Reyndar bara sama, ljóð frá 16. desember 2023.

Allt það horfið er í skraut

einsog horgrind skilur.

Loka lýðnum stjórnar,

líka öllum fórnar.

Horfin einnig hún á braut,

en hann þó margs enn dylur.

 

Reiði getur ríkt um sinn,

en reyndar bara sama.

Sérhver dagur, syndin,

síðan hryggðarmyndin.

Varla breytist bragur þinn,

bara tíðzkudama.

 

Einsog rennur, elskar hann,

yfir hatur kvenna.

Boltaleikir byrja,

brunnar ekki hyrja.

meyjavalið, margvíst bann,

mun í vítum brenna.

 

Stikar spýtan stríðið í,

strákar Vítum gegna.

Jafnan lögin leggjast

lágt og ekki steggjast.

Að komast inní fremdafrí

framar vilja ei megna.

 

Þetta andhverft, þegar stríð

þér mun alveg breyta.

Hreykist um, en hrokinn

hrynur eins og lokin.

Gegnum slíka grimmdartíð

gumar réttinn þreyta.

 

Hótar öllum Heljarbarn,

hefur falið trúna.

Þykist einsog þessi,

þó ei málin pressi.

Var hann áður viljagjarn,

vart mun leita núna.

 

Ekki þangað inn hann fór,

unga meyjan pirruð.

Ef grip um hennar hendur

hefði unniðzt lendur.

Viljamýkst þó Vanahór,

Verður síðan irruð.

 

Fylgist með þeim fréttum enn,

fátt mun slíka undra.

Gamlir guðir þegja,

gjarnan sig því beygja.

Þókt nú falli flestir menn,

fór sinn heim að kundra.

 

Orðskýringar:

Steggjast: Mótast eftir feðraveldinu.

Brunnur: Líkami eða andi kvenna.

Hyrja: Brenna, grilla.

Víta: Vond og grimm kona sem lýtur Helju eða Loku.

Fremdafrí: Betri heimur framandmannkynja.

Irraður: Villtur viljandi, komið af error, ensku og latínu, irra.

Kundra, so: Koma af stað fjarlægu lífi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 56
  • Sl. sólarhring: 57
  • Sl. viku: 704
  • Frá upphafi: 148287

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 598
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband