Sami vandi, þitt er þannig, ljóð frá 23. október 2018.

Lít ég yfir löndin týndu,

löngun misst og orðin köld.

Alltaf sömu álagsprófin,

aðeins skárra viðbragð þræla?

Þreyta vaknar, rægjast rófin?

Rolur kjósa stæla.

Síðan koma syndagjöld,

sorgir þig oft brýndu.

 

Beitzkju vil ég banda þangað,

bara ei hanga á snauðum stað.

Slítur tengslin, engar ættir,

eða kynni framar, maður.

Lítur aðeins lygasættir,

leiður verður staður.

Að hafa uppi á henni er kvað

hefur mig oft langað.

 

Þolinmóður vildi verða,

var þó fyrir höfnun sú.

Oft er sök í sjálfsins ranni,

síðan nóg að þiggja gjafir.

Lausir endar, kvennakanni,

kreddufestur, tafir.

Ekki kemstu alveg nú,

eflist reiði gerða.

 

Sami vandi, þitt er þannig,

þú ef skánar ekki næst.

Vinna sízt í sínum málum

súrar tapsins dömur okkar.

Yfir sigri eiturs skálum,

ógn þá vekja flokkar.

Verður bara óð og æst,

enda gildir mannssig.

 

Þókt að öndin skryppi úr skrokki

skrattakollan lagazt sízt.

Ætt svo mun ég minni hafna,

mælir það og yfir lítur.

Næst er einnig næs að kafna,

nauðvörn eins og skítur.

Loksins til þín blesan brýzt,

búin á því skokki.

 

Þókt að einhver ævi deili,

ekki kannski af viti lagt.

Hún við aðra hentistefnu

Hirðir ekki virðingu mína.

Faðir loksins fer á Hrefnu,

fílar trauðla þína.

Hvað nú annars svo er sagt,

silast uppi á Keili?

 

Mannssig: Afturför einstaklings, að síga, fara aftur.

Keilir, fjallið, er notað fyrir tákn um erfiðleika sem tekizt er á við.

 

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 16
  • Sl. sólarhring: 95
  • Sl. viku: 580
  • Frá upphafi: 148428

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 446
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband