Ég gleymdi að fjalla um margt í fyrri pistli mínum um þetta. Hér eru atriði sem gleðja fjölmarga efasemdamenn um hamfarahlýnun.
Rannsóknir á jarðvegi hafa leitt í ljós með óyggjandi hætti að flóðasögurnar gætu hafa verið byggðar á náttúruhamförum fyrir 8200 árum síðan þegar snögglega kólnaði á norðurslóðum og Golfstraumurinn stöðvaðist næstum alveg. Sagan um Nóaflóðið gæti verið mýta sem byggðist á þessum atburðum fyrir 8200 árum síðan.
Ástæðan er bráðnun norðurheimskautsins og þegar miklar stíflur vegna bráðnandi jökla brustu í Kanada um þetta leyti. Agassiz stöðuvatnið flæddi þá og breytti hafstraumum.
Atburðirnir áttu sér stað í Hudson flóa í Canada fyrir 8200 árum síðan, en fréttir um þetta komu árið 1999 þegar vísindamenn gerðu þessa uppgötvun.
Flóðið af köldu jöklavatni út í Atlantshafið á örskömmum tíma fyrir 8200 árum var 15 sinnum meira en allur straumurinn í Amazonfljótinu, sem þó er gríðarlega mikill. Þetta olli skyndibreytingu á hafstraumum, Golfstraumurinn dó næstum því alveg, en þó ekki alveg að því er vísindamenn telja.
En rúsínan í pylsuendanum í þessu til að gleðja efasemdamenn um hamfarahlýnun er þessi: Áður en þessi ein fjölmargra smáísalda hófst fyrir 8200 árum vegna breytinga á Golfstraumnum þá var HLÝRRA Á JÖRÐINNI EN Í NÚTÍMANUM. Hamfarahlýnun af mannavöldum hvað?
Að minnsta kosti kom þetta fram í heimildamyndinni um "Fyrstu Svíana" á RÚV, í fyrri þættinum, og þar er stuðzt við vísindamenn sem ekki eru taldir fara með fleipur eða vitleysu af neinu tagi.
Á mjög skömmum tíma, kannski innan við 10 árum breyttist loftslagið úr því að vera hlýrra en í nútímanum yfir í að vera svipað og á "litlu ísöld", sem var um 1700. (Hvar voru þá útblástursrörin og mengandi jarðefnaeldsneytið?).
Þarna dóu margir út og lifnaðarhættir gjörbreyttust.
Þessi smáísöld stóð í um það bil 300 ár en síðan hlýnaði á ný allhressilega.
Það er fleira í þessu sem ég vil bæta við.
Ástæðan fyrir því að ísöldinni lauk fyrir 11.000 árum eða þar um bil tel ég vera komu guðanna til jarðarinnar einu sinn enn. Ekki veit ég hvernig þeir létu jörðina hlýna, en þeir gerðu það örugglega.
Sönnunin fyrir tilvist guðanna og gyðjanna er meðal annars í því fólgin að vísindaleg þekking er í Sæmundar Eddu og Snorra Eddu.
Svo segir í Völuspá: (18. erindi):
"Önd gaf Óðinn,
óð gaf Hænir,
lá gaf Lóður
og litu góða."
Vísindalega er þetta þannig útskýrt samkvæmt nútímavísindum:
Fyrir um það bil 10.000 árum - eða meira - komu guðirnir til jarðarinnar í geimskipum sem sköpuðu norræna menn, komu með þá til jarðarinnar. Fyrir þeim fór Lóður. "(Lá gaf Lóður og litu góða)."
Fyrir um það bil 300.000 árum komu guðir Biblíunnar til jarðarinnar í geimskipum og sköpuðu Adam og Evu, og aldingarðurinn Eden var í Afríku frekar en í Súmer. Fyrir þeim fór Hænir. "(Óð gaf Hænir)."
Fyrir um það bil 3.7 billjónum ára - eða meira komu guðir til jarðarinnar í geimskipum sem skópu fyrsta lífið. Það var frumstætt líf. Fyrir þeim fór Óðinn. "(Önd gaf Óðinn)."
Völuspá kemur með þetta í réttri röð, þróunarsögu lífsins á jörðinni og hverjir eru ábyrgir fyrir henni.
Athugum að orðin þýða þetta sem passar við þróunarsöguna eins og vísindamenn segja okkur hana í nútímanum.
"Önd gaf Óðinn", önd þýðir líf, lífsneisti, einfalt líf, ekki vitiborið líf. Það passar við þetta frumstæða líf sem er talið hafa orðið til á jörðinni fyrir 3.7 billjónum ára. Vísindin og Völuspá eru 100% sammála!!!!!
"Óð gaf Hænir", óður er talinn vera vitsmunir, í þessari merkingu í þessari gömlu íslenzku.
Þetta er 100% í samræmi við niðurstöður vísindamanna í dag. Homo Sapiens er talinn hafa þróazt í Afríku fyrir um það bil 300.000 árum síðan. Aldingarðurinn Eden?
Þarna varð apamaðurinn til, og fjölmörg afbrigði hans, en talið er að þessar manntegundir hafi verið dökkar yfirlitum.
"Lá gaf Lóðurr og litu góða", lá þýðir yfirleitt sjór, en talið þýða blóð eða öllu heldur kynstofn í þessari merkingu, göfug ætt manna, konunglegur ættleggur. Litu góða er góður hörundslitur, sem þýðir ljóst litarhaft að öllum líkindum, miðað við að vísindamenn hafa komizt að því að öll blá augu eru komin frá einni formóður, kannski fyrir 10.000 árum. Hver ætti það að hafa verið önnur en heiðin gyðja frá öðrum hnöttum sem gat af sér svo mörg afkvæmi?
Sem sagt, hvað er betri sönnun fyrir því að Völuspá sé "Guðs orð?" Hvað er betri sönnun fyrir því að Sæmundar Edda sé innblásið "Guðs orð?" en að þetta kemur heim og saman við nútímavísindin? Hvernig í ósköpunum áttu heiðnir fornmenn að geta vitað það sem nútímavísindamenn vita nú um þróun lífsins á jörðinni og mannkynsins um BILLJÓNIR ÁRA, hvorki meira né minna?
Og enn fremur: Er þetta ekki vísbending eða sönnun fyrir því að til voru tryllitæki fyrir 9000 árum síðan sem ollu hamfarahlýnun fyrir 8200 árum síðan? Hverjir komu fram með þessa mengandi bíla nema guðirnir í geimskipum, þegar Lóður kom með okkar fornmenn, fyrstu norrænu mennina og germönsku á jörðinni?
Völuspá er Guðs orð. Í henni koma fram vísindi og sannindi, nokkuð sem á eftir að uppgötva og útskýra vísindalega til fulls.
Fram munu koma fleiri svona heiðin kvæði sem munu hjálpa mannkyninu að þroskast og komast á rétta braut, þegar lífstefnan mun sigra, en ekki fyrr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.11.2023 | 03:36
Það hefur að minnsta kosti verið trúað á þrumuguðinn Þór í 5000 ár, ef ekki lengur.
Þeir eru heillandi heimildaþættirnir sem RÚV endursýndi um fornleifafræði í Svíþjóð, "Fyrstu Svíarnir". Því miður eru þættirnir bara tveir. Í þessum þáttum koma fram allar nýjustu upplýsingar um fornleifarannsóknir í Svíþjóð og nýjar upplýsingar miðað við það sem áður var vitað. Þar með er ekki sagt að vísindamenn nútímans viti allt, heldur að fleiri púsluspil eru komin í myndina.
Farið er um það bil 11.000 ár aftur í tímann, og svo næstum fram að kristnitöku og víkingaöldinni.
Margt mjög merkilegt kemur þarna fram. Fyrir þann sem hefur áhuga á heiðni og Ásatrú eða telur sig heiðinn, eða mögulega, þá finnst manni eitt stórmerkilegt sem þarna er sagt frá.
Hægt er að tímasetja hvenær Ásatrú kom fram í sögunni og hvenær Vanatrú kom fram, svona með ákveðinni röksemdafærslu.
Fyrir 11.000 árum þegar ísöldin var byrjuð að hopa voru ekki margir menn sem bjuggu á norðurlöndum. Það voru helzt hirðingjar og safnarar, veiðimenn sem flökkuðu um.
Merkilegt er að vita að þessir hirðingjar voru ljósir á hörund en með brún og blá augu til jafns, og hárið brúnt eða svart en hvorki heiðgult né rautt samkvæmt fornleifarannsóknum.
Þetta ísaldarfólk hefur trúað á Hel sem hina miklu móður. Litið var á hana sem almáttuga gyðju.
Venus frá Willendorf er stytta sem var búin til fyrir um 30.000 árum. Hún fannst í Austurríki. Hún sýnir akfeita konu sem sennilega á að hafa táknað hina almáttugu móðurgyðju og kyntákn. Yfir andlitinu er net, en brjóst og magi þrútinn sem leggur áherzlu á aðalhlutverk konunnar, að eignast börn.
Þessi stytta er kannski bezta upplýsing sem mannkynið hefur um trúarbrögð kynþáttanna og mannflokkanna á ísöldunum. Þá var lífið erfitt, og óléttar konur nánast heilagar, því dýrmætt var hvert barn sem fæddist, þegar dauðinn af völdum kulda og hungurs var ætíð nálægur.
Snorra Edda er annars ein aðalheimild mannkynsins um trúarbrögðin fyrir kristni. Það er vegna þess að það er vísindalega sannað að við Norðurlandabúar og Evrópumenn, Germanir, höfum í okkur meira af genum úr ísaldarfólkinu en aðrir kynþættir. (Neanderdalsmannagen og Cromagnongen). Þessvegna er það rökrétt að okkar trúarbrögð geymi í sér menjar um trúarlíf fólksins á ísöldum, úr því að við erum erfðafræðilega skyldust ísaldarfólkinu. Merkilegt er að Covid-19 herji mest á okkur Vesturlandabúa, eins og það hafi verið búið til sérstaklega til að fækka okkur eða útrýma alveg.
Með þeim rökum að Djöfullinn í kristni geymi í sér eldri trúarhugmyndir sem reynt er að sigra, má segja að djöflan í Ásatrú, Helja, geri það sama, og tröllin. Trúarbragðarannsóknir og trúarbragðafræði eru skemmtileg fræði og mikilvæg.
Nú er það svo að fræðimenn hafa sumir sagt og jafnvel flestir að innan Ásatrúarinnar hafi ekki verið til neitt Helvíti sem slíkt, heldur hafi Helja verið staður þar sem mönnum leiddist.
Einnig hafa fræðimenn mjög deilt um það hvort Helja í Snorra Eddu sé einhverskonar tilbúningur Snorra Sturlusonar, til að herma eftir helvíti kristninnar, Gehennu, sem var ruslahaugar þar sem eilífur eldur brann.
Um þetta verður seint hægt að vita með 100% vissu. Þó er það almennt talið að Snorra Edda sé traust heimild en ekki skáldskapur. Með samanburði við önnur trúarbrögð Evrópu er hægt að finna samsvarandi mýtur sem styðja það sem þar kemur fram.
Því má fullyrða að Helja er ævaforn gyðja og frá ísöldinni eins og ég held fram. Hún var þessi almáttuga móðurgyðja sem styttan sýnir, Venus frá Willendorf.
Vanatrúin kom þar á eftir. Rétt eins og María mey yfirtók hlutverk Friggjar, eiginkonu Óðins með kristnitökunni, og Jesúbarnið yfirtók hlutverk Baldurs á armi Friggjar, þannig yfirtók Freyja frjósemigyðja hlutverk Heljar með sigri Vanatrúarinnar, fyrir um það bil 8000 árum eða jafnvel meira. Freyja hefur því sennilega verið talin akfeit gyðja og tákn um barnsfæðingar og síólétta konu.
Samfara sigri Vanatrúarinnar breyttust samfélögin og bændur komu fram.
Í þessum þáttum var fjallað um að þeir komu sumir í stórum hópum frá Tyrklandi, Mesópótamíu og Asíu, þar sem Tokkaríar bjuggu, germanskir menn í Asíu, sem dóu að lokum út, en sem áttu sér einnig stórmerkilega menningu fyrir margt löngu. Þessi bændasamfélög komu með Vanatrúna að einhverju leyti.
Síðan fyrir um 5000 árum komu Ásatrúarmenn frá Úkraínu, stríðsaxafólkið svonefnda, Yamnaya stríðsmennirnir, sem trúðu á Þór þrumuguð og önnur slík goð. Frá þeim koma um það bil 50 - 70% af genum norrænna og germanskra manna. (Það fer eftir svæðum og einstaklingum, en allsstaðar í hinum vestræna heimi eru þeirra gen í nokkrum meirihluta).
