Vinstri grænir er flokkur fámenns öfgaliðs og það kemur loksins í ljós í könnun Gallups, 4,7% fylgi. Hvenær verða vond og hrikaleg verk Vinstri grænna afturkölluð til hagsbóta fyrir allan landslýð?

Vinstri grænir myndu ekki ná inná þing núna og eru með 4,7% fylgi núna samkvæmt skoðanakönnun Gallup, hafa sennilega aldrei verið með minna fylgi en Miðflokkurinn bætir við sig.

Það er mikil hægrisveifla í gangi núna. Miðflokkurinn með rúmlega 12%, Sósíalistar 3,5%, ná ekki inná þing frekar en áður, Sjálfstæðisflokkurinn 19,9%, aðeins meira en áður, og Samfylkingin dalar svolítið, með 28,2%.

Hrein hægristjórn er í kortunum núna. Ættu þá ekki Sjálfstæðismenn að slíta stjórnina og mynda hreina hægristjórn?

Hvernig flokkur er Vinstri grænir? Öfgaflokkur sem er dottinn úr tízku? Flokkur stefnumála sem kjósendur forðast og flýja frá? Flokkur öfgafemínisma og umhverfisverndar, sem jafnvel er ekki staðið við þegar forsætisráðherra landsins er í Vinstri grænum?

Úr því að Sjálfstæðisflokkurinn er undir forsætisráðuneyti flokks sem myndi ekki ná inná þing núna, flokki sem er með eins ólíka stefnu Sjálfstæðisflokknum og hægt er að ímynda sér, væri þá ekki sniðugra fyrir Bjarna Benediktsson og aðra Sjálfstæðisflokksmenn að mynda stjórn með Frelsisflokknum til dæmis, eða Íslenzku þjóðfylkingunni, Flokki fólksins eða Miðflokknum, úr því að þannig fólk myndi vinna MIKLU betur saman?

Hverskonar sjálfseyðingarför var það að mynda þessa stjórn yfirleitt?

4,7% fylgi Vinstri grænna er merkilegt, í ljósi þess að Katrín Jakobsdóttir var langvinsælasti stjórnmálamaðurinn lengi, og enn má búast við að hún auki fylgi flokksins þrátt fyrir allt.

Þannig að samkvæmt því má alveg búast við því að Vinstri grænir eigi ekki lengur erindi, og ætti að leysast upp, enda flokkurinn sem kom þeim ófyrirgefanlegu afglöpum í gegn að rýmka fóstureyðingalöggjöfina, og mörgu öðru sem miðar aðeins að fækkun Íslendinga af germönskum uppruna, má þar minnast á leyfi til ófrjósemiaðgerða, transaðgerðir og fleira. Maður getur haft skoðun á að allt sé til að vinna fyrir svonefnd mannréttindi, en þau mál hafa fleiri hliðar þó, og nauðsynlegt að ræða frá ýmsum hliðum.

En hver er dómur kjósenda? Eru þeir að þakka Vinstri grænum fyrir þessi mál? Nei, það virðist ekki vera.

En að fréttinni sem tengd er við þetta blogg. Ef forsetaembættið er staður fyrir afdankaða stjórnmálamenn sem mega muna sinn fífil fegurri, þá já, ætti Katrín að reyna að verða forseti, en annars endurtek ég það enn sem ég hef skrifað, hún gæti sennilega átt ágætan feril sem glæpasagnahöfundur. Ætti að einbeita sér að því, eða að verða heimavinnandi húsmóðir, sem er bezt fyrir konur.


mbl.is Þorgerður styður Katrínu í forsetaembættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 63
  • Sl. sólarhring: 107
  • Sl. viku: 722
  • Frá upphafi: 127265

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 544
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband