8.6.2025 | 18:34
Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
Í dag á heilagur andi að hafa komið yfir lærisveinana. Heilagur andi sannleikans er ekki í Biblíunni nema að hluta til þannig að þetta er rangnefni. Þrenningin kemur án efa úr drúízku og keltnesku eða öðrum heiðnum trúarbrögðum. Það eru til svo margar heiðnar og heilagar þrenningar, ég veit ekki með vissu hvort hin kristna komi úr þeirri keltnesku, en mér finnst það sennilegt.
Nýja testamentið er sennilega áróðursrit fyrir flavíönsku keisarana í Róm. Annars hefði því verið eytt. Um þetta má lesa á Netinu.
Uppstigningardagur er líka tilgangslaus hátíð nema hún eigi sér heiðnar rætur. Merkilegra væri að ræða um það þegar Kristur á að hafa verið í Helju þar á milli.
Það stíga ALLIR upp til himna eftir dauðann, sumir til Vítis og aðrir til góðra hnatta, þetta kennir dr. Helgi Pjeturss og lesa má um í Nýölum hans. Úrelt kristnin er því aðeins áróður eins og margt annað.
Nýalsvísindin byggjast á vísindum en ekki Biblían.
Ég verð að minnast afabróður míns hér á afmælisdegi hans, en hann er einn af þessum stóru í lífi mínu. Ingvar Agnarsson fæddist 1914 í Stóru Ávík á Ströndum, hefði orðið 111 ára í dag, og er það á öðrum hnetti, en lézt 23. maí 1996.
Mikið þurfti hann að þjást þegar hann var orðinn gamall og lasburða. Ekki skildi ég hvernig hann gat bælt reiði sína og sett saman falleg kvæði. Ég vissi hvað hann þurfti að þjást og líða eins og Kristur.
Mér fannst Ingvar Agnarsson frændi minn miklu raunverulegri Jesús Kristur en sá sem fjallað er um í Biblíunni.
Ég er enn þeirrar skoðunar.
Ég veit um afrek frænda míns.
Kristni er trú sem byggist á því sem ekki er hægt að sanna. Betra er að byggja trú á einhverju sem er sennilegt, eða maður veit eða vissi um.
Vegna þess að Ingvar frændi fór á móti fjöldanum þurfti hann að þjást og líða, eins og Kristur, eins og Brúnó. Þjáningar raunverulegra persóna, þær geta búið til dýrðlingamynd.
Ennþá höfum við Íslendingar ekki lært af því sem Ingvar Agnarsson kenndi. Laun syndarinnar er dauðinn. Sá dauði getur verið endurtekin vítisvist, eða andlegur dauði.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 85
- Sl. sólarhring: 135
- Sl. viku: 812
- Frá upphafi: 150494
Annað
- Innlit í dag: 45
- Innlit sl. viku: 565
- Gestir í dag: 42
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ingólfur Sigurðsson! Kristin trú byggist á SANNFÆRINGU eða VISSU sem Guð getur gefið þér persónulega, þegar og ef, þú sækist eftir því.
Sjáðu þetta:
Trúin er fullvissa um það, sem menn vona, sannfæring um þá hluti, sem eigi er auðið að sjá. Fyrir hana fengu mennirnir fyrr á tíðum góðan vitnisburð.
Fyrir trú skiljum vér, að heimarnir eru gjörðir með Orði Guðs og að hið sýnilega hefur ekki orðið til af því, er séð varð.
En án trúar er ógerlegt að þóknast Guði, því að sá, sem gengur fram fyrir Hann, verður að trúa því, að Hann sé til, og að Hann umbuni þeim, er Hans leita.
Fyrir trú fékk Nói bendingu um það, sem enn þá var ekki auðið að sjá. Hann óttaðist Guð og smíðaði örk til björgunar heimilisfólki sínu. Með trú sinni dæmdi hann heiminn og varð erfingi réttlætisins af trúnni.
Fyrir trú hlýddi Abraham, er hann var kallaður, og fór burt til staðar (Ísraels), sem hann átti að fá til eignar. (Hebr. 11:1-3; 6-8).
Guðmundur Örn Ragnarsson, 8.6.2025 kl. 23:36
Ég hafði mína hreinu barnatrú og er enn í Þjóðkirkjunni en hef mínar ástæður til að leita á náðir annarra trúarbragða.
Til dæmis amma. Ég var 15 ára þegar hún dó. Að Guð hefði tekið hana frá mér var ekki alveg hægt að telja ómögulegt.
Auk þess fór ég að hlusta mikið á Sverri Stormsker með Stormskersguðspjöllum. Ekki boðaði hann kristna trú.
Síðan er það hún mamma. Hún er mjög kristin og frelsuð en samt á hún við vandamál að glíma og til dæmis heilsuleysi meira með hækkandi aldri.
Ég leita að öðrum svörum. Getur verið að þetta sé flóknara og fleiri guðir séu til?
En þín trú minnir mig á trú ömmu minnar, Sigríðar. Hennar vegna fer ég ekki úr Þjóðkirkjunni. Hún sýndi fullkominn kærleika og ótrúlega góð kona.
Ég þakka þér fyrir þína góðu pistla og athugasemdir.
Aðeins þegar og ef ég get ýtt ákveðnum efasemdum frá fer ég að trúa eins og þú.
Ég hitti Auði Eir, konuna sem byrjaði með Kvennakirkjuna og var fyrsta konan til að fá vígslu. Á henni var að skilja að ég væri alveg eins syndugur og hún.
Ég féllst á það.
Ég kann að meta þig og þín skrif en get ekki enn verið sammála öllu.
Ingólfur Sigurðsson, 10.6.2025 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.