Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2024
16.11.2024 | 00:00
Kynið dýrka drósir, ljóð frá 8. febrúar 1997.
Gyðjan þeirra grimm
gerðist, sem og dimm.
Kynið dýrka drósir,
deyja allar rósir.
Karen var svo blíð í bænum,
bjarta hrönnin grætur.
Frigg ei fregnar þetta,
frá sér jafnvel andann lætur.
Gegnum kvenna þungu þrætur
þú munt dansa, meður Vila hænum.
Mannleg ekki er
ef nú styður her.
Sannleik réttan sjáðu,
sundurlyndi fáðu.
Get ég elskað þig og þessa?
Þú ert gölluð líka.
Köld við kvalarif?
Kalla hana alltof ríka?
Mér þó aðeins mætti klíka,
mikil er á litla stráknum pressa.
Falleg yzt sem innst,
aldrei hef ég kynnzt
slíkri sem ei sleppur,
slöngutaminn keppur?
Þegar logar æskuástin
ýmsir þurfa að brennast.
Það er aðeins þeirra
þráhyggja að verða að grennast.
Ef ég vil þó annars nennast
ætla að leyfa, fer þá jafnan skást inn.
Gerði hún sér gagn?
Glatað þetta magn?
Eru aðrir betri?
Einnig þeim á vetri?
Heiftargaldur hefur skyldu,
hanna máttu bölbæn.
Kvölin líka kvenna,
kom ei skárri til mín ölvæn.
Rauð en ekki feykist fölgræn,
frúrnar ekki þetta sanna vildu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2024 | 00:32
Kannanir sýna aftur og aftur ESB flokkana með um það bil 40% fylgi.
Ný könnun í gær sýndi að Sjálfstæðisflokkurinn nær sér ekki á strik, 13%, og VG er botnfrosinn flokkur sem er með 3-4% en Sósíalistar gætu náð inn fólki, Viðreisn er enn hærri en 1. nóvember í þessari frétt, 19% og Samfylkingin á svipuðum stað. Samtals um 40% fylgi, nokkuð sem Sjálfstæðisflokkurinn einn gat fengið hér einu sinni þegar landsmenn voru mjög hægrisinnaðir.
Ef kosningaúrslitin verða svona er það ákall um ESB-inngöngu. Flokkarnir sem hötuðu ESB hafa líka eyðilagt sig á svikum við sína kjósendur, VG og Sjálfstæðiflokkurinn.
Miðflokkurinn dalar, Sjálfstæðisflokkurinn fastur í 13%. Jafnvel þótt hann myndi fá 18% í kosningunum, þá er það ekki ásættanlegt fyrir marga gamla sjálfstæðismenn sem vilja hafa þetta öðru vísi. Það veldur keðjuverkunum þegar Sjálfstæðisflokkurinn fer niður fyrir 20% þröskuldinn, þá hverfa margir vanafastir og áhrifagjarnir frá borði sem eru vanir að styðja sterkasta flokkinn, fara yfir í Viðreisn eða Samfylkingu.
Því má segja að Katrínarstjórnin hafi verið örlagavaldur, eða kannski var það Svandís Svavarsdóttir ein sem ber ábyrgð á því að rústa Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum, fyrst með fóstureyðingamálinu, svo með Hvalveiðibanninu, og margt fleira hefur verið umdeilt, Þríeykið og bólusetningarnar og fleira og fleira.
Pabbi minn er jafnaðarmaður, mitt föðurfólk kaus Alþýðuflokkinn áður, nú Samfylkinguna, eða margir þar.
Ég er áhugasamur um ESB inngöngu af sumum ástæðum.
Ég ber virðingu fyrir Þjóðverjum. Þeir eru þjóð Foringjans, Hitlers, þeir eru agaðir, gamla hámenningarþjóðin í Evrópu sem Íslendingar fóru til að læra í áður fyrr margir.
Einnig finnst mér það kostur að ESB býður uppá lágt vöruverð og vöruúrval.
Úr því að stjórnmálamenn okkar hafa klúðrað sjálfstæðinu, af hverju þá ekki að ganga alla leið, og fara inní ESB? Er það ekki mátulegt á gjörspillta stjórnmálastétt og alþýðu sem hefur svikið sjálfa sig með því að kjósa sömu vonlausu pólitíkusana aftur og aftur, eða einhverja verri?
Ný könnun: Fylgi Viðreisnar eykst og eykst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.11.2024 | 03:19
Göfugur helzt sá er minnkar mest, ljóð frá 31. desember 2018.
Eins og hann mun elska konur
átti hatrið til.
Líti hver á sálar sinnar
sundurleita byl.
Fordæmir hræsnarinn sjálfan sig
er sér í öðrum
haug af bölsins blöðrum.
Betri verð ég þegar ekki fordæmi þig.
Klaustrið er fullt af fýlu, sonur,
fölar hér, ekki rjóðar kinnar.
Reglur drottins reynast vera
ráð sem hræðist þú.
Innihaldið ætti að skiljast,
þá öðrum gagnast trú.
Náunginn speglar hvern gallagrip,
er geð sitt vitrar.
Konur koma bitrar,
karla gera minni en ekki skipta um svip.
Aldrei þó skaltu ekkert gera,
ástúðin góða má ei dyljast.
Sá er mestur, synd vill bera,
sig á tekur gjall.
Fantur helzt vill forðast sakir,
flytur sig á stall.
Göfugur helzt sá er minnkar mest,
og mengar skrokkinn,
svo lofar fjandaflokkinn!
Fyrst þá jafnan læknar, skilur biðjandi gest.
Vilja svo margir þursa þéra,
það oft ið ranga fyrir vakir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimildin er ekki á blússandi siglingu velgengninnar heldur í taprekstri eins og annar bloggari hefur oft fjallað um.
Tímasetningin á þessu sýnir að hér átti að hafa áhrif til að hvalveiðar yrðu ekki leyfðar og minnka fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Mér finnst Jón Gunnarsson hafa svarað af hreinskilni og komið vel frá sínu. Sonur hans blaðraði á almennum nótum og var hleraður, rétt eins og gerðist í Klaustursmálinu með Sigmund Davíð, margir reyna að fella hann, því hann er með þeim fremstu til að hjálpa þjóðinni sem á marga óvini, innlenda og erlenda, ekki sízt meðal kommúnista og jafnaðarmanna, jafnvel kapítalista.
Bjarni Benediktsson hefur væntanlega frá upphafi fengið Jón Gunnarsson til að starfa fyrir sig í þessu ráðuneyti til að taka á sig skellinn og skammirnar frá vinstraliðinu þegar hvalveiðar verða leyfðar á ný af Bjarna.
Ekkert í þessu kemur mér á óvart, nema að einhver sé að borga stórfé einhverjum erlendum njósnurum með vafasama sögu eins og þessu BlackCube fyrirtæki til að fella Bjarna Benediktsson, Jón Gunnarsson og skemma fyrir Sjálfstæðisflokknum, eins og skemmt var fyrir Sigmundi Davíð og Miðflokknum með Wintrismálinu og Klaustursmálinu.
Hér hefur mikið verið lagt undir til að skaða Sjálfstæðisflokkinn og það finnst mér traustsyfirlýsing á Sjálfstæðisflokkinn, Jón Gunnarsson og fleiri.
Það eru svo margar rökvillurnar sem birtast þegar maður hlustar á málflutninginn á RÚV og víðar, í óvinum Sjálfstæðisflokksins.
Þegar því er haldið fram að Bjarni Benediktsson hafi verið að gera Jóni Gunnarssyni greiða með því að fá hann til að starfa fyrir sig, þá er það furðulega orðað. Fólk er fengið í vinnu og borgað fyrir það, en ekki sem greiðar almennt.
Ein mikil rökvilla í þessu er sú að Jón Gunnarsson hafi átt að gefa Kristjáni Loftssyni veiðileyfi vegna þess að þeir eru vinir!!!
Er það ekki alveg augljóst að ætlunin var að gefa þetta veiðileyfi, og það verður gert að öllum líkindum, mikið þarf til að það bregðist. Ákvörðun Svandísar um stöðvun veiðanna í fyrra (eða seinaganginn sem hafði þessar afleiðingar) kom hinsvegar eins og þruma úr heiðskíru lofti og tæplega eða ekki lögleg, eins og vissulega hefur einnig verið fjallað um á RÚV.
Sko, eitt í þessu er alveg augljóst. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur vilhallur hvalveiðum frekar en aðrir flokkar, og vinatengsl við menn eins og Kristján Loftsson þurfa ekki að vera nein spilling, heldur bara það sem er eðlilegt í litlu samfélagi eins og okkar þar sem allir þekkja alla - eða gerðu það á meðan þjóðin var einsleit og af sama uppruna - og þannig er þetta enn með þessa vinahópa sem mynduðust fyrir þessan mikla innflutning frá útlöndum síðastliðin 30 ár eða svo.
Þannig að holur hljómur er í þeim sem hrópa hæst um spillingu í þessu. Það er allt svo augljóst í þessu skúbbi Heimildarinnar og ekkert sérstaklega nýtt, nema aðkoman frá útlöndum og kannski hversu stórt þetta getur verið, og hverjir hafa hag af því að skaða Bjarna og Sjálfstæðisflokkinn.
Jón Ólafsson siðfræðingur er kommúnisti útí gegn eins og sást af Kastljósviðtalinu í gær, Elítudýrkandi, í taumi gerspilltra afla. Ómarktækur, ofmenntaður.
Hann var fenginn til að hjálpa til við að ófrægja Sigmund Davíð 2016, en að þessu sinni þekkir almenningur umsátursaðgerðir af þessu tagi, að þetta er skipulagt frá útlöndum, af aktívistum, jafnaðarmönnum af öfgafyllsta taginu.
Wintrismálið var umsátur og skipulagt af sömu aðilum og hafa lagt Svíþjóð í rúst með alþjóðavæðingu og fjölmenningu. George Soros og fólk af hans tagi er þekkt fyrir slíkt. Moldríkir auðrónar sem taka mið af Frankfurt skólanum, að leggja niður þjóðríkin en búa til þrælaþjóðfélög og snjallborgir í staðinn, þar sem enginn fer ferða sinna nema með ökklaband og merki Satans á handabakinu, til að menga ekki um of, og helzt aðeins nokkur skref. Nærsamfélagið vel skipulagður fangaklefi.
Viðtalið við Jón siðfræðing í Kastljósi var sérlega ótrúverðugt. Hann hljómaði eins og órökvís aktívisti lengst til vinstri, Pírati eða Sósíalisti, en ekki eins og hlutlaus fræðimaður.
Kastljósviðtalið við siðfræðinginn Jón Ólafsson sýnir það svo vel hvernig Bandaríkin eru klofin á milli Wókisma og frjálshyggju.
Jón siðfræðingur er sennilega alveg sama týpa og í erlendum háskólum talar fyrir wók-málefni, kynjafræðum og ýmsu sem gengur í berhögg við hefðir, venjur, trúarbrögð og náttúruna.
Fréttablaðið er fallið.
Hringbraut er fallin.
RÚV stendur eftir í einmanaleika sínum í ömurlegri wók-stefnu sinni.
Stöð 2 sveiflast á milli því að leyfa frjálsum starfsmönnum sínum að búa til fjölbreytilegar fréttir og að fara á RÚV vagninn fullan af wókisma.
Ekki er lengur sjálfgefið að skólar séu góðir fyrir æskuna. Vond inntroðsla fer þar fram, kommúnísk og jafnaðarfasísk.
Háskólar, þeir eru eitraðir af wókisma.
Hversvegna er RÚV að fá þessa eilífu vinstri-fræðimenn til að tjá sig, þegar vitað er að þeir spáðu því að allt væri í blóma rétt fyrir Hrunið 2008?
Þeir sem plotta svona samsæri gegn Sjálfstæðisflokknum vilja sannfæra almenning um að sjálfstæðismenn séu spilltari en aðrir. Það fólk vill stöðva hvalveiðar. Það er jafnvel á móti sjálfstæðinu sjálfu, og vill að erlendir auðrónar ráði hér öllu, með ESB-milligöngu og Nató-milligöngu.
Jú þetta sama fólk trúir að það fái feitari embætti en aðrir með því að svíkja land og þjóð einu sinni enn. Það hefur virkað svo oft í fortíðinni, og allir gert það, ekki sízt sjálfstæðismenn og framsóknarmenn, en líka flestir hinna.
Síðan er það þetta sem reynt er að segja, að viðbrögð Jóns Gunnarssonar séu "skólabókardæmi um þöggunartilburði".
Þannig eru orð Sigríðar Daggar hjá blaðamannafélaginu.
Ja það er auðvitað reynt að reiða til höggs eins og reynt er að gera gegn öðrum.
Nei, Jón Gunnarsson er bara að svara fyrir sig um persónulegt mál, þar sem sonur hans var plataður með hlerunum á ólögmætan hátt.
Hver er þessi mikla þöggun sem Sigríður Dögg ýjar að?
Það kom þó fram í máli Jóns Ólafssonar í Kastljósinu að lobbýismi og jafnvel hrossakaup væru partur af venjulegum stjórnmálum, og því væri ekki hægt að telja neitt óvenjulegt við slíkt. Þannig að hann reyndi að líta á fleiri en eina hlið.
Það eina sem stendur eftir og gæti tafið afgreiðslu hvalveiðileyfisins er kannski það hvort þessari starfsstjórn sé ætlað að afgreiða þetta mál, sem sumir telja of stórt fyrir hana. En allir ættu að vita að þetta er samkvæmt stefnu Sjálfstæðisflokksins. Því þarf að veita þetta leyfi og drífa í því fyrir kosningar, enda óvíst er hvaða stjórn tekur við eftir kosningar. Þrátt fyrir að deila megi um hvort þetta ætti að gera í starfsstjórn er það eðlilegt miðað við reiðina sem varð þegar Svandís kom í veg fyrir veiðar síðasta sumar, að leiðrétta þau mistök, og að Bjarni sjái um það.
En mér finnst það leiðinlegt ef Jón Gunnarsson er notaður sem blóraböggull í þessu máli, en það er svo oft gert í pólitík, að stóru leiðtogarnir eins og Bjarni láti minni flokka eða undirmenn sína taka á sig ábyrgðina.
Hér í þessu máli er þó Jón Gunnarsson og fleiri búnir að lýsa því að þetta verður ákvörðun Bjarna. En þetta snýst í nútímanum um ímyndarstjórnmál.
Hverju trúir almenningur?
Hvernig er hægt að heilaþvo almenning?
Myndar fólk sér sjálfstæðar skoðanir?
Eða trúir fólk fjölmiðlafólki sem er rammpólitískt og með "plan"... áætlun?
Jón mun ekki koma nálægt meðferð hvalamálsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2024 | 05:30
Hefnd taparans, ljóð frá 8. desember 2018.
Óhefnt verður einskis framar,
enn það reglan bauð.
Tívanna réttvísi ríkir,
rolan á afleiður kíkir.
Herleiðing Jahves í heimi,
hinum þótt oftlega gleymi.
Stór er stefnan ein,
stúlkan jafnvel hikar þessi.
Koma þær kunnáttusamar,
krafturinn býr í því andartaki.
Ekki aftur rauð,
eftir fallna grein.
Þótt ég í kvölunum Vila enn vaki,
vöntun ei meira svo hvessi.
Ef þú drepur okkar hami
upp þá sálin rís.
Kennslugögn koma að gagni,
konurnar tapa því magni.
Vitund mín verður þinn grunur,
vakna svo þrábættar runur.
Haugur hinna féll,
heima enginn, mitt svo þýtur.
Af upphefð þótt ætíð mest stami,
ýmislegt vitraðist, mönnum birtist.
Fjandann kvölin kýs,
finnst þeim burðugt svell.
Athöfnum fárveiki galdrarinn gyrtist,
gjafarinn syndarann brýtur.
Mundi sigrar, miði beitir,
mær þá öfugt snýr.
Gagnið sem grunurinn leyfir,
getsökum sannleikans dreifir.
Týr er sá drottinn sem dæmir,
djöflana minni burt flæmir.
Klaustrið hefur kennt,
körlum nokkuð, saman standa.
Heilögu heljanna reitir,
hórkarlinn, risinn og skáldið eina.
Þar við bölið býr,
blíð en vígatennt.
Barnið vill dauðann á búk sínum reyna,
bölvaða manndómsraun landa!
Andinn fénda okkur kennir,
yfir mannlegt þrek.
Brennandi byggingar skipta
brátt engu máli og rifta
samningum samvizku þinnar,
síðan þau horfa loks innar.
Sá er kenndi sök,
situr ein og keyri beitir.
Hetjuna heimsins enn brennir,
hofin svo grafið upp, endurreisið!
Forna Vani vek,
vantar ekki rök.
Heimskunnar afleiður fellendur feisið!
Fannbarðir sigursins reitir!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þorgerður Katrín hefur breytt um stefnu úr því að fólk er mótfallið þessu, en önnur frétt kom samt nýlega um þetta og það er í málefnaskránni þeirra.
En mig langar að velta hér fyrir mér merkingunni fasismi. Þjóðernisflokkar eru oft kallaðir fasískir af pólitískum andstæðingum, og þó er það meiri forræðishyggja og jafnvel fasismi að vilja stjórna fólki svona. Þetta skrifaði ég áður en þessi frétt birtist, upp úr þeirri frétt að Viðreisn vildi láta banna nýskráningu benzínbíla strax á næsta ári:
Þar höfum við það. Viðreisn virðist mesti wók-flokkur landsins. Vilja banna nýskráningu á benzínbílum strax á næsta ári!
Það er mjög áhugavert að hægri og vinstrilínurnar skarast. Meira að segja svo að flokkur sem á uppruna sinn í hægriflokki sýnir meiri vinstriöfga á sumum sviðum, kannski til að teygja sig til samstarfs og eygja möguleika á ríkisstjórnamyndun eftir kosningar.
Það er eitt annað sem er merkilegt.
Það er sagt að við Íslendingar séum oft 20 árum á eftir öðrum Evrópulöndum í þróun. Evrópusambandið og fjölmenningin fengu litla gagnrýni á meginlandinu eins og í Þýzkalandi þá, um 2000. Þá varð samruni og löndin gengu í ESB og þjóðirnar.
Nú er þróunin önnur á meginlandinu og sumir vilja breyta ESB og aðrir vilja leysa það upp eða ganga úr því.
Ef Viðreisn og Samfylking mynda nýja ríkisstjórn og fá um 40% saman, og Sjálfstæðisflokkurinn verði þarna líka í þeirri stjórn og gengið verður í ESB, þá má segja að sú kenning fái byr undir báða vængi að við Íslendingar séum 20-30 árum á eftir meginlandinu, Evrópu, og að loksins núna sé kominn sterkur vilji að sameinast ESB.
Við vitum ekki hvernig kosningarnar fara. Þetta er allt óljóst.
Óraunhæft að fara í svona bann á næsta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2024 | 02:02
Ekki eru mennskar meyjar, ljóð frá 6. nóvember 2018.
Berjumst bræður,
barinn mælti snjall.
Móðir mín
mér til halds og trausts.
Æskunnar heimili elskum við bæði,
óvinir lífsins í sífelldri bræði,
geimverur, vinstrivillan,
varganna hillan.
Þegja um þetta skræður,
þú færð ekki að vita um rétta sýn.
Bíða ber til hausts,
böðlar segja, þar til verður ljóst að kemur fall.
Djöflur, konur, stúlkur, stefnan ranga,
stríðið skárra, allir munu hanga.
Hórur herja,
heldur sef ég vær.
Þökk færð þú,
þegar birtir til.
Bækistöð heiðninnar blasir við öllum,
búa svo smámenni í lágstemmdum höllum?
Ekki eru mennskar meyjar,
minnkandi peyjar...
Fáir fjörið verja,
finnst þeim jafnvel skaðleg lífsins trú...
Trauðla varginn vil,
Valhöll bíður, hulin löngun dæmdan kappa slær.
Öfugsnúin orðin þeirra veikjast,
eins og þau til Vítis stöðugt feykjast.
Ég var í Víti,
og villan enn er hér.
Sífelld sorg,
sjúkir felldir burt.
Umvafinn hlýju á heimili manna,
hitt skaltu sigra og jafnvel loks banna!
Geimverur, góðar konur,
getur margt sonur...
Lífið finnst þeim lýti,
líka skera vítis til þá borg.
Eitruð alheimsjurt,
er að sigra, þó mun hafa betur réttur her.
Allt er blekking, engu skaltu trúa,
eða þar til mun hann geiminn brúa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2024 | 00:43
Ef þjóðin kýs yfir sig Viðreisn næst fer hún úr öskunni í eldinn, að fá Þorgerði Katrínu sem næsta forsætisráðherra - ESB innganga?
Það er erfitt að skilja okkar þjóð. Það er erfitt að skilja hvaða ástæður 19% þjóðarinnar finna akkúrat núna til að þykjast vilja kjósa Viðreisn og hugsanlega fara í ESB. Er þetta vegna þess að þessir sömu kjósendur föttuðu að Kristrún Frostadóttir Samfylkingarleiðtogi nýtir sér stóran hluta Þríeykisins til að setja á lista flokksins, þegar vitað er að á sama tíma hefur þátttaka í bólusetningum snarminnkað á Íslandi, en Alma Möller og Víðir og fleiri reyna að afneita því að það hafi eitthvað með kófið að gera og umframdauðsföllin sem hér á landi eru óhóflega mörg, og deilt er um hvort það er sprautunum að kenna eða veirunni. Ef það er veirunni að kenna gerðu sprauturnar allavega ekki nægilegt gagn, voru annaðhvort gagnslitlar, gagnslausar eða hreinlega skaðlegar einsog virðist nú sennilegt.
Ef maður er Íslendingur þá getur maður öfundað margar þjóðir af heilbrigðara þjóðlífi og betra fólki. Nú bætast Bandaríkin í hóp þeirra landa sem eftirsóknarverðara er að vera á en þessu skrælingjalandi, Íslandi, snarvitlausra kommavitleysinga og femínista.
Þegar Miðflokkurinn fékk mikið fylgi í skoðanakönnunum, fyrir mánuði, þá var ég býsna ánægður með það. Nú finnst mér trú mín á Íslendinga aftur minnka.
Ætli þetta sé "fótanuddstækjasyndrómið" mikla sem hrjáir flesta Íslendinga? Það syndróm lýsir sér í því að mjög margir gera það sama, jafnvel þótt það sé einstaklega bjánalegt.
Þegar allar geymslur fylltust af ónotuðum fótanuddtækjum fóru jafnvel þau á RÚV að gera grín að því að eitthvað væri að þessari þjóð okkar, að hún væri klikkaðri en almennt gerist með þjóðirnar.
Það verður gæfulegt eða hitt þó heldur að sitja uppi með 20% Viðreisn þegar kosið verður. Þeirra stefna er sami aumingjaskapur og Katrínarstjórnin eyðilagði fyrir sér með. Þetta er sama ESB-hegðunin, að treysta útlærðum mafíuósum Elítunnar, ekki sjálfum sér.
Ja ef eitthvað breytist á Íslandi, þá er það þetta að heimskan vex og þjóðin fer að fyrirlíta sig meira. Ekki skrýtið þótt margir sjái útgönguleið í dópdauðanum.
Þessvegna er ég hræddur um að við missum kannski skásta eða bezta fólkið þannig, að það taki líf sitt eða hverfi í dópdauðann, eða deyi úr sjúkdómum sem eru afleiðingar af bælingu og heimsku, krabbameinin og ónæmiskerfissjúkdómar, sem koma vegna ástar sem hefur breyzt í hatur.
En eitthvað jákvætt kemur út úr því. Við fáum hermenn á öðrum hnöttum, sem verða tilbúnir að fórna lífi sínu. Reiðin leiðir af sér hörkumenn sem berjast. Það er búið að rústa íslenzku þjóðinni og það hefur verið gert kerfisbundið.
Ég get verið sammála þeim sem er lengst til vinstri að nokkru leyti, þótt aðferðir þeirra skemmi meira en reynt er að laga. Sósíalistar vilja bæta kjör fátækra. Það er góðra gjalda vert.
Samfylkingin og Viðreisn eru flokkar uppskafninga og plebba.
Það er engin stjörnufræði og ekki þarf snillinga til að fatta að ESB er að hverfa í þoku og reyk heimsku og sjálfseyðingar. Þetta er það sem kjánaprikin vilja sem kjósa ESB-flokkana.
Maskína: Fylgi Viðreisnar komið í 19,4% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2024 | 01:01
Eitthvað gott ég hélt að þarna væri, ljóð frá 16. október 2018.
Hve þægur var ég, þráði hinna rembu,
en þær oft beztu köppum sendu dembu
af skömmum, skröttur þær.
Ég vildi bara verða þá
ei veifiskati, fyllast djörfung, þrá,
nú Skrattinn aðeins hóra hlær.
Viðlag(kór):
Eins og skinu augun fögru þín
eitthvað gott ég hélt að þarna væri.
En stundum verður grimmlynt gleðisvín,
ég gat ei komizt við þig gott í færi.
Mér leiðist, gleði og líf er alveg horfið,
að löngun, virðingunni hefur sorfið,
en tæfan sálgar sér.
Í einsemd híma allir nú,
og einnig dauð er fyrri kvennatrú,
ja ömurlegt er okkar sker.
Sálin berst um samfelld augnadjúpin,
samt var ekki viss um kvennahjúpinn.
Æ, Vínsteinn var og hét.
Við höfðum áður frelsi, frið,
og fjarskalega skemmtilegan sið,
að kássast uppá kvendi er grét.
Vissi þá að varstu trygg og hlýðin,
voru fjarri mér og okkur stríðin,
en kappinn klári féll.
Hatrið mun þig hengja, fljóð,
helvízk varstu aldrei nógu góð,
enda er veröld okkar pell.
Þá er líkt og þetta engu skipti,
þegar ég loks samningunum rifti,
og hefndin hefur klær.
Feginn verð að fara burt,
fíknin þessi afsökunarjurt,
er svo varla annars tær.
Hef þau misst og heimur glottir bara,
hef ei fyrir því að reyna að svara.
Deyr í hatri hann.
Verðum púkar vinir því,
vopnaheimur andans, stöðugt ský,
féndur mínir fíla bann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2024 | 03:36
Hallarekstur Dags, er ekki ráð að hætta við borgarlínuna?
Dagur B. Eggertsson skildi eftir sig gjaldþrota Reykjavík er sagt af mörgum og rökstutt vel. Við embættinu tók Einar Þorsteinsson, sem kallaður er Dagur II af sumum. Sagt er að hann stjórni með svipuðum hætti en reyni þó að stjórna meira eins og sjálfstæðismaður, hugsa um sparnað og rekstur sem er sjálfbær. Enda er hann framsóknarmaður en ekki samfylkingarmaður.
Í umræðuþætti sagði einhver að vinstrimenn miðuðu rekstur borgarinnar við að selja Perluna. Það er svipað og að selja dýrgrip vegna mistaka í rekstri sem hefði verið hægt að komast hjá.
Perlan var reist í tíð Davíðs Oddssonar sem borgarstjóra. Útlit hennar minnir mjög á stjörnusambandsstöð. Þær hugmyndir setti dr. Helgi Pjeturss fyrst fram í blaðagreinum á fyrri hluta 20. aldarinnar og svo í bókum sínum. Nefndi hann strax í upphafi 20. aldarinnar staðsetninguna, og kallaði þetta "sambandsstöð við stjörnurnar í Öskjuhlíðinni", eða eitthvað slíkt.
Skrifaði hann á þá leið að ástand mannkynsins myndi mjög færast í rétt horf ef reist yrði stöð til sambands við aðra íbúa stjarnanna í Öskjuhlíðinni.
En nú er svo komið að heimska stjórnar okkar mannkyni, Íslendingum eins og öðrum. Kemur þeim því ekki í hug samband við stjörnurnar - nema þessar myrku stjörnur sem nefna sig stjörnur í ómenningunni okkar.
Í dag er svo komið að fólk getur ekki einusinni átt samskipti hvert við annað. Í stað þess að elska náungann lærir fólk að hata náungann á grundvelli femínisma og jafnaðarfasisma.
Ingvar Agnarsson afabróðir minn var myndlistarmaður og rithöfundur og forstjóri Barðans einnig, og Gúmmívinnustofunnar þar áður.
Hann skrifaði margar greinar í Morgunblaðið um langt árabil. Þar fjallaði hann oft um Nýalskenningarnar.
Frá honum munu vera komnar teikningarnar að stjörnusambandsstöð í Öskjuhlíðinni - sem gætu hafa verið fyrirmyndin að útliti Perlunnar, því hvolfþakið glæsilega á byggingunni með rúðunum er jú í fullkomnu samræmi við teikningar Ingvars frænda, og hann birti þessar teikningar oft með pistlum sínum í Morgunblaðinu um þetta efni, sem hann skrifaði.
Nei það er kannski ekki hægt að búast við því að okkar mannkyn sé komið uppá svo göfugt stig að halda sambandsfundi, miðilsfundi í Perlunni, en kannski gerist það síðar, eftir 20-50 ár. Aldrei að vita, breytingar verða stundum í hina betri átt, það er nú svo.
En úr því að ég er að fjalla um þrotrekstur Dags B. Eggertssonar þá vil ég endilega fjalla um Borgarlínuna hér eins og svo oft áður.
Þótt ég hafi hrósað Degi í pistli nýlega fyrir að hafa sinnt umhverfisverndinni vel sem borgarstjóri, þá er ekki hægt að líta fram hjá því að hann stjórnaði eins og dæmigerður vinstrimaður, með hallarekstri.
Það er líka dæmigert fyrir vinstrimenn að vilja græða á Perlunni núna og selja hana, en mig minnir að þetta hafi verið kallað bruðl á sínum tíma, þegar hún varð byggð.
Væri ekki betra að hætta við Borgarlínuna?
En þennan pistil vil ég enda á jákvæðum nótum.
Samfylkingarfólk er mjög hrifið af samvinnu á milli þjóða. Löngun þeirra um að ganga inní ESB er af þeim meiði.
Mikið fylgi Viðreisnar, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í skoðanakönnunum bendir kannski til að á næsta kjörtímabili verði reynt að ljúka við aðildarferlið að ESB.
Mér finnst sumt jákvætt við fjölmenninguna.
Mér finnst hún vera skref í þá átt að fólk fari að hugsa um líf á öðrum stjörnum.
Fyrr eða síðar hlýtur það að gerast.
Eitt af því sem fólk þarf að læra er þetta, að geimverur líta ekki endilega út öðruvísi en þetta mannkyn okkar.
Til eru mannkyn sem eru sérhæfð í útliti.
Á sumum hnöttum eru bara aríar. Á öðrum hnöttum eru bara indíánar. Annarsstaðar er aðeins asískt fólk eða bara svart fólk eða brúnt. Sumsstaðar blandað fólk eins og hér.
DNA blöndun í fortíðinni var svo haganlega unnin að falin voru ummerkin.
Við verðum að gera ráð fyrir því að guðirnir hafi verið miklu klárari en við, gert ráð fyrir því sem gerist núna og ókominni framtíð, sem og fortíð þeirri sem er liðin.
Ég er andvígur hverskonar jarðmiðjuhugsun.
Giordano Bruno kenndi okkur að geimurinn er endalaus, og engin miðja, ekki jörðin, ekki sólin, ekki búlgurinn, okkar takmarkaði alheimur.
Til að setja kynþáttahatrið til hliðar eða kynjahatrið eða önnur leiðinleg og niðurrífandi samskipti þarf að hætta að upphefja konur eða karla.
Þessvegna skrifaði Emanuel Swedenborg um það að Helja væri full af fólki sem væri sjálfselskt.
Himnaríki sagði hann að væri staður þar sem fólk elskaði Guð og náungann. Guð væri síðan sannleikur, og það vissi hann sem vísindalega menntaður maður.
Sá sannleikur þarf að vera afstæður og ekki sannleikur eigingirninnar sem hver og einn græðir á. Hann þarf að vera algildur.
Þegar fólk sér sannindi sem standa utan við það sjálft og kemur sér saman um þessi sannindi þá myndast nokkurskonar friður. Pólitísk sannindi eru ekki mjög uppbyggileg, því þau eru hagsmunasannindi.
Því miður er talsvert mikil hætta á því að mynduð verði næst stjórn þar sem reynt verður að komast inní ESB og halda áfram með aðildarferlið.
Klúður og vesen undanfarinna ára lætur jafnvel almenning gefast upp á sjálfstæðinu.
Gera ráð fyrir sölu Perlunnar á þessu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 41
- Sl. sólarhring: 107
- Sl. viku: 778
- Frá upphafi: 127474
Annað
- Innlit í dag: 28
- Innlit sl. viku: 556
- Gestir í dag: 25
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar