"Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum", er fyrirsögn á frétt á Vísi frá 27. maí á þessu ári, nýleg frétt (4 daga frétt) og var mikið lesin, miðað við að hún var ofarlega í bunkanum þeirra í allavega tvo daga um það bil.
Gestur Pálmason markþjálfi og fyrrverandi lögreglumaður er í viðtali þarna og lýsir þessu svona.
Nú er það svo að Þorbjörg dómsmálaráðherra þykist hafa skilning á þessum vanda, en hvaða manneskja kemur í embætti Úlfars? Mun sú manneskja standa sig eins vel og hann?
Margir eru mjög ósáttir við að Úlfar fór annað, og kannski var það bara til að losna við einn einn karlmanninn og fá enn eina konuna í staðinn, sem auðvitað stendur sig verr, miðað við að allar konur hafa staðið sig ÖMURLEGA í stjórnmálum, nema Sigríður Á. Andersen, og örfáar í Framsókn kannski sem hafa staðið sig bærilega eða jafnvel nokkuð vel og svo í Miðflokknum. Flestar konur í Sjálfstæðisflokknum hafa það eina erindi að selja þann flokk á útsölu og eyðileggja hann, leggja hann niður og láta hann ganga í Samfylkinguna eða Vinstri græna!
Viðtalið í Vísi er mjög gott við Gest Pálmason.
Að því sögðu, úr því að jafnvel draumórafólkið í Viðreisn og Samfylkingunni er farið að nálgast Miðflokkinn í orði kveðnu, þá getur vel verið að ákvarðanir verði ekki lengur ömurlegar, heldur nett lélegar í framtíðinni, og svo kannski bærilega umdeildar, þegar ástandið verður orðið enn verra í ofbeldismálum þjóðarinnar, og auðvitað þrætt fyrir að það sé fjölmenningu að kenna af þeim sem trúa á hana og vinstristefnu eða miðjustefnu eða kratisma.
Mér finnst í rauninni þreytandi og pirrandi að vera nöldrandi neikvæðisseggur, en þegar aðrir sinna því ekki tek ég á mig slík skítverk.
Vandinn er sá að Viðreisn er ekki þjóðlegur flokkur. Hann er yfirlýstur ESB flokkur og talsvert í ætt við Pírata og Sósíalista sem eru mjög mengaðir flokkar af óraunsæjum firrum og dillum um að fjölmenning skapi engin vandamál.
Vel má vera að Viðreisn sé lengra frá þjóðernisíhaldinu sem Sjálfstæðisflokkurinn var og Framsókn, en úr því að það er komin samstaða um að þessi mál séu í ólestri og klúðri meðal þjóðarinnar þá verður Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra að tækla þetta þannig að sómi verði að. Annars missir hún bara vinsældir, hverjar sem hennar skoðanir eru.
Ég hef hlustað á hana tala og ég las pistlana hennar oft í Fréttablaðinu, og ég veit af þessu sem hún hefur sagt og skrifað að hún vill taka tillit til margra skoðana. Það lýsir fágætri stjórnvizku miðað við hennar kyn, sem oft sýnir skammsýni, einsýni og þröngsýni. Og þó er hún í afleitum flokki.
Úlfar Lúðvíksson var bæði virtur og dáður fyrir störf sín. Til að afsaka fasíska og femíníska stjórnarhætti eru nú sumir tilbúnir að ata hann auri og kalla hann geðstirðan, eins og í DV pistli. Það er hugleysi af verstu gerð og meðvirkni með stórhættulegum konum sem komizt hafa til valda á þessu landi.
Aðalpunkturinn sem ég vil koma að er þessi:
Góðir foreldrar þora að gera sig óvinsæla til að kenna börnum rangt og rétt og sýna þeim aga.
Það nákvæmlega sama á við um góða embættismenn og stjórnmálamenn.
Karlar og konur sem ætla að geðjast öllum eru ÓHÆF til að stjórna. Það er STJÓRNLEYSI. ANARKISMI ER UNDANFARI EINRÆÐIS OFT! Athugum það, það er kennsla sögunnar.
![]() |
#78. - Kallar eftir afsögn ríkislögreglustjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 27
- Sl. sólarhring: 83
- Sl. viku: 760
- Frá upphafi: 147610
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 581
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning