30.6.2025 | 01:55
Leikarinn sem ekki var tekinn alvarlega og ekki fékk nógu alvarleg og virðuleg hlutverk að reyna sig við, Peter Sellers, snillingurinn í gríni
Í Bókasafninu næst mér var gefins DVD mynd um ævi leikarans Peter Sellers. Hann verður að teljast einn bezti grínleikari allra tíma ásamt Ladda og nokkrum öðrum.
Maður veltir því fyrir sér hversvegna Peter Sellers var ofbeldishneigður eiginmaður og óhamingjusamur í einkalífinu. Í kvikmyndinni um ævi hans skín berlega í ljós að hann þjáðist alla ævi af minnimáttarkennd og nagandi kvíða og efasemdum um sjálfan sig. Slíkt getur kallað upp ofbeldishneigð í fólki auðveldlega.
En annað skín einnig berlega í ljós í heimildamyndinni leiknu, eða ævisögulegu kvikmyndinni vönduðu um hann, Peter Sellers var snillingur, sem leikstýrði einnig og skrifaði handrit, og það er hann sem á mesta heiðurinn af frægð myndanna um Bleika pardusinn.
Það eru til margskonar grínleikarar. Mestmegnis má skipta þeim í tvo flokka:
1) Eftirhermur sem eru litlausir leikarar. Trúðar öðru nafni.
2) Snillingar sem lifa sig inní hlutverkin og endurskapa þau. Laddi er dæmi um slíkt og Peter Sellers, eða Pálmi Gestsson, en bæði hann og Peter Sellers hafa lýst því að raddbeiting sé eitt mikilvægasta atriðið.
Til að verða framúrskarandi grínleikari þarf maður að vera snillingur sem tekur eftir smáatriðum og kækjum hjá fólki. Peter Sellers og Laddi gátu þetta báðir.
Þetta er eins og með Sverri Stormsker.
Hann er drepfyndinn því grín hans nær svo djúpt, hann er snillingur eins og þessir fyrrgreindu menn.
Það er mjög áhugavert að velta fyrir sér endalausum rifrildunum á milli Peter Sellers og Blake Edwards, manninum sem leikstýrði myndunum að Bleika pardusinum og skrifaði handritin - en leikarinn Sellers litaði myndirnar með persónuleika sínum, og skrifaði handritið að myndinni "The Romance of the Pink Panther", sem hann dó frá áður en hún fór í framleiðslu.
Í leiknu heimildamyndinn kemur vel fram að Peter Sellers virti Blake Edwards, en vildi fá meiri virðingu frá honum.
Segja má að Peter Sellers hafi aldrei fengið þá virðingu sem hann þráði bæði sem manneskja og alvarlegur leikari. Hann ólst upp við fullkomnunaráráttu í foreldrahúsum og það átti eftir að fara illa með heilsu hans, auk þess sem hjartasjúkdómar drógu báða foreldra hans til dauða svo það var í ættinni hjá honum.
Mér finnst sorglegast að Blake Edwards og Peter Sellers gerðu engar myndir um Bleika pardusinn frá 1965 til 1974, eða um 9 ára skeið. Margar frábærar myndir hefðu litið dagsins ljós ef ósættið á milli þeirra hefði ekki stöðvað þá í að eiga samskipti.
Það er líka skrýtið að þessi afburðaleikari sem Peter Sellers var fékk ekki krefjandi hlutverk til að spreyta sig á nema stundum, og jafnvel á löngum köflum ævi sinnar hafði lítið að gera, og fékk varla nein hlutverk að spreyta sig á. Þannig var það áður en þrjár síðustu myndirnar um Bleika pardusinn voru gerðar frá 1975 til 1978.
Enginn leikari hefur náð tökum á Inspector Clouseau eins og Peter Sellers. Nú hefur það komið í fréttum að Eddie Murphy ætli að leika hann í nýrri mynd sem stendur til að framleiða. Ég er sæmilega bjartsýnn um árangur hjá honum, enda er hann yfir meðallagi góður grínleikari, en snillingur eins og Peter Sellers er ekki bara vandfundinn, hann fæðist ekki nema sjaldan og slíkir menn fara kannski ekki allir í leiklist.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 36
- Sl. sólarhring: 107
- Sl. viku: 763
- Frá upphafi: 150445
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 536
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"The Party" með Peter Sellers í aðalhlutverki undir leikstjórn Blake Edwards er ein af uppáhalds gamanmyndum mínum. Klósettrúlluatriðið er meðal bestu grínatriða í sögu kvikmynda og sjónvarps og mörg fleiri atriði í þeirri mynd eru ógleymanleg.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.6.2025 kl. 03:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning