ESB hefur mistekizt að halda friði í Evrópu, og hefðbundin stjórnmál eru í krísu

Vopnavæðingartal í Norðurlöndunum er mjög á skjön við sögu Norðurlandanna. Norðurlöndin voru mestu friðarþjóðirnar frá því ég var barn.

Hnignun ríkir á Norðurlöndum eins og Vesturlöndum, menningarhnignun, efnahagshnignun, siðferðishnignun, trúarhnignun.

Leiðtogar sem halda að lausnin við öllum vandamálum sé stríðsæsingur, að efla og stækka innlenda heri og búa þá undir stríð eru að koma manni á óvart, þar um er að ræða konur við völd og það á Norðurlöndum, sem talin voru mestu friðarríkin!

Sumir hæðast að þeim hugmyndum að Rússar geri hernaðarlega árás á Norðurlöndin og telja að slíkt muni tæplega eiga sér stað.

Arnar Loftsson hefur skrifað góða pistla um frið við Rússa. Fleiri hafa bent á að Vesturlönd eru að stigmagna stríðið við Rússa og nota Úkraínumenn til þess, pistlar Rúnars Kristjánssonar eru fræðandi um það.

Eins og kemur fram í þessari frétt er Kína talið ógn við Danmörku og Vesturlönd ekki síður en Rússland.

Mette Frederiksen dettur aldrei í hug að eitthvað sé til í því sem Gunnar Rögnvaldsson og fleiri hafa fjallað um, að efnahagsvandi Evrópu stafi af of miklu regluverki og ESB skrifræði, kommúnisma og slíku.

Ótti Mette Frederiksen snýst kannski um annað, að femínisminn sem hún trúir á sé að hrynja til grunna, og rússneska þjóðfélagsgerðin gæti sigrað á Vesturlöndum aftur, kristni, íhaldsöm gildi, feðraveldi og annað slíkt, sem fólk fer kannski að þrá aftur.

En eins og ég hef skrifað um og aðrir, það er erfitt að snúa við breytingum með vopnavaldi.

Ef almenningur kýs aftur hin gömlu gildi en ekki femínismann, þá mun það jafnvel ekki duga að sigra Rússa í hernaði, því almenningur í löndunum mun kjósa flokka sem bjóða upp á annan valkost en Mette Frederiksen býður uppá og þannig pólitíkusar miðjunnar, sósíalismans.


mbl.is Danir segja Rússland verulega ógn við öryggi sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Ingólfur, þú verður að fara að lesa Norðurlandasöguna aftur. Endalaus ófriður á nýöld og allt frá tímum víkinga og fyrr......Við erum bara í miðju vopnahléi sem er að ljúka.

Birgir Loftsson, 8.2.2024 kl. 11:13

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Sæll Birgir, það er rétt. Orðalag mitt var mjög ónákvæmt í byrjun pistilsins... ég hefði átt að skrifa:"á skjön við sögu Norðurlandanna frá seinni heimsstyrjöldinni", en það er það sem ég átti við, miðað við þegar ég var barn og unglingur og lærði um friðarbandalög og slíkt í norðrinu.

Þú ert lærður sagnfræðingur og veizt þetta betur en ég. Þegar þú minnist á þetta rifjast þetta upp, og þetta er 100% rétt hjá þér. Maður lætur eigin bernskuminningar glepja sér sýn. Það er víst mannlegt að miða út frá eigin minningum. En sagnfræðilega er þetta alveg rétt hjá þér, og ég man það núna.

Engu að síður eru margir góðir punktar í þessum pistli hjá mér burtséð frá þessari ónákvæmni í byrjun. Það friðartal og talið um að aldrei yrði aftur stríð í Evrópu, það má segja að grundvöllurinn sé brostinn fyrir ESB, eða þar hefur margt mistekizt.

Takk fyrir innlitið og þín sagnfræðilega nákvæmni bregzt ekki. 

Ingólfur Sigurðsson, 8.2.2024 kl. 12:10

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Já, ekkert að pistlinum sem er góður.  Einmitt sem ég sagði, erum í vopnahléi.  Svo er það að það eru kannski meiri líkur á borgarastyrjöldum í Evrópu en innrás Rússa?

Birgir Loftsson, 9.2.2024 kl. 08:11

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það voru meiri róstur í Evrópu frá 1820 til 1870 en eru núna, eða því sem næst því mig grunar að verra sé framundan.

Guðjón E. Hreinberg, 9.2.2024 kl. 12:48

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Stjórnmál í Evrópu eru svo óstöðug og ruglið mikið að þeim er trúandi til að gera einhverja málamyndaárás á Rússa, eða þeirra eignir eða aflönd. Engin skynsemi, engin rökhyggja, skrifaðir þú það ekki Guðjón? Þannig er jafnaðarmönnum vel lýst í Evrópu. 

Já, ég yrði ekki hissa þótt eitthvað form af borgarastyrjöldum myndi bresta á í Evrópu. Frakkar hafa sögu um að þola ekki kúgunarok, til dæmis.

Góð athugasemd Guðjón, ég held að við séum rétt að byrja að sjá óstöðugleika í Evrópu, svo mikið hefur ruglið verið þarna lengi í pólitík, Woke, femínismi og slíkt.

Ingólfur Sigurðsson, 9.2.2024 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 130
  • Sl. sólarhring: 130
  • Sl. viku: 680
  • Frá upphafi: 108411

Annað

  • Innlit í dag: 120
  • Innlit sl. viku: 535
  • Gestir í dag: 116
  • IP-tölur í dag: 113

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband