25.11.2020 | 16:48
Stefnubreyting hjá Svíum, Löfven kallar sænsku leiðina ónothæfa loksins.
Er Stefan Löfven farinn að læra af Svíþjóðardemókrötum? Hann hefur lýst breyttum viðhorfum í veiruvörnum, nú eins og kemur fram í þessari frétt, og áður hafði hann lýst yfir örlítið breyttri stefnu í innflytjendamálum. Anders Tegnell hefur einnig viðurkennt að of margir hafi dáið af farsóttinni í Svíþjóð. Loksins núna verður stefnubreyting, svona seint. Það hefur kostað mörg mannslíf.
Anders Tegnell varð lýðhetja margra ungra og ábyrgðarlausra Svía, sem í bjartsýni sinni vildu trúa því að faraldurinn væri bara ímyndun. Nú eru tvær grímur farnar að renna á heldur marga sem fylgdu þeirri stefnu.
Nú bera margir Svíar myndir af böðli sínum á skrokknum. Það má nú segja að þar sé á ferðinni ákveðin kynslóð, Sorosarkynslóðin sem er í andstöðu við Biblíuna og hefðir fortíðarinnar.
Í ljósi undarlegrar hegðunar margra í nútímanum held ég að fólk ætti að skoða það vel hvort slík hjarðhegðun geti ekki verið fjöldasefjun og andsetning. Mannkynið er eins og svínahjörðin sem Jesús Kristur sendi vondu andana inní, sem hljóp fram af björgum og fyrirfór sér þannig sem afleiðing af því. Ennþá einu sinni lýsa frásagnir Biblíunnar nútímanum betur en flest annað.
![]() |
Löfven: Mjög erfitt en nauðsynlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Verða þínar vélar farnar? Ljóð frá 20. nóvember 2015.
- Það er nauðsynlegt að líta 30 ár til baka til að skilja breyt...
- Sjálfskaði vegna vinstriranghugmynda og narsisismi vinstrisins
- 300 milljónir fyrir einbýlishús í Fossvogi - hús og íbúðir - ...
- Frétt á Vísi tengir morðið á Charlie Kirk beint við transmál
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 22
- Sl. sólarhring: 111
- Sl. viku: 884
- Frá upphafi: 158690
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 593
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.