30.5.2025 | 02:06
Konur halda áfram hryðjuverkum og niðurrifi unz ekkert er eftir
Snemma dags í gær ætlaði ég að segja mig úr Þjóðkirkjunni loksins, en svo nennti ég því ekki. Ástæðan fyrir þessari mjög svo knýjandi þörf að segja mig úr Þjóðkirkjunni var að í gær var í Digraneskirkju fjallað um einhverja bók sem er í smíðum fyrir presta þar sem reynt er að gera kvenkyns guð meira áberandi. Kvennakirkjan hefur að mér skilizt fengið rými innan Þjóðkirkjunnar, en verið þó olnbogabarn, fyrr en nú með með kvenkyns biskupum.
Góður vinur minn er frábær íslenzkumaður og hann fer yfir málfar oft á bókum eða bæklingum innan kirkjunnar. Hann er að fara yfir þetta handrit.
Þetta er ekki í fréttum almennt, en ég veit þetta því ég þekki eitthvað til um þetta. Mér skilst að íhaldssamt fólk innan Þjóðkirkjunnar sé að reyna að hindra þetta, en verði ekki nóg ágengt. Það er valdabarátta innan kirkjunnar eins og sést á biskupskjörum nýlegum, þar sem konur hafa orðið biskupar sem eru lengst í hinseginstuðningsáttina og kvennaguðfræðiáttina, sem hefur valdið ómældri gremju og reiði meðal þeirra íhaldssamari innan kirkjunnar og utan hennar jafnvel líka.
Mér var boðið að mæta á þennan fund í gær því fólk vildi að ég tjáði mig og styddi þá íhaldssamari, en ég tók dræmt í það, vegna þess að ég sagði að þetta yrði ekki stöðvað ef sjálf biskupan stæði á bakvið þetta sem mér skildist að væri raunin.
Þó var ég alveg til í að tala og tjá mig um þetta ef vinur minn hefði mætt, en hann tók ennþá dræmar í þetta en ég, til að rugga engum bátum.
Síðan fór ég á Bókasafnið í Kópavogi og þar hitti ég Votta Jehóva sem að venju létu mig fá bæklinga og spjölluðu við mig. Ég sagði þeim frá þessu og ánægjulegt að segja frá því að þau voru öll sammála mér um að Þjóðkirkjan væri á villigötum með kvenbiskup sem styður heiminn og mannréttindi Satans, eins og var skilningur þeirra.
Fólkið frá Vottum Jehóva sagði að fréttirnar um kvennakirkjudaðrið væri einmitt sönnun og staðfesting á mikilvægi þeirra sjálfra og annarra sértrúarsafnaða þar sem enn væri fólk andsnúið svona guðlasti.
Kvenkyns guð innan kristinnar eða gyðinglegrar kirkju er marklaust fyrirbæri og það geta allir sagt sér sjálfir. Það er gyðja, því kvenkyns guð er gyðja samkvæmt íslenzkri skilgreiningu og alþjóðlegri, "goddess instead of a god."
Það vill nú þannig til að kynferði Jehóva, eins og þau kusu að orða þetta, en ekki Jahve, það er óvenju vel skjalfest og tryggt í sögunni, í bókum, myndum og styttum.
Þó tek ég það fram að þau töluðu mikið um að skurðgoð og myndir af Guði væru ekki þóknanlegar honum.
Theos á grísku er með karlkynsendingunni -os þannig að þetta fer nákvæmlega ekkert á milli mála.
Auk þess er hefðin öll á þennan veg.
Hinsvegar átti Baal konu, Asheru, og ég ræddi um þetta við þau. Sumir fræðingar telja að Jahve hafi einnig átt þessa sömu konu, Asheru, en hún hafi verið látin hverfa af rabbínum og valdhöfum Hebrea eftir herleiðinguna, þegar trúin og sjálfsmyndin var í kreppu hjá þeim. En þau vildu ekki kannast við þessar fræðilegu kenningar um að Jahvedýrkunin hafi sprottið uppúr Baaldýrkuninni heldur sögðu þau að Guð hefði opinberað sig.
En þau voru öll mjög hörð á því og sammála að annaðhvort er Guð kynlaus andi eða karlkyns, en alls ekki kvenkyns, það er guðlast.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.5.): 16
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 674
- Frá upphafi: 147482
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 513
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er dýrkun á Astarte.
Guðjón E. Hreinberg, 30.5.2025 kl. 03:07
Ja það er ein leið til að útskýra. Hún er stríðsgyðja en miklu fleira. Baphomet, myndi gizka á hann ekki síður. Tvíkynja vera.
Ingólfur Sigurðsson, 30.5.2025 kl. 03:41
Þjóðkirkjan virðist á svipaðri vegferð og Bændasamtökin með íslenska lambakjötið, reyna allt til að þóknast þeim sem ekki hafa lyst á lambakjöti, slátra lömbum eins og kjúklingum og skera frá það besta, -fylgjendur flæmdir frá, boðorð jafnvel lögð niður.
Hvað Þjóðkirkjuna varðar þá hefur mér ekki ennþá komið til hugar að segja mig úr henni, af þeirri einföldu ástæðu að mér hugnast ekki að setja aðstandendur í þá erfiðu aðstöðu að eiga í vandræðum með að hola mér niður þegar þar að kemur.
Mun sennilega tilheyra Þjóðkirkjunni á meðan orgelið er í lagi.
Magnús Sigurðsson, 30.5.2025 kl. 06:09
Já takk fyrir innlitið Magnús. Það er líka þetta með hneykslunina, að láta hana stjórna gerðum sínum. Ég hef gagnrýnt það og vil því ekki vera þannig sjálfur að láta hneykslunina stjórna mér. En ef trúfélag mun heilla mig meira en kærleikurinn sem ég fékk hjá ömmu og afa í æsku, þá myndi ég segja mig úr Þjóðkirkunni, til að það trúfélag fái peningana sem fylgja slíkri skráningu. En eins og stendur þá met ég meira ömmu og afa og það sem þau stóðu fyrir. Auk þess ef maður er trúaður, þá er það verst fyrir fólkið sem fer afvega og leiðir aðra í villu. Nú get ég ekki verið viss, en manni finnst það, og maður tekur undir með Vottum Jehóva, til dæmis, þetta virðist alveg passa við það sem stendur í Biblíunni.
Annars held ég að maður þurfi ekki að hafa áhyggjur af því hvort maður fái að komast í vígða mold með ættingjum ef maður gerist opinber afneitari, mér skilst að prestar þjóðkirkjunnar jarði alla jafnt yfirleitt.
Svo hef ég líka verið að pæla í þessu, er maður að afneita Satanskirkju kvennanna eða því sem maður trúir enn á ef maður segir sig úr Þjóðkirkjunni?
Já ég er tryggur að vissu leyti.
Beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 30.5.2025 kl. 20:25
Og svo nenntirðu því ekki – sem ég get reyndar alveg skilið og í því framhaldi varðandi biskupinn og alla kvenprestana:
Líkt og allar woke bull öfgarnar virðast búnar að toppa, þökk sé Trump og hans fólki, þá er þetta hálfrar aldar femínista öfga ofstæki er bókstaflega alveg að verða ágætt.
Auðvitað á að ríkja jafnrétti á öllum sviðum, en konur eru kvenkyns með öllum þeirra gæðum og göllum og sama gildir um okkur karlana og þannig er það og verður ætíð.
Það er að verða hefð fyrir að velja í allar stöður og embætti eftir tegund kynfæra, eins og blasir við þegar litið er yfir sviðið og hvergi eins áberandi eins og einmitt hér á Íslandi.
En það er ekki bara í öllu því opinbera og sögu- jafnvel Biblíu hliðrunum sem þessar óumdeilanlega öflugu skvísur vilja ná ægivaldi yfir, heldur er nú ætlast til að við strákarnir sýnum stúlkum í hefðbundnu karla-íþróttum sambærilegan áhuga, þó enn séu áhorfendabekkirnir hjá þeim oftast heldur tómlegir, einfaldlega vegna þess að konurnar sjálfar hafa greinilega ekki áhuga á að mæta.
Svona gæti ég haldið áfram, en hlægilegu undantekningarnar á fyrrnefndum dæmum eru þær nafngiftir sem þær vilja halda, eru t.d. ráðherrar og stjórar og þegar að íþróttum kemur, þá hala þær dauðahaldi í huglægar keppnisíþróttir á borð við t.d. skák og bridge, sem mér finnst að ætti að vera fyrir neðan virðingu þeirra, miðað við sjálfa hugsjónina.
Jónatan Karlsson, 30.5.2025 kl. 23:17
Sæll Jónatan, þú kemur inná margt í þinni athugasemd.
Já með þetta að ég nennti ekki niður á Hagstofu (ég held að maður skipti um trúfélag þar), það er vegna þess að ég hef lengi verið að velta þessu fyrir mér að skipta um trúfélag en ekki alveg stigið skrefið. Ég er mikill áhugamaður um Ásatrú, en ég þekki bara ekki eins marga þar náið og innan kristninnar. Þó hef ég verið tvístígandi með þetta í mörg ár og næstum því verið farinn að skrá mig úr hrærigrautakirkjunni, jafnvel í Votta, eða Ásatrú eða eitthvað.
Já með wókið, það er mikið bull, en það er kærkomið hundsroð til að bíta sig fast í, og réttlæta ákveðna kreddutrú kommúnismans.
Með að jafnréttið eigi að ríkja á öllum sviðum, ég var nú mjög snemma farinn að efast um það, og með aldrinum hef ég alltaf orðið harðari á því að konunnar staður sé inni á heimilinu og hvergi annarsstaðsr. Ég er sennilega einn sá harðasti á þessu á Íslandi að minnsta kosti. Ég vil banna konum að mennta sig og vinna úti - þvert yfir alla línuna. Ég er semsagt hlynntur stefnu Talíbana hvað þetta varðar og finnst þeir vera hollasta fyrirmyndin í samskiptum kynjanna.
Þetta má réttlæta á margan hátt. Í fyrsta lagi vegna lækkandi fæðingartíðni. Í öðru lagi vegna þess að femínismi er ekki til frekar en kommúnismi í reynd, aðeins á blaði sem falleg hugsjón, en í reynd skiptast konur alltaf í tvo hópa: Valdasjúkar konur sem eru jafnvel ósvífnari en karlar í valdagræðginni, eins og núverandi herfur en ekki skvísur í stjórnmálum, og svo þær sem eru undirgefnar.
En það er vissulega alveg rétt hjá þér að það er verið að velja í stöður eftir kynfærum, og kvenkyns kynfærin eru tekin framyfir, ekki vitsmunir, ekki reynsla, ekki það sem viðkomandi segir og gerir.
Þetta er einskonar hefnd; því vissulega var þetta alveg öfugt öldum saman.
Já með íþróttirnar, já vissulega fylgir það með. Það kemur mér nú mest á óvart hvað konur geta verið sterkar í kraftlyftingum og fleiru. Nokkuð sem ég trúði ekki áður.
Þér að segja, þetta er eitt af þessum sviðum sem ég viðurkenni styrk kvenna, að þær geta haft líkamlega krafta á við karlmenn.
Hvað vitsmunina varðar finnst mér 99% af öllum konum með völd hafa sýnt og sannað að þær eru ÓFÆRAR 100% til að stjórna. Ekki aðeins heimskar, heldur fávitar.
Útlendingamálin eru alveg dæmigerð til að sanna þetta. Það kom í Vísi frétt að lögreglumaður sagði að landamærin væru stjórnlaus. Þó var Úlfar látinn víkja sem hafði reynslu og skilning.
Mér finnst það heldur lélegt að kalla glæpakvendin skvísur sem stjórna landinu. Þær missa allan sinn kynþokka við að stunda ömurleg landráð.
En mér finnst konur standa sig vel í íþróttum. Ef þær ætla að bera ábyrgð þá er algjört lágmark að þær vinni ekki gegn land og þjóð. Ef þær ætla að vera í stjórnmálum þurfa þær að setja sig inní hvað það þýðir, að bera ábyrgð og að gera sig óvinsælan ef það er nauðsynlegt.
Heimskar konur eru stórslys sem hafa völd.
Heimskar konur í íþróttum eru allt í lagi. Þær mega standa sig vel mín vegna. Það er ágætt.
Beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 31.5.2025 kl. 01:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning