8.5.2024 | 00:17
Að lenda í öðru sæti er stundum betra, eða lögin í neðri sætum en fyrsta sætinu geta verið betri en þau sem sigra
Ég spáði því að Bashar Murad myndi ganga vel fyrir Íslands hönd, jafnvel sigra keppnina úti. Á það var ekki látið reyna því hann lenti í öðru sæti og því vitum við aldrei hvort sú spá hefði ræzt, en að minnsta kosti fékk hann feikilegt fylgi frá útlöndum sem studdi spá mína, svo kannski hefði hún ræzt.
Lagið sem Hera söng var ágætt, en athyglin í heimspressunni var öll á atriði Bashars Murads, þannig að Hera náði næstum engri athygli í heimspressunni, og á ensku var lagið ennþá líkara þessum "högghamarstakslögum" eins og Ómar Ragnarsson orðar þetta svo snilldarlega, það eru orð að sönnu.
Ég vil minna á að ég lenti í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna í MK (Menntaskólanum í Kópavogi) árið 1993 með lagið "Þitt ljóð er", lagið eftir mig, ljóðið eftir Jón Trausta, sem samdi Höllu og Heiðabýlið og fleira.
Árið eftir vann Emiliana Torrini keppnina, þá söng ég lagið "Visthrun" eftir mig, frá 1989, og allt lagið var í rapptakti og naut undirleiks dauðarokkshljómsveitar frá skólanum. Þá fékk ég verðlaun fyrir sviðsframkomu en komst ekki í neitt sæti, enda bauð lagið í rapptakti ekki uppá mikla sönghæfileika.
Árið 1992 söng ég lagið "Ó græni þollur", eftir mig, frá 1990. Það vakti mikla athygli nemendanna, en eftir sem áður sigraði ég ekki keppnina, enda söng ég of lágt svo lagið fékk ekki að njóta sín eins og hjá þrumusöngvara.
![]() |
Hera komst ekki áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.7.): 11
- Sl. sólarhring: 101
- Sl. viku: 513
- Frá upphafi: 152582
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 356
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið væri gaman ef þú kæmir í útvarpsþátt Rgg únars Þórs á útv.Sögu. Meina það; Ég er orðin svo þreytt á þessum tíma að ég veit ekki hvort ég bíð,en ég hef engan aðgang þar.Sumir senda upptökur t.d. kórar ofl.
Helga Kristjánsdóttir, 8.5.2024 kl. 01:08
Fyirgefðu stafarugl og annað....
Helga Kristjánsdóttir, 8.5.2024 kl. 01:10
Takk fyrir athugasemdina Helga. Já hann er talsvert með sömu tónlistarmennina aftur og aftur. Ég hef fylgst með honum í mörg ár og kann vel við þáttinn hans. Já, ég ætti kannski að reyna að senda honum línu, ef hann hefur áhuga á að fá svo lítt þekktan tónlistarmann í þáttinn, sem er mögulegt. Takk fyrir hvatninguna, sjáum til, já ég skal íhuga að reyna að hafa samband við hann.
Takk fyrir, beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 8.5.2024 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.