platan rísa hæst hjá Sverri, í þessu lagi og "Samúð", næst á eftir. Ástæðan er sú að þarna nær Sverrir að fjalla um þjóðfélagsmál sem aðrir þora ekki að snerta á, hræsni þjóðfélagsins og óréttlæti gagnvart ýmsum. Auk þess er lagið bara mjög gott og skemmtilegt, í staðinn fyrir að fylla mann af sorg og trega út af málefninu, þá glottir maður af fávitaskap samfélagsins, og það er eflandi. Lagið er hressilegt.
"Samúð" er texti eftir Sverri við lag eftir systur hans. Hún hefur svipaða hæfileika og Sverrir, því lagið er býsna gott líka, en afköstin sennilega ekki eins mikil og hjá honum.
Ég átti reyndar erfitt með að ná boðskapnum 1990. Var þetta gagnrýni á rjúpnaskyttur og veiðimenn almennt eða eitthvað annað? Ég var ekki viss.
Ég get hlegið að þessu í dag, virkilega dátt og vel. Mér verður hugsað til góða fólksins sem vill drita niður Úkraínumenn og Rússa til að trúa áfram á femínismann, og vill senda vopn til að fækka Rússum og Úkraínumönnum, til að þurfa ekki að takast á við vandamálin hér á Vesturlöndum, og telja sér trú um að sigurinn á Rússum sé smámál og auðvelt mál.
Já, lagið "Samúð" er líkingamál, yfir það hvernig allir geta gengið lengra, hvernig eitthvað getur breyzt úr því að vera sakleysislegt yfir í eitthvað hryllilegt, ef fólk telur sér trú um eitthvað og hnikar ekki frá skoðunum sínum þótt annað komi á daginn.
"Glens er ekkert grín" er númer 9. Mér fannst þetta alltaf fyndið og skemmtilegt lag, en frekar augljóst og þunnur kveðskapur. Nei, ég tel það í dag, að það eigi enn betur við en þá, eins og önnur lög plötunnar.
Einfaldlega vegna þess að við höfum nýjan hóp af fólki sem tekur sig hátíðlega. Það telur sig hafa fundið sannleikann og býr til lög á Alþingi til að styðja hátíðleika sinn.
Ef fólk lærir að meta svona húmor þá kannski myndi hneykslunargirnin minnka og þykkjuþunginn í umræðum og samskiptum.
Þegar maður hefur húmor fyrir sjálfum sér og öðrum þá nennir maður ekki að hatast.
Þetta hefur Sverrir Stormsker fram yfir marga. Hann er umdeildur, en umfjöllunarefnin eiga enn vel við.
Síðasta lagið heitir "Austurstræti 1984". Það staðfesti það sem mér fannst, að lögin á plötunni væru hrærigrautur eldri laga. Það er greinilega samið 1984 eins og fram kemur í titlinum og útskýringunum undir.
Ágætt að enda hljómplötu á svona kvæði. Þetta er fyndin mannslífsmynd og eiginlega stutt kvikmynd í tónum og söng.
Nú er útgáfa á vínylplötum aftur hafin, en hún hætti 1991.
Ég vona innilega að markaður sé fyrir nýjar plötur með Sverri Stormsker, og að hann finni andagift og áhuga til að halda áfram að gefa út nýtt efni, á hverju ári vonandi.
Það er enginn Mozart í íslenzku poppi nema hann, og hann veit það sjálfur.
Nema hann skýtur of oft yfir markið, finnst fólki í textum.
En hann getur einnig samið ljúfar ballöður, svo hann kann ýmislegt.
En ef ég ber saman plöturnar hans Bubba Morthens sem skipta tugum og verkin hans Sverris Stormskers, þá er þetta eins og Bubbi sagði sjálfur í viðtalinu 2011, hans beztu plötur eru steinvölur, "Ísbjarnarblús" 1980, "Kona" 1985, og fleiri. Plöturnar hans Sverris eru kannski frekar píramídar, eða musteri til að læra eitthvað nýtt í fyrir komandi kynslóðir sem eru týndar í afmennskandi femínismanum og öðru slíku bulli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2024 | 01:30
Rúnturinn
"Keyra rúntinn piltar sem eru í stelpuleit", söng Ragnar Bjarnason, í laginu "Vorkvöld í Reykjavík", lagið eftir Svíann Evert Taube en ljóðið eftir Sigurð Þórarinsson jarðfræðing og skáld. Megas hefur margsinnis gert grín að þessu lagi og þessum texta, þegar hann fjallar um Esjuna og Akrafjallið í háðskum tón og hughrif tengdum þeim.
Frægasta dæmið er í laginu:"Spáðu í mig". ("Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg"... osfv).
Annað dæmi er úr laginu og textanum "Allt eins og..." ("Esjan hún blasir við ólífugræn og fráleit, og Akrafjallið og hörgult það hlær við tönn").
Það lag er ein allsherjar botnvörpun á rómantískum hughrifum sem Ragnar Bjarnason söng um.
Megas mun hafa orðið fyrir vonbrigðum í ástarmálum í menntaskóla, og þau vonbrigði hafa fylgt honum alla tíð síðan, og litað reynslu hans til kvenfólks og nöturleikann í lýsingum hans á stúlkum og konum í verkum hans. Hann hefur viljað upplifa eitthvað eins og lýst er í laginu:"Vorkvöld í Reykjavík", en veruleikinn hefur reynzt nöturlegri og ömurlegri, og þessu hefur hann lýst vel í verkum sínum.
En ástæðan fyrir því að ég set þennan pistil saman er að í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram í máli Dóru Bjartrar Pírata að enn frekari lokanir á Laugaveginum eru framundan, og að gera hann sem göngugötu sem mest.
Hún sagði í þessu viðtali að íbúar miðbæjarins væru hlynntir því að gera Laugaveginn að göngugötu. Ég þekki þó einstaklinga sem ekki vilja það, og voru andsnúnir flestu sem Dagur B. Eggertsson gerði og Einar Þorsteinsson heldur áfram með.
Hvort sem það er nú rétt hjá henni eða ekki að meirihlutinn vilji gera Laugaveginn að göngugötu er það yfirleitt þannig að stjórnmálamenn toga til sannleikann til að styðja mál sitt, og það gera fleiri.
"Sækjast sér um líkir" segir máltækið. Samkvæmt því má gera ráð fyrir að vinstrisinnað fólk hafi flykkzt til Reykjavíkur þegar Reykjavíkurlistinn fór þar að vinna sigur og Sjálfstæðisflokkurinn missti völd sín þar.
Ég gerði mér grein fyrir því að afstaða mín til bíllausrar Reykjavíkur eða Laugavegs er tvíbent, þegar ég hlustaði á hana tala.
Mér finnst alltaf áhugaverðast að tjá mig um það sem er erfitt að mynda sér skoðun á, vegna þess að það hefur fleiri en eina hlið, og maður sjálfur er bæði til hægri og vinstri í málum, ef maður er hreinskilinn við sjálfan sig og aðra.
Sem umhverfisverndarsinni dáist ég að Dóru Björt fyrir harðfylgi hennar og Pírata í þessu máli. Já, ég gef þeim stig fyrir að standa sig í umhverfismálum, á meðan umhverfismálin eiga undir högg að sækja á mörgum sviðum á okkar tímum, því fólk vill velja auðveldu leiðirnar frekar en að tyfta sig sjálft og lífsstíl sinn.
En "rúnturinn" var hugtak sem notað var um bílaborgina Reykjavík. Ég rétt svo náði í skottið á þessari menningu áður en hún dó út eins og annað á Íslandi, þegar húðflúrsþénin fóru að yfirtaka Reykjavík og femínisminn fyrir aldamótin 2000. (Þén er orð yfir stofur svokallaðar, staði þar sem fólk þénar peninga og er hvorugkynsorð, nýyrði, beygist eins og lén).
Þegar ég hlustaði á Dóru Björt tala gerði ég mér grein fyrir því að áhugi Pírata og annarra á því að gera miðborgina alla að göngusvæði er tilkominn af femínískum ástæðum ekki síður en umhverfislegum.
Já, vegna þess að menningin sem birtist í þessu lagi, sem vitnað er í, hún er menning sem byggist á að strákar veiði stelpur, og slíkt þola ekki femínistar.
Strákar óku um á bílum en ekki eins mikið var um að stelpur veiddu stráka, held ég, þótt eitthvað hafi verið um það líka, í minnihluta. Um 1990 var þetta enn svona, þegar ég var um tvítugt. Það var flautað og blístrað á stelpurnar sem hengsluðust um og biðu eftir því að verða veiddar. Oft voru þær í torfum sem innihéldu líka stráka og öllu þá trollað inní bílana eftir þörfum og samþykki.
Ekki endaði allt með samförum, en þótti ekki tiltölumál og þær ekki síður en þeir bjuggust við því oftar en ekki.
Vel að merkja eimir auðvitað enn eftir af þessari djammmenningu, en hún er meira orðin neðanjarðar. Eitthvað eins og þetta er ekki hægt að drepa niður, því þetta er hluti af dýrslegu eðli mannsins sem bæði finnst í konum og körlum.
Þó er það svo að stór hluti unglinga telur sig samkynhneigðan eða skilgreina sig samkvæmt hinseginleikanum á einhvern hátt, eða þá að stelpur eru strákslegar og strákar stelpulegir vegna hugmynda kynjafræðinganna og femínistanna um jafnréttið, sem ekki sízt hefur síazt inní samskipti kynjanna allt frá fæðingu til grafar og gjörbreytt þeim. Birtist það í færri fæðingum og fleiri fóstureyðingum, til dæmis.
Maður saknar þessarar djammmenningar. Þetta var sérlega skemmtilegt fyrirbæri og samskipti af þessu tagi.
Bílar notaðir sem veiðitæki tilheyra því fortíðinni ef vilji Pírata nær fram að ganga.
En ég er innilegur og einlægur umhverfisverndarsinni, þótt aðrir þættir í mér togist á við þá hugmyndafræði, svo sannarlega. Þessvegna er ég ekki eingöngu hægrimaður eða eingöngu vinstrimaður, ég er hvort tveggja. Þó ekki endilega miðjumaður samkvæmt hvaða skilgreiningu sem er, en miðjumenn eru líka margskonar, reyndar.
Reykvíkingar eru ágætis tilraunadýr. Ef það stefnir í að þeir verði umhverfisvænni en aðrir jarðarbúar er það hið bezta mál. Við Íslendingar eigum að vera fyrirmynd annarra. Þetta skrifaði dr. Helgi Pjeturss um, sem ég held mikið uppá.
Ef þetta er því satt hjá Dóru Björt eru á því margar góðar og bjartar hliðar.
Jafnvel er það svo að umhverfistilfinningar mínar teygja mig lengra til vinstri, þannig að ég finn meiri samhljóm með jafnaðarmönnum og vinstrimönnum í fleiri málum, sérstaklega vegna þess að hægrimenn hafa ekki verið að gera mig neitt frægari eða ríkari í tónlistinni en vinstrimenn.
En "rúnturinn" er ekki bundinn við bíla eins og kemur fra á netinu, í Wikipediu. Rúnturinn er til í öllum stærri þéttbýliskjörnum eins og þar kemur fram, og áður en bílar urðu algengir í Reykjavík varð til rúntur meðal gangandi fólks, sem einnig veiddi maka þannig.
Þannig að einhverskonar rúntur er einnig til í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og útum allt land. Bara minni í sniðum og fjölbreytilegri kannski.
En eitt má þó segja um Reykvíkinga og Reykjavíkurlistann. Samfylkingin hefur þar náð miklum árangri í að umbreyta og bylta, og Dagur B. Eggertsson er mikilmenni, sigurvegari sem borgarstjóri, umdeildur eða ekki. Einmitt umdeildasta fólkið, það nær einnig oft mestum árangri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2024 | 00:19
Endalok stjórnar Macrons og Scholz ætti að vera skilaboð um að ESB þarf að leggja niður
Olaf Scholz var í rassvasanum á Angelu Merkel og er hennar hlaupatík. Emanuel Macron er af áþekkri tegund. Ekki aðeins hefur fjölmenningarsamfélag Evrópusambandsins siglt í strand, heldur líka efnahagsstefnan og Natóútþenslustefnan, með Úkraínustríðinu.
Evrópusambandið er draumur Hitlers um sameinaða Evrópu orðinn að jafnaðarstefnufasismamartröð í veruleikanum.
Lesið pistla Gunnars Rögnvaldssonar um þetta jafnvel tíu ár aftur í tímann. Af þeim má læra meira en af 100 doðröntum af smeðjulegu masi innanúr stofnunum þeim sem lifa og hrærast á þessu nýja, sovézka fyrirkomulagi.
Fréttablaðið lifði í rúmlega tíu ár og það var eins og Varðturn Votta Jehóva, nema boðaði aðra trú, á jafnréttið og fjölmenninguna, og Evrópusambandið, flutti fagnaðarerindi ESB.
Nú er Fréttablaðið liðið undir lok og sömuleiðis sjónvarpsstöðin Hringbraut, þar sem sama starfsfólk starfaði með sömu stefnu.
Það sem Evrópa hefur ekki gert í 80 ár er að hlúa að einstaklingsframtakinu og þjóðerniskenndinni innan sinna landa. Þjóðerniskennd hefur verið skammaryrði og lífskraftur fólks hefur verið drepinn niður, ekki sízt með femínismanum.
Almenningur er farinn að fatta þetta og farinn að heimta hið lífgefandi afl þjóðernisstefnunnar.
En kerfið er svo sterkt í ESB að það drepur niður allar umbótatilraunir. Demókratar í Bandaríkjunum eru eins, þeir drepa niður allt gott og uppbyggilegt. Það eru femínistar sem eru hryðjuverkamenn og femínísk samtök eru öll hryðjuverkasamtök, en ekki samtök eins og Norðurvígi. Þar er reynt að hjálpa fólkinu á eðlilegan, þjóðlegan máta. Gleymum því ekki að ofsótt fólk verður alltaf að grípa til ofbeldis, það á við um meðlimi Norðurvígis eins og aðra, og sannar ekki að þeir séu vondir menn, heldur ofsóttir af djöflum gjörspilltum, femínistum, sem hafa komizt til valda.
En þótt Macron muni annaðhvort ná svo naumlega völdum að þau endist ekki lengi eða aðrir jafnaðarmenn komist að, þá býst ég ekki við að Le Pen eða aðrir umbótasinnar komist til valda, til þess er spillingin alltof mikil, kerfið of sterkt, eins og í fúnandi rotþró þar sem tægjur og greinar ránjurta af helstefnutaginu teygja sig í allt sem lifir og dafnar, og draga úr því þróttinn og máttinn.
Við höfum helming kjósenda í Þýzkalandi og Frakklandi sem lifa á kerfinu og standa því með því, standa með spillingunni, þetta eru vinstrisinnarnir sem kjósa jafnaðarmennina, kristilega demókrata eða aðra.
Þetta er fólkið sem mótmælir "rasistum", þetta er fólkið sem mótmælir fólkinu sem vill endurreisn og eðlilegt líf farsældar á þjóðlegum grunni.
Frankfurt skólinn hefur klárað verkið, og rústað Evrópu, þjóðfélagsverkfræðin til vinstri hefur séð til þess.
Lýðræðið í Evrópu er STEINDAUTT. Þjóðernispopúlískir flokkar hefðu átt að ná meirihluta í Svíþjóð og Þýzkalandi og víða, því þeir hafa fengið svo góða kosningu í þessum löndum aftur og aftur, ár eftir ár, og það er það sem fólkið vill, en það sýnir að lýðræðið er STEINDAUTT að spillingin er sterkari, og þjóðernissinnunum er haldið frá völdum. Það er sönnun þess að lýðræðið er dautt í Evrópu.
Fullviss um að tíð ríkisstjórnar Macrons sé lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2024 | 15:48
Sprauta gegn flensu OG Covid 19, ótrúlegt, stórfrétt í DV, mun víst vera alvöru frétt og raunveruleikinn.
DV kemur nú í dag með stórfrétt um nýtt "ofurbóluefni" gegn flensum og Covid-19 í einni og sömu sprautunni! Verið er að koma með fréttir af Moderna mRNA bóluefni af þessu tagi sem eigi að koma á markaðinn á næsta ári, haustið 2025.
Hefur bóluefnið fengið nafnið mRNA-1083.
Fyrirtækin sem einnig græddu á kófinu fyrir 3-4 árum, Pfizer og Novavax munu vera í kapphlaupi við tímann að setja samskonar gróðalindir á markaðinn með sömu virknina, sannkölluð gull-gull-gull-gullnááááámaaaaa!!!!
Nú vakna ýmsar spurningar.
1) Ekki finnst mér traustvekjandi að Moderna skuli framleiða þetta, sem mjög margir telja að hafi komið með hættuleg "bóluefni" fyrir 2-3 árum gegn Covid-19, sem virkaði þó ekki nema skaðaði fólk samkvæmt ýmsum rannsóknum og læknum, og annað sem er ekki traustvekjandi, það er að þetta er mRNA tæknin, nanóeindir settar inní fólk. Margir tengja fjölmarga kvilla við þessa nýju tækni.
2) Hvernig er það mögulegt að svona mörg "bóluefni" séu fundin upp og markaðssett með svona ótrúlega skömmu millibili? Áður fyrr var venjan sú að nauðsynlegt var að prófa þetta jafnvel í 10-20 ár eða lengur áður en bóluefnin áttu að teljast skaðlaus fyrir mannfólk.
3) Kona sem ég þekki mjög vel og er ættingi minn er áhugasöm um samsæriskenningar. Hún hefur lengi haldið því fram að til séu lækningar við flestum sjúkdómum, en aðeins séu sett vond lyf á markaðinn sem hálfdrepa fólk, til að hægt sé að græða sem mest. Getur það verið að hér sé enn einu sinni eitthvað slíkt á ferðinni?
4) LiveScience segir að þetta bóluefni veki ónæmisviðbrögð gegn flensu og SARS-CoV-2, en þýðir það að aukaverkanir verði meiri en af þeim lyfjum sem sumir segja að hafi verið stórskaðleg gegn Covid-19 fyrir 2-3 árum?
5) Munu 80% Íslendinga virkilega fylkja sér í Laugardalshöllina til að fá þetta í handlegginn? Hvar eru efasemdirnar og varkárnin?
6) Ef þetta á að vera bóluefni gegn kvefi, er ekki sagt að það eigi að læknast af sjálfu sér? Er verið að segja okkur að við eigum bara að treysta lyfjarisunum og ekkert hreysti okkar og ónæmiskerfi?
7) Ekki er búið að fara yfir rannsóknirnar, samt á að kynna þetta á ráðstefnu bráðum. Þetta minnir meira á Steve Jobs sáluga fyrir 20 árum á Apple ráðstefnunum að kynna nýja línu af iPhone símum heldur en heilbrigðismál sem skiptir máli fyrir fólk upp á líf og dauða!
8) Þetta er heimsfrétt. Það sem mér finnst skrýtið er að þetta er "of gott til að vera satt", ein sprauta gegn öllu næstum því!!!!! Þetta er gamall draumur kuklara og galdramanna úr fortíðinni, að finna upp eitthvað sem læknar næstum allt, býr til gull og hvaðeina!!!
9) Hvað kemur næst? Sprauta gegn þunglyndi?
10) Sprauta gegn offitu?
11) Sprauta gegn elli?
12) Sprauta gegn barnleysi?
13) Sprauta gegn heimsku?
14) Sprauta gegn óvinsældum?
15) Sprauta gegn fátækt?
Elítan getur allt. Elítan er almáttug. Það þarf víst enginn að efast um það lengur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2024 | 14:51
Tveggja ríkja lausnin eða svarthvíta lausnin
Daniel Hagari, talsmaður Ísraelshers er greinilega úr þeim hópi Ísraelsmanna sem vilja aðra nálgun en Netanyahu, ekki þetta sífellda tal um að "útrýma Hamas", heldur einhverja aðra lausn og friðsamlegri sem kallar síður á hefndaraðgerðir.
"Við getum ekki útrýmt hugmyndafræði", þetta eru orð að sönnu.
Segir ekki hægt að útrýma Hamas | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2024 | 10:11
Íslendingar flýja land, ljóð frá 11. febrúar 2009
Eftirstöðvar Hrunsins, Búsáhaldabyltingin og það allt. Afgangslag sem kannski verður gefið út ef ég endurútgef plötuna:"Ísland skal aría griðland" og þá jafnvel hugsanlega sem tvöfalda skífu, en það er allt óljóst og bara kannski. En það eru til ýmis ágæt lög á hana jafnvel sem tvöfalda frá þeim tíma.
Viðlag:
E7sus4
Ekkert ekta band,
Am E7sus4
ekkert ekta band,
G/C C/G C/D
ekkert ekta band,
D/G G E7sus4
Íslendingar flýja land.
G/D
Hélt að ástin heita
Em
hefði bundið niður þig.
D/C
Lengi þarf að leita,
G E7sus4
lostinn hefur frelsað sig. (Viðlag)
Því mun fjörið falla
frekar þó á undan snót.
Gleðiópin gjalla,
glötuð loksins þannig rót. (Viðlag).
Aðrir elska svelginn,
ætla að týnast þar við röst.
Viltu vaða elginn?
Vörnin þín er ekki föst. (Viðlag).
Draga stofna sterka.
Straumur gleypir mannkyn öll.
Víst mun stríðsráð verka,
varnarlaus hin réttu fjöll. (Viðlag).
Allt fer eins og planað,
annarsstaðar finnst hvert blóm.
Víti hefur vanað,
viltu heyra myrkan dóm? (Viðlag).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2024 | 00:24
Fuglaflensan er ekki skáldskapur, hún er staðreynd, og gæti orðið að drepsótt meðal manna, og það gæti farið að styttast í það samkvæmt DV frétt
DV segir frá því að fuglaflensan breiðist til villtra dýra og jafnvel manna, og að stutt sé í næsta faraldur, og þar megi búast við að helmingur smitaðra deyi, sem sé, eins og í Spænsku veikinni, og því Covid-19 aðeins æfing. (Fréttin heitir:"Yfirvofandi hætta á stórum veirufaraldri). Virkir í athugasemdum í DV vilja kenna Bill Gates um og Elítunni, sumir, aðrir ekki.
Ég hef skrifað um það áður að lélegra ónæmiskerfi hjá fólki er ástæða fyrir dauðsföllunum, ekki að pestin hafi verið svo skæð. Lélegra ónæmiskerfi er vegna Metoo, því samstilling kynjanna er helzta og bezta uppspretta líforkunnar hjá okkur mönnunum. Sú orkuuppspretta dvín mjög með Metoo og kvenréttindum. Það eru þó geimverurnar sem eru sekar, sem eru að yfirtaka jörðina, ekki eins mikið konur, enda vita þær ekki hvað er að gerast, nema örfáar.
5G fjarskiptakerfið mun eiga stóran þátt í dauðsföllum og veikindum tengdum Covid-19, eða það stendur að minnsta kosti í bandarískum bókum sem ég hef keypt um þetta og þar var þessu spáð jafnvel áður en þetta gerðist. Þar er einnig að vísu talað um Elítuna, lyfjafyrirtækin og þennan hrylling sem er verri en aðrir glæpir gegn mannkyninu.
Sannfærandi er það sem ég hef lesið, að 5G bylgjurnar séu of sterkar til að mannslíkaminn þoli þær til lengdar, og þær skaði einnig dýr og plöntur. Síðan er því haldið fram í þessum bókum að það vinni með Covid-19, sem muni vera nokkurskonar dulin eyðni, sem komi fram þegar ónæmiskerfin eru veikluð í fólki og fólk losni jafnvel aldrei við Covid-19, enda séu alltaf veirurnar að stökkbreytast og herja á fólk að nýju.
Þetta passar við fréttir héðan frá Íslandi að veikindi af völdum Covid-19 halda áfram, hvort sem fólk er "bólusett" (öfugmæli) eða ekki, og séu oft verri hjá sprautuðum.
Jahve mun hafa ætlað að valda heimsendi árið 2022. Sá heimsendir gekk eftir að nokkru leyti en ekki öllu. Þá mun innstreymið af púkum hafa aukizt svo til jarðarinnar að frelsi fólks hvarf að mestu leyti og frjáls vilji. Þess má sjá stað. Með nákvæmnum lýsingum er hægt að sanna þetta, en geimverurnar trúa þessu ekki (þykjast ekki trúa þessu, en vita allt um þetta), sem tala í gegnum vinstrisinnaða fólkið. Og almennt er þetta talið rugl, þannig að orð mín hafa að öllum líkindum mjög lítil áhrif.
Umframdauðsföll á Íslandi haldast mjög í hendur við útbreiðslu 5G fjarskiptakerfisins. "Smitum" af völdum Covid-19 sömuleiðis. Réttara er þó að segja að með meiri útbreiðslu 5G kerfisins myndist ónæmisbæling hjá fjölda fólks sem leiðir af sér fjöldasýkingar af völdum Covid-19, sem enn er í fólki, eða þá að veiran stökkbreytist og stökkvi milli manna þegar stærri svæði fá útbreiðslu af 5G fjarskiptakerfinu.
Til eru þeir sem hafa rannsakað þetta og Wuhan var meðal fyrstu svæðanna í heiminum sem fékk 5G fjarskiptanetkerfið, og einnig sá hluti Ítalíu þar sem fólk dó mest og hraðast af völdum veirunnar.
Kannski er þetta ekki rétt, ég hef þetta eftir öðrum, en það er vert að skoða gögnin og lesa sér til um þetta, því kannski er þetta annað og meira en tilviljun.
Við vitum að taugakerfi mannsins eru bylgjur og tíðni. Við erum öll orkuverur. Því er það ekki nema eðlilegt að utanaðkomandi bylgjur hafi áhrif á okkur, og séu þær of sterkar, skaðleg áhrif, ef að líkum lætur.
Dulfræðingar skrifa mikið og margt. Til eru kenningar um það að við séum nokkurskonar þrælar og ambáttir í geimnum, ómerkileg manntegund. Jafnvel kann að vera að búið sé að selja jörðina til afnota fyrir aðrar geimverur, og því verði að útrýma okkur.
Eða þá að við séum pínd án okkar vitundar til að verða tæknivædd, til að búa til umhverfi sem geimverur ætla að búa í, eftir að okkur hefur verið útrýmt. Þessi kenning passar alveg við þekktar staðreyndir og atburði sem gerast og hafa verið að gerast.
Inní þetta kemur hugmyndin um syndina. Dulfræðingar og heimsfræðingar eru kristnir eða heiðnir, það er með ýmsu móti.
Þeir sem taka kristna pólinn á þetta segja þá að þetta sé refsing fyrir syndir okkar mannanna.
Það er margt sem ógnar mannkyninu meira en áður. Kjarnorkuógnin og drepsóttarógnin eru kannski efstar á blaði, og stærri en oft áður.
Það er ekki hægt að tala við konur um að hætta kvenréttindabaráttunni, femínísku baráttunni eða mannréttindabaráttunni. Þær eru dáleiddar og yfirteknar, og láta ekki neina rökhyggju stjórna sér. Þær eru uppfullar af X-2000, strýriefninu sem kemur inní líkamana með líkamsskrautinu, húðflúri og lokkum og slíku, og þær eru því flestar ófærar um að stjórna sér sjálfar eða skipta um skoðun. Glötun mannkynsins er því framundan og ekkert hægt að gera til að breyta því, að öllum líkindum.
Geimverurnar nota hatrið á milli kynjanna til að veikja okkur, og rústa germanska kynstofninum fyrst, og hinum þar á eftir. Mikil afföll hafa orðið nú þegar meðal asískra einstaklinga í formi lækkaðar fæðingartíðni, en fólksfjölgun er ennþá mikil í Afríku, þannig að fyrr eða síðar munu þessar geimverur eyða öllu fólki jarðarinnar, sama hvernig það lítur út. Þetta snýst ekki um hatur á konum eða kynþáttum, heldur fræðslu, ef rétt er. Ég efast sjálfur, en þetta er það sem ég hef lært og þetta passar við þekktar staðreyndir og atburði.
Ég trúi á fyrri líf. Trúi því að erfðasyndin hafi fyrst átt sér stað á Mú, takmörkuðum alheimi, búlgi, næst hafi þetta mannkyn okkar lifað á Le, í þeim takmarkaða alheimi, síðan í Lemúríu, næst í Atlantis, og loks hér.
Allt mun þetta hafa farið með svipuðum hætti.
Biblían gefur ákveðna forskrift sem er rétt að nokkru leyti.
Við erum syndug. Það er alveg rétt, og það er ástæðan fyrir þessu. Mannkynið hagar sér ömurleika, rústar náttúrunni, drepur ófædd afkvæmi sín og lætur eigingirnina stjórna sér. Þessvegna er það ekki skrýtið að heimsendir nálgist af mörgum ástæðum.
Til eru fáeinir atburðir í mannkynssögunni þegar örlagapunktar verða.
Eins og dr. Helgi Pjeturss lýsti, þá hunzar lýðurinn eiginlega alltaf þeim frelsurum sem koma fram. Þar af leiðandi, endalokin nálgast.
Kærleikurinn manna á milli er betri en nokkur bóluefni, fölsk eða ekta. Við eigum ekki að einskorða kærleikann við eitthvað, hvort sem fólk er okkur ósammála eða ekki, eða er útlendingar eða ekki, eða um sé að ræða annað sem skilur á milli. Það er vissulega hægt að viðurkenna múra og rimla á milli fólks en elska það samt, maður getur aðhyllzt flokkunarhyggju en elskað samt fólk.
Ef við Íslendingar ætlum að búa okkur undir næsta heimsfaraldur ættum við að læra af forfeðrum og formæðrum, fólkinu sem var svo kærleiksríkt fyrr á öldum, og hleypti gestum inná gafl hjá sér, því fjarlægðirnar voru miklar, og þetta hjálpaði fólkinu að lifa af. Sumt verður aldrei úrelt.
Woke er hluti af Metoo.
Hluthafar að snúast gegn woke hugmyndafræði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2024 | 01:31
Hvar er María Sigrún Hilmarsdóttir sjónvarpsþula núna? Segir hún ekki fréttir lengur vegna Kveiksþáttarins?
Ég hef ekki séð Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur á skjánum að lesa fréttirnar síðan uppþotið varð nýlega, eftir að hún vék frá pólitískri línu sem fylgt er á RÚV og er til vinstri og þorði að gagnrýna Dag B. Eggertsson.
Þetta styður raunar algerlega það sem ýmsir bloggarar hér hafa ritað um, Páll Vilhjálmsson og Geir Ágústsson, að spilling mikil sé á RÚV og því verði reynt að gera henni lífið leitt og að hún fái síður verkefni á RÚV eftir þetta.
Mjög dapurlegt að þetta sé svona, að samsæriskenningar komi í ljós sem veruleiki.
Hún hefur venjulega verið þula að minnsta kosti einu sinni í viku, en langt er síðan hún hefur verið þula núna, og miklu meira en ein vika.
Það er mjög óréttlátt að fólki sé ekki launað fyrir góða vinnu, gagnrýnin vinnubrögð og að bregða út af vananum hjá stofnun sem fylgir of mikið einni pólitískri línu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2024 | 01:30
Guðir eru oft fjöldamorðingjar, jafnvel Guð almáttugur, ef við tökum því þannig að "Guð gefi og Guð taki", sé bæði valdur að dauðsföllum og fæðingum.
Í bókinni "Ljóshærða villidýrið" eftir Arthúr Björgvin Bollason sem kom út árið 1990 er þess getið að Adolf Hitler hafi verið tekinn í guðatölu af þýzkum sértrúarsöfnuði heiðnum sem beri heitið Gylfungar.
Mér finnst rök hníga til þess að það geti rétt verið. Það vita menn að guðum er þannig lýst að þeir gera ýmislegt sem mönnum leyfist ekki að gera, til dæmis að stunda framhjáhald.
Það er þó fráleitt að taka mann eins og Pútín í guðatölu, hann er enn aðeins stjórnmálamaður.
Nei, það sem gerir það að verkum að Hitler uppfyllir þessi skilyrði er að hann var og er verndari aríska kynstofnsins, og seinni heimsstyrjöldin klauf mannkynssöguna, var úrslitaatburður, aukning helstefnunnar eftir þá styrjöld hefur verið mun hraðari en áður.
Á hitt ber þó að líta að fjöldamorðingjar eru ekki afsakaðir nema rík ástæða sé til þess.
Ef menn líta á Jahve sem Djöfulinn, þá er rökrétt að líta á Hitler sem Frelsarann.
Í fréttunum í gærkvöldi var að á Gaza hafa Ísraelsmenn drepið svo marga að þeir hafa útrýmt ýmsum stórfjölskyldum Palestínumanna. Margir hafa fjallað um það hversu mikið þetta minnir á Helförina, sem gyðingar sjálfir lentu í.
Þannig er nú kenningin í sálfræðinni, um að þolendur ofbeldis verði oft og einatt ofbeldismenn sjálfir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 142
- Sl. viku: 738
- Frá upphafi: 127434
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 529
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar