Bókagagnrýni: Hin fjögur frćknu og risahákarlinn frá 1990. Óútgefin á Íslandi.

Persónur eru hér margar ţćr sömu og í fyrri bókum. Pepító út Sjávargyđjunni, sem var gefin út á frönsku 1988 en 1989 á Íslandi kemur hér einnig fyrir. Nemó kafteinn úr bókinni 20.000 mílur neđansjávar eftir Jules Verne er fyrirmyndin ađ samnefndri persónu í ţessari bók. Margt í ţessari myndasögu er fengiđ ađ láni ţađan.

Stíllinn er sá sami og á öđrum bókum um Hin fjögur frćknu frá ţessum áratug. Vönduđ frásögn er ekki ţarna heldur bjánaleg, barnaleg og ţó spennandi atburđarás og hröđ.

Teikningarnar eru nokkuđ góđar eins og venjulega, en takmarkađar vegna söguţráđarins, og einfeldningslegar ađ vissu leyti ţar af leiđandi.

Ţađ er engin framför í ţessari bók frá fyrri bókum, eđa frá ţví gćđunum fór ađ hnigna einhverntímann um 1975, ég myndi segja ađ bókaflokkurinn hafi veriđ í lćgđ á ţessum tíma, eđa fram til 1993, ţegar Hin fjögur frćknu og geimverurnar komu út, sem var mun betri.

En sömu kosti hefur ţessi bók og ađrar bćkur um Hin fjögur frćknu. Atburđarásin er hröđ og ćvintýraleg, persónurnar eru litskrúđugar og skrýtnar á sinn hátt, en á sama tíma bjánalegar, enda stílađ inná frekar ungan lesendahóp sennilega ađallega.

Persónusköpunin er međ eindćmum grunn eins og í flestum öđrum bókum um Hin fjögur frćknu. Nokkuđ er um grunna brandara einnig, sem fćstir held ég ađ kunni mikiđ ađ meta.

Fáránleikinn er ţó svo mikill ađ bókin jađrar viđ ađ vera hressileg fantasía, en ţađ finnst mér einmitt ađalkosturinn viđ allar bćkurnar um Hin fjögur frćknu. Ţetta er alltaf gleđilesning, en bođskapurinn rýr og ristir mjög grunnt, ţví miđur, langoftast, en ekki alveg alltaf. Einstaka sinnum hitta höfundarnir á eitthvađ merkilegt og gott.

Ţeir sem elska ţessar bćkur vilja lesa ţessa einnig. Persónurnar verđa viđkunnanlegar, ef mađur safnar ţessum bókum, en 43 bćkur komu út á frönsku og 26 á íslenzku, ţannig ađ Búffi, Dína, Lastík og Doksi verđa góđir vinir og kunningjar ef mađur verđur háđur ţessum bókum, vegna kosta ţeirra, sem eru allnokkrir.

Hin fjögur frćknu ferđast um heiminn vítt og breytt og lenda í sakleysislegum ćvintýrum sem enda vel en fáránlega oft. Ţađ má segja ađ ţessar bćkur auđgi ímyndunarafliđ. Ţćr eru vantmetnar af ţeim sem telja ţćr algjört rusl. Ţćr hafa nokkuđ til síns ágćtis.

Hér eru gamalkunnugleg stef. Loftur verđur blautur og dettur í sjóinn, Lárus ađstođarmađur hans hrósar honum og kemur varla neinu öđru í verk.

Léttir byssubardagar og átök, flugvélar sem hefja sig á loft og alltaf eitthvađ ađ gerast, sem hefur engan tilgang annan en ađ skemmta lesandanum.

Ţessar bćkur hafa sinn sjarma. Ţeir sem kjósa ađeins "vandađar" teiknimyndasögur og alvarlegar missa af skemmtanagildinu viđ ţessar bćkur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 77
  • Sl. viku: 659
  • Frá upphafi: 108415

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 524
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband