23.7.2025 | 02:55
Nú eru vísindin á okkar jörð farin að gera sumt raunverulegt sem stendur í Snorra Eddu
Fáir hafa botnað í því hvernig guðinn Heimdallur er sagður sonur níu mæðra, og menn hafa gizkað á öldurnar, Ægis dætur, en það er tilgáta og annað ekki.
Síðan gerist það núna næstum 1000 árum eftir að þetta var skráð og 2000 árum eftir að þessi trú stóð í blóma að vísindin eru komin á þann stað að þetta er hægt, að einstaklingur fái erfðaefni frá mörgum mæðrum.
Er til betri sönnun fyrir því að Snorra Edda og Sæmundar Edda eru Guðs heilögu orð og heilög ritning eins og Biblían?
Er til betri sönnun fyrir því að guðirnir í Valhöll eru raunverulegir og gyðjurnar í Valhöll?
Goðafræði er eins langt frá því að vera skáldskapur og hægt er að ímynda sér. Mýturnar í Biblíunni eru sambærilegar við mýtur annarra trúarbragða, auk þess sem þær eru komnar úr heiðnum trúarbrögðum og umbreyttar.
Goðsagnir eru raunverulegar frásagnir í grunninn. Ef maður trúir kenningum Erichs von Däniken, þá er þetta mjög vel skiljanlegt, að guðirnir séu geimfarar.
Goðsagnir eru raunverulegar frásagnir frá örófi alda um æðri mannkyn sem komu hingað til jarðarinnar og sköpuðu lífið, mennina, jurtirnar og dýrin.
![]() |
Börn með erfðaefni þriggja einstaklinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.7.): 26
- Sl. sólarhring: 98
- Sl. viku: 528
- Frá upphafi: 152597
Annað
- Innlit í dag: 21
- Innlit sl. viku: 371
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning