Umhverfisverndarlögin mín fyrstu sem ég samdi næstum öll á unglingsárunum gerðu mig þekktan meðal jafnaldra minna. Mér þykir sérlega vænt um þau. Á seinni árum hef ég einnig gert fleiri umhverfisverndarlög sem tilheyra ekki þessum hópi sem upphaflega voru valin og send á myndbandsspólu til Jóns Ólafssonar, hins góða í Nýdanskri. Þau hafa ekki öll verið gefin út á hljómdiskum, en gott úrval þeirra er á disknum "Blóm, friður og ást" frá 2000, en þar eru fáeinir nýlegri blúsar einnig, samdir 1996 og 1997 og styttir síðar, þegar kom að útgáfu hljómdisksins. "Haltu áfram að trúa á tæknina", heitir einnig slíkur blús og er gagnrýni á veraldarhyggjuna. "Hættum að nota öll eiturefnin" heitir annar blús frá 1997 sem var styttur síðar, ári seinna.
Eitt af þessum lögum birti ég nýlega í bloggi með skýringum, það heitir "Náttúran" og var samið 1. janúar 1988 undir áhrifum frá meistara Sverri Stormsker. Einnig mætti nefna "Engar umbúðir" frá 10. janúar 1984 og "Trén bjarga okkur" frá janúar 1985, eða "Óðzonlagið" frá 2. janúar 1987, eða "Visthrun" frá nóvember 1989.
Þegar ég spilaði lagið og sagði frá því í partýi þar sem ég spilaði 2011 í Hafnarfirði að "Björgunarlagið" hefði ég samið bara 15 ára fannst mér eins og fólk sæi hversu barnalegur textinn er, sem hann vissulega er, en hann er ekki neitt verri fyrir því. Náði ekki Gréta Túnberg heimsfrægð fyrir sömu ákefð og trú á þessu málefni?
Það skiptir ekki máli á hvaða aldri maður semur lögin eða textana. Þetta á að standa fyrir sínu burtséð frá því hvað maður var gamall þegar maður samdi þetta. Björgunarlagið er mjög einlægt, og þótt laglínan sé svolítið lík "Let It Be" eftir Bítlana er hún alls ekki eins.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 13
- Sl. sólarhring: 47
- Sl. viku: 617
- Frá upphafi: 132070
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 510
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.