Það er margt sem ógnar velmegun hér á Vesturlöndum. Til dæmis náttúruhamfarir, að Afríka og Asía eru að taka framúr efnahagslega, öldrun þjóðanna og fleira.
Hvergi eins og hér á Vesturlöndum fá samkynhneigðir og hinseginfólk eins mikið af sínum kröfum og réttindum samþykkt og í okkar heimshluta. Það er þakkað með því að ofsækja feðurna og karlmennina og íhaldsfólkið sem er kristinnar trúar sem gat af sér mannréttindin með því að leyfa frjálslyndið hér í margar aldir, ömurlegar.
Ég held að Þorbjörg og fleiri samkynhneigðir ættu að líta á málin í stærra samhengi, og sjá að bakslag verður óhjákvæmilega í svona málum þegar þjóðum almennt fer hnignandi eins og þjóðum Vesturlanda.
Þannig er til dæmis eitt alveg augljóst, en hún virðist ekki átta sig á því.
Múslimar fjölga sér meira en góða fólkið og íhaldssamir menn eins og Snorri Másson, eða í stuttu máli sagt: Múslimar fjölgar sér hraðar en innfæddir Vesturlandabúar.
Það þýðir að eftir nokkra áratugi verða þeir í meirihluta, en fólk eins og hún í minnihluta.
Nóg er að líta til Bretlands þar sem nafnið Múhameð er algengast. Bretland er ekkert einsdæmi með þetta.
Þegar sharíalög verða ríkjandi á Íslandi eftir kannski 20-30 ár þá verða kvenréttindi horfin og réttindi svona minnihlutahópa.
RÚV er að grafa sína eigin gröf sem og annarra landsmanna. Línuleg dagskrá mun brátt heyra sögunni til. Fólk sækir í netmiðla í fólk sem er sömu skoðunar. Heilaþvottur RÚV heyrir brátt sögunni til.
Sumir sem tala um mannréttindi vilja engar umræður, bara eina skoðun. RÚV tekur þátt í því. Að þola ekki gagnrýni, það er leiðin að fasisma, eða það er fasismi.
![]() |
Heitar umræður í Kastljósi: Mér bregður pínulítið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.9.): 62
- Sl. sólarhring: 163
- Sl. viku: 531
- Frá upphafi: 156543
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 446
- Gestir í dag: 48
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning