Skoðanir rangsnúnar, kerfinu í vil, ljóð frá 22. júlí 2018.

Eftir að rænt hafa huga þínum

hefur þú skoðanir rangsnúnar, kerfinu í vil.

Sigmundur Davíð, aðrir einsog mykja

eiginhyggju og lyga.

Þetta sem hulið er helzt ég skil,

hundarnir út fyrir sviga.

Lifði ég með lostasvínum?

loks mun hart það þykja.

Leiðbeinir sálunum elskandi álfur,

ekki hér drynjandi veröld.

Sinntu öllu sjálfur,

syndin fyllir keröld.

 

Stúlkan er pírati, útlit ókei,

ekki þó gef ég mig svikmennum þessum á vald.

Sorglegt er þetta, það er alveg skýrlegt,

þó ei brotnar vilji.

Borga hér mennirnir mengað gjald,

mjög þókt enn ástæður hylji.

Elska sífellt, segi þó nei,

samlíf dagsins hýrlegt.

Treystu á þinn leiðtoga, rödd sem þar raular,

ríkin þókt hreykist og falli.

Bölið alltaf baular,

byrðar verða að gjalli.

 

Freistingin laðar mig, ef ég yngri

annars hér væri og sá kjáni sem gegndi þeim enn.

Allt er svo gegnsætt, blekking kvenna kvelur,

kærleik finn ég tala.

Finnur þú skárri og skýra menn?

skuggarnir þrífast á svala.

Kemur sökin sorga þyngri,

síðan froðan telur...

Kenndu þeim, drukknaðu ei, haldreipið heldur,

hörð er nóg klikkunin tízku.

Veiztu hvað því veldur?

Varla út af nízku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 38
  • Sl. viku: 564
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 470
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband