Að þessu sinni vil ég fjalla um mörg mál. Fyrst vil ég segja að Guðrún formaður Sjálfstæðisflokksins stóð sig vel í Kastljósinu í gær. Um er að ræða Oscar Boganegra og múgæsinginn í kringum hann. Guðrún tók það skýrt fram að þetta er annað en það sem hún lenti í, að snúa við ákvörðuninni um fatlaða drenginn, sem var henni á móti skapi. Bjarni Benediktsson var vanur að tala mjúklega og loðinn í kringum hlutina, þótt stundum hafi hann tekið sterkt til orða. Þarna kom það skýrt fram að Guðrún minnir meira á Sigríði Andersen.
Margir tala um mannúð og mildi í svona málum. Ég hef hingað til ekki skrifað mikið um þetta í pistlum. Ég skil nefnilega líka mannúðina og mannúðarsjónarmiðin, þetta fellur undir það sem ég er hlynntur, að taka vel á móti fáum, ekki illa á móti alltof mörgum. En alltaf er þetta spurning um hvar línan er dregin, hvenær nóg er nóg og hvenær eitthvað er réttlætanlegt eða ekki.
En úr því að ég heyrði Guðrúnu tala svona skýrt um þetta í Kastljósinu, þá fagna ég og hrósa henni, því eiginlega allir aðrir flokkar eru á samúðarlínunni, og þótt þau sjónarhorni þurfi að heyrast, mega hin ekki gleymast, sem Guðrún talaði um, og Miðflokksmenn hafa gert.
Ég hef einmitt fjallað um það stundum í mínum pistlum að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að fara nær Repúblikanaflokknum í Bandaríkjunum undir forystu Donalds Trump, því þannig er tízkan og tíðarandinn í heiminum í dag, að hægrið sæki í rætur sínar og verði harðara í þessum efnum, jafnvel kristilegum harðlínuefnum líka.
Guðrún svarar þessu ákalli, þótt hóflega sé ennþá.
Guðrún talaði vel í gær, skýrt og sterkt. Víðir vitnaði í yfir 70 ára gömul lög sem leyfa þessi inngrip og leyfa alþingismönnum þessar sérmeðferðir.
Þá spyr maður sig, í ljósi þess að Svandís í Vinstri grænum hróflaði við lögum sem sátt voru um í sambandi við fóstureyðingar, sem voru mun yngri en þessu, hvort hægrimenn vilji ekki breyta þessum lögum og jafnvel Stjórnarskránni, ef það þarf til að herða löggjöfina á þessum sviðum?
Nei, hætt er við að vinstrimenn geti hreyft lögin í ranga átt ef slík umræða kemur upp, eins og þeim er von og vísa.
Þessi bloggpistill minn er festur við frétt um lokun nyrstu mosku í heimi, þar sem einnig það er lítil en áhugaverð frétt.
Hvort sem ástæðan er vegna þess að byggingin er orðin ónýt eða Isavia er ekki hrifið af bænahaldinu þar inni þá verður að taka þetta sem dæmi um þróun sem ekki eru allir hrifnir af, og hvernig innfæddir Íslendingar missa tökin á sínum eignum og lífi meira og minna. Þetta er tengt því sem Guðrún talaði um.
Áslaug Arna og slíkt fólk hefur komið því til leiðar að svona vesen og leiðindi verða til. Með of mörgu fólki af erlendum uppruna koma upp svona atvik og menning okkar breytist, sem engin þörf var á.
Í nafni heimskulegs frelsis gerir hún þetta og í nafni heimskulegs umburðarlyndis. Það er bara komið nóg af enskumælandi fólki á þessu landi með sínar siði og venjur, sem er yfirgnæfandi áberandi.
Slíkt átti að gerast hægt og rólega þannig að allir samlöguðust okkar máli og menningu, en það er allt annað sem hefur gerzt. Við erum að missa okkar sérkenni, og búið var að vara við því fyrir löngu.
Að lokum, þriðja málið sem ég vil fjalla um í þessum pistli kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Ásgeir seðlabankastjór kom með mjög góða tillögu sem ég vil taka undir fullkomlega. Hann sagði að hver einasti Íslendingur ætti að eiga geymda heima hjá sér seðla sem dygðu í eina viku til að kaupa nauðsynjar úti í búð.
Þetta er einmitt rétt.
Þetta er eitt af því alvarlega sem steðjar að, hætta, vegna heimskulegrar tæknivæðingar og kortanotkunar á Vesturlöndum sem er ALGJÖRLEGA óhóflega og fáránleg!
Á meðan seðlar eru á undanhaldi eru orð Ásgeirs FRÁBÆR og RÉTT!
Hann talaði um tölvuárásir, og það er nóg, en margt getur komið fyrir sem eyðileggur aðgang að heimabönkum eða starfsemi þessa kerfis sem allir reiða sig á.
Þegar bankar hætta næstum að verða til og allt er komið á Netið, ÞÁ ER VOÐINN VÍS! Öll egg í sömu körfu, sem er erlend að auki, við Íslendingar þurfum okkar eigin gervitungl eða aðgang að slíku sjálfstæðu kerfi eins og aðrar þjóðir, til að tryggja betur að rafræn þjónusta falli ekki niður ef eitthvað ógurlegt gerist í öðrum löndum sem hindrar þessi kerfi.
![]() |
Isavia lokar nyrstu mosku í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 42
- Sl. sólarhring: 115
- Sl. viku: 750
- Frá upphafi: 148216
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 631
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Því miður Ingólfur, ég held að Guðrún sé enginn leiðtogi þótt hún sé formaður. Kristrún hjá Samfylkingunni má eiga það að hún getur smalað kattahjörð og því telst hún vera leiðtogi. Inga hjá FF sem er eldhús flokkur! Breski Íhaldsflokkurinn er höfuðlaus og stefnir fram hvert "nobody" á fætur öðru og fylgishrun í samræmi við það. Farage er t.d. alvöru leiðtogi og hann verður næsti forsætisráðherra Breta að óbreyttu.
Birgir Loftsson, 5.6.2025 kl. 17:37
Mikið til í því Birgir. Hún hefur verið atkvæðalítil hingað til. Maður verður þó að vona að þetta sé vísir að betri tímum hjá Sjálfstæðisflokknum. Gunnar Rögnvaldsson bloggari líkti henni við Geir Hallgrímsson og hefur trú á henni.
Allavega hún hefur sýnt að hún er kjörkuð og skynsöm umfram marga aðra.
Takk fyrir innlitið og beztu kveðjur. Já, kannski verður ekkert meira úr þessu hjá henni, en vonandi samt.
Ingólfur Sigurðsson, 5.6.2025 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning