Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025
23.6.2025 | 00:15
Enn um rétta eða ranga leið biskupsins
Sá sem er höfundur að mikið lesinni skoðanagrein á Vísi er góður vinur minn, greinin heitir:"Þjóðkirkja á réttri leið".
Hann spyr:
"Hvort er kirkjan til fyrir fólkið eða fólkið fyrir kirkjuna?"
Þórð þekki ég vel, sem er höfundur greinarinnar.
Ég get sagt það að hann skrifar þetta til að halda konum góðum í kringum sig býst ég við, en þó þekki ég þarna alveg hans skoðanir um alþýðlega kirkju.
Ég ætla að vitna í Bob Dylan frá 1979, ljóðið og lagið "When You're Gonna Wake Up?"
"Do you ever wonder just what God requires?
You think He's just an errand boy to satisfy your wandering desires?"
Eða svona er þetta þýtt:
Hugsar þú nokkurntímann um það hvers Guð krefst af þér?
Heldur þú að hann sé bara þjónn þinn og senditík sem lætur eftir öllum þínum duttlungum og firrum?
Þetta talar mjög vel inní nútímann.
Eða þetta:
"Adulterers in churches and pornography in the schools.
You got gangsters in power and lawbreakers making rules."
Svona væri rétt að þýða þessar þínur meistara Bob Dylans:
"Hórkarlar í kirkjunum og klám er á boðstólum í skólunum.
Glæpamenn eru við völd og lögbrjótar búa til lög landsins!"
Hórdómur er nákvæmlega vandamál kirkjunnar nú um stundir, Babýlon hin mikla.
Lokalínur pistilsins eftir vin minn eru svona, þótt ekki sé ég sammála:
"Hún (kirkjan) er alltaf á réttri leið þegar hún opnar dyrnar og býður allt fólk velkomið til sín, af hvaða þjóðerni og kyni sem er, hvort sem það er trans eða eitthvað annað. Ef hún gerir það ekki þá hverfur hún okkur og verður með tímanum að engu."
Já þetta er vinsælt viðhorf og það hefur ræður.
En hvernig er þá hægt að svara því að kirkjan minnkar hvort sem kirkjan er opin í báða enda eða lokuð og niðurnjörvuð?
Feðraveldið og hinn karllægi heimur er ekki bara umbúðir utanum kirkju Gamla og Nýja testamentisins, heldur grunnurinn í boðskapnum.
Það er munurinn á gyðjudýrkun heiðninnar og kristni og öðrum Abrahamstrúarbrögðum.
Annars get ég reynt að fagna þessum dauða og ósigri kristninnar og kirkjunnar í eitt skipti fyrir öll, þegar Bafómet sigrar endanlega. Sem heiðingi get ég reynt að taka þá afstöðu og vera sammála biskup og öðrum sem fagna þessum breytingum.
"Er kirkjan til fyrir fólkið eða er fólkið til fyrir kirkjuna?"
Þá má spyrja og þarf að spyrja:
Eigum við að þjóna Guði eða á Guð að þjóna okkur?
Eigum við að breyta Guði þannig að hann verði í okkar mynd eða á Guð að breyta okkur þannig að við séum í Hans mynd?
"Til komi Þitt ríki", segir í Faðirvorinu. Það þýðir, að okkar heimur verði eins og Himnaríki, við þurfum að laga okkur að því sem stendur í Biblíunni, Guð er ekki okkar þræll. (Eða hvað?).
Það stendur í Biblíunni mjög skýrt að "Guði sé andstyggilegt að karlmaður leggist með karlmanni sem kona væri".
Í Nýju Biblíuþýðingunni er reynt að þynna þetta út og nota önnur orð en vera ber. Hinsvegar fer ekkert á milli mála hver boðskapur Biblíunnar er. Það er ekki hægt að misskilja þetta. Þetta stendur í Biblíunni.
Sem heiðingi fagna ég því að búið sé að eyðileggja kristni og kirkju í landinu.
Ég vorkenni kirkjunni, kristnu fólki hinsvegar að þola þetta, og mér hryllir við því að amma og afi snúa sér við í gröfinni og annað fólk sem er lifandi og telur þetta ekki rétt er ekki ánægt.
![]() |
Íslenskar þingkonur hlutu blessun páfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2025 | 00:14
Varmar móttökur Grillarans sem flestir sækja í og trúleysi/trúarbrögð Marxista og annarra afneitara
Reglulega eru pistlar í DV um líf eftir dauðann. Þeir fá misjafnar viðtökur. Sennilega er höfundur þeirra Kristján nokkur Kristjánsson sem nú er farinn að skrifa nafnlaust. Hann allavega gefur sér leyfi til að fjalla um fleira en margir blaðamenn, sem mér finnst áhugavert.
En þarna er því haldið fram að sýnir þeirra sem eru að deyja - eða þá lifna við og snúa við frá dauðareynslu séu einhverskonar ofskynjanir eða haldreipi líffræðinnar til að auðvelda viðskilnaðinn frá jörðinni og holdinu.
Um þetta er bara ekkert vitað með vissu. Vísindamenn vita jú að boðefni fara af stað og segja að boðefnin valdi þessum ofskynjunum. En þetta er eins og með hænuna og eggið, hvort kemur á undan?
Vísindamenn (efasemdamenn um framlíf og allt andlegt eða trúarbrögð) þeir segja að líkaminn sé þannig hannaður að milda dauðareynsluna.
En þá ætti hlutlaus rannsakandi að spyrja einnar augljósrar spurningar:
AF HVERJU?
Ef ekkert líf er eftir dauðann, hvers vegna þarf þá að milda sársauka líkamans sem gengur í gegnum þessar hörmungar, og svo andans, með boðefnum eða taugaboðum sem valda ofskynjunum og minnka sársauka?
Vélfræðingar Marxismans sem halda því fram að ekkert líf sé eftir dauðann hunza að klára dæmið eða takast á við krefjandi spurningar sem þetta vekur. Þeirra guðleysi er kreddutrú og trúarbrögð alveg eins og sú fullyrðing að Jesúsína Kristjanía og Guðríður guðsmóðir og Heilög Andrésína Önd, samkvæmt núverandi biskupínu, taki á móti öllum - nema þeim sem fara niður til Grillarans í barbikjúveizlu syndaselanna.
Já gott að vita að það sé nóg pláss og maður alltaf hjartanlega velkominn til Grillarans ef maður lætur ekki af karlrembu sinni og feðraveldisórum og ranghugmyndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2025 | 02:09
Tvöföldun veiðigjalda er stór liður í að koma okkur í Evrópusambandið
Hætt er við að íslenzkir auðmenn flytji einfaldlega úr landi ef þeir sjá fram á tap í starfi.
Hvers vegna er ríkissjóður skuldsettur? Hvers vegna er dýrtíð á Íslandi svo fáránleg að túristum fækkar og segja hryllingssögur við vini sína og hryllingssögurnar koma í DV sem glansfréttir, þar sem allt er gert að fréttamat, hvort sem það eru sorglegar sögur, réttmætar eða hreinasta erkirugl og hatursáróður?
Er ekki dæmið einfalt? Er ekki heimtufrekjan orðin svo mikil í konum sem vilja jafnhá laun og karlar og svo öllum hinum hópunum sem áður voru hógværir, að verðlag er orðið geðveikt og klikkað og ekkert réttlætanlegt við það lengur?
Jú, þetta virðist blasa við.
Kommúnistarnir og jafnaðarmennirnir þola ekki lengur sjávarútvegsfyrirtæki eða aðrar greinar þar sem auður hefur safnazt fyrir. En það er sama hvernig fólk rembist eins og rjúpan við staurinn, það verður alltaf munur á stéttum, og jafnvel konum og körlum.
Þegar búið er að þurrausa helztu stéttir landsins og svo mestu auðmennina, þá verður sjálfsagðara mál að komast inní ESB, og bíða í röðum eftir goggunarröðinni, að færibandið skili úrlausn, fyrir fólk sem hvorki nennir, getur né hefur vit á að gera eitthvað af eigin rammleik, nema það komi af færibandinu.
Það er alltaf þetta sjálfskaparvíti sem veldur því að stjórnvöld vilja seilast dýpra í stóru vasana. Ríkið er búið að lofa of miklu of mörgum of lengi.
Svona eins og Bandaríkin sem eru á hausnum sem Donald Trump tók við í fangið og getur ekki undið ofanaf loforðaflaumnum frá Joe Biden og hans hyski, því þá verður fólk endanlega galið af reiði og allt logar í uppreisnum! Svona er þetta blessaða lýðræði!
Það eru mjög fáir flokkar eftir þar sem sómi og vit ræður ríkjum, eitthvað annað en lýðskrum. Það örlar á lífi í Sjálfstæðisflokknum, en bara einstaka sinnum, einsog dauðahryglur líksins.
Miðflokkurinn hinsvegar er næstum því í fullu fjöri, en ekki alveg samt.
Hinir flokkarnir eru allir uppvakningar.
![]() |
Styður veiðigjaldafrumvarpið heilshugar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2025 | 04:13
Sjávarguðinn Toutatis
Toutatis er leyndardómsfullur guð. Af honum eru engar myndir til eða líkneskjur nema það sem gizkað er á að gæti verið hann og nafn hans er ekki við, en líkneskjur eru til sem gætu sýnt hann samt, sem ekki eru merktar honum. Samt er nafn hans nefnt í mörgum myndum og útgáfum víðsvegar um Evrópu sem áletranir og ristur á heiðin ölturu, minngarskildi og fleira þannig að enginn vafi leikur á því að hann var einn af meginguðum Kelta og Gaulverja.
Drúíðar lögðu bann við að fræðin yrðu rituð og færð almenningi, leyniregla og launhelgar mætti því kalla þeirra trúarbrögð, en útbreidd voru þau og lifðu lengi, ef miðað er við fyrirrennara þeirra og að þeirra trú hafi verið svipuð.
Nokkuð er ljóst að brennuöld rómverskra keisara til að fela sannleikann og upphefja eigin menningu og persónur bitnaði einnig á Keltum, drúíðum og Gaulverjum. Án efa var mikið um þessi fræði ritað þrátt fyrir bann drúíðanna sjálfra, en það sem til er mun vera í leynihvelfingum Vatikansins eða á öðrum stöðum þar sem safnarar eru sem ekki vilja láta þetta komast fyrir almennings sjónir.
Það eru velþekkt og viðurkennd sannindi að Vatikanið kom miklu undan, og á leynihvelfingar þar sem bæði eru rit og listmunir tengdar frumkristni og sögu kaþólskunnar almennt, en svo líka rit og menningarhlutir sem tengjast þjóðum sem var rænt frá, heiðnum þjóðum.
Bókasafnið í Alexandríu var án efa staðurinn þar sem fræði drúíða komu saman í mestu magni. Hver annar en erkióvinur mannkynsins og drúíða brenndi bókasafnið í Alexandríu, ekki fyrir slysni eins og haldið er fram, heldur viljandi, 48 fyrir Krist.
Þegar Theodosius I. Rómarkeisari bannaði önnur trúarbrögð en kristni 391 var musterum í Alexandríu lokað. Eyðileggingaröfl tímans hafa svo verið margvísleg og haldið áfram. Sum varðveizluöfl hafa þó alltaf verið til, þekkingaröfl og menningaröfl til mótvægis við þessi eyðileggingaröfl og niðurrifsöfl.
En um Toutatis er þó margt hægt að vita þrátt fyrir allt.
Taranis, Esus og Toutatis er ein þrenning af mörgum sem heilagar voru og eru í keltneskri og gaulverskri goðafræði. Matrónurnar er önnur slík þrenning, þrjár mæður sem trúað var á og líkneskjur gerðar af.
Ljóst er því að heilaga þrenningin í kristninni var ekki hluti af menningu gyðinga eða frumkristinna söfnuða, heldur atriði sem síðar var bætt inní til að laða að heiðingjana sem þekktu slíkt úr sínum eigin trúarbrögðum.
En hvað er hægt að vita um Toutatis?
Í ritum á latínu er hægt að lesa um það að fólki var fórnað til að blíðka hann með því að drekkja því. Fræðimenn hafa skrifað um það að ekki er tilviljun að það eina sem varðveizt hefur um trúarbrögð Kelta og Gaulverja er neikvætt, enda skráð af óvinum þeirra. Þannig að þetta er ekki nema hluti af sannleikanum um Toutatis, ekki nema toppurinn á ísjakanum.
En áfram með samanburðinn. Fólk var brennt til að blíðka guðinn Taranis stendur í latneskum ritum um þetta einnig, og fólk var stungið með hnífum og því drekkt til að blíðka guðinn Esus.
Af þessu hafa menn réttilega dregið ályktanir. Esus var og er guð lofts og vinda, Taranis er guð eldsins en Toutatis er guð vatnsins.
Ég er ekki í nokkrum minnsta vafa um það að skozki og írski guðinn Manannán mac Lír er SAMI guð og Toutatis.
Ennfremur er Njörður, Vaninn og norræni guðinn, mjög svipaður guð að einhverju leyti.
Með þessa vitneskju og vissu í farteskinu er hægt að komast áfram og fá góða mynd af guðinum Toutatis.
Fyrst ætla ég þó að koma með rökstuðning.
Welsk og írsk goðafræði er hluti af keltneskri goðafræði. Gaulversk goðafræði er eldri systir, sem samanstendur af nöfnum guða en ekki sögum í heilu lagi.
Í welskri og írskri goðafræði höfum við sögur í heilu lagi.
Ennfremur, norræn goðafræði er skyld. Sum atriði eru svipuð eða afleidd. Norrænar og germanskar þjóðir voru nefnilega MJÖG íhaldssamar í trúmálum. Það ástand ríkti í ÞÚSUNDIR ÁRA! Sömu sögurnar eða svipaðar voru sagðar öldum saman! Og þær taldar heilagar, eins og guðir og gyðjur! Því er alrangt og fráleitt að halda því fram að trúarhiti eða trúarsannfæring hafi verið minni meðal heiðinna manna en gyðinga og kristinna manna, það var ekki þannig, heldur hélt trúarhefðin áfram og trúarofsinn, sannfæringin. Guðir voru taldir HEILAGIR og gyðjur. EKKI mátti breyta neinu, þar sem stéttir presta voru virtar og voldugar, eins og stétt drúíðanna. Nöfn breyttust þó á milli tungumála, en sögurnar voru býsna keimlíkar, þó ekki nákvæmlega eins.
Talið er að Yamnaya innrásarhermennirnir um fyrir um 5000-4000 árum hafi verið Ásatrúar, það sýnir hversu lengi Ásatrúin hefur lifað.
Frakkland var sennilega ekki mikil þjóð sæfarenda á tímum Gaulverja og Kelta. Land þeirra er jú hluti af miðri Evrópu, en þó eitthvað um strendur og því eitthvað um hafsiglingar til forna einnig.
Þó miðað við Írland, þá er hægt að sjá muninn, en Írland er eyja og með haf umlukt. Þarna er að öllum líkindum komin skýringin á því hversvegna Manannán mac Lír er sjávarguð í gelískri goðafræði en Toutatis er ekki sjávarguð í gaulverskri goðafræði, en skýringin er einnig sú að ritaðar heimildir skortir um Toutatis og því þarf að geta í eyðurnar.
Sjávarguðir eru til í flestum heiðnum trúarbrögðum germönskum. Þessvegna má fullyrða að Gaulverjar áttu sér sjávarguð. Sú fullyrðing að hann hafi verið og sé Toutatis er þannig sterkum rökum studd.
Latneskir höfundar fullyrtu að gaulverskir guðir væru líkir þeim rómversku, en notuðu rómversku guðaheitin oft. Þetta gerir málin strembin, en þarna eru samt upplýsingar sem eru dýrmætar.
Talið er að Toutatis hafi verið stríðsguð og að honum hafi verið jafnað við Mars og Ares.
Þá var Toutatis bæði sjávarguð og stríðsguð. Það er reyndar ekki furðulegt, enda gegndu grísku guðirnir oft mörgum hlutverkum og þessir rómversku, tóku þátt í hernaði þókt meginhlutverk þeirra væri oft talið annað. Þetta voru miklar hermennskuþjóðir, og hermennskuandinn var talin karlmennskudyggð, ein helzta karlmennskudyggðin, sem nauðsynleg væri öllum drífandi þjóðum og heilbrigðum, sem ekki væru að veslast upp í aumingjaskap og úrkynjun.
En hér ætla ég að koma inná það sem mér finnst virkilega áhugavert sem að þessu snýr, en það er hugtakið synd og mannlegur breyzkleiki og hvernig það snýr að þessum mikla guði, svo sannarlega, sem heitir Toutatis.
Heimstréð samanstendur af þremur guðum, að minnsta kosti. Taranis er efstur á trjákrónunni, Esus er á stofninum og gætir hans, eða er trjástofninn sjálfur, samkvæmt öðrum heimildum. Toutatis er stundum talinn standa vörð á jörðu niðri, en oft er hann sýndur sem dreki. Í norrænni goðafræði er hann án efa drekinn ógurlegi sem nefnist Níðhöggur og er óvinur alls lífs jafnvel.
Hér höfum við mjög áhugaverða mynd af syndinni.
Manannán mac Lír merkir "sonur sjávarins", eða Manannán Ægisson. Maður Ægisson gæti maður einnig sagt.
Manannán er talið orðsifjalega tengt eynni Mön, en hvað heiti hennar merkir er ekki vitað með fullkominni vissu, en þó talið af ýmsum að annaðhvort sé heiti hennar dregið af guðaheitinu Manannán mac Lír, eða þá að guðaheitið sé dregið af heiti eyjarinnar Mön! Þetta eru þó getgátur en einnig þjóðfræði á þessum slóðum og því ekki hægt að varpa þessu á bug sem vitleysu endilega. Þetta er eins og að spyrja sig: Er Njarðvík nefnt eftir guðinum sem heitir Njörður eða er guðinn Njörður nefndur eftir Njarðvík? Augljóslega er Njarðvík nefnd eftir guðinum sem heitir Njörður, því guðaheitið er eldra en Íslands byggð, og tengt gyðjunni Nerthus sem Tacitus nefndi. Talið er að Nerthus hafi verið systir og eiginkona ónefnds guðs, því þannig var samfélagsgerð Vana og Vanynja.
Manannán þýðir orðsifjalega vatn eða væta, eða það er talið að nafn guðsins sé dregið af þesskonar orðsrót. Einnig gæti það verið dregið af orði sem þýðir fjall eða sögninni að rísa.
Nú er það svo að líkami manna er að mestu leyti vatn. Þetta hafa heiðnir menn vitað. Toutatis er nefnilega samkvæmt sumum sögnum fyrsti maðurinn og fyrsti kappinn.
Manannán mac Alloit eða Manannán mac Alloid eru einnig útgáfur af heiti guðsins Manannán mac Lír. Alloit eða Alloid þýðir jörð eða land, þannig að guðinn er einnig "sonur landsins" eða "sonur jarðar". Ekki ósvipað og Þór.
Athugum annað. Alloid minnir á allur á íslenzku, en Toutatis gæti verið það orð sem var orðið sem orðið tout á nútímafrönsku var myndað af, allur. Toutatis gæti því verið Allur, Guð fjöldans.
Manannán mac Lír var og er mikill guð, haf sitt nefnir hann Mag Mell, sem þýðir yndisleg slétta.
Haf í goðafræði þýðir næstum því alltaf og undantekningalaust geimur stjarnanna, óravíddir himingeimsins.
Manannán mac Lír er því guð framlífsins og framlífsstjarnanna samkvæmt þessu.
Heimfært uppá Toutatis, þá er Toutatis guð framlífshnattanna einnig.
Þó gerist málið flóknara þegar betur er að gáð og skoðað.
Ég tel að orðið maður á íslenzku og man á ensku séu orð sem dregin eru af goðaheitinu Manannán. Maður sér líkinguna þókt merkingin sé ekki eins.
Hversu gömul er gelískan? Afhverju ætti hún að vera eldri?
Svo mikið er víst að gelískan er lifandi mál en gaulverskan ekki, en þetta eru skyld mál, og gaulverskan var töluð fyrir 2000 árum. Þessvegna er gelískan með djúpar og fornar rætur.
Talið er að írskan hafi komið til Írlands fyrir um 2500 árum, en um það er ekki vitað með vissu, en fornírskan er beinn afkomandi fornkeltneskunnar, sem kom af indó-evrópskunni, og það er býsna langt aftur í tímann.
Keltnesk mál eru kentum mál eins og þau germönsku, þar með hin norrænu.
Þar sem bæði germönsk og keltnesk mál tilheyra sömu fjölskyldunni þá hlýtur að vera rétt að álykta að sömu orðin séu til innan þessara flokka en merkingarnar aðrar.
Tilhneiging fræðimanna hefur verið mjög í þá átt að telja svo ekki vera, að orðin séu óskyld og merkingarnar.
Fornleifafræðingurinn Þorvaldur Friðriksson gerði held ég gagn þrátt fyrir allt með bókinni Keltar fyrir nokkrum árum, þar sem hann er einn af fáum sem halda því fram að norræn orð eigi sér keltneskar rætur. Þetta er alls ekki viðurkennt, og ég veit að hann var of djarfur í bók sinni í ályktunum í þessa veru, en þó held ég að eitthvað sé hæft í þessu hjá honum, en ekki eins algengt og hann telur þó.
Mistök Þorvaldar felast í því að hann telur að áhrifin hafi verið beint frá gelísku yfir í íslenzku. Auðvitað var þetta ekki þannig.
Sannleikurinn er sá að germönsk mál og keltnesk þau þróuðust sitt í hvora áttina, ekki beint hvort frá öðru.
Þar af leiðandi koma öll þessi orð frá indó-evrópskunni, frumtungumálinu. Þannig að íslenzku orðin sem Þorvaldur telur ættuð úr gelísku þau eiga sér sameiginlegan forföður í tungumáli sem gæti verið 4000 ára eða meira.
Þetta leiðir það af sér að mörg orð sem hljóma svipað en hafa aðra merkingu, þau eru álitamál, hvort sé eldra, þetta íslenzka eða þetta írska, vegna þess að íslenzka er einnig mjög gamalt tungumál, og ásamt færeyskunni, elzka norræna tungumálið, með beygingum og öllu saman.
Ég fer aðra leið en Þorvaldur Friðriksson að orðsifjum. Ég er einnig áhugamaður, en ég vil frekar sanna fáein orð heldur en að þylja upp mörg orð sem gætu verið af gelískum uppruna.
Ég tel vænlegra til árangur að reyna að rökstyðja eitt orð í einu.
Ásgeir Blöndal staðfestir í orðsifjabók sinni að mannur er upphafleg orðmynd, ekki maður.
Hinsvegar er áhugaverðast það sem Ásgeir Blöndal skrifar, að VAFASAMT sé að orðið sé dregið af indóevrópsku rótinni men, hugsa, eða muna.
Þar með gefur hann undir fótinn kenningu minni, að guðinn Manannán mac Lír sé fremur rótin, og merkingin að mannur sé "vera sem gerð er mestmegnis úr vatni og leir eða jarðefnum". Eða þá "vera sem rís upp af leir jarðar og vatni". Það passar nefnilega við vísindi nútímans.
Orðsifjafræðin enska kennir að man á ensku sé dregið af wiro og hner á gotnesku, heiður, maður.
Man á fornensku var einnig fornafn og þýddi EINN, FÓLK, ÞEIR, eða ÞAU! Þar með er komin MERKING sem minnir á merkinguna á bak við guðaheitið Toutatis!!!
Mannus er síðan guðaheiti sem Tacitus nefnir í Germaníu sinni, svo fornt er orðið eins og þessi umræddi guð.
Ég tel að guðinn Mannus sem Tacitus nefnir sé sami guðinn og Manannán mac Lír og svo Toutatis.
Manu þýðir fyrsti maðurinn á sanskrít. Af öllu þessu er ljóst að orðsifjafræðingar deila um uppruna orðins maður, mandur, mannur, man, manu.
Það að Manannán þýði vatn eða af vatni fæddur á gelísku tel ég allt annað en tilviljun, heldur vísbendingu um upprunalega merkingu þessa orðs. Þennan skyldleika hafa orðsifjafræðingar þó ekki rekizt á eins og ég, eða telja hann tilviljun eina.
Allt er þetta spurning um upprunalega merkingu orðsins man, eða þessarar ævafornu orðsrótar. Ég tel einfaldlega að írskan geymi eldri merkingu en germanska og norræna, en orðið sjálft er varðveitt í báðum málum jafnvel.
Þessvegna fengum við orðið ekki frá Írum, eins og Þorvaldur Friðriksson vill kannski halda fram, heldur var svipað eða sama orð til frá aldaöðli, en merkingin mismunandi.
En ég á það til að verða langorður þegar ég verð ákafur og hef áhuga á einhverju.
Þetta allt eru atriði sem ekki er hægt að sanna eða afsanna 100%, þetta eru líkindi, rök og ályktanir, skoðanir og málvísindi, eða möguleg málvísindi, sumt af þessu gagnslausar ágizkanir.
Ég held að lesendur eigi nóg með að melta, meðtaka og skilja þann fróðleik sem ég hef veitt nú þegar. Því er gott að hætta hér. En ég er með bók í smíðum um Toutatis eins og um Esus. Ég á erfitt með að klára svona mikil bókmenntaverk, því heimildir skortir, og þetta er erfitt verk, sérstaklega að gera þetta vel svo aðrir láti sannfærast. En lesendur þessa pistils sjá þó á skrifum mínum að ég er metnaðarfullur að vinna að þessu verkefni eins vel og mér er unnt, og vil frekar leita sannleikans og efast en að vera alveg sannfærður.
Ef hinsvegar skýringar mínar standast, þá er það mikil framför bæði fyrir málvísindi og goðafræði og menningu almennt.
Þetta efni er þess eðlis að það er þungt og fyrir fræðinga fyrst og fremst. Þó er það einnig áhugavert fyrir alla sem vilja kynna sér þetta og jafnvel koma með nýjar kenningar og uppástungur, eða ágizkanir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég lærði félagsfræði og sálfræði í menntaskóla. Þar lærði ég þessa aðferðafræði, að búa til kenningar um ýmislegt í samfélaginu.
Sumir halda að það sé einhver klikkun í mér að kalla femínisma glæp gegn mannkyninu, en það er þvert á móti úthugsuð kenning hjá mér.
Það sem hefur verið að gerast í vestrænni menningu síðastliðna áratugi snýst um að fækka fólki. Ég lít þannig á að það sé ekki tilviljun.
Vinstrimenn líta gjarnan svo á að maðurinn skapi framtíðina sjálfur og enginn guð sé til. Þá er tilviljun komin í stað guðs.
Þór er þannig lýst að hann sé guð sem drepi tröll og sé guð storma og þrumuveðra. Jafnvel uppskeru og regns.
Í nýlegri bók Ingunnar Ásdísardóttur fjallar hún um margar hliðar jötna og trölla og spyr sig og lesendur hvernig megi túlka þessar fornu bókmenntir.
Grikkir og Rómverjar áttu sér Títani, forna guðafjölskyldu sem rekin var niður í Tartarus fyrir grimmd og afbrot.
Mér virðist ljóst að tröll og jötnar hafi upphaflega verið þannig fyrirbæri meðal norrænna manna.
Auk þess fóru norrænir menn að kalla þá menn tröll sem þeir voru óvinveittir, suma framandi útlendinga og afbrotamenn innan samfélagsins.
Síðan má lesa í táknfræðina. Kona Þórs er Sif. Orðið þýðir ætt, kynstofn eða skyldleiki.
Vopn Þórs er Mjöllnir, orðið þýðir annaðhvort sá sem molar og gerir að mjöli eða sá sem er mjallhvítur eins og geislasverðin í Star Wars, sem mér finnst sennilegri skýring.
En stundum hefur rún sem líkist hakakrossi verið tengd við Þór og vopn hans.
Fornmenn tóku ekki útlit og kynþátt af léttúð. Þessvegna var Þór einn af vinsælustu guðunum.
Á okkar tímum þegar úrkynjun og léttúð eru allsráðandi er Þór einnig öflugur. Þetta er hans aðferð til að refsa okkur.
Guð Biblíunnar held ég að sé enginn annar en Loki Laufeyjarson, sem nefndur er Satúrnus á erlendum málum, eins og latínu.
Þetta þýðir að Ásatrúin er ekki í ósamræmi við kristnina, heldur er þarna fullt samræmi á milli og fullkomin samvinna að sama markinu, að útrýma syndinni og skapa hið fullkomna líf.
Ef maður lítur á geiminn þá kemur í ljós að meirihluti hnattanna hýsir ekki líf.
Maðurinn er ekki guð.
Mannréttindafrömuðir og fræðimenn úr háskólunum hafa verið nokkurskonar spámenn mannkynsins í marga áratugi. Gelding og mengun náttúrunnar eru niðurstaðan.
Samningur var gerður á milli hinna heiðnu guða og guðs Biblíunnar um að fylgja meginreglum sem halda mannkyninu á lífi og snúast um kúgun og ofbeldi, feðraveldi og slíkt.
Ef við erum "tröll" þá hefur guðinn Þór 100% leyfi til að útrýma okkur með velmegun, femínisma, mannréttindum og slíkum aðferðum.
Fólki er fjarstýrt. Fólk hefur aðeins þær skoðanir sem eigendurnir vilja.
Það gerist ekkert á jörðinni sem er ekki stjórnun.
Frjáls vilji er eins og að hafa vitund um að mann dreymi og að hafa áhrif á drauminn.
Maður getur haft frjálsan vilja, en það er ekki eins algengt og sumir halda, því fólk er yfirleitt á teinum eins og járnbrautalest.
Kirkja núverandi biskups er húmanísk.
Sósíalismi og vísindahyggja héldust í hendur. Með frönsku byltingunni og stofnun Bandaríkjanna spratt þessi hreyfing út.
Kirkjan slakaði á valdataumunum og gerði þau mistök að uppfæra ekki vísindin, taka ekki mark á Brúnó og Galíleió. Það hefði síður spillt valdi kirkjunnar að uppfæra veraldlega heimsmynd en að leyfa mannhyggju og húmanisma, og femínisma að sigra.
Ég hef endurskoðað afstöðu mína til kirkjunnar á fyrri tíð og viðurkenni nauðsynleika kúgunar og að jafnrétti ríki ekki.
Þessi afstaða er röklegs eðlis og ég er leiður og dapur að veruleikinn skuli vera svona, en því verður ekki neitað.
Þegar ég fékk opinberun frá Jahve, guði Biblíunnar fyrir nokkrum árum, þá lýsti hann þessu sem hefur gerzt, að Ísrael styrkist og hann "fer yfir löndin, eitt eftir annað".
Aðeins Guð er góður. Það merkir að sá góðleiki mannsins er andstyggilegur Guði sem ekki er útskýrður sem leyfilegur, eins og að elska Guð og náungann. Í því felst ekki þetta sem prestynjurnar gera, að setja sig í Guðs sæti.
Þegar fátækt og eymd verður einnig hlutskipti hástéttanna hér á Íslandi eins og annarsstaðar, þá munu hinar fornu aðferðir aftur ríkja, feðraveldið. Karlmenn eru líkamlega sterkari en konur, og þá mun það aftur gilda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2025 | 01:43
Halla forseti fellur mér vel í geð miðað við þjóðlega en hófstillta ræðu hennar í gær
Margt hefur maður nú heyrt og lesið neikvætt um Höllu forseta, eins og að hún sé kapítalisti og WEF sendiboði (World Economic Forum). Mér er svo sem sama um það og ræðan sem hún flutti í gær fannst mér betri en ræður margra annarra forseta.
Það skal ég útskýra svona:
Ég skal upplýsa það að ég kunni aldrei mjög vel við Vigdísi Finnbogadóttir, fyrsta kvenforseta okkar og einn frægasta kvenforseta heims. Mér fannst hún uppskrúfuð, snobbuð og stíf, svo formföst að það var óþægilegt að hlusta á hana.
Ég man ekki mikið eftir Kristjáni Eldjárn, og hafði engar skoðanir á honum því ég held ég hafi varla haft skoðanir á pólitík þá, ég var svo ungur þegar hann hætti.
Það sem litaði skoðanir mínar á Kristjáni Eldjárn og Vigdísi forseta var það sem amma sagði, Sigga amma, Sigríður Tómasdóttir. Ég man bara að hún hrósaði Kristjáni mikið og sérstaklega þó eftir að Vigdís var kosin. Ég fann andúðina á Vigdísi forseta frá fólkinu sem ég ólst upp hjá, því hún er kona og þótti til vinstri, en það þótti sjálfsagt á mínu æskuheimili að Albert Guðmundsson yrði forseti eða Guðlaugur, en allra sízt kona, það þótti bara ekki hæfa, og enn verra var að hún var einhleyp og vinstrisinnuð. Þetta hafði vissulega mótandi áhrif á mínar skoðanir.
En mig rámar í ræðurnar hans Kristjáns, og þær voru hlutlausar eins og ræðan hennar Höllu var í gær, ef ég man þetta rétt. Hann talaði um náttúruna, sjálfstæðið og þjóðleg gildi, hefðirnar og trúna. Þessvegna minnti hún mig á Kristján sem mér fannst gott og mikill kostur.
Þá kem ég að þeim forsetum sem flestir muna eftir ennþá og voru á undan Höllu, það er að segja Ólafur Ragnar og Guðni.
Guðni er ágætisnáungi, en ég þoldi ekki hvernig hann tönnlaðist á því í ræðum að hér væri allt fullt af rasistum og óþolandi fólki, þegar það var alls ekki vandamál. Mér fannst hann leggja þennan hluta þjóðarinnar í einelti sem hefur sterkari þjóðerniskennd en aðrir og tjáir hana.
Halla forseti hefur því miður stundum minnt á Guðna með þetta, en í gær fannst mér ræðan hennar fullkomlega laus við þetta rugl, hún var almenn, hún talaði um kærleika og þjóðleg gildi eins og forsetar eiga að gera, og Halla forseti lagði engan þjóðfélagshóp í einelti, hvorki útlendinga né (sanna eða ímyndaða) rasista né aðra.
Að lokum á ég eftir að bera Ólaf Ragnar Grímsson saman við Höllu forseta. Auðvitað er Ólafur Ragnar Grímsson stórveldi í íslenzkri pólitík og það er ekkert einfalt að fjalla um hann. Hann hefur átt mörg skeið og mörg andlit rétt eins og Bob Dylan eða Bubbi Morthens og Megas.
En mér fannst það fyndið hvernig hann mærði útrásarvíkingana um 2007, því mér fannst það fyndið að hann sem vinstrimaður var þá ekki hrifinn af kapítalisma.
Annars var Ólafur Ragnar kannski okkar bezti forseti, þegar hann hjálpaði til við sjálfstæðið og baráttuna við óréttláta Icesafesamninga og slíkan ömurleika.
En ræðurnar hans voru held ég misjafnaðar að gæðum. Þær voru oft staðlaðar, oft útblásnar af þjóðrembingi, stundum með vinstristefnuívafi, en oftast bara mjög góðar.
Halla forseti er venjuleg og alþýðleg. Það finnst mér mjög skemmtilegur kostur við hana.
Aðeins Ástþór Magnússon hefði verið betri forseti, nú á þessum stríðstímum, þegar hans boðskapur er brýnni en nokkrusinni fyrr.
![]() |
Katrín Halldóra er fjallkonan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2025 | 16:33
Umbúðir og innihald
Að þessu sinni tek ég ekki þátt í neinum hátíðahöldum valdaræningja. Íslands hrun hefur verið lengi að eiga sér stað og birtist bezt í þeim skorti á uppeldi sem börn hafa fengið, skorti á aga, sérstaklega reglum feðraveldisins.
Kvennakirkjan reis til sigurs með samstöðu kvenna sem hafði þróazt vegna samstillingar þeirra sem er þeim meðfædd, eða áunnin í gegnum alda og aldatuga kúgun. Sigur karlaveldisins verður því aðeins tryggður að nýju með samstöðu karla sem byrjar í þögn inni á heimilunum og blómstrar svo opinberlega í æðstu stöðum eins og vera ber.
Það er fyrir löngu búið að eyðileggja 17. júní og gera innihaldslausan, umbúðirnar einar og ekkert innihald. Í staðinn er Satan fagnað í öllum hans myndum eins og við vitum.
Maður á ekki að taka þátt í því sem er skrumskælt. Það er hægt að láta eins og það sé ekki til, eins og það sé loftið tómt, sem það auðvitað er.
En beztu og stærstu sigrana vinnur maður með kærleika og með því að fyrirgefa óvinunum eins og Kristur sagði.
Bandaríkin sem eru svo oft á undan, þau hafa sýnt með Trump stjórninni að maðurinn rís upp eftir að hafa verið barinn með Metoo, femínisma og wók-barefli.
Næsta skref er að Vesturlönd klofni endanlega, segi sig úr ýmsum samtökum, gangi í BRICS, eða eitthvað álíka.
Þannig verða skörp skil.
![]() |
Veröldin er svo sannarlega ekki fullkomin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimildin segir frá því að fjölgun Covid-19 smita fari fjölgandi og minni á fyrri bylgju. PCR prófin leiða þetta í ljós.
Bent hefur verið á að þetta staðfestir enn að bóluefnin gerðu ekkert gagn, fyrst þessar bylgjur Covid-19 smita halda áfram.
Ég missti vini á Fésbókinni þegar ég fór að eignast bóluefna-andstæðinga-vini hér og tjá mig um þetta. Það fannst mér hart og óréttlátt. Ég er einfaldlega þannig að ég tek sjálfstæðar ákvarðanir og hneigist að samsæriskenningum. Hjarðhegðun er mér lítt að skapi.
Kúgun ríkir í þessu þjóðfélagi fyrst fólk hræðist valdið.
Mafíur eru margar á Íslandi og þær tengjast erlendum mafíum. Vil ég minnast á menningarmafíuna, skólamafíurnar, og allskyns snobbstéttamafíur.
Er það skrýtið að þjóðin sé klofnari eftir allt þetta? Og heimsbyggðin öll líka?
![]() |
Tvöföldun á Covid-19 greiningum milli vikna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2025 | 00:29
Hells Bells, það eru kirkjuklukkurnar í nútímanum
Ég las um það í DV að kvenprestur einn í Svíþjóð vildi taka niður krossa til að þóknast múslimum.
Vesturlönd eru 100% úrkynjuð. Þór stendur á bakvið þessa aðgerð. Við erum tröllabeita. Fólk fer til Helvítis og til sífellt verri víta, og til þess er þetta að gerast, því að lokum deyr út sjálfur lífsviljinn í framlífinu og fræði dr. Helga Pjeturss hætta að virka, þegar lífsviljinn þurrkast endanlega út, fólk vaknar í myrkri og eignast ekki börn.
Hversvegna hætta konur á Íslandi að vilja eignast börn?
Sjálfsfyrirlitning þeirra er orðin 100%. Sálirnar dauðar, allt lagt í rúst og Háskólarnir taka þátt í því, félagsfræðin, skólarnir.
Annars nenni ég ekki að ræða þetta lengur. Ég vildi bjarga heiminum, en gafst upp á því, ég fæ hvorki vinsældir né ríkidæmi til að verða sá frelsari sem þarf.
![]() |
Varar við boðun villutrúar biskups |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2025 | 00:31
Ég gleðst þegar konur eins og Jóhanna Jakobsdóttir, höfundur góðrar Vísisgreinar vaknar af uppvakningastefnu wóksins.
"Þeir vökulu og tungumálið" er snjöll og góð grein um wók-sýkinguna sem herjað hefur á heimsbyggðina allnokkuð lengi, og mætti telja þá heimsfarsótt ekki skárri en cóvíðshryllinginn.
Höfundurinn er Jóhanna Jakobsdóttir MPM verkefnastjóri með meiru og greinin birtist á Vísi, en ég frétti um hana þegar DV fjallaði um þau hörðu viðbrögð sem hún fékk, bæði stuðning og óánægju þeirra sem enn hengja sig í þessa hugmyndafræði.
Eins og Jóhanna fjallar um þá á wók uppruna sinn í "bakherbergjum félagsfræðideilda bandarískrar akademíu" og er um 50-60 ára gömul. Bloggarinn og sálfræðingurinn ágæti Arnar Sverrisson hefur þó skrifað enn meira og jafnvel betur um þetta efni, en grein Jóhönnu er þó alveg prýðileg og tekur mjög vel á þessu líka.
En eins og stendur í grein Jóhönnu þá átti þessi vitleysa aldrei að sleppa útúr háskólunum bandarísku, það stóð ekki til, en gerðist út af því að Netið kemur ýmsu á flot sem átti ekki að fljóta upphaflega.
Já, wók er mikið stjórnlyndi, Jóhanna fjallar vel um það.
En ég hef þó samúð með Hallgrími Helgasyni rithöfundi og öðrum sem hafa tekið ástfóstri við wókið, því það var auðvitað í góðri trú. Það er alltaf svo óþægilegt þegar maður uppgötvar að það sem maður hélt að væri rétt það byggðist á einhverri vitleysu eða hafði miður góðar afleiðingar og er því ekki réttlætanlegt við nánari skoðun.
Ég held að ég hafi þroskazt með aldrinum. Það merki ég á því að mér finnst ég minna dómharður en áður, en samt er ég reiðigjarn og get verið hvass.
En ég merki þetta á því að ég vil ekki lengur taka harða afstöðu þegar stríðsátök geisa, ég er farinn að átta mig á að það breytir voðalega litlu þótt maður tjái sig, og maður vissulega ekkert betri einstaklingur fyrir vikið.
En finnst engum það skrýtið að fleiri en 100 hafa fallið í Íran en einungis rúmlega 10 í Ísrael, ef RÚV hefur réttar tölur á hreinu? Er þá rétt að tala um stríðsátök? Er hér ekki um að ræða yfirgang Ísraels? Nema er hægt að sanna þessa kjarnorkuhættu frá Íran?
En aftur að wókinu.
Skyldi það vera rétt sem margir halda fram að wókið hafi komið Donald Trump til valda, því demókratar hafi wókað yfir sig?
Já, ég held að ýmislegt sé hæft í því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 48
- Sl. sólarhring: 100
- Sl. viku: 575
- Frá upphafi: 149611
Annað
- Innlit í dag: 41
- Innlit sl. viku: 451
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar