12.8.2025 | 04:16
Ljóðmælandinn sem ekki er skáldið, mörg málefni sem gott er að reifa.
Þegar ég samdi lög fyrir hljómplötuna "Við eigum að samstillast öll", frá 2003, þá hyllti ég Evrópusambandið og Samfylkinguna, því mér fannst það passa við viðfangsefni plötunnar og ég fann þessa sannfæringu hjá mér og það kom mér á óvart, en ég hef oft skipt um skoðanir í gegnum ævina.
Þetta hugtak dr. Helga Pjeturss, samstilling, það hefur í sér fólgið ýmislegt, bæði er til samstilling á þjóðernislegum grundvelli og alþjóðlegum, eins og Samfylkingin vill.
Ég hef valið að gefa út þessi jákvæðu inngöngulög í Evrópusambandið á plötuna:"Við eigum að samstillast öll", (frá 2003), í endurútgáfu hennar, en veit ekki hvort ég hef efni á þeirri endurútgáfu á næstunni.
Stundum bila snúrur og hljóðnemar. Það getur truflað upptökur. Þannig var þetta allavegana einn daginn, 1. janúar 2005, en þá endurgerði ég það sama daginn. Þannig var það þegar ég tók upp fyrir plötuna:"Frá stjörnunum berst lífið" í janúar 2005. Prufuupptökur eru þetta eða demó, en samt útgáfuhæft.
Sagan á bak við þessa plötuþrennu nær að minnsta kosti tíu ár aftar í tímann, en frá 1995 eru til býsna mörg lög sem ég samdi um málefni Nýalssinna og Nýals. Það gerði ég næstu árin einnig og hafði gert fyrir 1995. Það var þó ekki fyrr en 1998 þegar ég samdi lögin "Við eigum að samstillast öll", "Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?" og "Frá stjörnunum berst lífið", sem hjólin fóru að snúast. Þau fengu strax góðar viðtökur á tónleikum og ég áttaði mig á því að þarna hafði ég sett saman vinsæla smelli.
Öll þessi lög voru spunnin fyrir framan hljóðnemann þegar ég var að prófa segulbandstæki sem ég keypti í Sportmarkaðnum. Nema það, að þau eru öll leikandi létt og textinn smellpassar við laglínurnar, sem sagt að textar og lög voru samin á sama tíma án þess að neitt væri skrifað niður, fyrr en eftir á.
Það gerir lögin oft liprari fyrir vikið. Ef ég treð saman kvæðum og set lög við getur útkoman orðið stirð og með of mörgum gripum, sem sé ekki mjög söngvænt kvikindi, heldur frekar gott ljóð eða kvæði í kvæðabók eða ljóðabók.
Pælingin var strax árið 1998 að búa til plötuþrennu. Þar átti hvert þessara laga að verða titillag, með von um að þær myndu seljast með lögum sem fólk þekkti af tónleikum, nema ég hef ekki oft spilað á tónleikum samt, en þó eitthvað og þá fengið gott klapp fyrir þessu þrjú lög og jafnvel blístur.
"Hið mikla samband" frá 1999 seldist mest ásamt "Blóm, friður og ást", frá 2000, og svo "Við eigum að samstillast öll" frá 2003.
Þegar ég samdi lögin á plötuna "Frá stjörnunum berst lífið", mikið til í október 2005 og svo ekki síður í janúar 2005, þá sveigði ég frá nýölskum málefnum einnig, eins og 2003, eða bætti öðru við, en þá samdi ég lög um hjónaást, barneignir og samkynhneigðar ástir jafnvel, til að vera í takt við tímann, og semja eins og Bubbi Morthens, til að verða vinsælli, en þessi lög hafa aldrei heyrzt, ekki ennþá, en að því kemur síðar.
Ástæðan fyrir því að ég blandaði þessum málefnum inní var sú að ég túlkaði svona orðið "lífið", það er að segja framlengingu lífsins með ástum hjóna, eða ekki framlengingu, þegar sama kyn er. Ég vildi auk þess vera nútímalegur, en árið 2008 þegar ég samdi lögin á "Ein hjúskaparlög fyrir alla", þá tók ég að vísu báðar hliðar, og einnig gagnrýni á þetta fyrirbæri, og tel það enn rétt að hafa skoðað málin frá báðum hliðum, annað finnst mér ekki passa og flótti frá veruleikanum.
Ég held að ég hafi gert mistök í fortíðinni að gefa út of mikið af lögum sem flokkast undir þjóðfélagsgagnrýni. Fólk vill ekki heyra þannig tónlist, heldur froðu og léttlyndi, að tónlist virki eins og vímuefni og veruleikaflótti.
Allavega er mikil ánægja með þessi lög sem ég setti á Netið í sumar og eru hluti af upptökulotunum 2003 og 2004, þar sem ég tjái ást mína á Evrópusambandinu og að við ættum að fara þangað inn. Mér leið allavega þannig þegar ég samdi lögin.
Þegar maður er tónlistarmaður er einn dýrmætasti hæfileiki sem maður getur haft eða tamið sér að þjálfa að fara eftir vilja fólksins.
Það hefur verið ágætt fyrir mig að blogga. Hér hef ég fengið útrás fyrir íhaldssamar hægriskoðanir en þagað meira um hinar, sem eru hluti af mér einnig, á miðjunni og til vinstri.
Ég er allavega nokkuð viss um að ég myndi kynna eitt svona lag um ánægju með Evrópusambandið sem ég samdi 2003 og láta það fljóta með á tónleikum núna, í bland við eldra efni sem fólk þekkir, ef það hefur ekki gleymt öllum gömlu lögunum mínum.
Það er kannski skrýtið, en andrúmsloftið í þjóðfélaginu er mjög mikið svona, ánægja með ríkisstjórnina, Viðreisn og Samfylkinguna og jafnvel ESB. Ég læt hrífast með og rifja upp þessa gömlu tónlist mína frá 2003 þegar ég var þessarar skoðunar. Þetta eru hressileg og gleðjandi lög, tónlist sem lyftir upp andanum og gleður. Maður efast kannski eftir á, en tónlist sem hefur góð áhrif er meira en heimskulegur texti, það er skemmtileg laglína og flutningur sem líka skiptir máli.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.9.): 61
- Sl. sólarhring: 82
- Sl. viku: 779
- Frá upphafi: 156942
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 635
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þú hefðir það örugglega miklu betra fjárhagslega, ef þú hefðir gert eins og Bubbi Morthens að selja sálina fyrir vinsældir á sínum tíma, en að mínum dómi valdir þú rétt og ég held að þér LÍÐI mun betur fyrir vikið. Ég var mjög hlynntur ESB á þeim tíma sem þú nefnir þarna, en ég sá að ég vissi bara ekki nóg um sambandið til þess að geta myndað mér upplýsta skoðun um ESB. Þetta varð til þess að ég FÓR AÐ KYNNA MÉR ESB ALMENNILEGA og niðurstaðan var sú að ég snérist um 180º í afstöðu minni til ESB. Þetta dæmi ætti að sýna að maður á ekki að vera bundinn af skoðun sinni og sérstaklega ekki ef skoðunin er tilkominn vegna SKORTS Á ÞEKKINGU.......
Jóhann Elíasson, 12.8.2025 kl. 12:00
Já við erum sammála um að Bubbi Morthens er lýðskrumari. Mér finnst mjög dýrmætt að ræða við þig um það, því ekki margir eru sammála því. Um ESB er ég tvístígandi. Pabbi er Samfylkingarmaður og margir í minni föðurfjölskyldu. Það er reynt að hafa áhrif á mig í þá átt, toga mig í þá átt. Jón afi er látinn, sem var mjög andvígur slíku. Ég er enn að reyna að finna mína afstöðu í því máli.
Beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 13.8.2025 kl. 03:07
Já Ingólfur þetta með ESB er snúið mál. Ég hélt að ALLIR sem voru að segja manni hitt og þetta um sambandið væru að segja það af því að þeir VISSU það en það kom bara í ljós að "einhver" hafði SAGT þeim þetta, þá komst ég að því að til að fá "öruggar" upplýsingar þá yrði ég að leita þeirra sjálfur og bera þá sjálfur ábyrgð á vitneskju minni um málefnið. Maður á ekki að taka við vitneskju um hluti EINGÖNGU frá öðrum og byggja ALLA sína vitneskju á upplýsingar frá öðrum, sama hversu vel maður treystir viðkomandi......
Jóhann Elíasson, 13.8.2025 kl. 09:08
Ég hef þroskazt eins og þú. Innst inni veit ég að ESB hefur gert Evrópu fátækari. En ég á vini og kunningja sem eru ESB sinnar, dr. Gunni hefur stundum reynzt mér vel og Svavar Knútur. Ég er að reyna að vera sammála þeim. Sem tónlistarmaður verð ég að hugsa um bransann og ferilinn. Annars tek ég mikið mark á Gunnari Rögnvaldssyni með þetta og fleirum hér, þér til dæmis. Hann er rökfastur og hefur rökstutt vel gallana við ESB. Þínir pistlar eru líka góðir um það.
Já ég er að reyna að taka mark á mörgum, ekki bara sumum.
Beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 13.8.2025 kl. 16:58
Þakka þér fyrir góð orð í minn garð Ingólfur þau kann ég vel að og sérstaklega þar sem þau koma frá þér, ég hef kunnað vel að meta þín skrif og sérstaklega hef ég verið hrifinn af mörgum ljóðunum þínum. En að öðru það er mín reynsla að maður á að taka mörgu sem maður les með fyrirvara og mér hefur fundist koma best út að kynna sér hlutina sjálfur og mynda sér skoðun út frá því. Þú veist nú sennilega mína skoðun ég er kannski einum of mikið á móti ESB til að menn eigi að "kokgleypa" allt sem ég segi en það getur verið leiðarvísir fyrir einhverja.......
Jóhann Elíasson, 13.8.2025 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.