Kemur ekki á óvart, Gústaf Skúlason hefur lýst þessu á Útvarpi Sögu

Þessi frétt sem tengd er bloggi mínu ætti að vera skyldulesning fyrir alla Íslendinga og aðra Vesturlandabúa sem fylgja stefnu fjölmenningarinnar, sem núna jafnvel sjálf Samfylkingin hefur hafnað og yfirgefið, en var í fararbroddi fyrir í upphafi, fyrir 20-30 árum, þegar aðrir flokkar voru hikandi í þeim málum. Partur af þeirri alþjóðavæðingu sem Samfylkingin trúði á fyrir 30 árum var EES samningurinn sem var undirritaður 2. maí 1992, það eru því nákvæmlega 32 ár síðan það skref var stigið, það risastóra skref sem sumir kalla óheillaskref en aðrir heillaskref.

Móðurafi minn var snillingur að svo mörgu leyti, hann Jón Agnarsson bifvélavirki og vélvirki. Hann var ekki mjög málgefinn maður, en þegar hann tjáði sig um pólitík var það eftirtektarvert og oft rétt.

Hann sagðist ekki vilja vera skyldur Jóni Baldvin því hann hefði tekið af okkur sjálfstæðið með EES samningnum. Þessi orð hans hljóma alltaf betur og betur, réttar og réttar, því sjálfstæði okkar hverfur æ meira, og verður æ meira einhverskonar draumkennd minning fólks sem er löngu dáið og barðist fyrir því, eða goðsögn, mýta sem við sjálf þekkjum ekki því pólitík nútímans snýst um eitthvað allt annað, eins og að græða á leifunum af því forna sjálfstæði.

Árið 1996 undirrituðu Íslendingar Schengensamninginn og þá var stigið enn lengra í þessa átt.

Sjálfstæði er "annaðhvort eða", en ekki á gráu svæði og margir flaska á því. Margir segja að það sé nú hægt að græða á þrælahaldi bara pínulítið, með því að þrælka þjóðina undir merkjum Mammons. Þrælahald er auðvitað aldrei nefnt á nafn, en þegar fólk fer að hræðast að hafa skoðanir og tjá þær er það rétta orðið. Þegar frumskógurinn af hamlandi ESB lagasetningum breytir þjóðfélaginu í skelfingarríki í anda verka Orwells og Kafka, þá er tæknivætt þrælahald á Íslendingum rétta lýsingin.

Auðvitað er ESB kommúnískt þrælaríki, og því betur sem hlekkirnir eru faldir þeim mun hættulegri eru þeir. Snillingar eins og Gunnar Rögnvaldsson bloggari hafa haft vit og kjark til að fræða um þetta, en nú vantar fleiri slíka. Kjarkur bilar, heilsa og fé skortir jafnvel, fylgið við réttan málstað einnig. Við áttum fjölmenna sveit afbragðsmanna sem börðust fyrir sjálfstæðinu, en nú er það fámennur hópur sem hefur sig æ minna í frammi.

Það er á allra vitorði að Katrín Jakobsdóttir, sem nú hefur keyrt flokk sinn í kaf, taldi ekkert rangt við að herða löggjöf um landann til að kúga hann enn meira hvað varðar tjáningu. Að sjálfsögðu allt gert "í góðri trú", eins og það versta sem gert er. Það má búast við því að ólög sem landinu eyða og byggð á því haldi áfram að streyma frá stjórnmálamönnum, því eitrinu hefur ekki verið úthýst, og ekki er búið að gera upp hryðjuverkin gegn landi og þjóð sem sögð voru lög en ekki ólög.

Nú er rétt að rifja upp það sem sjálfur Jón Baldvin hefur sagt um ESB og EES samninginn. ESB hefur hann kallað brennandi hús sem Íslendingar eigi ekkert erindi inní, og vísaði hann þar í stefnu Angelu Merkel, þar sem múslimar hafa verið að yfirtaka Evrópu lengi og Þýzkaland ekki sízt, þannig að nú vilja þeir stofna þar kalífadæmi eins og frétt er um í DV, og koma saman þúsundum saman og krefjast þess í krafti fjöldans. Á sama tíma eru stjórnmálamenn í Þýzkalandi nógu miklir landráðamenn til að banna hópa svonefndra nýnazista vegna tengsla við fortíðina, sem aðeins eru venjulegir þjóðernissinnar nú til dags og ekki hlynntir ofbeldi opinberlega í langflestum tilfellum, og eru mjög hóflegir í því sem nefna mætti antisemítisma - miðað við fortíðina og hversu langt það gekk þá. Þessir einstaklingar eru einu einstaklingarnir sem geta bjargað Þýzkalandi og Evrópu og eru hetjur en ekki skúrkar. Huglausir og duglausir stjórnmálamenn eyðileggja aðeins enn meira, með ónýta áttavita að leiðarljósi.

Antisemítisma ætti aðeins að banna ef hann er ógn við allsherjarreglu eins og þetta er nefnt í íslenzkum lögum. Það er hinsvegar þannig að femínisminn er ekki aðeins ógn við allsherjarreglu, heldur hefur steypt henni og komið af stað alheimsbyltingu á Vesturlöndum og víðar, sem hefur skilað sér í því að kynin hatast innbyrðis og börn eru að mestu hætt að fæðast og þjóðirnar deyja út innanfrá.

Gyðingaofsóknirnar í seinni heimsstyrjöldinni útrýmdu ekki gyðingum. Þvert á móti voru þær undirstaða þess að gyðingar fengu samúð svo mikla að landsvæði var þeim úthlutað í Palestínu og menn geta verið með því eða á móti. Þeir hafa rétt á að verja sig, það segi ég hér. Mér finnst of mikið gert af því að verja minnihlutahópa innan þjóðríkjanna en ekki þjóðríkin sjálf og undirstöðu þeirra, menningu þeirra.

Þjóðernishyggja er hraustleikamerki allra þjóða, og það er eðlilegt að hópar berjist og einstaklingar.

Um EES samninginn segir Jón Baldvin enn að hann sé eitt það bezta sem hent hafi þjóðina og hafi grundvallað velmegun okkar æ síðan, en auðvitað er hann ekki hlutlaus í þessu, sjálfur primus motor í þessu, eða aðalgerandi málsins og frumkvöðull á sínum tíma.

Ég skal segja það hér að margt gott hefur fylgt EES samningnum einsog aukið fjármagn til landsins, en einnig margt gagnrýnivert eins og reglugerðir frá ESB sem eru farnar að verða óhóflega þvingandi og flóknar, óþarfar og rangar.

Það merkilegasta sem Jón Baldvin hefur sagt um EES er að hann er harður á því að ef eitthvað slíkt hentar ekki lengur beri okkur að segja því upp. Margir eftirmenn hans skortir svo hugmyndaflug og ákveðni að þeir taka þetta ekki með í reikninginn, minnast ekki á þennan möguleika.

En að fréttinni. Það kemur mér ekki á óvart að glæpagengi stjórni lögreglunni í Svíþjóð. Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli. Fréttir sem Gústaf Adolf Skúlason hefur sagt sem fréttaritari Útvarps Sögu í Svíþjóð hafa verið alveg prýðilegar og lýst nákvæmlega þessum sama veruleika og fréttin sem ég tengi við þennan pistil.

Það er svo sem tímanna tákn að Gústaf Adolf Skúlason er hættur á Útvarpi Sögu og þar er hallarekstur mikill, en stöðin má muna sinn fífil fegurri, og var harðari og pólitískari áður, en nú er þar miðjumoðið farið að herja á, og má búast við því að Útvarp Saga sé því nálægt því að hætta, hvort sem það tekur vikur, mánuði eða ár jafnvel.

Það er mín skoðun að femínísk lögreglan á Íslandi nú um stundir sé stærstu hryðjuverkasamtökin á Íslandi, nema kannski að pólitíkinni undanskilinni, þar sem jafnaðarfasisminn er allsráðandi ennþá, jafnvel Miðflokkurinn farinn að veikjast og mýkjast. Talíbanarnir í Afganistan halda fast í skipulag sem berst gegn syndafallinu, að Eva er syndin holdi klædd, og uppreisn hennar gegn Guði. Endurfæðing og endurnýjun fallinna þjóðfélaga um alla jörð er háð því að fylgja fordæmi Talíbana í Afganistan og taka upp alvöru feðraveldi að nýju.

En næstum enginn tekur mark á mér. Ég er bara sérvitur rugludallur sem fæstir eru sammála.

Við vitum að nú er farið að leyfa fíkniefni eins og hass víða um lönd. Hvað gerðist um aldamótin 2000? Þá heyrðust slagorð þess efnis að Ísland ætti að verða fíkniefnalaust árið 2000. Hvað gerðist? Við ekkert var ráðið! Helstefnan er sterkari lífstefnunni á þessari jörð.

Við skulum ekki halda að það sé eðlilegt og hið bezta mál að hass sé leyft víða um heim núna. Það er UPPGJÖF.

Á sama hátt má búast við að Vesturlönd tapi í framtíðinni. Stjórnmálin eru ÓNÝT. Menningin er HRUNIN.

Það er minna en ekkert að marka stjórnmálamenn.

Trúðar við völd.


mbl.is Hneyksli skekur lögregluna í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

"Sjálfstæði er "annaðhvort eða", en ekki á gráu svæði" -orð að sönnu Ingólfur og EES hefur drepið frumkvæði hins almenna Íslendings.

Það er samt svo skrýtið að engin "málsmetandi" þorir að segja það hreint út að EES og Scengen séu helsi, því það gæti kostað að það yrði örlítið flóknara að koma til Tene.

Auðveldara yrði að fara til Tene, því myndum við ráða sjálf, og gætum aflagt að fara í gegnum flugstöð Leifs Eiríkssonar sem grunaðir glæpamenn með buxurnar á hælunum.

Magnús Sigurðsson, 2.5.2024 kl. 17:03

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir prýðilega athugasemd Magnús. Já ég er nokkuð sáttur við þennan pistil, hann var innblásinn. 

Tene er málið núna. Sólarströndin er meira spennandi fyrir marga en uppblásin ímynd nútímans, sem minnir mjög mikið á þá miklu glansmynd sem Íslendingar bjuggu til af sér árið 2007, rétt fyrir hrunið. 

Í stað þess að kjósa þjóðlega stjórn er verið að fara í þykjustuleik eins og í Reykjavík, allt fyrir túristana. Leikurinn er endurtekinn frá 2007. Ferðamannaparadís sem er svo innihaldslaus glansmynd að innfæddum leiðist, og þola ekki dýrtíðina, flýja til útlanda.

Já, takk fyrir snjalla athugasemd eins og ævinlega.

Ingólfur Sigurðsson, 3.5.2024 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 760
  • Frá upphafi: 108148

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 554
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband