24.6.2025 | 17:32
Jafnvel óvinir Trumps viðurkenna sigur hans. Einn glæsilegasti Bandaríkjaforsetinn frá upphafi
Þessi sigur Trumps á Írönum er til marks um sigur kreddubundinnar kristni, en þannig eru stjórnvöldin í Bandaríkjunum.
Það ætti þá að hafa áhrif á löggjöf í mörgum löndum, frá frjálslyndi til kreddu og bókstafstrúar.
Um það bil allt sem gerist eru vélabrögð Hrungnis, sem er Jesús Kristur öðru nafni, eða gervigreind. Þar á bakvið eru þó mannkyn sem eiga okkur, einstaklingar sem sitja fyrir framan tölvur, og stjórna okkur mannfólkinu.
Við erum tröllabeita og okkur er eytt. Sigur kristninnar er sama og sigur femínista og demókrata, því demókratar og repúblikanar eru undir stjórn sama vættarins. Samt eru undirdeildir og undirmenn sem berjast um að stjórna okkur, etja saman fólki og fylkingum.
Þessi ósigur Írana þýðir í raun "hægfara útrýming líklegri", ögn líklegri, en ekkert þó pottþétt endanlega í því efni.
Sá sem reynir að skilja þversagnir Abrahamstrúarbragðanna týnist alltaf í völundarhúsi.
En hvað mína trú áhrærir, segir spekingurinn að nær ekkert sé til um heiðnina nema frá frímúrurum og kaþólskum.
Það nægir. Sannleikurinn lætur ekki að sér hæða. Hann minnir á steinvölur eða perlur eða gimsteina sem skína í moldinni. Maður er ekki skyldugur að stunda trúboð.
Lygarar og menningarræningjar byggja á sannleikanum, en raða hlutum vitlaust upp. Það er eins og púsluspil. Maður þarf að finna réttu brotin.
Ég vil óska öllum kristnum mönnum til hamingju með sigur Trumps. Var það ekki Guðmundur Örn sem kallaði Trump Kýros og vitnaði í Biblíuna að hann yrði sigursæll samkvæmt einhverjum versum í Biblíunni? Eitthvað rámar mig í það.
Ekki þarf að fela þennan sigur Trumps neitt eða kalla hann öðrum nöfnum, þetta er sigur strangtrúaðra kristinna manna, og ég er hálft í hvoru ánægður með það og óska þeim innilega til hamingju. Það er trú sem amma og afi höfðu.
En þótt sverðin séu slíðruð, er ég hræddur um að heiftin hafi sízt minnkað, og að víða sé hægt að búast við hefndum og grimmdarverkum.
![]() |
Sendi Trump hálfgert ástarbréf fyrir fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 184
- Sl. sólarhring: 186
- Sl. viku: 652
- Frá upphafi: 149866
Annað
- Innlit í dag: 157
- Innlit sl. viku: 538
- Gestir í dag: 141
- IP-tölur í dag: 138
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning