50 ára afmæli Lítilla kassa og Þokkabótar fagnað í gær, vonandi að sú hljómsveit sé ekki alveg hætt

Hljómsveitin Þokkabót var með 50 ára afmælistónleika í Salnum í gær. Reyndar voru þetta endurteknir tónleikar vegna mikillar aðsóknar. Skemmst er frá því að segja að allir skemmtu sér vel og þetta voru mjög vel heppnaðir tónleikar.

Aldrei hafði ég séð þessa landsfrægu hljómsveit á tónleikum, en það var vel þess virði og þeir hafa engu gleymt og flestir eru á lífi, nema Karl Sighvatsson og Leifur Hauksson sem léku á plötunni Fráfærur 1976.

Fráfærur er sá tími þegar lömb eru skilin frá mæðrum sínum, áður en mjólkin er nytjuð. Þar sem platan er ádeila á NATÓ og herinn gæti verið að nafnið sé vísun í þörfina á að venja landsmenn af hernum og slíkri fíkn sem fylgir auði að utan umfram einfalt sveitalíf.

Þeir léku lög af öllum plötum sínum.

Tvö lög fannst mér standa uppúr og fékk ég gæsahúð af þeim.

Sveinbjörn Egilsson og Utan hringsins.

Ég vissi ekki að Leifur Hauksson útvarpsmaður hefði samið lagið við Utan hringsins, en ljóðið er eftir Stein Steinarr, út Tímanum og vatninu.

Ég dáist mjög að þessu lagi og allri plötunni þeirra, Fráfærur, frá 1976, sem er áróður gegn NATÓ og hernum að miklu leyti, bókaforlagið Mál og Menning fékk þá til þess, enda voru vinstrisinnar þar við völd og eru sennilega enn.

Lagið Utan hringsins er snilld, og það eitt og sér finnst mér sýna og sanna að Leifur Hauksson útvarpsmaður var ekki aðeins venjulegur tónlistarmaður á við hvern sem er, heldur tónskáld á borð við Mozart og Beethoven, en við Íslendingar erum fámennir og hann eyddi starfskröftum sínum í annað en tónsmíðar það sem eftir var ævinnar, og varð frægur útvarpsmaður, sem var auðvitað gott einnig.

Það er mikil tónlist í bók Steins Steinarss sem heitir Tíminn og vatnið. Hann lýsti því að hann hafi hugsað sér hana sem ljóð við ballett. Formið er knappt og tónlist í öllum textanum.

En eins og kom fram á tónleikunum í Salnum í gær þá bætti Leifur Hauksson ýmsu við þennan ballettmiðaða texta Steins Steinarr, og ljóð. Mismunandi takttegundir takast á í þessu stutta lagi, og hrynurinn fellur á ómstríðan hátt sem myndar bylgjuhreyfingar tóna sem bæði vega hver aðra upp og vinna hver gegn annarri. Þetta er gert með því að gítarar einn eða tveir eru í sérstökum takti, bassinn í örlítið öðrum takti, en hrynur í píanói og trommum í átökum innbyrðis.

Aðeins tónlistarmaður sem sjálfur hefur fengizt við fagið skynjar þessa snilld og hversu erfitt þetta er, að byggja upp svona stutta tónsmíð svo vel fari. Það tókst Leifi Haukssyni fullkomlega 25 ára.

Auk þess hefur Leifur Hauksson verið snjall og fær gítarleikari, því sjaldgæf grip eru notuð í laginu og plokk sem er úthugsað og miðað eins og í klassískum gítarleik að ákveðnum hughrifum sem eru fíngerð og ekki notuð í rokki eða poppi svo mikið, heldur klassískri tónlist frekar.

Mér finnst að öll lögin eftir Þokkabót þurfi að koma út með nótum og textum, svo tónlistarmenn og hver sem er geti æft sig á þessum góðu lögum, og tekið þau. Þeir fengju STEF gjöld fyrir sem bjuggu til þessi góðu lög.

Ég náði því ekki alveg hvort Halldór eða Ingólfur samdi lagið við ljóð Þórarins Eldjárn, Sveinbjörn Egilsson, en það lag finnst mér snilld og passa mjög vel við ljóðið. Ég man að skáldið, Þórarinn Eldjárn, sagði þó að sér fyndist það ekki passa við ljóðið á Rás 2 í viðtali þegar ég var unglingur, kannski 1984 eða eitthvað um það bil.

En það fór um mig gæsahúð þegar ég hlustaði á þá flytja þetta lag um Sveinbjörn Egilsson. Ég fór nefnilega að hugsa um guðinn almáttuga Taranis og Taranissúlurnar og allar stangirnar sem við hann eru kenndar. Mikil menning hefur sprottið af þeim og mikil saga.

Ekki er vitað hversu lengi Taranis hefur verið tignaður, en 600 fyrir Krist voru Keltar og Gaulverjar á sigurbraut í Evrópu, sem Rómverjar bundu enda á, því miður, og Júlíus Sesar alveg sérstaklega, og var þeim næstum útrýmt, þeir innlimuðust í rómverska heimsveldið raunar, og urðu skattland Rómar, Róm mergsaug Gallíu og þrælkaði, og lét latínuna ganga yfir Frakkland og önnur lönd sem áður tilheyrðu Gallíu.

En Sveinbjörn Egilsson hefur kannski haft eitthvað hugboð um þetta, þótt guða Gaulverja sé hvergi getið í mannkynssögunni opinberu, aðeins í sérstökum bókum um þeirra menningu og trúarbrögð, sem ekki eru jafn fræg og rómversk trúarbrögð og grísk, sem skyld verða að teljast.

Sveinbjörn Egilsson var nefnilega frægur stangastökkvari, en af nauðsyn, til að losna við mýrar á leið sinni til kennslu. Um það fjallar kvæðið Sveinbjörn Egilsson. "Þá var öldin önnur er Sveinbjörn stökk á stöng, þá var ei til Bessastaða leiðin löng."

Hversu miklu meira felst í þessum línum en einmitt þetta!

Faðir skáldsins var forseti og bjó á Bessastöðum um þessar mundir, þegar kvæðið var saman sett, Kristján Eldjárn.

"Þá var ei til Bessastaða leiðin löng." Þetta finnst mér þýða kannski að enginn forseti ríkti í landinu og engin innlend yfirstétt af nákvæmlega því tagi, aðeins erlend.

Sá fyrsti sem stökk á stöng var kannski Taranis, guðinn mikli, sem er sá sami og Júpíter og Zeus myndu sumir segja.

Nema þekkt er að Keltar voru lítið fyrir yfirstéttir. Þeirra menning var að ýmsu leyti lýðræðisleg, þótt drúíðar hafi verið yfirstétt. En eins og Tacitus skrifaði í Germaníu þá var mikil tilhneiging til lýðræðisástar í hinni heiðnu Evrópu fyrr á tímum.

En heimsósóminn í Sveinbirni Egilssyni sem fékk mér gæsahúð ljúfa á tónleikunum í gær hann sendi mig beint 3000 ár aftur í tímann til hinnar hundheiðnu Evrópu Keltanna.

Ég fór að hugsa um hinn mikla guð Taranis og hversu ólíkur hann var lýðræðiselskandi eðli Kelta og Gaulverja. Ég fór að hugsa um það hversu máttugur guð hann er ennþá og var, að vera tignaður á þann hátt sem raun ber vitni.

Taranis er sá guð Kelta sem helzt mætti kalla einræðisherra eins og Jahve gyðinganna, eða Júpíter Rómverjanna og Zeus Grikkjanna. Taranis er faðir guðanna. Einnig er hann kvennabósi, sem jafnvel nauðgar konum og mennskum konum. Þetta vantar alveg í okkar menningu, virðingu fyrir svona kyntröllum og guðum sem drottna yfir öðrum og hafa leyfi til þess sem æðstu guðirnir.

Taranis á það sammerkt með Óðni að beita klækjum og öllum brögðum til að fá sitt fram, göldrum meðal annars. Hann er samt ekki hataður heldur elskaður, þetta er hluti af persónutöfrum hans.

Það er kannski vegna óttans sem fólk bar til hans. Allir meginguðirnir þrír voru taldir skelfilegir, Esus, Taranis og Toutatis. Refsingar voru hluti af þeirra starfslýsingu.

Taranis var sá guð sem hélt uppi lögum og reglum innan keltneskra samfélagi. Því miður voru ekki nógu margir sem tignuðu hann. Það sést á því að sigur Rómverja byggðist á því að Gallar voru ekki skipulagðir í heild, og lutu ekki slíkum aga og Rómverjar, og því fór sem fór.

Enda var það svo að Gallar voru fjölmennir og tignuðu marga guði og gyðjur og miðstýring í trúarefnum var ekki til staðar. Jafnvel var það svo að sami guðinn var tignaður með misjöfnum hætti.

Glæsileiki Taranosar var samt meiri en glæsileiki Júpíters, finnst mér. Hlutverk Taranosar var afmarkaðra að sumu leyti. Sem þrumuguð var hann ægilegri á stöng sinni eða súlu, efst á heimstrénu eins og Heimdallur, sá ægilegi guð Taranis sér allt og heyrir allt og refsar fólki fyrir misgjörðir.

Þá var öldin önnur og betri. Þá laut fólkið trúarbrögðum sem ekki var búið að eyðileggja og úrkynja. Heiðnin var betri, sú keltneska, til dæmis, en kristnin.


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 54
  • Sl. sólarhring: 93
  • Sl. viku: 762
  • Frá upphafi: 148228

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 640
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband