Ár til að breyta heiminum, þættir í RÚV um Grétu Thunberg.

RÚV hefur sýnt heimildamynd í þremur hlutum um Grétu Thunberg. Dýrðlingsblær er yfir þeim, þar sem hetjan tók sér ársfrí frá skólanum til að bjarga heiminum og mannkyninu með. Ég er ánægður með þessa þætti frá RÚV. Það má vel vera að andstæðingar hennar geri grín að henni, en hún er nú einusinni einn áhrifaríkasti baráttumaðurinn gegn loftslagsbreytingum. (Konur eru líka menn).

Sláandi líkindi eru með Grétu Thunberg sem bjargvætti jarðarinnar og Selenskí sem bjargvætti mannréttindanna. Þessir sérlegu sendiherrar hitta þjóðaleiðtoga og breiða út fagnaðarboðskapinn.

Þegar Gréta talaði fyrir Evrópuráðinu og maður fylgdist með dæsi og andvörpum þeirra sem á hlýddu minnti það óneitanlega á öldungana fyrir senatinu í Róm í Ástríksbókunum, sem höfðu með spillingunni komið sér áfram.

Fjölmiðlar hafa þarna búið til hetjur. Ég er sammála Grétu Thunberg, en samt eins og hún bendir á eykst mengunin sama þótt alþjóðasamningar séu gerðir. Hvað er þá að marka þetta?

Mér fannst býsna gott af Páli Vilhjálmssyni bloggara að benda á líkindin á milli Jóhönnu af Örk og Grétu Thunberg í pistli fyrir nokkrum mánuðum. Þær líkjast, sem helgimyndir alþýðunnar. Það rýrir þó ekki boðskap Grétu Thunberg.


Fenrisúlfur er femínisminn.

Xi Jinping veit að sigur Úkraínu myndi þýða að Bandaríkin gætu næst beint spjótum sínum að þeim. Þótt samskipti Blinkens og hans hafi verið kurteisleg, þá er það samkvæmt stefnu Kínverja, að stuðla að samskiptum og viðskipum, en missa þó ekki sjónar á hagsmunum og markmiðum á sama tíma, sem sagt annað í orði en á borði þegar svo ber undir.

Annars skil ég ekki í Rússum að stöðva ekki innflutning á korni frá Úkraínu til Afríku og annarra landa. Ef þeir vilja knésetja Vesturlönd þá er það sterkur leikur. Ef flóttamannabylgjur verða stærri og tíðari, þá er vafasamt að ósjálfbær stefna Vesturlanda lifi mikið lengur. Pútín hlýtur að vera að stefna að þessu, að Vesturlönd molni sundur vegna innbyrðis átaka og deilna.

Fenrisúlf skrifaði Valdimar H. Jóhannesson um í gær. Fenrisúlfur er táknmynd fyrir femínismann. Fensalir merkir gullhöll eða peningatankur Friggjar. Hún er gyðja femínismans og auðsöfnunar, ríkidæmis, en þessi túlkun ætti að gleðja Magnús Sigurðsson sem hefur fjallað um græðgi og gullþorsta sem aðalástæðu fyrir Ragnarökum.

Fólk á Vesturlöndum er dáleitt, ekki er hægt að láta það bjarga sér eða verða skynsamt.

Þetta er aðalástæðan fyrir því að ég hef kosið vinstriflokka. Nóg er að lesa athugasemdir í DV til að vita að vitfirringin magnast svo mjög í heiminum að ekki er nema ein leið fær: Að hraða þróuninni sem allra mest, og vonandi að eitthvað verði hægt að byggja úr rústunum. Meginþorri Íslendinga virðist vera orðinn svo skyni skroppinn og vitfirrtur að engin leið er til baka, aðeins leiðin áfram í útrýmingu.

Þetta er nokkuð sem fólk þarf að búa sig undir. Frétt í Pressunni í DV ætti að sannfæra um þetta sama: "Segir að baráttan við að stöðva bráðnun jökla sé töpuð".

Athugasemd þar undir er fróðleg, aldrei þessu vant. Auðugasta eina prósentið er með borgir neðanjarðar tilbúnar fyrir sig og olíufélögin. Aðeins nokkur ár í að jörðin verði óbyggileg skrifar sá ágæti maður, maður túlkar athugasemdina þannig.


mbl.is Kínverjar lofað að senda Rússum ekki vopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júní 2023

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 27
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 624
  • Frá upphafi: 159037

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 445
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband