Ég var að horfa á gamla James Bond mynd á DVD spólu, eða frá 2015. Fimm árum áður en Covid-19 skall á var hún gerð, en í henni voru ekki Rússar óvinirnir heldur Spectre mafían, sem eins og Bill Gates seldi og framleiddi lyf í myndinni. Eitt af því sem Spectre alþjóðlegu glæpasamtökin ræddu um í myndinni var sala á lyfjum til að valda og viðhalda fíkn í fólki - bæði læknadópi og venjulegu götudópi.
Þetta sýnir hvað lyfjarisarnir veltu háum fjárhæðum þegar myndin var gerð, að glæpasamtök voru talin fara inná þann markað ekkert síður en inná markað vændis, morða og götudópsölumarkaðinn.
Þegar veruleikinn er orðinn eins og samsuða úr James Bond myndum, og klikkaðir kjarnorkubrjálæðingar í spennumynd frá 1964 farnir að minna á vinstrisinnaða Íslendinga sem segja í DV spjallþráðum að ekkert mál sé að nota kjarnorkuvopn til að stöðva Pútín, þá veit maður að Guðjón Hreinberg ætti að vera forseti Íslands eða slíkir menn, hann sem hefur skrifað um sturlun menningarinnar og hrun hennar.
Annaðhvort gjörbreytir mannkynið um kúrs í umhverfismálum og fleiri málum eða ferst. Því miður er erfitt að komast að annarri niðurstöðu.
Þegar veruleikinn er farinn að minna á allar James Bond myndirnar er eitthvað gruggugt á seyði, hlýtur að vera. Ekki er Guð í slíkum veruleika og ekki er mikil góðmennska í slíkum veruleika.
10 milljón Moderna skammtar í vaskinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Jahve er djöfullinn og hann stendur á bakvið öll stríð, og er...
- Sjálfstæðismenn þurfa að sinna menningarmálum meira
- Vinstrimenn ættu að skammast sín, en ekki hægrimenn. Mengun e...
- Dyrfjöllin að Hábraut 4 í Kópavogi - í bernskuupplifun minni
- Endurútgáfa á mínum hljómdiskum, ekki enn orðin að veruleika ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.11.): 89
- Sl. sólarhring: 106
- Sl. viku: 573
- Frá upphafi: 126969
Annað
- Innlit í dag: 77
- Innlit sl. viku: 449
- Gestir í dag: 70
- IP-tölur í dag: 67
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.