30.9.2022 | 00:30
Bólusetningar landsmanna minna á herkvaðningu
Nýr sóttvarnarlæknir hefur alveg sömu stefnu og Þórólfur. Ekki er tekið mark á gagnrýni eða fólki sem kemur með upplýsingar um skaðsemi bóluefnanna. Haldið er áfram að bólusetja að erlendri fyrirmynd. Gagnslítil, skaðleg bóluefni til að auka gróða lyfjarisanna segja margir, en opinberlega eru þau sögð virka og draga úr smitum. Í þessu máli eins og mörgum öðrum er erfitt að ákveða sig og vita hvað er rétt og hvað er rangt.
Ég þekkti Svavar Pétur lítillega sem frétt kom um að sé dáinn úr krabbameini. Hann var með tónleikastað í Austurstræti árið 2010 undir nafninu Havarí, og þegar ég gaf út diska um þetta leyti bauð hann mér að spila þar sem ég þáði. Hann var góður maður fannst mér, og kunni ýmislegt fyrir sér. Ég votta fjölskyldu hans og nánum vinum samúð, heyrði bara af honum í fjölmiðlum síðan. Hans tónlist er sérstök og mun lifa áfram með þjóðinni, sérstakur húmor og sýn á hversdagslífið sem fólk tengir við.
Sumir hér á blogginu hafa fjallað um að tengsl séu á milli Covid-19 bóluefnanna og krabbameinstilfella og það finnst mér ekki ótrúlegt, miðað við að það er verið að hræra í erfðaefnunum á fólki, og einmitt það hlýtur að auka líkurnar á stökkbreytingum og krabbameinum, og ábyggilega einnig mjög mörgum öðrum sjúkdómum.
Einn frændi minn, Sigurður Ingvarsson, dó fyrr en ætlað var úr krabbameini í miðju kófinu. Síðan frétti ég af því að ung kona fékk Covid-19 8 sinnum þótt hún væri margbólusett! Það er margt svona sem fólk veit um og er undarlegt. Þeir sem vilja trúa á bóluefnin gera það hvað sem tautar og raular. Einn vinur minn fékk Covid-19 talsvert eftir bólusetningu, en sagði svo að hann hefði ábyggilega fengið það vægar út af sprautunni.
Málið er bara að umfjöllunin er fullkomlega einhliða á elítufjölmiðlunum. Það er bara Útvarp Saga eða Fréttin sem eru með fleiri hliðar en birtast í þessum vinstristefnufjölmiðlum elítunnar.
Það er býsna skuggalegt hvernig almenningi er stjórnað með ýmsum hætti. Það eru ekki sýndar heimildamyndir á RÚV um rökin með og á móti þessum bóluefnum til dæmis, látið er í veðri vaka að þessi mRNA bóluefni séu ekki nýjung, sem þau eru vissulega.
Kannski er það ósiður að taka of mikið mark á samsæriskenningum. En hinsvegar ef allir væru eins væri ekkert lýðræði, og svo rétt er að halda því á lofti sem reynt yfirvöldin kalla rangt en virkar sannfærandi og gæti verið mikilvægt.
Það er ekki rétt að fólk geti sætt sig við ástvinamissi auðveldlega og þaðan af síður ef eitthvað er hæft í þeim kenningum sem gefa til kynna að margt sé gruggugt í samfélaginu erlendis og innanlands, og sem flestir treysta og þarf að vera í lagi.
En þetta er eins og með kjarnorkuógnina og margt annað sem maður verður að sætta sig við og ræður ekki við, maður vonar það bezta, en maður sér að helstefna er ríkjandi, og margt er ekki sannfærandi sem haldið er að fólki.
Um tvö þúsund bólusett í Laugardalnum í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Það er sama hvað gerist, sjálfseyðing Vesturlanda er á sjálfs...
- Ekkert eða fátt breytt? Hlutverkaleikur? Inga Sæland í gervi ...
- Spænska veikin var af fuglaflensustofninum. Þessa sýkingu þar...
- Okkar vestræna þjóðfélag sem Nató-Kata og Nató-Þórdís Kolbrún...
- Eins og í Bandaríkjunum þarf stuðning þeirra sem ættaðir eru ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 69
- Sl. sólarhring: 188
- Sl. viku: 753
- Frá upphafi: 129868
Annað
- Innlit í dag: 63
- Innlit sl. viku: 574
- Gestir í dag: 59
- IP-tölur í dag: 59
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.