Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025

Tilveruréttur fólks

Það eru líflegar umræður undir DV pistlinum:"María Rut um mótmælin í gær:"Í handbók popúlistans er þetta atriði númer eitt"."

Flestir eru mjög ósammála Maríu Rut og Metoofólki, og No borders fólki.

Þó eru nokkrir og nokkrar innanum sem hata sjálfa sig og sína þjóð af innileika og minnimáttarkennd svo engu er líkt.

Það fólk margendurtekur oft að allir séu nazistar sem voga sér að vera ósammála þeim, og að allir nazistar eigi ekki tilverurétt.

Samt er þessi frasi aftur notaður af góða fólkinu "að rasistar berjist gegn tilverurétti fólks."

Svo ég vitni í orð Maríu Rutar:"Orðinn meðal annars vanur höggunum sem beinast gegn tilverurétti fólks."

Og svo einn í athugasemdum:

"Hættið að láta eins og allar hugmyndir eigi rétt á sér. Við erum ekki vinir á morgun í vinnunni ef þú telur þig geta mótmælt tilveru rétti einhvers."

Er þetta ekki kallað að búa til strámenn, að gera öðrum upp skoðanir og berjast við strámanninn?

Það er mjög sterkt að tala um að mótmælendur vinstrisins mótmæli tilverurétti fólks. Hver er það sem gægist inní hugskot sitt og finnur slíkt hatur í garð náungans? Margur hyggur mig sig?

Flestir þessara svonefndu rasista sem mótmæla taka það skýrt fram að þeir séu ekki rasistar. Í því felst þá að þeir séu ekki að mótmæla komu fólks til landsins á grundvelli litarháttar heldur að misjafn sauður sé í mörgu fé og að kanna þurfi bakgrunn og taka betur á móti mörgum heldur en illa á móti alltof mörgum.

Jafnvel þó að sumir séu rasistar, að aðhyllast skilgreiningar byggðar á útliti og jafnvel hatur og andúð af þeim sökum, eru EKKI á móti tilveru þeirra sem líta öðruvísi út, vilja bara heldur að slíkt fólk sé í öðrum löndum.

Þannig að þessi fordómur og fyrirframsannfæring vinstraliðsins um að "rasistar berjist gegn tilverurétti annarra" er margfaldlega rangur fordómur og á sér mjög litla stoð í veruleikanum. Þarna er verið að dæma stóran hóp út frá skoðunum og jafnvel hegðun örfárra.

Þetta gerir auk þess málstað þeirra ógagn.

En svo maður útskýri nú og skilgreini hvað tilveruréttur er, þá á það orð við um allt annað og er yfirleitt notað af andstæðingum fóstureyðinga og þungunarrofs. Hverskonar allsherjarrugl er þetta að nota þetta orð í röngu samhengi?

Tilveruréttur, það er rétturinn að vera til. Fólk sem er á móti tilverurétti þeirra sem nú þegar eru lifandi vilja væntanlega slátra öðrum. Fáir tjá sig þannig og fáir hegða sér þannig, enda lenda þá í steininum.

Hvernig væri að María Rut og hennar fólk fari að líta í eigin barm? Rasistar eru almennt hlynntir tilverurétti en ekki vinstrafólk ef grannt er skoðað, til dæmis litið á verk Vinstri grænna í síðustu ríkisstjórn og frjálsari reglur um þungunarrof sem þá voru samþykktar, því miður. Hinseginfólkið er allavega ekki að stuðla að tilverurétti ófæddra barna sinna með líferni sínu hvort sem það gerir það óviljandi eða viljandi, þannig að þessi orð eiga ekki við um rasista, nema þeir gerist brotlegir við lögin.

Auk þess þá held ég að rannsóknir hafi sýnt það að vinstrafólk er almennt hlynntara fóstureyðingum og þessvegna er margföld ástæða til að benda á hvaðan hugmyndafræðin kemur "að vera á móti tilverurétti annarra".

Þessi frasi um að rasistar mótmæli tilverurétti annarra hlýtur að vera bein vísun í Helförina, frægasta dæmið um rasisma og eina dæmið sem margir vilja þekkja, en snúa útúr því herfilega og nota sem klisju sem brátt fer að snúast á hvolf vegna fáránleikans og einfeldninnar við þá ofnotkun.

Mín skoðun er sú að margt af því sem kennt er við mannréttindi sé bara misskilningur. Ef fólk telur sér trú um að allir hommar hafi verið óhamingjusamir inni í skápnum fyrr á öldum þá gefur það ekki öðru séns, það gefur ekki veruleikanum séns, að litrófið hafi verið fjölbreytilegra fyrr á öldum. Þetta er ákveðið fortíðarhatur og svartsýn sjón á fortíðina sem á ekki rétt á sér.

Tölur um sjálfsmorð sýna að þau eru svipuð eftir tímaskeiðum. Sú fullyrðing að hommar og lesbíur hafi framið sjálfsmorð fyrr á öldum meira en núna hún er hreinlega mjög hæpin og byggist á tilfinningum, löngun til að lifa ákveðnum lífsstíl og láta ekki að stjórn.

Ég er bara ekki sammála því að hommar og lesbíur í skápnum hafi verið svona óhamingjusöm eins og sagt hefur verið. Það er frasi og mantra, fyrst og fremst.

Það verður að meta þjóðfélagið eins og gangverk klukku. Stærstur hluti hinseginfólks fyrr á öldum var í hjónabandi og eignaðist börn með fólki af gagnstæðu kyni. Það má líta á þannig tölfræði sem meðmæli með feðraveldinu. Það er sigur að eignast afkvæmi, þvingað eða óþvingað.

Um tilfinningar verður fátt vitað með 100% vissu þessa fólks fyrr á öldum.

Aðalástæðan fyrir því að María Rut berst gegn þjóðernissinnum er að það er hreyfing sem í heildina vill annan lífsstíl en hún kýs eða telur sig bundna að vera í. Hugsjónir um þjóðerniskennd eru fallegar og allir ættu að geta tekið undir þær sem ekki eru í einhverri unglingauppreisn krónískri. Ég tel jafnvel að andstaðan gegn Sannleikanum og Lífinu og Veginum eins og Jesús Kristur boðaði sé rót hinseginleikans en ekki öfugt, fólk telur sig vinna að frelsi en finnur helsi.

Og þó má sjá að tízkan kemur í bylgjum. Með fullri hreinskilni get ég sagt að það kom mér á óvart að Donald Trump skyldi vinna kosningarnar 2016 og síðan aftur í fyrra.

Margir eru hræddir við þessa tízkustrauma sem eru and-líberal, and-frjálslyndir.

En ég er nokkuð viss um að það hafi takmörkuð áhrif að reyna að hafa áhrif á fólk.

Allavega reyndi ég að syngja lög um Adolf Hitler og gegn femínisma, en það hafði ekki þau áhrif sem ég vonaðist eftir, ég varð ekki Bob Dylan Íslands. Ég mældi ekki að það hefði nein áhrif á þjóðfélagið.

Eins er með þessa Hitlers-haturs pistla góða fólksins og rasista-haturspistla þeirra. Þú breytir ekki heiminum þannig.

Tízkan heldur áfram að fara í hringi og stundum snýst hún gegn manni, stundum með manni.

Auk þess vísaði hún í að deila og drottna með því að dreifa ótta, það væri númer eitt í handbók popúlista, sem eru reyndar bæði til vinstri og hægri. Vil minna á orð Arnars Þórs og annarra, sem segja að vinstrimenn geri það mest, til dæmis með því að valda loftslagskvíða og ótta um hamfarahlýnun og ísöld.

Þetta eru atriði sem ég trúi á ásamt vinstrisinnunum, svo ekki er þetta allt svo einfalt og svarthvítt.


mbl.is Stefndi í árekstur mótmælenda á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar til skynjum Esus og hans dans, ljóð frá 5. maí 2021.

Tekur inn og leggur þar á vonir, vinur kyssir,

vörnin trauðla þessi sýki, eitur, gjörðin...

Ef þú rífur húsið hans,

hættir framtíð sú.

Fjarri grætur fullreynd jörðin,

fjarska góðar brautir missir.

Bjáninn montinn brýtur sér af,

brúðir féllu í kös.

Blásið er loks boði þér af,

bara fyrir ös.

Gegn þér líka getur boðið dans

góður Esus, trú.

 

Gráar þar á brautarteinum samúð sinna ekki.

Sjá þó hvernig reglur láta táknið birta...

Þær sem lifðu í húsi hans

hafa fórnað sér.

Ekki þetta aldna, virta,

aðeins það sem lofar hlekki,

kemur þar og kálar fylgi,

kennir ekki sig.

Gullsins þókt sig gerð nú ylgi,

getur skaðað þig.

Þar til skynjum Esus og hans dans,

ekkert virkar hér.

 

Kemur valdið systrum frá er segja trauðla meira?

Sjálf er tízkan þannig, eitthvað nýtt og betra?

Menning er í húsi hans,

heimur sem þó féll.

Niðurrifið vill þig vetra,

veiztu að frúrnar munu ei heyra?

Held mér þó í Völu vísu,

vil því lofa nóg.

Síðar finnum Chaos, krísu,

kannski drukknun, sjó.

Meiri en Kristur, Esus og hans dans,

eftir margan skell.

 


Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.6.): 131
  • Sl. sólarhring: 133
  • Sl. viku: 813
  • Frá upphafi: 147759

Annað

  • Innlit í dag: 117
  • Innlit sl. viku: 639
  • Gestir í dag: 110
  • IP-tölur í dag: 108

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband