20.8.2022 | 15:42
Betri tímar vonandi fyrir Grikkland eftir að fjármálaeftirliti ESB með landinu lýkur.
Jón Baldvin Hannibalsson hefur oft verið í ágætum viðtölum á Útvarpi Sögu, þar sem Arnþrúður hefur komið með rökréttar spurningar og viðtölin hafa verið áheyrileg og fróðleg. Í nýlegu viðtali, kannski fyrir mánuði talaði hann um Grikkland og hvernig hann hafi skipt um skoðun varðandi Evópusambandið meðal annars vegna vandamála Grikklands og hvernig vera þess í ESB hefur ekki hjálpað því heldur hefur dvöl þar verið eins og fyrir vímuefnanotanda sem ekki getur hætt að nota dópið sem er að leggja lífið í rúst. Orðalagið er mitt en í fáum orðum mátti skilja þetta á honum þó.
Ef Grikkland hefði ekki verið í ESB þessi tólf löngu og erfiðu ár væri staða þess eflaust betri nú. Minnumst þess einnig að erfitt hefur verið fyrir Breta að losna þaðan út og eftirleikurinn ekki auðveldur.
Er ekki hægt að læra af þessu að sjálfstæði utan kommúnisma og ESB hentar betur öllum þjóðum og löndum?
Stöðnun Grikklands senn á enda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Syndafallið í Biblíunni - Aldingarðurinn Eden tilraunastofa, ...
- Líta femínistar í eigin barm? Er ástæða fyrir bakslaginu?
- Jahve er djöfullinn og hann stendur á bakvið öll stríð, og er...
- Sjálfstæðismenn þurfa að sinna menningarmálum meira
- Vinstrimenn ættu að skammast sín, en ekki hægrimenn. Mengun e...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 47
- Sl. sólarhring: 105
- Sl. viku: 706
- Frá upphafi: 127249
Annað
- Innlit í dag: 31
- Innlit sl. viku: 534
- Gestir í dag: 27
- IP-tölur í dag: 27
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.