Þeir grófu sína dauðu, og í gröfunum hafa fundizt korn sem tengjast bjór og öldrykkju, framleiðslu á miði, en mjöður og hunang er hluti af Snorra Eddu, enda Óðinn sagður nærast á bjór og engu öðru.
Einnig hafa fundizt í þeirra gröfum stríðsaxir, sem heyra til trúartákni Ásatrúarmanna, Mjöllni, hamri Þórs. Þetta er svipað og að finna kristilega krossa í gröfum kristinna manna þegar allt kemur til alls.
Menning þessara Yamnaya stríðsmanna var herská, þeir komu með stéttaskiptingu og konungsvald í stórum stíl inní samfélögin, trúna á æðri guði og gyðjur, sem oftar en ekki voru stríðsguðir. Baldur er jafnvel talinn hafa verið slíkur stríðsguð á þeim tíma, eins og orðsifjafræðin kennir.
Í þessum heimildaþáttum koma þær upplýsingar sem breyta öllu í sambandi við víkingaöldina og hugmyndir okkar um hana. Þarna kemur fram að víkingaöldin er talin hafa byrjað miklu fyrr en áður var talið, samkvæmt nýjustu upplýsingum, eða fyrir 5000 árum jafnvel, með þessari Yamnaya stríðsmenningu, Ásatrúnni, sem sigraði Vanatrúna, bændasamfélögin og hirðingjasamfélögin fornu á Norðurlöndum.
Vissuð þið að Ásatrúin ríkti í 4000 ár á meðan kristnin hefur aðeins ríkt í 1000 ár á Íslandi og Norðurlöndunum? Þetta eru stórkoslegar upplýsingar og merkilegar.
Þegar ég las það í gömlu kennslubókunum um heiðna trú Íslendinga að margt benti til þess að þegar þetta var loksins skráð niður af Snorra Sturlusyni hafi lítið verið eftir, og jafnvel við kristnitökuna hafi Ásatrúin ekki verið nema leifar af því sem áður var, þá fannst mér það merkilegt, en þessi heimildamynd kemur með þær sömu upplýsingar. Sterk hefur verið trúin á þessi fornu og heiðnu goð úr því að svona mikið var eftir þegar Snorra Edda var skrifuð og þá landið alkristnað á yfirborðinu. Þó var landið heiðið í 200 ár, nokkuð ábyggilega, að langmestu leyti.
Margt annað stórmerkilegt kemur fram í þessum þáttum.
Takið eftir þessu: Eftir því sem fleiri fornleifarannsóknir eru gerðar kemur í ljós að menning Norðurlanda var miklu merkilegri til forna en talið var. Tinnuoddar flóknir og fíngerðir eru taldir hafa verið fundnir upp á Norðurlöndum og borizt til Mesópótamíu og víðar, frá Noregi, fyrir um það bil 7000 árum.
Þannig að ekki er lengur rétt að halda því fram að hámenning hafi aðeins verið í Egyptalandi og Súmer fyrir 6000 árum eða meira. Að vísu hafa hér ekki enn fundizt píramídar eða bókrollur eða meiriháttar hýróglýfur, en hverju var eytt viljandi?
Að minnsta kosti er bilið að smáminnka, og ljóst að þessi samfélög á Norðurlöndum voru skipulögð, og sennilega býsna góð miðað við tímana sem þá voru.
Enn fremur, þeir sem telja að við séum komnir af Hebreum, af ætt Benjamíns, að á einhverju tímaskeiði komu menn til Norðurlanda frá þessum landsvæðum, en erfðafræðilega erum við lítt skyldir þeim þó, eitthvað svolítið samt.
En Forn Íslendingar voru eins og Forn Hebrear, þeir gáfu mannkyninu trúarbrögð, Hebrear gáfu okkur Biblíuna en Íslendingar gáfu heimsbyggðinni Snorra Eddu. Báðar þjóðirnar eru mekka trúarbragða sem eru útbreidd um alla jörðina, þótt Abrahamstrúarbrögðin séu margfallt útbreiddari, svo sannarlega og skipulagðari en trúin á Þór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 29. nóvember 2023
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 7
- Sl. sólarhring: 128
- Sl. viku: 700
- Frá upphafi: 153056
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 543
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar