6.1.2021 | 15:49
Gallup viðurkennir að Trump er vinsælastur
Þessi frétt gleður alla stuðningsmenn Trumps á heimsvísu. Jafnvel óvinir Trumps treysta Gallup fyrirtækinu sem gerði þessa könnun.
Hvers vegna sigraði hann þá ekki í forsetakosningunum úr því hann er miklu vinsælli en Joe Biden samkvæmt þessari könnun, og vinsælli en Barack Obama? Getur það verið vísbending um að virkilegt kosningasvindl hafi farið fram?
Póstgreidd atkvæði eru auðvitað annað mál en hefðbundin í kjörklefum, og svo allar kosningavélarnar, rafræn meðhöndlun þar sem hægt er að beita brögðum, ef kunnátta og vilji eru fyrir hendi.
Var Djúpríkið þarna á ferðinni?
Stórmerkileg frétt að Donald Trump skuli njóta fylgis meirihluta Bandaríkjamanna þrátt fyrir stöðugan áróðurinn gegn honum.
Hvað Íslendingar gefa upp er ekki alltaf marktækt. Hér ríkir nefnilega mikil vinstrislagsíðuhjarðhegðun, svo það hálfa væri nóg.
Trump hefur breytt heimsmyndinni. Hann er maðurinn sem reynt hefur að berjast gegn spillingu af meiri hörku en aðrir. Kannski var hann sendur af Guði til að bjarga mannkyninu.
![]() |
Trump dáðasti maður Bandaríkjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Hvers vegna gerir ekki ungt fólk á Íslandi uppreisn gegn komm...
- Ég ber hæfilegt traust til beggja kvennanna en efast líka tal...
- Leikritið heldur áfram, þar til blekkingin fellur til fulls
- Sköpunarsaga Biblíunnar, Genesis kemur frá norrænu fólki sem ...
- Fáein orð í keltnesku, gaulversku. Kennsluþáttur í útdauðu má...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.2.): 83
- Sl. sólarhring: 139
- Sl. viku: 807
- Frá upphafi: 137130
Annað
- Innlit í dag: 75
- Innlit sl. viku: 616
- Gestir í dag: 73
- IP-tölur í dag: 72
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.