Varmar móttökur Grillarans sem flestir sækja í og trúleysi/trúarbrögð Marxista og annarra afneitara

Reglulega eru pistlar í DV um líf eftir dauðann. Þeir fá misjafnar viðtökur. Sennilega er höfundur þeirra Kristján nokkur Kristjánsson sem nú er farinn að skrifa nafnlaust. Hann allavega gefur sér leyfi til að fjalla um fleira en margir blaðamenn, sem mér finnst áhugavert.

En þarna er því haldið fram að sýnir þeirra sem eru að deyja - eða þá lifna við og snúa við frá dauðareynslu séu einhverskonar ofskynjanir eða haldreipi líffræðinnar til að auðvelda viðskilnaðinn frá jörðinni og holdinu.

Um þetta er bara ekkert vitað með vissu. Vísindamenn vita jú að boðefni fara af stað og segja að boðefnin valdi þessum ofskynjunum. En þetta er eins og með hænuna og eggið, hvort kemur á undan?

Vísindamenn (efasemdamenn um framlíf og allt andlegt eða trúarbrögð) þeir segja að líkaminn sé þannig hannaður að milda dauðareynsluna.

En þá ætti hlutlaus rannsakandi að spyrja einnar augljósrar spurningar:

AF HVERJU?

 

Ef ekkert líf er eftir dauðann, hvers vegna þarf þá að milda sársauka líkamans sem gengur í gegnum þessar hörmungar, og svo andans, með boðefnum eða taugaboðum sem valda ofskynjunum og minnka sársauka?

Vélfræðingar Marxismans sem halda því fram að ekkert líf sé eftir dauðann hunza að klára dæmið eða takast á við krefjandi spurningar sem þetta vekur. Þeirra guðleysi er kreddutrú og trúarbrögð alveg eins og sú fullyrðing að Jesúsína Kristjanía og Guðríður guðsmóðir og Heilög Andrésína Önd, samkvæmt núverandi biskupínu, taki á móti öllum - nema þeim sem fara niður til Grillarans í barbikjúveizlu syndaselanna.

 

Já gott að vita að það sé nóg pláss og maður alltaf hjartanlega velkominn til Grillarans ef maður lætur ekki af karlrembu sinni og feðraveldisórum og ranghugmyndum.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ekkert er vitað um hvaða hvatar eru að baki boðefna í líffræðinni, eða þá í hreyfingu og ákvörðunum RNA/DNA sem stjórnar allri okkar líffræði, ekkert er vitað um hvaða veldur öldrun, eða að við hættum að vaxa, eða hvaða hvati setur hormónana í gang svo við verðum kynþroska eða hvaða hugsanir og duldir hafa áhrif á "virkjun" þeirra við t.d. snertingu þ.e. að snertin frá röngum aðila getur valdið þér viðbjóði meðan sama snerting, eða hugmynd um snertingu, getur haft þveröfug áhrif.

Því dýpra sem farið er í efnislegan veruleikann sem Marxistar og Fasistar (vinstri og hægri stjórnvaldsfólk) nánast tilbiðja trúarlega, því óljósara er hvort efnið er yfirleitt til.

Til að mynda; hvað er það í líffræðinni sem fer í gang vegna ofskynjunar, frekar en öfugt - þ.e. orsakasamhengið þarna á milli er ekki ljóst. Því allt sem í vitund fæðir af sér eða eflir merkingu, á einnig tengingu í líffræðinni - Marx/Fasistar vilja niðurrífa allar slíkar vangaveltur, því þeir vilja vera einráðir um merkinguna.

Það er bilað fyndið, þegar maður hugsar út í þessi mál, hversu auðvelt er að svara efnishyggjunni og valdhyggjunni og falsvísindum þeirra, miðað við hversu fáir virðast nenna því eða treysta sér til þess.

Tökum einfalt dæmi: Ef Darwinisminn er réttur, hvar eru þá allar stökkbreytingarnar sem hann treystir á, og hvar er öll sú frjósemi sem hann þarfnast í tilviljanakenndum nýjungum til að geta beitt hinu svokallaða náttúruvali; ekkert af því er til. Þvert á móti er til fjall "sannana" fyrir að Darwinisminn er raungusegð, en þeir sem hafa sannað það - meö vönduðum og ítarlegum vísindaritum eru kyrfilega þaggaðir.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 22.6.2025 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 577
  • Frá upphafi: 149485

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 451
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband